Þjóðviljinn - 20.02.1991, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 20.02.1991, Blaðsíða 2
FRETTIR ABR Kominn æsingur ímenn Ingólfur Gíslason: Þörf á hverjum manni ast hefur vegna þíðu í alþjóðamál- um í barátttmni gegn hemum. Eg segi ekki að þetta fari ró- lega af stað. Það er kominn æsingur í menn þó það taki ein- hvern tíma að ná upp dampi, sagði lngólfur Gíslason en hann hóf stðrf í gær sem starfsmaður G-listans í Reykjavík fyrir kosningarnar í vor og var spurður hvort kosningabarátt- an færi rólega af stað. Hann sagði kosningabarátt- una leggjast vel í sig. „Ég held að menn geri sér grein fyrir því að þetta eru kosningar sem skipta máli fyrir flokkinn og alþýðu landsins." Ingólfur sagði að bar- áttan færi fram með hefðbundnu sniði með útgáfii kosningablaða, vinnustaðafúndum og haldið yrði áfram á þeirri braut sem ráðherrar Alþýðubandalagsins hafa lagt út á, þ.e. að kynna hvað ríkisstjómin hefur gert og hvert verði verkefni þeirrar næstu. „Kosningabaráttan hefst með árshátíð ABR í Risinu, Hverlis- götu 105 á laugardaginn," sagði Ingólfur og bætti við að fyrstu verkin yrðu að safna sjálfboðalið- um sem væri raunar farið af stað. „Það er þörf á hverjum manni, sérstaklega þegar nær dregur kosningum," sagði Ingólfur. Ahugasamt fólk getur hringt í síma 17500 eða 17504 og skráð sig sem sjálfboðaliða. Ingólfur sagði það mikilvægt að Alþýðbandalagið kæmi sterkt út úr kosningum til að fylgja eftir þeim árangri sem náðst hefur með þjóðarsátt. Eins telur hann nauð- synlegt að nýta það lag sem skap- Ingólfur er nýkomin heim frá Svíþjóð og vann fyrir jólin á lager hjá Máli og menningu. „Það var vertíðarstemmning í þeirri vinnu, og ég vona að sú vertíðarvinna sem ég er að byija í núna skili flokknum jafn miklu og bóksalan skilaði Máli og menningu fyrir jólin,“ sagði Ingólfur. -gpm Myndatexti: Ingólfur Glslason starfsmaður G-listans f Reykjavlk á skrifstofu sinni að Laugavegi 3. Mynd: Krist- Slvs á sió Helmingur um borð í togurum Bótaskyldum slysum á sjó hefur hlutfallslega fjölgad á undanförnum árum. Slysatíðni togarasjómanna tvöfalt hœrri en hjá öðrum sjómönnum Bótaskyldunm slysum á sjó sem berast Tryggingastofn- un hefur fjölgað hlutfallslega allnokkuð undanfarin ár. Svo virðist sem rúmur helmingur þeirra verði um borð í togurum og að slysatíðni togarasjó- manna sé rúmlega tvöfalt hærri en á öðrum þilfarsfiskiskipum. Arið 1989 voru þessi slys samtals um 502 og þar af 239 á togurum, 246 á þilfarsskipum og 17 á opnum bátum. Togarasjó- menn voru þá 1737, sjómenn á þilfarsskipum 3671 og sjómenn á opnum bátum 882 í fullu starfi, en líklega um 1800 þegar allir smá- bátasjómenn eru taldir með. Sam- kvæmt bráðabirgðatölum frá því i fyrra voru slysin 219 og þar af 110 á togurum og 103 á þilfars- skipum og hafa því hlutfallslega aukist á togurum miðað við árið þar á undan. Til samanburðar má geta þess að árið 1988 var slysatíðni um borð í kanadískum togurum 30% þegar hún var um 14% meðal ís- lenskra togarasjómanna árið 1989 eða rúmlega helmingi lægri. Magnús Jóhannesson sigl- ingamálastjóri vakti máls á slysa- tíðni sjómanna í ræðu sinni á dög- unum þegar stofnunin veitti full- trúum sjómanna og útgerða í Reykjavík viðurkenningu fyrir bestu útkomuna í skyndiskoðun- um fiskiskipa á síðasta ári. Þar sagði hann m.a. að á undanfom- um ámm hefði orðið jákvæð þró- un í öryggismálum sjómanna og að þeir væm famir í auknum mæli að líta á þau sem einn þátt af þeim mörgu sem þeir þurfa sjálfir að huga að hver í sínu skipi. Sigl- ingamálastjóri sagði að há slysa- tíðni á sjó væri ekki lögmál sem enginn fær breytt, heldur verkefni sem takast þarf á við með víðtæku samstarfi á staðfestum forsend- um. Á síðasta ári hófst skráning og flokkun allra vinnuslysa hjá sjó- mönnum og skemmda á skipum hjá Siglingamálastofnun. Að mati siglingamálastjóra mun þetta verkefni, sem tengist samnor- rænni skráningu slysa á sjómönn- um, skapa áður en langt um líður