Þjóðviljinn - 27.11.1990, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 27.11.1990, Blaðsíða 11
I DAG SKÁK Heimsmeistaraeinvígið Snörp byrjun í Frakklandi Einvígi þeirra Kasparovs og Karpovs um heimsmeist- aratitilinn var fram haldið á laugardaginn eftir nokkurt hlé. Nú hefur einvígið verið flutt frá Bandaríkjunum til Frakklands og þar skal tefld- ur síðari hluti þess, skákir 13 til 24. í gamla daga tíðkaðist nokk- uð að tefla á fleiri en einum stað og voru sum hin fyrri heims- meistaraeinvígi tefld í tveim- fjórum borgum. Einhvem veg- inn finnst manni þó eðlilegra að tefla á einum stað í einni rennu, því eftir nærri tveggja vikna hlé má segja að nýtt einvígi sé að byija. Margir þóttust greina þreytumerki á þeim félögum í fyrri hluta viðureignarinnar og verða skákunnendur að vona að þeim hafi aukist styrkur og snerpa í þessu fríi. Þrettánda skákin var býsna snörp um tima þótt skipt hafi verið á drottningum snemma. Karpov fómaði skiptamun en Kasparov varð að gefa hann til baka skömmu síðar. Endataflið tefldu þeir svo fram í bið, en sið- an var samið i biðstöðunni. Hvítt: Karpov Svart: Kasparov Grunfelds vörn 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. c4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Be3 c5 8. Dd2 0-0 9. Hcl Da5 10. RO e6 Ekki veit ég hve oft þeir fé- lagar hafa teflt Griinfelds-vöm- ina, en þetta er í annað sinn sem Kasparov beitir henni í þessu einvígi. Hér breytir hann út af þeirri skák, en þá lék hann 10.... cxd4 og skipti upp í endatafl sem snerist Karpov í hag þótt ekki tækist honum að sigra. I Griinfelds-vöm vegast á sterkt miðborð hvíts (peðin á e4 og d4) og mótfæri svarts gegn því, c5- peðið og sérstaklega áhrif bisk- upsins á g7, en hann nýtur sín vel á löngu skálínunni. 11. d5 exd5 12. exd5 He8 13. Be2 Bf5 14. 0-0 Rd7 Drottningarpeð hvíts er nú orðið frelsingi og gæti reynst skeinuhætt í endatafli. Það tekur nú c6-reitinn af svarta riddaran- um svo svartur verður að eyða mörgum leikjum í að koma hon- um í góða stöðu. Hins vegar hefúr opnast vel fyrir kóngs- biskupi svarts. 15. h3 Rb6 16. g4... Þessi framrás er hættulaus hvítum. Hann hefúr svo góð tök á miðborðinu að svartur getur með engu móti nýtt sér að hvíta kóngsstaðan hefur opnast nokk- uð. Það er eftirtektarvert að hvítreita biskup svarts á orðið fáa reiti og á það eftir að skipta máli í framhaldi skákarinnar. 16.. .. Bd7 17. c4 Dxd2 18. Rxd2 Ra4 Hér kemur meginhugmynd byijunarinnar aftur fram. Svarti kóngsbiskupinn og riddarinn ná saman á c3-reitnum og komast eiginlega afturfyrir miðborð hvíts. 19. Bf3 Rc3 20. Hxc3 ... Ef 20. Bxc5 Re2 (skák) 21. Bxe2 Hxe2 verður riddarinn að hörfa (ef Hdl kemur Ba4) og a- peðið fellur. Svartur hefúr þá betri möguleika. 20.. .. Bxc3 21. Re4... Svartur verður að skila skiptamuninum aftur. Ef t.d. 21. ... Bd4 22. Bxd4 cxd4 23. Rf6 (skák) og Rxd7 hefúr hvítur tvo létta menn fyrir hrók. Ef biskup- inn fer hins vegar til g7 kemur 22. Rxc5 og biskupinn á d7 á engan annan reit en c8. Eftir 22. Rxc5 Bc8 23. d6 Hd8 24. Hdl Bf8 25. Bf4 á svartur enga vöm gegn hótunum hvíts. 21.... Hxe4 22. Bxe4 He8 23. Bd3 b6 24. Kg2 f5 Svona losar svartur um sig og opnar kónginum leið fram á borðið. 25. gxf5 Bxf5 26. Bxf5 gxf5 27. Hdl Kf7 28. Hd3 Bf6 29. Ha3 a5 Hrókatilfærslur hvíts era skemmtilegar. Svartur verður að leika a-peðinu því annars kemur Ha6, peð frá a2-a5 og peðakeðja svarts drottningarmegin splundrast. 