Þjóðviljinn - 09.03.1991, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 09.03.1991, Blaðsíða 13
Fméttir Konur, varið ykkur á EB! •' v ‘^i^trvASYlPANJE 8. mars - 4. mai 1991 Myrthel Grödem: Konur á Norðurlöndum fyrir 30-40 árum höfðu svip- aða stöðu og konur í EB núna. Mynd: Jim Smart. ætt við Myrthel Grödem, forystu- konu í samtökun- um „Nei til EF“ og varaformann Sam- taka norskra bændakvenna, frummælanda á Hótei Borg í dag Samtök kvenna á vinnumark- aði efha til fundar á Hótel Borg kl. 14 í dag í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars og er dagskráin helguð konum og EB og/eða EES. Annar aðalræðumanna verður Myrthel Grödem, en hún er for- maður kvennadeildar norsku sam- takanna „Nei til EF“ og varafor- maður „Norsk bondekvindelag", samtaka norskra bændakvenna. Myrthel er bóndi á vesturströnd Noregs, nærri Stavanger, með 25 kýr og 40 ær, karl og tvö böm, og starfar í Miðflokknum, auk þess sem hún beitir sér innan bænda- samtakanna og í EB-umræðunni. - Kvennahreyfingar á Norður- löndum hafa nú tekið höndum saman, segir Myrthel, - og verja tímanum 8. mars til 4. maí til kynningar á verkefninu „Konur á Norðurlöndum á móti EB“. Á fundinum á Hótel Borg ræði ég stöðu kvenna innan Evrópubanda- lagsins og væntanlegs Evrópsks efhahagssvæðis. - Er stemmningin í Evrópuum- ræðunni núna svipuð og fyrir þjóð- aratkvæðagreiðsluna 1972, þegar Noregur hafhaði aðild að EB? - Nei, enda erum við skemmra komin í ferlinu, það eiga eftir að koma fleiri staðreyndir upp á borð- ið, umræðan fer þá harðnandi. Hins vegar er mikilvægt að átta sig á, að nú er verið að tala um allt annað og öðra vísi Evrópubanda- lag en 1972. Núna er hraðar og op- inskár stefnt á yfirþjóðlegt vald, efhahagslegan samrana, pólitískan og jafnvel hemaðarlegan. Hvers vegna eru kon- ur í hópi andstæð- inga EB að berjast eitthvað sérstaklega, getur svona við- fangsefni verið kynjabundið? - Þeir sem era hávaðasamastir í Evrópuumræðunni era karlar í þokkalegum störfum og embættum á aldrinum 40-50 ára. Konur leggja áherslu á önnur verðmæti, þar er ekki þessi yfirgnæfandi áhersla á peninga og hagfræði sem einkennir oft karlana. Þess vegna er þeirra röksemdafærsla önnur. Það era til dæmis ekki margir karlar sem skipta sér af stöðu kvenna á vinnu- markaði eða hugsa út í það hvemig aðstæður era í félagskerfinu. Við viljum að konur geti gert sér grein fyrir því hver staða þeirra verður innan EB. - Hafið þið samband við kvennahópa í aðildarlöndum EB? - Já, mest auðvitað dönsku konumar. Og þær era langt frá því ánægðar með stöðu kvenna í EB og hvemig málefhi þeirra era með- höndluð þar, bæði af opinberri hálfu og hvað varðar virkni í verkalýðsfélögunum. Fólk áttar sig ekki almennt á því, að ef við ber- um saman við Norðurlönd, þá er lögformleg og raunverulega staða kvenna í EB svipuð og fyrir 30-40 árum á Norðurlöndum. í EB era 80% kvenna efnahagslega háðar körlum. Þær era að miklu leyti at- vinnulausar eða í hlutastörfum og vinnuskilyrði þeirra slæm. Konur hér eiga á hættu að tapa miklu af núverandi beinum og óbeinum réttindum sínum ef gengið verður í EB. - Sumir hafa nú þveröfug rök í þessu máli, sem sé að það sé svo mikilvægt að fá Norðurlöndin inn í EB eða til náinnar samvinnu, svo að þau geti haft jákvæð áhrif innan bandalagsins og tosað réttindamál- um upp á við... - Þetta held ég að sé ósk- hyggja. Staðreyndin er sú, að innan Evrópubandalagsins starfa lönd ekki saman í blokkum, heldur í pólitiskum hópum, í samræmi við flokkaskiptingar á þjóðþingum. Það yrði aldrei neinn sameiginleg- ur Norðurlanda-þrýstihópur innan EB, heldur mundu kratamir starfa saman, miðflokkamir, hægriflokk- amir osírv., eins og nú tíðkast. í EB era 15 miljónir atvinnu- lausra kvenna núna og þar lifa 50 miljónir manna undir fátæktar- mörkum, meiri hluti þeirra konur. Norðurlandabúar þekkja þetta bara ekki af eigin raun. Margir telja þetta fomeskjutaut, að þora ekki starfa í EB, nútímanum sjálfum... - Bandaríkin og Japan era ekki síðri nútími en EB, hins vegar er ástandið í réttindamálum og við- horfum t.d. í Portúgal, á Spáni og Italíu ekki sá nútími sem ég sækist eftir. Við viljum ekki fóma því sem áunnist hefur á Norðurlöndum, í umhverfísmálapólitík, í velferðar- kerfinu, almannatryggingum, neyt- endavemd. Allt er þetta á lægra stigi í EB. Þar að auki er Evrópu- bandalaginu stjómað á ólýðræðis- legan hátt og bilið langt á milli al- mennings og miðstýrða valdsins. Þetta veldur því að pólitískur áhugi fer dvínandi, líka á stjómmálaþátt- töku og kosningum til þjóðþinga, segir Myrthel Grödem. Á fundinum á Hótel Borg kl. 14 á morgun ræðir svo Sigríður Kristinsdóttir, formaður Starfs- mannafélags ríkisstofnana, stöðu íslenskra kvenna á vinnumarkaði gagnvart evrópskum efnahagssam- rana, frumflutt verður ljóð og lag Stellu Hauksdóttur, Palestína, en kynnir verður Bima Þórðardóttir. ÓHT Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingardeildar borgarverkfræðings, óskar eftir tilboðum [ málun á ýmsum fasteignum II. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju- vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama sað miðvikudaginn 27. mars kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvcgi 3 - Simi 25800 Utboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingar- deildar borgarverkfræðings, óskar eftir tilboðum I jarðvinnuframkvæmdir við grunn Árbæjarskóla. Helstu magntölur: Gröftur 1260 m3 Fylling 670 m3 Hoiræsi 56 m Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju- vegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað föstudaginn 15. mars 1991, kl 11.00 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800 Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í smíði gufu- og rakaskilja, gufuháfs og afloftara fyrir 2. áfanga Nesjavallavirkjunar. Samtals er um að ræða smíði úr 70 tonnum af svörtu stáli og um 14 tonnum af ryðfríu stáli. Tækin skulu afhent á tímabilinu 1991 til 1993. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju- vegi 3, Reykjavi'k, gegn kr. 15.000, - skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 10. apríl kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800 68 55 22 HZÐ. Síða 13 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 9.mars 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.