Þjóðviljinn - 11.12.1990, Side 2

Þjóðviljinn - 11.12.1990, Side 2
FRETTIR Bráðabirgðalögin Hörmuleqt dæmi um si Jón Steinar Gunnlaugsson á ráðstefnu um siðferði stjórnvalda: Bráða- birgðalögin standast ekki stjórnarskrá. Eiríkur Tómasson lögfræðingur: Lögin eru gróft dœmi um siðferðisbrest í íslenskum stjórnmálum Bráðabirgðalögin á kjara- samning BHMR eru eitt hörmulegasta dæmið í langan tíma um siðlausan framgang stjórnmálamanna, sagði Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræð- ingur meðal annars á ráðstefnu um siðferði stjórnvalda sem haldin var í gær, á mannrétt- indadegi Sameinuðu þjóðanna. Bandalag háskólamanna og Bandalag háskólamenntaðra rík- isstarfsmanna efndu til ráðstefn- unnar. Eiríkur Tómasson lögfræð- ingur tók í sama streng og Jón Steinar og sagði bráðabirgðalögin vera gróft dæmi um siðferðisbrest í íslenskum stjómmálum. - Það þarf að gera skýran greinarmun á leikreglum lýðræð- isins og markmiðum sem stefnt er að. Ef þessu er blandað saman er voðinn vís, sagði Eiríkur. Hann sagði jafhframt að sér virtist það ríkjandi viðhorf hjá ís- Ienskum stjómmálamönnum að tilgangurinn helgaði meðalið. Eiríkur og Jón Steinar vom sammála um að bráðabirgðalögin sem ríkisstjómin setti þriðja ágúst síðast liðinn bijóti gegn því ákvæði stjómarskrár að brýna nauðsyn verði að bera til ef setja MR Röskun prófa mótmælt tjórn Skólafélags Mennta- skólans í Reykjavík mót- Sauðkrœkingar: Mótmæla Skúla Fiskiðjan Sauðárkróks hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem fram koma mótmæli fyrirtæk- isins við ummælum Skúla Alexand- erssonar á Alþingi á dögunum. Skúli fjallaði þar um kaup stórra út- gerðarfyrirtækja á smábátum í því skyni að komast yfir kvóta, og að þau nýttu sér opinbera aðstoð í þessu skyni og mun Skúli hafa nefht Fiskiðjuna í þessu sambandi. Einar Svansson, framkvæmdastjóri Fisk- iðjunnar, tekur fram að fyrirtækið hafi aldrei þegið styrki af almanna- fé og aldrei hafi neinar skuldbind- ingar verið felldar niður hennar vegna. hágé. mælir því að skólahald raskist sí og æ vegna kjaradeilna. Hún mótmælir því að þeim fimm ára stöðugleika í skólahaldi sem kostaði langt verkfall sé ógnað. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem stjóm skólafélags MR sendi frá sér í gær. Yfirlýsingin er sam- þykkt vegna röskunar á auglýstri prófiöflu, sem veldur því að próf- um lýkur degi síðar en áætlað var. Þetta kveður stjóm skólafélagsins hafa í for með sér röskun og óþægindi fýrir nemendur. Stjómin telur að nemendum sé sýnt virðingarleysi með deilum BHMR og ríkisins, en vill taka fram að hún tekur ekki opinbera afstöðu til einstakra deilumála þessara aðila. Með fimm ára stöðugleika í skólahaldi á stjómin við þann samning sem Olafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra gerði við BHMR í fýrravor og átti að gilda i fimm ár. -gg eigi bráðabirgðalög. Jón Steinar sagði lögin hafa verið sett á gmndvelli þeirrar trú- ar ríkisstjómarinnar að dómstólar myndu ekki úrskurða um nauðsyn á setningu laganna, en hann sagð- ist ekkert sjá þvi til fýrírstöðu að dómstólar gerðu einmitt það. Þeir sem halda því ffam að brýna nauðsyn hafi ekki borið til benda meðal annars á að allar for- sendur málsins hafi legið fyrir á meðan þing sat á síðast liðnu vori. Jón Steinar rakti aðdraganda bráðabirgðalaganna frá því fjár- málaráðherra skrifaði undir samninginn við BHMR í maí 1989 og sagðist telja málið allt með hreinum ólíkindum. Jón Steinar sagðist einnig telja að bráðabirgðalögin brytu gegn 67. ákvæði stjómarskrárinn- ar, sem kveður á um vemdun á eignarrétti manna. Hann benti á nokkur dæmi önnur um það hvemig ákvarðanir stjómvalda ganga í berhögg við stjómarskrá, að hans mati, jafnvel eftir að hæstiréttur hefur fellt for- dæmisgefandi dóma um það efni. Til dæmis um þetta nefndi hann lög þar sem löggjafinn hefur framselt vald sitt, meðal annars vald til skattlagningar, til fram- kvæmdavaldsins. Auk þeirra Eiríks og Jóns Steinars höfðu Atli Harðarson heimspekingur og Guðrún Agn- arsdóttir læknir, fýrrverandi al- þingismaður, framsögu á ráð- stefnunni í gær. Guðrún fjallaði um trúnaðar- brest þann sem hún telur hafa myndast milli almennings og stjómvalda og vék að lokum að bráðabirgðalögunum um kjara- samning BHMR. Hún sagðist telja að með Iög- unum hefði ríkisstjómin vanvirt Alþingi og dómstóla