Þjóðviljinn - 09.03.1991, Page 1

Þjóðviljinn - 09.03.1991, Page 1
Lífskjarajöfnun með hátekjuskatti og fjármagnsskatti Asíðustu tveimur árum náðum við verðbólgunni nið- ur. Á næstu tveimur árum er verkefnið að ná kaup- mættinum upp, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, for- maður Alþýðubandalagsins, í ræðu sinni á kosn- ingaráðstefnu Alþýðubandalagsins sem hófst í gær- kvöld. Við upphaf ráðstefnunnar voru lögð fram drög að kosningastefnuskrá fyrir alþingiskosningarnar í vor, sem hefjast á því að Alþýðubandalagið sé flokkur róttækrar jafnað- arstefnu. í þessum drögum er höfuð áhersla lögð á aukinn jöfnuð í lífs- kjörum og auknum jöfnuði í að- gangi að menntun og menningu og hvers kyns þjóðfélagslegri aðstöðu, enda segir þar að Alþýðubandalag- ið vilji þjóðfélag sem bjóði öllum þegnum sínum mannsæmandi lífs- kjör. Olafur Ragnar sagði að hægt væri að stíga stór skref til að auka kaupmáttinn. Annarsvegar í gegn- um nýja kjarasamninga og hinsveg- ar í gegnum nýtt skattakerfi, þar sem skattleysismörk eru hækkuð, barnabætur auknar og húsnæðis- bætur einnig látnar ná til þeirra sem leigja. „Fjármagnið til þessara jöífiun- araðgerða yrði sótt í nýjan hátekju- skatt hjá þeim sem hafa yfir fimm til sex hundruð þúsund í mánaðar- laun og með því að skatlleggja ljár- magnstekjur einsog atvinnutekjur, en þær hafa hingað til verið skatt- fijálsar. Með slíkum aðgerðum væri hægt að færa til fjölskyldna með lágar miðlungstekjur upphæð sem nemur einum og hálfum mánaðar- launum á ári og þannig stórauka kaupmátt án þess að verðbólgan hreyfðist nokkuð upp á við á ný,“ sagði ijármálaráðherra. í kaflanum um jöfnuð og bætt lífskjör er bent á að almennt launa- fólk hafi þurft að leggja á sig byrð- ar til að halda uppi atvinnustigi og stuðla að þeim árangri sem náðst hefur í efnahagsmálum. I framhaldi af því þurfi að bæta og jafna lífs- kjör almennings. „Kjaminn í stefnu Alþýðu- bandalagsins eru raunhæfar tillögur til að auka kaupmáttinn og jafna lífskjörin og varðveita um leið ár- angurinn í verðbólgubaráttunni. Við erum eini flokkurinn sem hefur lagt fram skýrar tillögur um það hvemig eigi að auka kaupmáttinn með því að breyta tekjuskattinum," sagði Olafur Ragnar í ræðu sinni í gær. Á hádegi í dag verður vígður nýr flokksfáni Alþýðubandalagsins við sérstaka athöfn fyrir framan Hótel Loftleiðir. Sjálfri ráðstefn- unni lýkur kl. 18 í dag, en á morgun munu efstu menn listanna funda. -Sáf Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins á beininu: Geri upp hug minn á

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.