forsendur til þess að ganga enn skipulegar að verki í forvamar- starfi gagnvart slysum á sjó hér á landi. Jafnframt mun frekari greining þessara gagna veita upp- lýsingar um æskilega forgangs- röðun verkefna og skapa skilyrði fyrir markvissara forvamastarf. -grh Prófessor í heimilis- tækningum Jóhann Ágúst Sigurðsson heilsugæslulæknir í Hafharfirði hefur verið skipaður fyrsti pró- fessorinn í heimilislækningum við Háskóla íslands. Þótt heimil- islækningar séu ein elsta grein læknisfræðinnar em heimilis- lækningar sem fræðigrein innan Háskólans aðeins nokkurra ára- tuga gömul. Árið 1976 var fyrsti lektorinn í heimilislækningum ráðinn við Háskólann. Það var svo í desember 1988 að Guð- mundur Bjamason heilbrigðisráð- herra skrifaði Svavari Gestssyni menntamálaráðherra bréf þar sem hann óskaði að prófessorsembætti í heimilislækningum yrði stofnað sem fyrst. Jóhann Ágúst varð doktor í heimilislækningum við Gautaborgarháskóla árið 1982. Hann hefúr verið lektor við Há- skóla íslands síðan 1986. Auk þess að hafa starfað sem heimilis- læknir í Hafnarfirði hefúr hann verið héraðslæknir Reykjaneshér- aðs. Hann lætur nú af því starfi en mun halda áfram að starfa sem heimilislæknir í Hafnarfirði. Jóhann Ágúst Sigurðsson Hraunin við Hafnarf jörð Áttundi rabbfundur Náttúm- fræðistofu Kópavogs og Náttúm- vemdarfélags Suðvesturlands verður haldinn fimmtudaginn 21. febrúar kl. 21 í Náttúmfræðistofu Kópavogs Digranesvegi 12, niðri. Sigmundur Einarsson jarðfræð- ingur fjallar um nýjustu rann- sóknir sínar og Hauks Jóhannes- sonar jarðfræðings, á hraunum við Hafnarfjörð. Komið hefúr í ljós að fleiri hraun frá sögulegum tíma eru á þessu svæði en haldið var. Á laugardag verður svo farin vettvangsferð á svæðið með Sig- mundi. Félagsfundur Kvenfé- lags Kópavogs Kvenfélag Kópavogs heldur félagsfúnd 25. febrúar kl. 20.30 í Félagsheimilinu. Spilað verður bingó. Heimahlynning og fjöl- skylduaðhlynning Fyrirlestur verður haldinn á vegum Geðhjálpar, félags fólks með geðræn vandamál, aðstand- enda þeirra og velunnara, í kennslustofu á 3. hæð geðdeildar Landsspítalans, annaðkvöld kl. 20.30. Starfsfólk heimahlynning- ar Krabbameinsfélags íslands flytur fyrirlestur um heimahlynn- ingu, heildræna ummönnun og fjölskylduhlynningu. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. HeilsugaKlustöð í Vogum ogíGrindavík Ný heilsugæslustöð var form- lega tekin í notkun í gær. Þá var einnig tekin í notkun ný heilsu- gæslustöð í Grindavík í gær. Stresshátíð lækna Læknafélag Reykjavíkur gengst fyrir almennum fræðslu- fundi um streitu laugardaginn 23. febrúar. Vakin verður athygli á ýmsu sem hver og einn getur gert til að draga úr streitu og auka á hollustu í daglega lífinu. Fundur- inn hefst kl. 13 í Háskóiabíói og er aðgangur ókeypis. Mjólkursamsalan hefur veitt styrk til að standa straum af kostnaði. Argentínsk vika I dag hefst Argentínsk vika í Argentína steikhús. Argentínski listakokkurinn Neddest Kul að- stoðar matreiðslumennina Óskar Finnsson og Kristján Þór Sigfús- son við að matreiða gómsæta rétti úr séröldum nautgripum. Argent- ínski djasspíanistinn Hemán Lug- ano leikur sérstaklega fyrir gesti Argentínu. Þá skemmta þeir Sím- on Kuran og Reynir Jónasson. Við opnun vikunnar í dag verða tilkynnt úrslit í nautakjötsupp- skriftarkeppni Argentínu og Bylgjunnar. Bóndinn og söngvarinn Jó- hann Már Jóhannsson syngur fýr- ir gesti. Fleira óvænt verður á dagskrá. Nýir sóknarprestar Séra Svavar Stefánsson sókn- arprestur á Neskaupstað hefúr verið kjörinn sóknarprestur Þor- lákshafnarprestakalls. Axel Áma- son guðfræðingur hefúr verið kallaður til þjónustu í Stóra- Núpsprestakalli. Séra Sigurður Jónsson hefur verið kjörinn prest- ur í Oddaprestakalli. Þá hefúr biskup Islands auglýst Glerár- prestakall í Eyjafjarðarprófasts- dæmi laust til umsóknar. 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 20. febrúar 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.