Þjóðviljinn - 09.03.1991, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 09.03.1991, Qupperneq 6
Hver verður næsti formaður Sjálfstæðis- flokksins? Ágúst Thorsteinsen heilbrigðisfulltrúi: Davið mun leiða Sjálf- stæðisflokkinn til sigurs. Bjami Þór Haraldsson verkamaður: Davíð er vinsælli og nýtur meira trausts. Guðm. S. Guðjónsson útgerðarstjóri: Davíð, vegna stjórnmála- hæfileika og festu. Gísli Guðmundsson eftirlaunaþegi: Þorsteinn. Guðlaug Gunnarsdóttir húsmóðir: Þorsteinn, hann er meiri „diplomat” Skíða^ vertíðin verri en loðnu- vertíðih 4t . ' *•' Það er ekki tekið út með sældinni að vera á skiöum og þá er bara að bíta á jaxlinn og gera betur næst. Skíðaáhugamenn hafa ekki átt sjö dagana sæla lungann af vetrinum vegna óvenjulegs árferðis og snjóleysis. Á síð- ustu dögum hefur ástandið þó eitthvað skánað og í vik- unni voru einn daginn um fjögur þúsund manns á skíð- um í heiðríkju, sól og frábæru færi á Bláfjallasvæðinu. Einar Bjamason bifvélavirki, sem hefúr unnið í tíu ár við fólk- svanginn í Bláfjöllum segir að skíðavertíðin, það sem af er vetri hafi jafnvel verið verri en loðnu- vertíðin. Hann segir að í venjulegu árferði sé skíðasvæðið opnað formlega fyrsta virka dag í janúar- mánuði ár hvert, en í vetur var að- eins hægt að hafa svæðið opið í þrjá daga í janúar og síðan ekki fyrr en 20. febrúar vegna snjóleys- is og ofviðrisins í febrúarbyrjun. Einar segir að það hafi tekið starfs- menn fólksvangsins hálfan mánuð að laga til á svæðinu eftir hamfar- imar í veðrinu. Samkvæmt venju em lyftumar opnar fram í miðjan mai en eftir það fer snjórinn að verða erfiður til skíðaiðkunar vegna sólbráðar. Jafnffamt minnk- ar áhugi fólks á að fara á skíði og beinist þá að hefðbundnum sumar- iþróttum. Einar segir að í síðustu viku hafi ástandið verið þokkalegt en engu að síður sé ekki verra að fá meiri snjó en nú er. Á svæðinu er tíu lyftur og þar af tvær sem sér- staklega em fyrir algjöra byrjend- ur; í Suðurgili og við hiiðina á Blá- fjallaskálanum. Þá geta þeir sem fara upp í hinum lyftunum auð- veldlega valið sér skíðabrekkur við sitt hæfl. Vegna snjóleysins hafa starfsmennirnir orðið að eyða mörgum vinnustundum í að ryðja snjó í brautimar. Einar segir að á einstaka stöðum sé snjórinn þunn- ur; nánast eins og slikja yfir. Ekki var að sjá neinar steinnibbur upp úr snjónum sem skíðafólki gæti staðið hætta af. Þá er ekki aðeins að skíðabrekkurnar séu troðnar heldur einnig svæði fyrir þá sem vilja renna sér á skíðaþotum. Starfsmenn fólksvangsem að jafn- aði um 12-14 en um helgar er bætt við á milli 8-10. Þeir em ágætlega í stakk búnir með tæki, hafa þrjá snjótroðara og jafnmarga vélsleða til viðgerða og viðhalds. -grh Að mati skíöamanna er það toppurinn á tilverunni að geta rennt sér á skíðum þegar hita- stigið er við frostmark, færi gott í heiöríkju og sól. Þannig hefur það verið þessa viku á Bláfjalla- svæðinu mörgum til yndis og Bændur sváfu líka hjá Félag áhugafólks um bókmenntir gengst fyr- ir fundi í dag um kynlíf fyrri alda. Þar munu þau Bergljót S. Krist- jánsdóttir, bókmenntafræðingur og Óttar Guðmundsson læknir flytja fyrirlestra. Fyrirlestur Bergljótar nefnist „Hjónabönd og samfarir í íslendingasögum" en lestur Óttars „Kynlíf íslend- inga á söguöld“. Að sögn Guðmundar Andra Thorssonar, eins forsvarmanna Fé- lags áhugamanna um bókmenntir, er von til þess að fyrirlesararnir bregði ljósi á sitthvað varðandi kynlíf forfeðranna sem mönnum hefur almennt yfirsést við lestur fombókmenntanna. -Óttar er þekktur af skrifum sínum um þessi mál. Hann hefur haft uppi ýmsar kenningar t.d. um samlíf þeirra Gunnars og Hallgerð- ar og Gunnars og Njáls og beitt læknisfræðinni til að skýra út margt í samlífi og samskiptum þessara sögupersóna. Bergljót ætl- ar, að mér skilst, að fjalla um þetta efni meira frá bókmenntalegu sjón- arhomi, sagði Guðmundur Ándri. -Það er töluvert um hispurs- leysi í lýsingum á samlífi hjóna og annarra í íslendingasögunum og fombókmenntunum. Þar af er sjálf- sagt Bósa-saga og Herrauðs þekkt- ust fyrir bersögli um kynlíf. Þegar þessar bókmenntir vora skrifaðar var tepraskapurinn ekki kominn til sögunnar eins og síðar varð með siðskiptunum. Bændur flugust því ekki bara á eins og fleygt er orðið - þeir sváfu líka hjá, sagði Guð- mundur Andri. Fundurinn verður haldinn í Odda - Hugvísindahúsi Háskóla Islands í stofú 101 í dag, laugar- dag, og hefst kl. 16.15. Aðgangur er ókeypis og öllum er heimill að- gangur meðan húsrúm leyfir. -rk ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 9.mars 1991 Síða 6

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.