Þjóðviljinn - 23.01.1991, Síða 2
FRETTIR
Loðnuveiðiskip
Gengið á ofnýttan þorskstofn
Tillaga um að bæta þeim upp veiðibannið með 14 þúsund tonna kvóta. Mælist illa fyrir hjá
þeim sem hafa þegar tekið á sig umtalsverða skerðingu
Ef svo fer sem horfir að engin
loðna verði veidd á þessari
vertíð þýðir það tilfinnanlegt
tekjutap fyrir þá einstaklinga
sem hlut eiga að máli og við-
komandi bæjar- og sveitarfélög.
Þá mælist það misvel fyrir að
sjávarútvegsráðherra ætli sér
að bæta útgerðum loðnuveiði-
skipa aflabrestinn með því að
úthluta þeim þorskkvóta úr of-
nýttum stofni.
í gær kynnti sjávarútvegsráð-
herra í ríkisstjóminni frumvarp til
laga um ráðstafnir til að bæta út-
gerðum loðnuskipa aflabrestinn
sem fyrirsjáanlegur er með því að
úthluta þeim allt að 14 þúsund
tonna kvóta úr Hagræðingar-
sjóði,níu þúsund tonn af þorski og
fimm þúsund tonnum af rækju en
loðnuflotinn telur rúmlega íjönt-
tíu skip. Að mati stjómar LIU
þyrfti þessi úthlutun að vera allt
að helmingi meiri ef vel ætti að
vera.
Hinsvegar hefur þetta útspil
sjávarútvegsráðherra mælst afar
illa fyrir hjá öðmm sem hafa á
sama tíma orðið að taka á sig,
bótalaust, umtalsverðar kvóta-
skerðingar. Sérstaklega þegar hér
er um að ræða veiðiheimildir úr
ofnýttumjjorskstofninum.
Jón Olafsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra fiskimjöls-
framleiðenda, segir það kröfu
loðnuverksmiðja að þessi úthlut-
un komi einnig til góða þeim
byggðarlögum þar sem bræðslur
em.
Þorvaldur Jóhannsson, bæjar-
stjóri á Seyðisfirði, segir að þessi
úthlutun breyti engu fyrir það
bæjarfélag því þaðan sé ekkert
loðnuveiðskip gert út en aftur á
móti em þar tvær loðnuverk-
smiðjur. Þar hefur verið mjög erf-
itt atvinnuástand en bolftskur hef-
ur ekki verið unninn þar síðustu
sextán mánuðina. Þorvaldur segir
að viðvarandi loðnuveiðibann
yrði nánast rothögg fyrir bæjarfé-
lagið sem megi ekki við því að
verða fyrir tekjutapi upp á nokkra
tugi miljóna króna.
Ásgeir Magnússon, bæjar-
stjóri í Neskaupstað, segir að
áframhaldandi loðnuveiðibann
Kostnaður við byggingu ráð-
hússins í Tjörninni verður
orðinn 340 miljónum króna
meiri í árslok 1991 en gert var
ráð fyrir í heildaráætlun frá í
janúar 1989. Þar munar um
það bil 15 af hundraði.
Þetta kom fram í ræðu Davíðs
Oddssonar borgarstjóra á fundi
borgarstjómar í síðustu viku. Eins
og kom fram í Þjóðviljanum á
laugardaginn fara 680 miljónir
króna í bygginguna á þessu ári og
er reiknað með að kostnaður við
byggingu hússins verði kominn í
rúmlega tvo og hálfan miljarð
króna í lok þessa árs, á verðlagi í
fari hræðilega i heimamenn og
sömu sögu er að segja af Eskiftrði
og Vestmannaeyjum og víðar þar
desember síðast liðnum. Ef heild-
aráætlun frá í janúar 1989 er
reiknuð upp til sama verðlags og
áhrifúm virðisaukaskatts bætt við,
fer hún í rúmlega 2,2 miljarða
króna. Mismunurinn er 340 milj-
ónir.
Davíð Oddsson sagðist telja
þetta eðlilegt frávik, en býst við
að endanlegt frávik verði meira.
Ekki er ljóst hve mikill kostn-
aður hlýst af framkvæmdum á
næsta ári, en sem kunnugt er
hyggst borgin taka húsið í notkun
snemma á næsta ári. í ræðu borg-
arstjóra kom fram að gert er ráð
fyrir að kostnaður á árinu 1992
sem tekjur hafa verið umtalsverð-
ar af veiðum og vinnslu á loðnu.
