Þjóðviljinn - 23.01.1991, Síða 5
ÞJÓÐMÁL
Myndir: Haraldur Bjamason
Ráðherrar AB í Neskaupstað
Ætlum að stjórna áfram
AB vill umhverfisráðuneytið nœst. Róttœkar hugmyndir um
kerfishreytingar - raunsœi í framkvœmd.
Alþýðubandalagið forðast ekki erfiðu verkin
Ólafur Ragnar Grímsson for-
maður Alþýðubandalagsins ítrek-
aði þá yfirlýsingu á fundi í Egils-
búð í Neskaupstað sl. sunnudag,
að flokkurinn stefndi eindregið í
ríkisstjóm á ný og setti nú um-
hverfisráðuneyti í forgangsröð
ráðuneyta.
Hann minnti á sérstöðu Al-
þýðubandalagsins í umhverfis-
málum, Hjörleifur Guttormsson
hefði fyrstur flutt tillögu um
nauðsyn umhverfisráðuneytis,
enginn annar flokkur hefði jafn
breiða og hugmyndaríka sveit
áhugafólks og sérfræðinga í þess-
um málaflokki, auk þess sem um-
hverfismálin féllu vel að heildar-
hugmyndum flokksins.
Árangurinn
Ólafur Ragnar Grímsson
íjármálaráðherra fagði m.a.
áherslu á þessi atriði:
* I vor verða fyrstu þingkosn-
ingamar í 45 ára sögu lýðveldis-
ins þar sem ekki verður tekist á
um hvemig slökkva skal verð-
bólgubálið, breyta genginu, forða
sjávarútveginum frá hmni og ná
jákvæðum viðskipta- og vöm-
skiptajöfnuði við útlönd. Mark-
miðið núna er að halda árangrin-
um sem náðst hefur á þessum
sviðum.
Steingrímur J. Sigfússon
samgöngu- og landbúnaðarráð-
herra nefhdi t.d. þetta:
* Jarðgangagerðin veldur
straumhvörfum: Vestfirðingar
hefðu þurft að bíða 30 ár eftir
jarðgöngum, hefði átt að kosta
þau af almennu vegafé.
* Tímamót hafa orðið í flutn-
ingi ríkisstofnana út á land, Skóg-
rækt ríkisins komin til Egilsstaða
og Hagþjónusta landbúnaðarins
til Hvanneyrar.
* Jöfnun símkostnaðar er haf-
in. Matar- og búvömverð hefur
verið nær óbreytt í eitt og hálft ár
vegna samstarfs aðila vinnumark-
aðarins, bænda og stjómvalda,
innkaup vísitöluQölskyldunnar
hækkað um 1,9% á 12 mánuðum.
Svavar Gestsson mennta-
málaráðherra benti m.a. á þessi
atriði:
* Jöfnun lífskjara felst m.a. i
lækkunum verðbólgu og vaxta og
hertri innheimtu opinberra gjalda,
sem skilaði 1 miljarði meira í rík-
issjóð 1990 en ella.
* Mörkuð hefur verið ný
skólastefha í samvinnu við skóla-
kerfið.
* Stöðugleikinn er viðspyma
fyrir átak á næsta kjörtímabili til
að ráðast á ótal dæmi um fátækt
og ójöfnuð í samfélaginu.
Framtíðin
Ólafur Ragnar:
* Halda þarf samstöðunni
sem náðst hefur í efnahagsmálun-
Steingrimur: Samgöngu- og fjar-
skiptabylting er hafin. Vestfirðing-
ar hefðu að óbreyttu þurft að bíða
30 ár eftir jarðgöngum. Nýjar regi-
ur um snjómokstur á næstu dög-
um.
um. í kjarasamningunum í haust
þarf það að hafa algeran forgang
að tryggja hag láglaunafólksins.
* Breytingamar á tekjuskatts-
kerfinu hafa þegar skilað 2-3%
hærri kaupmætti fyrir þá launa-
lægstu. Ríkisfjármálin á að nota
enn frekar til að efla jöfnuð. Til-
lögur Alþýðubandalagsins um
hátekjuskatt, húsaleigubætur og
tekjutengdar bamabætur til lág-
launafólks hefðu þýtt 7-10%
kjarabætur til láglaunafólks, og
em enn í fullu gildi, þótt ekki hafi
náðst samstaða innan ríkisstjóm-
arinnar sl. haust.
* Uppstokkun þarf í atvinnu-
vegunum og endurmótim fisk-
veiðistefnunnar.
* Gera á fjölþjóðlega efha-
hagssamninga, taka upp tvíhliða
samninga við EB, en hafha inn-
göngu.
Steingrímur J. Sigfússon:
* Móta þarf nýtingar- og
vinnslustefnu í sjávarútvegi og
gera opinn búvörusamning.
