Þjóðviljinn - 11.12.1990, Blaðsíða 12
- SPURNINGIN ■
Hvað viltu fá
í jólagjöf?
Albert Sævarsson
nemi:
Ég vil fá vélsleðagalla til að
geta verið með réttu græjurnar í
vetur.
Einar Lárusson
nemi:
Ég held bara að mig langi í vél-
sleðahjálm og hanska.
Jóna Björg Olsen
nemi:
Ég vil helst fá ullarjakka því mig
vantar einn slíkan.
Karen Olsen
nemi:
Kuldaskó svo mér verði ekki
kalt á fótunum í slabbinu í vetur.
RAFRÚN H.F.
Smiðjuvegí 11 E
Alhliða
rafverktakaþjónusta
Simí641012
Eftirvæntingin leyndi sér ekki i svip bamanna, en þeir fullorðnu virtust einnig hafa gaman af. Myndir: Jim Smart.
En til hvers að láta
okkur fá höfn og taka svo
frá okkur kvótann?
Svo hægt sé að binda
bátana fasta.
Askasleikir tekur lagið á nikkuna.
Mikill mannfjöldi hafði safnast saman á Austurvelli.
Þið Grímseyingar emð,
bara vanþakklátir. Við 1
byggðum júfyrirykkur
■— höfn. -------------^
Bráðum koma
blessuð jólin
að var mikil eftirvænting í
svip krakkanna á sunnudag
þegar kveikt hafði verið á jóla-
trénu á Austurvelli og jóla-
sveinarnir birtust á þaki Köku-
hússins undir röggsamri stjórn
Askasleikis.
Fyrst lék Lúðrasveit Reykja-
víkur, en síðan afhenti Per Aasen
sendiherra Noregs á Islandi
Reykvíkingum tréð. Magnús L.
Sveinsson forseti borgarstjómar
tók við trénu. Þeirri athöfn lauk
með hátíðlegum söng Dómkórs-
ins.
Mikill fjöldi hafði safnast á
Austurvöll og var yngri kynslóðin
í meirihluta. Þegar jólasveinamir
birtust var þeim vel fagnað.
En nú fer að styttast í það að
alvöru sveinamir komi ofan af
fjöllum og læði einhverju smá-
ræði í skóna hjá góðu bömunum.
Sá fyrsti, Stekkjarstaur, kemur á
morgun og verður hægt að heilsa
upp á hann í Þjóðminjasafninu kl.
11 árdegis. -Sáf