-grh
verði 150-180 miljónir króna og
er þá miðað við fúllbúið hús. Þá
er ótalinn kostnaður við ýmsan
búnað.
Að sögn borgarstjóra verður
lokið við alla grófari vinnu inni á
þessu ári. Áformað er að múr-
verki Ijúki á fyrri hluta ársins og
síðan uppsetningu allra veggja og
lofta auk pípulagna, raflagna og
loftræstikerfis að mestu leyti.
Smíði innréttinga á einnig að vera
vel á veg komin í árslok, en upp-
setningu innréttinga og málun
verður ólokið.
-gg
Hvalfiarðargön g
Stofna hluta-
félag á föstu-
daginn
Hlutafélag vegna Hval-
jjarðarganga stofnað í
vikulokin. Hlutaféð verður
80 miljónir króna. Reiknað
með veggjaldi uppá 500-
600 krónur
Ákveðið hefur verið að stofna
hlutafélag vegna framkvæmda
við Hvalfjarðargöng næstkom-
andi föstudag. Gert er ráð fyrir
að hlutafé verði 80 miljónir
króna og verða Sementsverk-
smiðja ríkisins, íslenska járn-
blendifélagið, Grundartanga-
höfn og Vegagerð ríkisins
stærstu hluthafarnir. Akranes-
bær verður einnig hluthafi.
Drög að samningi væntanlegs
hlutafélags við ríkið liggja fyrir.
Þar er gert ráð fyrir að væntanlegt
hlutafélag fjármagni framkvæmdir
og standi undir rekstri ganganna
með töku veggjalds um 25 ára
skeið, en að því loknu verða göng-
in eign ríkisins. Búist er við að
kostnaður við göngin verði fjórir
til fimm miljarðar króna og er
áætlað að það taki 20-30 ár að ná
inn kostnaði við gangagerðina að
vöxtum meðtöldum. Að sögn Gísla
Gíslasonar, bæjarstjóra á Akranesi,
er reiknað með að veggjaldið verði
á bilinu 500-600 krónur.
Enn hefúr reyndar engin
ákvörðun verið tekin um hvort ráð-
ist verður i gerð ganga eða annarr-
ar vegtengingar um utanverðan
Hvalfjörð. Þó þykir sýnt að tvær
leiðir komi til greina yfír eða undir
fjörðinn. Önnur er svoneínd Kiða-
fellsleið, frá Kiðafelli að sunnan-
verðu að Galtarvík, en hin er neíúd
Hnausaskersleið og liggur nokkru
utar í firðinum. Verði sú síðari val-
in kemur til greina að leggja veg
vestur fyrir Akraljall og yfir
Grunnafjörð. Við það myndi leiðin
milli Akraness og Borgamess
sfyttast um allt að 10 kílómetra, en
búist er við að vegurinn myndi
kosta um einn miljarð króna.
Á fundi sem haldinn var um
málið nýlega voru uppi efasemdir
um réttmæti gangagerðar, þar sem
hætta er á að kostnaður vegna
vegagerðar í tengslum við göngin
verði tekinn af fjárveitingum til
annarrar vegagerðar á Vesturlandi.
-gg
Ufsaskot á Tungunni. Höfðavlkin frá Akranesi fékk tuttugu og fimm tonn af ufsa i einu hali á svonefndri
Tungu á Jökulgrunninu djúpt út af Breiðafirði um helgina. Þar voru á veiðum um tuttugu togarar og afli misjafn.
Myndin er hinsvegar tekin um borð i flakafrystitogaranum Haraldi Kristjánssyni HF 2 á miðunum þar sem ver-
ið er að leysa frá pokanum og búið að opna niður í móttökuna. Mynd: grh.
Ráðhúsið
Fimmtán prósent yfir áætlun
Bjöm R. Einarsson
Sveiflað á Púlsinum
Annaðkvöld, fimmtudag,
verður djassað í Heita pottinum,
sem nú er til húsa í Púlsinum við
Vitastíg. Þar koma fram tvær
hljómsveitir, Kvartett Kristjáns
Magnússonar og Hljómsveit
Bjöms R. Einarssonar. Bjöm R.
leikur á básúnu, en aðrir í sveit
hans em píanóleikarinn Ámi El-
far, Jón Sigurðsson kontrabassi
og trymbillinn Guðmundur R.
