Þjóðviljinn - 27.11.1990, Blaðsíða 2
FRETTIR
Suðurland
Konur í efstu sætum
Margrét Frímannsdóttir: Listinn er mjög sterkur. Fimm konur eru í sjö efstu sætunum
Margrét Frímannsdóttir al-
þingismaður varð efst í
seinni umferð forvals Alþýðu-
bandalagsins á Suðurlandi um
helgina. í sjö efstu sætum
flokksins við næstu kosningar
verða flmm konur. Ragnar
Óskarsson Vestmannaeyjum
varð í öðru sæti.
„Ég er mjög ánægð með úr-
slitin og listann sem er mjög
sterkur,“ sagði Margrét. „Konur
hafa verið áberandi i störfúm Al-
þýðubandalagsins á Suðurlandi
og kosningin sýnir að þær njóta
trausts. Það er ekki verið að stilla
upp konum á listann vegna þess
að þær eru konur," sagði hún. En
fjöldi kvenna á listanum hefúr
vakið athygli og sagði Margrét að
það yrði erfitt að rökstyðja sér-
ffamboð kvenna í kjördæminu.
Margrét sagði flokksfélagana
einnig vera stolta yfir því hve
margt ungt fólk væri á listanum
þó þar ættu eldri og reyndari fé-
lagar einnig sína fúlltrúa. „Það er
búið að ganga frá öllum listanum
án nokkura átaka sem sýnir sam-
stöðuna sem hefúr verið í kjör-
dæminu í Iangan tíma og við er-
um ákveðin í að vinna mjög vel í
kosningunum," sagði Margrét.
Anna Kristín Sigurðardóttir
Selfossi varð í þriðja sæti, síðan
Margrét Guðmundsdóttir Vatns-
garðshólum, og þá Elínborg Jóns-
dóttir Þorlákshöfn í fimmta.-gpm
Birting
Vilja sam-
eiginlegan
vettvang
Félagsfundur Birtingar sam-
þykkti á laugardaginn að hefja
undirbúning að kosningunum í
vor með þvi að tilnefna fimm
Birtingarmenn í nefnd sem
starfsháttanefnd miðstjórnar Al-
þýðubandalagsins hafði lagt til að
yrði komið á laggirnar.
Starfsháttanefndin lagði til að
félögin þijú í Reykjavík tilnefndu
hvert fimm menn í nefnd er stæði
að framboðsmálum í kjördæminu.
ABR hafði áður samþykkt að
standa að forvali sem væri opið öll-
um flokksmönnum í Reykjavík.
Þriðja félagið er Æskulýðsfylking-
in.
„Fundurinn ítrekar þá afstöðu
miðstjómar flokksins að ein af
helstu forsendum fyrir trúverðugu
framboði Alþýðubandalagsmanna í
Reykjavík er að það verði undirbú-
ið á sameiginlegum vettvangi þar
sem félögin í Reykjavík starfa sam-
an á jafnrétttisgrundvelli," segir í
ályktun Birtingar.
-gpm
Mikill fjöldi gesta heimsótti Landspltalann á sunnudag og kynnti sér þá starfsemi sem þar fer fram. Landspft-
alinn er 60 ára um þessar mundir og I tilefni þess var opið hús á spltalanum á sunnudag. Mynd R.Ben.
Hollusta
Geislaðir gosdrykkir
Vatnið í drykkjum Vífdfells fer í gegnum útfjólublátt Ijós. Halldór Run-
ólfsson hjá Hollustuvernd: Þetta er skaðlaust. Drykkjarvatn þúsunda Is-
lendinga fær sömu meðferð
Vatn sem notað er í drykki
frá Vífllfelli hf. fer í gegn-
um útfjólublátt Ijós til þess að
drepa bakteríur sem kunna að
vera í því. Þessi meðferð á mat-
vælum er bönnuð sums staðar
erlendis, en leyfð annars staðar,
að því tilskildu að geislunarinn-
ar sé getið á umbúðum. Halldór
Runólfsson hjá Hollustuvernd
ríkisins segir geislunina með
öllu skaðlausa.
Páll G. Jónsson, forstjóri San-
itas, vakti athygli á þessu í viðtali
við DV um helgina. Hann heldur
því þar fram að vatn sem fyrirtæki
hans notar sé aðeins hreinsað með
síum og slíkt hið sama segir Dav-
íð Scheving Thorsteinsson hjá Sól
hf. um fyrirtæki sitt.
