Þjóðviljinn - 29.11.1990, Qupperneq 12
þlÓOVIUINN
Fimmtudagur 29. nóvember 1990 226. tölublað 55. árgangur
... alla daga
ARNARFLUG
INNANLANDS hf.
Reykjavíkurflugvelli - simi 29577
■ SPURNINGIN ■
Hiálparstofnun kirkiunnar
Hvaða munað
leyfir þú þér?
Jón Valur Guömundsson
flatbökumeistari og nemi:
Það er erfitt að segja. Ætli það
sé ekki bara lífið sjálft.
Bryndís Skúladóttir
kennari:
Það er allskonar munaður.
Helst sem flest. Ég leyfi mér að
borða góðan mat. Og gera allt
mögulegt til að gera lífið
skemmtilegt.
Einar Ágústsson
blikksmiðjueigandi:
Ég veit ekki hverju á að svara.
Það er ósköp lítill munaður sem
ég leyfi mér, það er helst kók og
prins póló. Og einstaka sinnum
líka bjór.
Einar Guðlaugsson
verkamaður:
Ég fæ mér einstaka sinnum í
glas. Og fer einstaka sinnum í
leikhús, en aðalmunaðurinn eru
hestar.
RAFRÚN H.F.
Smiöjuvegi 11 E
Alhliða
rafverktakaþjónosta
Simi 641012
Minnt á hungruð börn
í jólaatinu
Árlegri landssöfnun, Brauð handa nungruðum heimi, hleypt af stokkunum á sunnudag. Baukar
sendir inn á næstum hvert heimili í landinu
■ ' ■
I m ^ ' - i
■
yií HiAlPUM yiÐ KJALPUM VIÐ HJAIPUM VID HJAIPUM
MIMÐUOK K,,*< .......................................................-
HJAIPADU ÖKKUR!
HJAlPAöUOKKUR!
HMIP/SBUOKKUR!
VIB HMPUM
Htómouoxmi
Jónas Þórisson, Margrét Heinreksdóttir og Jóhannes Tómasson á fundi sem Hjálparstofnun kirkjunnar hélt
með blaðamönnum I gær. Mynd: Jim Smart.
Hjálparstofnun kirkjunnar
er þessa dagana að undir-
búa árlega jólasöfnun sína:
Brauð handa hungruðum
heimi. 90 þúsund baukar ásamt
gíróseðlum verða sendir inn á
heimili landsmanna á næstu
dögum.
Söfnunin hefst formlega
næsta sunnudag með aðventuhá-
tíð í Hallgrímskirkju, að við-
stöddum forseta Islands, forsætis-
ráðherra og biskupi.
Hjálparstofnun kirkjunnar
minnir á að 40 þúsund böm deyja
daglega vegna næringarskorts og
sjúkdóma um leið og hún hvetur
fólk til að láta eitthvað af hendi
rakna.
Til að kynna söfnunina hélt
Hjálparstofnunin fund með blaða-
mönnum í gær, þar sem Margrét
Heinreksdóttir formaður, Jónas
Þórisson framkvæmdastjóri og
Jóhannes Tómasson ífæðslufúll-
trúi sátu fyrir svörum og gerðu
grein fyrir starfínu sem framund-
an er.
Að sögn þeirra safnast um 80
af hundraði þeirra peninga sem
Hjálparstofnunin fær frá almenn-
ingi á árinu í hinum árlegu jóla-
söfnunum. A síðasta ári hafði
stofnunin úr um 11 miljónum að
moða. Þar af fóru 4 miljónir í inn-
lent hjálparstarf, sem er óvenju-
mikið. En stofnunin gaf 3 miljón-
ir í byggingu íbúðarhúsa við dval-
arheimilið Sólheima í Grímsnesi.
Áhersla á konur og böm
Verkefnin sem styrkja á í vet-
ur eru mörg, má þar nefna 4,5
miljónir til að kosta ffamfæri og
menntun 100 bama á munaðar-
leysingjahæli á Indlandi og 3,5
miljónir sem renna til byggingar
sjúkraskýlis í Suður- Eþíópíu. Þá
ætlar stofnunin einnig að hjálpa
nokkrum konum í fátækrahverfi í
Nairobi í Kenýu að koma undir
sig fótunum. Vandamál í Afríku
er flutningur fólks úr sveitum í
stórborgir, þar sem hvorki er
vinnu né húsnæði að fá. Konur í
fátækrahverfum vinna helst fyrir
sér með vændi og bruggsölu.
Hjálparstofnunin styrkir samtök
sem vinna meðal þessara kvenna
og aðstoðar þær við að sjá sér far-
boða á annan hátt, m.a. með því
að sauma fot.
Það kostar 1000 krónur á
mánuði að fæða, klæða og mennta
munaðarlaust bam á Indlandi, og
leitar stofnunin nú að 100 aðilum
hér á landi sem reiðubúnir em að
styrkja hana til að bæta líf jafn-
margra indverskra bama.
Fulltrúar Hjálparstofhunar
kirkjunnar segja að lögð hafi ver-
ið áhersla á smá og afmörkuð
verkefni sem Islendingar geti
sjálfir haldið utan um. Aætlað er
að í heild verði varið um 12-13
miljónum króna í þau verkefni
sem styrkt verða á þessum vetri.
Auk jólasöfnunar verður
Hjálparstofiiun kirkjunnar einnig
með sölu á ffiðarkertum í desem-
ber.
BE
Jónas Ámason, höfundur Dandalaveðurs, á góðri stund. Mynd: Jim
Smart.
Leikfélag Reykiavíkur
Dandalaveður
Nýtt leikrit eftir Jónas
Arnason leiklesið í Borg-
arleikhúsinu á sunnudag
æstkomandi sunnudag kl.
16 verður leiklestur í Borg-
arleikhúsinu á nýju leikriti eftir
Jónas Árnason sem heitir Dan-
dalaveður.
Gunnar Gunnarsson dramtúrg
Leikfélagsins segir umhverfi
Dandalaveðurs vera sjávarþorp á
einhveijum stað í Norður- Atl-
antshafi milli striða. Útlendingur
nokkur hefúr leigt sér einhverja
staðfestu í þorpinu og leikritið
fjallar um vangaveltur þorpsbúa
um tilgang hans. Fólkið hefur
áhuga á betri tækni sem beita má
við fiskveiðar, og sprengjur koma
einnig við sögu. Dandalaveður er
fyrst og fremst húmoriskt og hlýtt
eins og Jónasi er lagið, og mér
finnst það vera besta leikritið sem
hann hefur skrifað, sagði Gunnar.
Það verður líka án efa sett upp í
framtíðinni, hvort sem það verður
hér eða annars staðar.
Jón Sigurbjömsson leikstjóri
hefúr undirbúið lesturinn, en ell-
efú þekktir leikarar taka þátt í
honum.
Leiklesturinn á Dandalaveðri
býðst aðeins einu sinni. Aðgangs-
eyrir er 500 krónur, og er sunnu-
dagskaffið innifalið. BE