* Ójöfnuði eftir búsetu skal
útrýmt með áætlun um sam-
göngu- og fjarskiptaáratug, með
stórframkvæmdum í jarðganga-
Svavar: AB tókst á við erfið al-
vöruverkefni, verðbólgu, vaxtaok-
ur, hrun ( atvinnuvegunum, stöðn-
un í menningarmálum. Flokkurinn
er fús að fást við erfið verkefni.
gerð og fjarskiptatækni. Gera þarf
hvert byggðarlag að virkum þátt-
takanda í ferðaþjónustu.
* Varða þarf leiðina í sam-
skiptum við viðskiptaheildir og
nágrannalönd til að ná hagstæð-
um samningum án þess að glata
fullveldi og sjálfstæði.
Svavar Gestsson:
* Á íslandi ffamtíðarinnar
þarf að tryggja jafnari lífskjör en
annars staðar þekkjast, útrýma
jafht fátækt og auðsöfnun.
* Island verði hreinna en önn-
ur lönd, með átaki í umhverfis-
málum.
* Skapað verði nýtt öryggis-
kerfi á rústum kalda stríðsins, í
ljósi reynslunnar og með hliðsjón
af þeim atburðum sem nú hafa
verið að gerast.
* Sjálfsforræði þjóðarinnar
verður ekki tryggt með einangrun
í skjóli laga og reglugerða, heldur
góðu menningar- og menntakerfi.
Loðnubresturinn
Á fundinum komu skýrt ffam
áhyggjur manna á Austfjörðum
vegna loðnubrestsins og áhrifa
hans á efnahagslíf staðanna.
Ólafur Ragnar: Nú munu þing-
kosningar I fyrsta sinn f sögu lýð-
veldisins ekki snúast um hvernig
á að ná tökum á efnahagsvand-
anum, heldur hvort við fáum að
byggja á árangrinum.
Guðmundur Bjarnason, nýráð-
inn bæjarstjóri í Neskaupstað,
skýrði ffá þvi að beint tekjutap
fyrir Norðfirðinga yrði um 18,5
miljónir eða 10% miðað við fyrra
ár, veiddist engin loðna, fyrir utan
keðjuáhrifin á þjónustuaðila.
Jóhann K. Sigurðsson út-
gerðarstjóri Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað benti samt á að
loðnuveiðar hefðu stundum ekki
hafist fyrr en í febrúar.
Finnbogi Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar,
sagði að úthluta þyrffi amk. 30
þús.tonna kvóta til loðnuskipanna
ef ætti að bæta tjónið upp. Skylda
mætti skipin til að landa á
ákveðnum stöðum, þar sem loðn-
an hefði verið mikilvægur þáttur
atvinnulífsins.
Jón Guðmundsson varafor-
maður Verkamannafélagsins
Fram á Seyðisfirði benti á hrika-
legt ástand í atvinnumálum þar,
sem væri þó ekki á ábyrgð núver-
andi ríkisstjómar, en versnaði enn
vegna loðnubrestsins.
Smári Geirsson skólameist-
ari í Neskaupstað ræddi ískyggi-
lega byggðaþróun, í ljósi nýjustu
mannfjöldatalna og áætlana um
álver á Keilisnesi, og nauðsynlegt
afnám aðstöðugjalda, sem mis-
munuðu byggðarlögunum.
Sigurður Ingvarsson, forseti
Alþýðusambands Austurlands,
sagðist ekki gera lítið úr árangri
ríkisstjómarinnar, en óttast að
vandamál Seyðisfjarðar yrði ekki
einsdæmi, vegna aukinnar tækni
við fiskvinnslu fækkaði starfs-
mönnum í henni um 5% á ári, sem
þýddi um 100 störf árlega á Aust-
urlandi. Pétur Óskarsson húsa-
smíðameistari í Neskaupstað
gerði harða hríð að ráðherrunum,
og Karl Hjelm verkamaður í
Neskaupstað benti á að engin rík-
isstjóm hefði notið annars eins
velvilja launafólks, enda hefði
henni margt vel tekist.
Albert Einarsson, skóla-
meistari Verkmenntaskóla Aust-
urlands, þakkaði Svavari Gests-
syni fyrir breytingar í skólastarfi,
valddreifingu, áherslur á verknám
og fullorðinsfræðslu, sem yrði
einn veigamesti þátturinn í skóla-
kerfi framtíðarinnar og stuðlaði
að byggðajafhvægi með því að
fólk gæti tileinkað sér ný störf.
Endurvinnslan á Birgi
Svavar: Ráðningin á Birgi Is-
leifi Gunnarssyni sem Seðla-
bankastjóra er ein veglegasta
magalending sögunnar og stað-
festing Alþýðuflokksins á því að
Sjálfstæðisflokkurinn eigi valda-
kerfið í landinu.
Ólafur Ragnar: Endur-
vinnslan á Birgi Isleifi var gerð til
að viðhalda lénskerfi stjómmála-
flokkanna í bönkunum.
ÓHT
Miðvikudagur 23. janúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5