Lýður Friðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Vífílfells, segir við
Þjóðviljann að Vífilfell hafi beitt
þessari meðferð á vatn undanfarin
ár. Auk þessa fer vatnið í gegnum
síur.
- Þetta er í raun og veru bara
háfjallasól. Við gerum þetta í ör-
yggisskyni og þessi meðferð er
alls ekki skaðleg nema því lífi
sem kann að vera I vatninu. Það
kemur því miður fyrir að vatnið
hér er ekki nógu gott, segir Lýður
við Þjóðviljann.
Hann segir ekki hafa komið til
tals að geta þess á umbúðum
drykkjarvaranna að vatnið í þeim
hafí farið í gegnum útfjólublátt
ljós, enda gilda engar reglur um
slíkt hérlendis.
Halldór Runólfsson, deildar-
dýralæknir hjá Hollustuvemd rík-
isins, segir að þessi geislameðferð
sé almennt talin ömgg og ekki
skaðleg heilsu manna. Hann
bendir á að drykkjarvatn íbúa
þriggja kaupstaða á landinu fái
sömu meðferð. Það á við Akra-
nes, Seyðisfjörð og Bolungarvík.
Þar sem geislun er bönnuð er
það að sögn Halldórs ekki vegna
þess að aðferðin sé talin skaðleg,
heldur vegna þess að ekki sé hægt
að sannreyna að varan hafi verið
geisluð.
- Alþjóðastofnanir hafa við-
urkennt að geislun af þessu tagi er
skaðlaus, enda hafa verið gerðar
dýratilraunir með þetta í áratugi.
En það hefúr reynst erfltt að koma
fólki í skilning um að geisluð
matvæli em ekki geislavirk á eft-
ir, segir Halldór. -gg
Framsókn
Steingrímur
villnýtt
prófkjör
Framboðsmál Gmðmundar G.
Þórarinssonar, Frfl., em enn í
óvissu en hann ræddi í gær við
formann flokksins Steingrimi
Hermannssyni. „Það kom ffam í
samtali mínu við Steingrím Her-
mannsson að hann hefur lagt til
að prófkjörið verði endurtekið og
þá meðal allra flokksmanna í
Reykjavík," sagði Guðmundur.
Honum fmnst þetta merkileg
tillaga og getur fallist á hana fyrir
sitt leyti enda sé það það sem
hann fari ffarn á í sinni kæm, en
Guðmundur kærði skoðanakönn-
un flokksins þar sem fúlltrúaráðs-
fólk greiddi atkvæði og hann lenti
í öðm sæti á eftir Finni Ingólfs-
syni. _
„Ég lýsti því endanlega yfir
við Steingrím að ég myndi ekki
taka annað sætið á lista Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík,"
sagði Guðmundur og bætti við að
málið væri enn til umfjöllunar hjá
stjóm fúlltrúaráðsins og ekki
tímabært að gefa yfirlýsingar því
hann bæri enn þá von í brjósti sér
að stjóm fúlltrúaráðsins ógilti
skoðanakönnunina. „Ég hef hins-
vegar lýst yfir því að það sé ofar-
lega í mínum huga að bjóða fram
BB í Reykjavík,“ sagði Guð-
mundur en hann vildi ekki tjá sig
um hvort ekki væri líklegt að fúll-
trúaráðið færi eflir því sem for-
maður flokksins legði til. -gpm
Handbolti
Ágætt gegn
Tékkum
Einn íslenskur sigur og tvö
jaffitefli gegn landsliði Tékkó-
slóvakíu verður að teljast ágætur
árangur hjá íslenska landsliðinu,
enda vantaði nokkra af leikreynd-
ustu mönnum liðsins.
Fyrsta leiknum lauk með ís-
lenskum sigri 26 mörkum gegn
22. Leikjunum á laugardag og
sunnudag lauk hinsvegar með
jafntefli, 21-21 og 22-22.
Júlíus Jónasson var marka-
hæstur íslendinganna í leikjunum
með 18 mörk. Konráð Olavsson
kom næstur með 14 mörk og þá
Sigurður Bjamason með 13 mörk.
