Þjóðviljinn - 09.03.1991, Page 7
Búvöru-
samningur
á koppinn
▲ Guðmundur Rúnar Heiðarsson skrifar
Eftir ríkisstjórnarfund í gærmoreun virðist flest
benda til þess að landbúnaðarráðnerra skrifi und-
ir nýjan búvörusamning í næstu viku. Samkvæmt
samningsdrögunum mun samningurinn spara rík-
issjóði um miljarð á ári eða 6-7 miljarða á samn-
ingstímabilinu. Búist er við að niðurstaða fáist í
málinu á aukafundi ríkisstjórnarinnar á mánudag.
Steingrímur J. Sigfússon land-
búnaðarráðherra segir að málið sé
allt í eðlilegum farvegi og eftir at-
vikum hafi undirtektir samráðherra
á ríkisstjómarfúndinum verið góð-
ar. Markmið búvörusamningsins er
að laga framleiðsluna að innan-
landsmarkaði, ná ffam hagræðingu
í landbúnaði og síðast en ekki síst
að lækka vömverð til neytenda og
draga úr útgjöldum ríkissjóðs.
Steingrímur segir að þó svo að
þessi aðlögun geti orðið erfið,
snögg og sársaukafull fyrir bændur
þá sé betra að taka á henni strax í
stað þess að fresta því að taka á
vandanum og láta bændur búa við
algjöra óvissu um framtíðina.
Ráðherrann segist hafa þá trú
að hægt sé að brjótast út úr því
frosna og þunglamalega kerfi sem
hér hefur verið við lýði, hvorki
bændum, neytendum né ríkissjóði
til hagsbóta.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra segir að landbún-
aðarráðherra hafi fallist á það sjón-
armið, að þó svo að skrifað verði
undir samninginn verði að taka
upp heilu kaflana úr honum og
leggja þá fyrir nýtt þing í haust.
Formaður Alþýðuflokksins segir
að heimavinnunni sé ekki lokið og
telur brýnt að öllum dymm verði
haldið opnum. Hann segist vera
bjartsýnn á að hægt verði að klára
þá vinnu í vor sem snýr að lækkun
vömverðs og endurskipulagningu á
einokunarstöðu afurðastöðva,
vinnslu- og dreifingarkerfis.
Þá hefur Alþýðuflokkurinn fyr-
irvara á mörgum öðmm þáttum er
lúta að samningum ss. hvemig eigi
að tryggja afkomu þeirra bænda
sem bregða búi, niðurgreiðslum á
ull og vaxta- og geymslukostnaði.
Þá vilja kratar að utanríkisvið-
skiptaráðherra hafi fullt umboð til
að semja um fríverslun með fisk í
staðinn fyrir rýmri heimildir um
innflutning landbúnaðarafurða og
Firtrttiir
Línur em famar að skýrast með nýjan búvörusamning og svo virðist sem landbúnaðarráðherra hafi fallist á
að skrifa undir samninginn með þeim fyrirvara að kaflar úr honum verði bomir undir nýtti þing i haust.
Mynd: Jim Smart.
grænmetis. Haukur Halldórsson,
formaður Séttarsambands bænda,
er bjartsýnn á að saman gangi með
ríki og bændum og skrifað verði
undir samninginn í næstu viku.
Samninganefnd Stéttarsambands-
ins kemur saman á sunnudag og
fúlltrúafundur verður hjá samband-
inu á miðvikudag.
Jóhannes Kristjánsson, formað-
ur Landssambands sauðíjárbænda,
segir það sína persónulegu skoðun,
miðað við stöðu málsins, að samn-
ingurinn líti þokkalega út. Að vísu
hafi hann viljað fá lengri aðlögun-
artíma fyrir bændur en því miður
séu ekki peningar til þess.
Flugskýliö á boröi ríkisstjórnarinnar
S lafur Ragnar
Grímsson fjár-
málaráðherrra
lagði til á rikis-
stjórnarfundi í
gær að aðflutn-
ingsgjöld af flug-
skýli Flugleiða á Keflavíkurflug-
velii verði felld niður, svo hægt
verði að flýta framkvæmdum við
það og hefja þær í vor.
Olafur Ragnar sagði við Þjóð-
viljann að tekið hefði verið vel í
þessa hugmynd á fundinum og
sagðist hann búast við því að málið
yrði afgreitt á ríkisstjómarfundi á
mánudag, en síðan þarf það að fara
fyrir þingið.