og brotið rétt á launþegum. -gg Guðrún Agnarsdótir, Páll Halldórsson og Solveig Ásgrlmsdóttir á fundi BHMR og BHM í gær. - Mynd: Kristinn Hafnarfiörður Fógeti daufheyrist við oskum bæjarráðs Már Pétursson bæjarfógeti sinnir ekki erind- um bæjarráðs um að þungaflutningar um Lækjargötu verði stöðvaðir Rafti við Þjóðviljann. Lækjargata er fjölfarin. Þar í nágrenninu er skóli og ýmis þjón- usta og því em þungaflutningar ffá höfninni þymir í augum bæj- aryfirvalda. Þau vilja beina flutningabíl- um eftir Ásbraut og út á Keflavík- urveg. Ásbrautin var einmitt lögð á sínum tima til þess að létta á umferð um miðbæinn. Rætt hefúr verið óformlega við vörubílstjóra um þetta, en án árangurs. Bæjaryfirvöld hafa þrengt Lækjargötuna og sett upp hraða- öldur í þeim tilgangi að draga úr umferð vömflutningabíla, en ár- angur af því hefur ekki orðið vemlegur, að sögn Gunnars Rafhs. Nú er þvi fýrirhugað að grípa til annarra ráða til þess að leysa vandann. -gg Bæjarráð Hafnarfjarðar hef- ur ítrekað beint því til Más Péturssonar, bæjarfógeta í Hafnarflrði, að banna þunga- flutninga um Lækjargötu, en fógeti hefur í engu sinnt því. Að sögn Gunnars Rafns Sigur- björnssonar bæjarritara hyggj- ast bæjaryfirvöld nú leita ann- arra ráða til þess að beina þungaflutningum frá miðbæn- um. Rúmt ár er liðið síðan bæjar- ráð beindi því til fógeta að leggja bann við þungaflutningum um Lækjargötu og fylgja því eftir með lögregluaðgerðum. Tilmælin vom ítrekuð nýlega, en fógeti hef- ur ekkert aðhafst. - Það er ekki laust við að bæj- aryfirvöld séu þreytt á þessu að- gerðaleysi. Það er ófremdarástand á Lækjargötunni, segir Gunnar íslandsbanki með óbleiktan pappír íslandsbanki hefur tekið í notkun umslög sem em úr óbleiktum pappír, en með því vill bankinn leggja sitt af mörkum til náttúmvemdar Jólin koma Nú stendur yfir sýning á frummyndum Tryggva Magnússonar við kvæði Jóhannesar úr Kötlum. Sýningin stendur fram á þrettándann í anddyri Safnahússins við Hverfisgötu á opnun- artíma safnsins kl. 9 til 19 mánudaga til fostu- daga og kl. 9 til 12 á laugardögum. Kvöldlokkur á jólaföstu Blásarakvintett Reykjavíkur gengst fýrir árlegum tónleikum sínum á jólaföstu í kvöld kl. 20.30 í Seltjamameskirkju. Fluttar verða serenöður efiir Mozart, Beethoven og Blaze. Fram- kvæmda- stjórn Lista- hátíðar Fulltrúaráð Listahátíðar í Reykjavík hefúr kjörið nýja fram: kvæmdastjóm. í stjóminni em Atli Heimir Sveinsson tónskáld, Sjón (Siguijón B. Sig- urðsson) rithöfund- ur, Selma Guð- mundsdóttir píanó- leikari, kosin af fulltrúaráðinu, Val- garður Egilsson læknir, tilnefndur af Reykjavíkurborg og Helga Hjörv- ar skólastjóri, tilnefnd af mennta- málaráðuneytinu og verður hún jafnframt formaður. Listahátíð verður næst haldin árið 1992, en kvjkmyndahátið Listahátíðar verður haustið 1991. Risaeðlan með tónleika I tilefni af því að hljómsveitin Risaeðlan tekur ekki þátt í jóla- plötuflóðinu verður hún með tón- leika á Hótel Borg kl. 23.30 nk. fostudagskvöld. Þetta em fýrstu opinbem tónleikar sveitarinnar Aðventutónleikar Kórs Rangæingafélagsins Kór Rangæingafélagsins í Reykjavík heldur aðventutónleika ann- aðkvöld, miðvikudag 12. desember, kl. 20.30 í Seljakirkju. Stjómandi kórsins er Elín Ósk Óskarsdóttir. Einsöngvarar á tónleikunum verða þau Elín Ósk og Kjartan Ólafsson, en hljóðfæraleik annast Þóra Fríða Sæmundsdóttir, Ingibjörg Lámsdóttir, Maríanna Másdóttir og Kjartan Ólafsson. hér á landi í tæpa sex mánuði. Sérstakur heiðursgestur verður hljómsveitin Affódída. Miðaverð kr. 850. Jólafundur Kvenfélags Kópavogs Jólafúndur Kvenfélags Kópa- vogs verður haldirtn 13. desember kl. 20.30 í Neðri sal. Sr. Ægir Sig- urgeirsson flytur jólahugvekju og nemendur frá Tónlistarskóla Kópavogs syngja. Heitt súkkulaði og smákökur bomar fram. Sovésk bókasýning íMÍR í húsakynnum MÍR, Vatnsstíg 10 stendur yfir sovésk bókasýn- ing þessa viku. Sýningin er opin frá 17 til 19. Á meðan á bókasýn- ingunni stendur verða sýndar kvikmyndir í bíósalnum Vatnsstig 10. í dag kl. 18 verður Anton Tsékov á dagskrá, Á sama tíma á morgun Fjodor Dostojevskí, Á sama tíma fimmtudag Vladimír Majakovskí og á fóstudag kl. 18 Þegar kósakkar gráta, saga eftir Sholokhov. Aðgangur er ókeypis. 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 11. desember 1990

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.