-Sáf
Dýraverndunarfélög
gegn háhyrningaveiðum
Samband dýravemdunarfé-
laga íslands hefur sent Steingrími
Hermannssyni forsætisráðherra,
Halldóri Asgrímssyni sjávarút-
vegsráðherra og Júlíusi Sólnes
umhverfisráðherra ályktun sem
var samþykkt einróma á ársfúndj
Norræna dýravemdunarráðsins. I
ályktuninni er lýst vanþóknun á
veiðum Islendinga á lifandi há-
hymingum, geymslu þeirra í Sæ-
dýrasafninu í Hafnarfirði og
væntanlegum útflutningi. Dýra-
vemdunarsamtökin em ekki að
mótmæla þessu vegna þess að þáu
haldi að háhymingar séu í útrým-
ingarhættu, heldur vegna dýra-
vemdunarsjónamiða. „Það er sið-
leysi að stuðla að því að villt dýr
séu veidd í þeim tilgangi að gera
úr þeim sirkustrúða,“ segir í bréfi
frá Sambandi dýravemdunarfé-
laga Islands.
Aðalfundur Reykjavík-
urdeildar
Norræna félagsins
Aðalfúndur Reykjavikur-
deildar Norræna félagsins verður
Carl J. Eiríksson náði glæsilegum árangri I Islandsmeistaramóti I riffil-
skotfimi (enskri keppni), sem fram fór 11. nóvember. Hann náði 596 stig-
um af 600 mögulegum, sem er nýtt Islandsmet. Aðeins 4 keppendur
náðu betri árangri í greininni á HM I Moskvu í ágúst sl. Á myndinni eru
þátttakendur í fslandsmeistaramótinu og er Carl fyrstur frá vinstri.
í Norræna húsinu fimmtudaginn
29. nóvember kl. 17. Venjuleg að-
alfundarstörf.
Stofnfundur
Oddafélags
Laugardaginn 1. desember,
fullveldisdaginn, verður Oddafé-
Iag stofnað í Odda á Rangárvöll-
um og hefst fundurinn kl. 14. Það
var í ágúst að Héraðsnefnd Rang-
árvallasýslu ákvað að stefna að
því af alefli að hefja hið foma
fræðasetur Odda á Rangárvöllum
til vegs og virðingar á ný með því
að efla þar smám saman miðstöð
fræða og fræðslu á sviði náttúm-
vísinda og sögu. 28. ágúst komu
svo tveir tugir áhugamanna sam-
an til skrafs og ráðagerða um
framtíð Odda og ákváðu að stofna
Oddafélag, samtaka áhugamanna
um endurreisn fræðaseturs í
Odda. I undirbúningsnefnd em
Ami Bjömsson, Drífa Hjartar-
dóttir, Frank Friðrik Friðriksson,
Jón Þorgilsson, sr. Sváfnir Svein-
bjamarson og Þór Jakbsson, sem
er formaður nefndarinnar. Er
vænst stuðnings margra einstak-
linga og félagasamtaka við hug-
myndina og hefúr Hið íslenska
náttúmfræðifélag ákveðið að
leggja málinu lið og eiga sam-
vinnu við hið verðandi Oddafé-
lag.
Birting
og velferðarkefið
Er velferðarríkið á krossgöt-
um? - til hvers er velferðarkerfið
og fýrir hveija? er yfirskrift opins
fundar sem Birting stendur fyrir
annað kvöld. Málshefjendur
verða Bragi Guðbrandsspn, Hörð-
ur Bergmann, Kristín Á. Ólafs-
dóttir, Einar Karl Haraldsson og
Svanfríður Jónasdóttir. Fundurinn
verður á Komhlöðuloftinu í
Bankastræti og hefst kl. 20.30. Að
loknum inngangserindum máls-
heflenda gefst færi fyrir fyrir-
spumir og skoðanaskipti. Fundur-
inn er öllum opinn.
Karlar og konur
íLaxdælu
Robert Cook, , prófessor í
ensku við Háskóla íslands, flytur
opinberan fyrirlestur í boði Stofú-
unar Sigurðar Nordals, sem nefn-
isat „Men and Women in Laxdæla
saga.“ Fyrirlesturinn er á ensku,
en Cook hefúr skrifað mikið um
íslenskar fombókmenntir og
vinnur nú m.a. að rannsóknum á
íslendingasögum. Fyrirlesturinn
verður á morgun kl. 17.15 í stofú
101 í Odda.
Einfalt varð tvöfalt!
í viðtali við Vigfús Geirdal i
umfjöllun um herstöðvamálið í
síðasta laugardagsblaði urðu þau
hvimleiðu mistök að hluti viðtals-
ins var tvítekinn svo að samhengi
viðtalsins raskaðist. Em lesendur
og Vigfús beðnir afsökunar á
þessu óviljaverki sem henti vegna
tæknilegra mistaka við vinnslu
blaðsins.
Ritstjórn
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 27. nóvember 1990