Þjóðviljinn - 27.11.1990, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 27.11.1990, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 27. nóvember 1990 — 224. tölublað 55. árgangur Skuldir yfir hættumörkum Skuldir Hveragerðis 157prósent af árstekjum. Bœjarstjórn leitar aðstoðar Lánasjóðs sveitarfélaga og boðar harðar aðgerðir ífjármálum. Bœrinn borgar 22 þúsund krónur á íbúa ífjármagnskostnað árlega Skuldir Hveragerðis nema 220 miljónum króna, en árstekjur sveitarfélagsins á þessu ári eru áætlaðar 140 milj- ónir. Þannig eru skuldirnar 157 prósent árstekna, en talið er óæskilegt ef skuldir sveitarfé- lags fara yfir 50 af hundraði árstekna. Fjármagnskostnaður sveitarfélagsins er með þvi hæsta sem þekkist. - Okkur er engin launung á þvi að fjárhagsstaða bæjarins er mjög alvarleg. Það á að skýrast á næstu dögum hvort við fáum fyr- irgreiðslu úr Lánasjóði sveitarfé- laga, en jafnffamt er ljóst að við verðum að grípa til mjög harðra aðgerða á næstu tveimur til þrem- ur árum til þess að ná skuldunum niður, segir Ingibjörg Sigmunds- dóttir, forseti bæjarstjómar í Hveragerði, í samtali við Þjóð- viljann. Greiðslustaða Hveragerðis er mjög slæm og hefúr verið auglýst nauðungaruppboð á bæjarskrif- stofunum og íþróttahúsinu í bæn- um. Harðar aðgerðir í íjármálum bæjarins fela það fyrst og fremst í sér að framkvæmdir verða litlar eða engar. Þá verður að draga saman í rekstri, en að sögn Ingi- bjargar hefur hann verið í lág- marki. Skattlagning í Hveragerði er með því hæsta sem gerist í sveitarfélögum og greiða Hver- gerðingar 7,5 prósent í útsvar. Samkvæmt Árbók sveitarfé- laga 1990 vom rekstrargjöld Kjarasamningar Þjððarsátt áfram Sérstök skoðun á viðskiptakjörum í febrúar og maí n.k. til að taka afstöðu tilþess á hvern veg launafólki verður veitt hlutdeild í bata sem verða kann A laugardaginn var rann út " frestur til að segja upp kjarasamningum atvinnurek- enda og stærstu samtaka launa- fólks. Samkomulag varð, bæði milli Alþýðusambandsins og Vinnuveitendasambandsins annars vegar og BSRB og ríkis- ins hins vegar um að samning- unum yrði ekki sagt upp, og gilda þeir því til 15. september 1991. Laun hækka 1. desember, 1. mars 1991 og 1. júní til að mæta verðhækkunum. Þjóðhagsstofnun áætlar að verðbólga á næsta ári verði rúm- Húnaflói Tveggja sjó- manna saknað Leit að tveimur trillusjó- mönnum var hætt síðdegis í gær eftir að brak, sem talið var full- víst að væri úr trillu þeirra, hafði fundist norður af Vatnsnesi í Húnaþingi. Um hádegisbil á sunnudag barst neyðarkall ffá Jóhannesi HU 127, 4,5 tonna plastbát frá Hvammstanga. í kallinu kom ffam að báturinn væri að sökkva og náðu mennimir ekki að gefa upp staðsetningu bátsins. Leit hófst strax á sunnudag og var ffamhaldið í gær. Þyrla Land- helgisgæslunnar og Fokker flugvél gæslunnar auk 25 báta tóku þátt í leitinni. Þá vom fjörur gengnar á Vatnsnesi, en veður var gott á þessum slóðum. -Sáf lega 7% og reiknar stofnunin með óbreyttu verði á bensíni og því að búvömverð hækki minna en al- mennt verðlag. Þjóðviljinn spurði Asmund Stefánsson hvort rætt hefði verið um á hvaða hátt batnandi við- skiptakjör kynnu að koma launa- fólki til góða. Ásmundur svaraði þvi til að óvissa væri um við- skiptakjörin. Ef olíuverð lækkaði ffá því sem nú er mætti reikna með batnandi viðskiptakjömm þar sem allt benti til þess að fisk- verð færi ekki lækkandi. Menn hefðu hins vegar ekki rætt um hvemig batnandi kjör ættu að koma launafólki til góða, en til þess væru margar leiðir færar. Ásmundur sagðist telja að innan Alþýðusambandsins væri mjög góð samstaða um þessa nið- urstöðu. Ögmundur Jónasson, formað- ur BSRB, sagðist telja samkomu- lagið ásættanlegt. „Við áttum þátt í að skapa þjóðarsáttina og ætlum ekki að ganga ffá henni nú. Við lögðum áherslu á að laga samninginn að breyttum forsendum við þá end- urskoðun sem ffam fór og ég á þá sérstaklega við að horfur í verð- lagsmálum em aðrar og lakari en þegar samningamir vom undirrit- aðir i febrúar. Þess vegna vildum við íjölga rauðum strikum til að veija kaupmáttinn og skapa aðild gagnvart þeim sem stýra verðlagi. Sú áherslubreyting sem gerð var á samningnum, að tvívegis á samningstímanum skuli fara ffam sérstök athugun með tilliti til kaupmáttar og viðskiptakjara, gæti reynst nokkurs virði.“ hágé. Hveragerðisbæjar talsvert um- ffam rekstrartekjur á síðasta ári. Mismunurinn var rúmlega sjö þúsund krónur á íbúa. Til saman- burðar má geta þess að nágranna- sveitarfélagið Selfoss hafði 22.500 krónur á hvem íbúa í rekstrartekjur umfram rekstrar- gjöld. Nettó fjármagnskostnaður er um 22 þúsund krónur á hvem íbúa, sem er með því hæsta sem þekkist. Samkvæmt upplýsingum sem komu fram á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga fyrir helgi er Hvera- gerði í þeim stærðarflokki sveit- arfélaga sem eiga erfiðast upp- dráttar Ijárhagslega. Sveitarfélög með 1000-2500 íbúa hafa minni rekstrarafgang en önnur sveitarfé- lög. Skuldir þeirra em jafnffamt hærri sem hlutfall af tekjum og fjármagnskostnaður þeirra er hærri en annarra sveitarfélaga. -gg Rebbinn I Húsdýragarðinum brást hinn Ijúfasti við þegar Jim Smart Ijósmyndari bað hann að sitja fyrir mynda- töku af vetrartlskunni ( ár.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.