Einar Sigurðsson, fréttafulltrúi
Flugleiða, sagði við Þjóðviljann í
gær að það væri mjög mikilvægt
fyrir fyrirtækið að fá þessi aðflutn-
ingsgjöld felld niður til þess að
hægt verði að flýta framkvæmdun-
um. Hann sagði að þá yrði hægt að
hefja framkvæmdir strax í sumar
og íjúkaþeim haustið 1992.
Flugskýlið og verkstæðisbygg-
ingar verða 12.400 fermetrar að
stærð og geta rúmað sex 737 400
þotur Flugleiða.
123 starfsmenn Flugleiða
munu flytja starfsvettvang sinn til
Keflavíkur og þar verður öll starf-
semi tæknisviðs Flugleiða utan
daglegt viðhald á Fokkervélunum.
Með nýja flugskýlinu verður
fýrirtækið betur í stakk búið til að
annast hlutaviðhald flugflotans en
ekki er gert ráð fyrir að mótorvið-
hald verði þar, það verði áfram er-
lendis. Þá munu opnast möguleikar
fyrir fyrirtækið að bjóða öðrum
flugfélögum viðhaldsvinnu, en
Flugleiðir eru betur mannaðar af
flugvirkjum en flest önnur félög
sem bjóða upp á viðhaldsvinnu.
Ólafur Ragnar kynnti þessar
hugmyndir á Qölmennum fundi í
Keflavík á fimmtudagskvöld. Þar
sagði hann líka að í samráði við
Steingrím J. Sigfússon yrði lagt til
við Vegagerð rikisins að tvöföldun
Reykjanesbrautar yrði flýtt og
framkvæmdir hafnar í vor. -Sáf
Rauða m vllan
á reykvíska vísu
Nýr skemmtistaður opnaði í höfuð-
borginni nýlega, sem ber nafnið Moul-
in Rouge eins og samnefndur staður í
annarri frægri stórborg.
Gísli Hafsteinsson, annar veislustjór-
anna, sagði staðinn í suðrænum stíl og
þar ríkti klúbbstemning. Moulin Rouge
er hvorki diskótek né knæpa, heldur eitt-
hvað mitt á milli, sagði hann. Staðurinn
opnar kl. 10 á kvöldin og á miðnætti er
Sigríður Elfa, hönnuður Moulin
Rouge, ásamt ónefndri „drag" drottn
ingu sem troða mun upp í kvöld.
Mynd: Kristinn.
boðið upp á fjölbreytt skemmtiatriði, eða
„sjó“. Þar ætlar ungt listafólk að dansa
og syngja fyrir gesti; fagrir karlmenn
klæðast kvenfötum og söngnemar sýna
hvað í þeim býr. Rauða myllan er ofan í
kjallara þeim þar sem Keisarinn var áður,
nálægt Hlemmtorgi.
Sigriður Elfa Sigurðardóttir listakona
hannaði staðinn í „trópíkal stíl“.
Skemmtanastjóri ásamt Gísla er Maríus
Sverrisson.
Ekki er stílað upp á sérstakan hóp
viðkiptavina, heldur eru allir velkomnir
sem fýsir að sjá góð skemmtiatriði og fá
sér í glas og snúning, að sögn veislustjór-
ans.
Bjartsýni
undir Jökli
Aflabrögð Ólafsvíkurbáta
hafa verið með betra móti en oft
áður i byrjun vetrarvertíðar.
Um mánaðamótin janúar -
febrúar höfðu borist þangað á
land 3.475 tonn en á sama tíma í
fyrra aðeins 2.513 tonn.
Kristján Helgason á hafnar-
vigtinni segir að aukningin sé
bæði hjá netabátum og trillum og
ekki óalgengt að bátar komi með
allt að 20 tonn af tveggja nátta
fiski og sumir meira. Kristján
sagði að það yrði þó að taka það
fram að inni í þessum aflatölum í
ár væri 500 tonna afli af togaran-
um Má sem hefði hinsvegar ekki
landað ugga i Ólafsvík á sama
tíma í fyrra. Þá hefði tíðin verið
mun betri í ár en oft áður og því
hefðu bátamir náð að fara í fleiri
róðra. -grh
Síða 7
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 9.mars 1991