30. Hb3 Bd8 31. Hc3 Bc7 32. a4 Kf6 Ef hrókamir væra horfnir stæði hvítur líklega til vinnings því biskup hans er betri en sá svarti. En staða svarts er virkari í augnablikinu og hvítur á í bögglingi með að koma mönn- um sínum í góðar stöður. Hann lcikur næst kónginum í borðið til að aftra svarta hróknum frá að komast þangað. En Kasparov teflir endataflið afar virkt eins og hans er von og vísa. 33. Kfl f4 34. Bcl Kf5 35. Hc2 Hg8 Svartur gefur e-línuna eftir, því hann má ekki fara í hrókaka- up. 36. He2 Be5 37. Bb2 Bd4 38. Bxd4 cxd4 39. He7 d3 Smágildra í tímahrakinu. Svartur hótar nú 40. ... Hgl (skák) 41. Kxgl d2 og peðið rennur upp. 40. Kel Hc8 41. Kd2 Hxc4 Hér fór skákin í bið, en jafntefli var samið án frekari taflmennsku. Eftir 42. Kxd3 (til að taka d4- reitinn af svarta hróknum) Hxa4 43. d6 kemur upp þrátefli. Svartur leikur Hal sem hvitur verður að svara með Kd2 (eða Kc2), en þá kemur afl- ur Ha4 og hvítur verður að leika Kd3 (eða Kc3), því hann má ekki hleypa hróknum svarta á d- línuna. Það er liklega vel við hæfi að sumar skákir þeirra fé- laga endi í þrátefli eða þráskák, því viðureign þeirra er í raun- inni orðin eitt heljar mikið þrátefli. J.T. í dag, þriðjudag á Aðalstöðinni kl. 17-18: Þáttur um barnamenningu. Svavar Gestsson menntamálaráherra stjórnar þættinum og fjallar ma. um barnamenningarátak ráðuneytisins, listahátíð barna og umhverfisfræðslu. ÞJÓÐVILJINN FYRIR 50 ÁRUM Brezkt auðvald gegn fslenzkum verkamönnum. Brezka setuliðið sviptir Islenzkan verkstjóra at- vinnu af pólitískum ástæðum. Al- þýðublaðsmenn hafa rógborið þennan verkamann og tekizt að rægja hann frá vinnu. Grænlands- haf lýst hættusvæði. Fiskimiðum út af Vestfjörðum þar með lokað fyrir íslendingum. Loftvarnaæfing. Tilkynning frá Loftvarnanefnd. Loftvarnanefnd hefur á fundi s(n- um þann 26. þ.m. ákveðiö að loft- varnaæfing skuli haldin laugar- daginn þann 30. þ.m. kl. 11 f.h. með bæjarbúum og öllum þeim aðilum sem vinna ( samþandi við loftvarnir nefndarinnar. 27. nóvember þriðjudagur. 331. dagur ársins. Sólarupprás 1 Reykjavík kl. 10.33 - sólariag kl. 15.57. Viðburðir Friedrich Engels fæddur 1820. Ferðafélag Islands stofnað 1927. Landssamband hjálparsveita skáta stofnað 1971. DAGBÖK APÓTEK Reykjavik: Helgar- og kvöldvarsla lyfjabúöa vikuna 23. til 29. nóvember er í Árbæjar Apóteki og Laugamess Apóteki Fyrmefnda apótekiö er opiö um helgar og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til 9 (til 10 á frídögum). Siöarnefnda apótekiö er opiö á kvöldin kl. 18 til 22 virka daga og á laugardögumkl. 9-22 samhliða hinu fyrmefnda. LOGGAN Reykjavík...............w 1 11 66 Kópavogur...............« 4 12 00 Seltjamames.............« 1 84 55 Hafnarfjörður...........« 5 11 66 Garðabær................« 5 11 66 Akureyri................« 2 32 22 Slökkvflið og sjúkiabðar Reykjavik...............« 1 11 00 Kópavogur...............« 1 11 00 Seltjamames.............« 1 11 00 Hafnarfjörður............« 511 00 Garöabær................« 5 11 00 Akureyri................« 2 22 22 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjarn- arnes og Kópavog er I Heilsuverndar- stöö Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 8, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiönir, simaráöleggingar og timapantanir i « 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfjaþjónustu eru gefnar I simsvara 18888. Borgarspítalinn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eöa ná ekki til hans. Landspitalinn: Göngudeildin eropin frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarsplt- alans er opin allan sólarhringinn, o 696600. Hafnarfjöröur: Dagvakt, Heilsugæsl- an, « 53722. Næturvakt lækna, « 51100. Garöabær: Heilsugæslan Garöafiöt, rr 656066, upplýsingar um vaktlækni «51100. Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á Læknamiðstöðinni,« 22311, hjá Akureyrar Apóteki, « 22445. Nætur- og helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985- 23221 (farsími). Keflavik: Dagvakt, upplýsingar i « 14000. Vestmannaeyjar: Neyöarvakt lækna, « 11966. _ SJUKRAHUS Heimsóknartímar: Landspitalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar- spítalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30, um helgar kl. 15 til 18 oa eftir samkomulagi. Fæöingardeildland- spltalans: Alla daga kl. 15 til 16, feðra- tlmi kl. 19:30 til 20:30. Fæöingar- heimili Reykjavíkur v/Eiríksgötu: Al- mennur tlmi kl. 15-16 alla daga, feöra- gg systkinatimi kl. 20-21 alla daga. Öldrunarlækningadeild Landspltal- ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspitala: Virka daga kl. 16 til 19, um helgar kl. 14 til 19:30. Hellsu- vemdarstöðin viö Barónsstlg: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30. Landakotsspítali: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19. Bamadeild: Heim- sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17 alla daga. St. Jósefs-spitali Hafnar- firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahúsið Húsavik: Alla daga kl. 15 til 16 og 19:30 til 20. ÝMISLEGT Rauða kross húslö: Neyðarathvarf fyrir unglinga, Tjarnargötu 35, « 91-622266, opið allan sólarhringinn. Samtökin 78: Svaraö er ( upplýsinga- og ráðgjafarsima félags lesbía og homma á mánudags- og fimmtudags- kvöldum kl. 21 til 23. Slmsvari á öðrum timum. » 91-28539. Sálfræöistööin: Ráðgjöf (sálfræöi- legum efnum,« 91-687075. Lögfræöiaðstoð Orators, félags laganema, er veitt i sima 91-11012 milli kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum. MS-félagiö, Álandi 13: Opiö virka daga frá kl. 8 til 17, « 91-688620. „Opið hús" fyrir krabbameinssjúk- linga og aöstandendur þeirra f Skóg- arhlíð 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19. Samtök áhugafólks um alnæmis- vandann sem vilja styöja smitaða og sjúka og aöstandendur þeirra í » 91- 22400 og þar er svaraö alla virka daga. Upplýsingar um eyöni: ® 91-622280, beint samband við lækni/hjúkrunar- fræöing á miðvikudögum M. 18 til 19, annars sfmsvari. Samtök um kvennaathvarf: « 91- 21205, húsaskjól og aöstoö viö konur sem beittar hafa veriö ofbeldi eða oröiö fyrir nauögun. Kvennaráögjöfin Hlaövarpanum, Vestur-götu 3: Opiö þriðjudaga kl. 20 til 22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til 22, « 91-21500, slmsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem oröið hafa fyrir sifjaspellum: « 91-21500, simsvari. Vinnuhópur um sifjaspellsmál: « 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17. Stigamót, miöstöö fyrir konur og böm sem oröiö hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi. Ráögjöf, fræðsla, upplýsingar, Vesturgötu 3, « 91-626868 og 91- 626878 allan sólarhringinn. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: « 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt I « 686230. Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt, * 652936. GENGIÐ 26. nóvember 1990 Sala Bandarikjadollar...........54,50000 Sterlingspund..............107,29100 Kanadadollar................47,03300 Dönsk króna..................9,56140 Norsk króna..................9,38930 Sænsk króna..................9,78810 Finnskt mark.................15,27890 Franskur franki..............10,87170 Belgískurfranki.............. 1,77410 Svissneskur franki..........43,13420 Hollenskt gyllini............32,48400 Vesturþýskt mark.............36,63000 Itölsk líra..................0,04885 Austurriskur sch..............5,20810 Portúgaiskur escudo......... 0,41710 Spánskur peseti...............0,57960 Japanskt jen.................0,42540 KROSSGÁTA Lárétt: 1 kjána 4 fals 6 morar 7 dvöl 9 dá 12 bola 14 komist 15 ask- ur 16 málmblanda 19 hróp 20 úrgangur 21 gangir Lóðrétt: 2 þreyta 3 hæna 4 lág 5 gruni 7 reiöi 8 róleg 10 starfar 11 bátur 13 upphaf 17 splri 18 mæli 14 19 ■ e 17 I 21 ■ ’S 18 |2Ö Lausn á síöustu krossgátu: Lárétt: 1 alls 4 gust 6 púl 7 vasi 9 æsir 12 klöpp 14 súr 15 yls 16 espar 19 sekk 20 mjöð 21 kelta Lóörétt: 2 lóa 3 spil 4 glæp 5 sói 7 visast 8 skrekk 10 spyrja 11 rásaði 13 ösp 17 ske 18 amt Þriðjudagur 27. nóvember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.