Einarsson. Leikur þeirra félaga
vakti mikla hrifningu á 15 ára af-
mælishátíð Jazzvakningar sl.
haust. Kvartett píanistans Krist-
jáns Magnússonar hefur starfað
um árabil og spilar djasslög úr
svíngi og boppi, auk annarra frá
síðari ámm. Þorleifur Gíslason
blæs í altó og tenórsaxófón, Tóm-
as R. Einarsson spilar á kontra-
bassa og Guðmundur R. Einars-
son á trommur. Tónleikamir hefj-
ast kl. 21.30.
Trjágróður
að vetrarlagi
Næsti rabbfundur Náttúm-
ffæðistofu Kópavogs og Náttúm-
vemdarfélags Suðvesturlands
verður haldinn í húsakynnum
Náttúmfræðistofunnar að Digra-
nesvegi 12 fimmtudaginn 24.
janúar og hefst hann kl. 21. Að
þessu sinni verður fjallað um
hvemig trjágróður fer að því að
verjast Vetri konungi. Ennfremur
verður lýst hvemig megi greina
hinar ýmsu tegundir tjáa og mnna
um þetta leyti árs. Ásgeir Svan-
bergsson starfsmaður Skógrækt-
arfélags Reykjavíkur mun spjalla
um þetta efni. í tengslum við
rabbfundinn verður gengið um
svæði Skógræktarfélagsins laug-
ardaginn 26. janúar. Farið verður
frá aðalinngangi Skógræktarinnar
í Fossvogsdal kl. 13.30 í fylgd
Ásgeirs Svanbergssonar.
Kvíði og
kvíðaviðbrögð
Geðhjálp, félag fólks með
geðræn vandamál, aðstandenda
þeirra og velunnara, heldur fyrir-
lestur annað kvöld, fimmtudag-
inn 24. janúar, kl. 20.30. Fyrir-
lesturinn íjallar um kvíða, kviða-
viðbrögð og leiðir til að fyrir-
byggja kvíða. Fyrirlesari verður
Oddi Erlingsson sálfræðingur.
Fyrirlesturinn verður haldinn á
geðdeild Landspítalans í kennslu-
stofu á þriðju hæð. Allir vel-
komnir. Aðgangur ókeypis.
Styrkur úr Sögusjóði
1 febrúar verður veittur árleg-
ur styrkur úr Sögusjóði stúdenta i
Kaupmannahöfn. Upphæð
sfyrksins að þessu sinni er 7.000
danskar krónur. Sjóðurinn veitir
styrki til verkefna er tengjast sögu
íslenskra námsmanna í Kaup-
mannahöfn, verkefna er að ein-
hveiju leyti tengjast sögu íslend-
inga í Kaupmannahöfn og í sér-
stökum tilfellum til annarra verk-
efna er tengjast dvöl Islendinga í
Danmörku. Umsóknir um styrk-
inn skulu hafa borist stjóm sjóðs-
ins fyrir 20. febrúar 1991. Utan-
áskriftin er: Sögusjóður stúdenta,
uster Voldgade 12, 1350 Köben-
havn K.
Siðleg ábyrgð
Kristján Kristjánsson heldur
opinberan fyrirlestur í boði Rann-
sóknastofnunar i siðfræði nk.
laugardag í stofú 101 í Odda kl.
15. Fyrirlesturinn nefnist „Um
siðlega ábyrgð“ og fjallar um
ábyrgð fólks á þeim hindmnum
sem vama öðmm vegar í lífinu.
Kristján lauk doktorsprófi í heim-
speki við Háskólann í St.
Ándrews í Skotlandi sl. sumar
með ritgerðinni „Freedom and a
Moral Concept“. Þetta er fyrsti
opinberi fyrirlesturinn sem er
fluttur á vegum Siðfræðistofúun-
ar.
Þetta er hluti þeirra 65 barna sem duttu (Jólalukkupott barnanna f happ-
drætti Landssambands Flugbjörgunarsveitanna. Þátttakendur [ jóla-
lukkupoftinum lituðu myndir sem fylgdu happdrættismiðum Landssam-
bandsins og sendu inn. Fjölmargar myndir bárust og var dregið úr pott-
inum Hjá afa á Stöð 2. Verðlaun voru fjallahjól, fjarstýrðar flugvélar,
vasadiskó og bækur. Á myndinni em einnig fulltrúar Flugbjörgunarsveit-
anna.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 23. janúarr 1991