Þjóðviljinn - 09.03.1991, Side 17
TfALDIÐ
Háskólabíó
Sýknaður ***
(Reversal of fortune)
Spennandi handrit og frábær
leikur, sérstaklega hjá Jeremy
Irons. Það má eiginlega ekki
missa af honum.
Allt í besta lagi***
(Stanno tutti bene)
Tomatore kemur hér með öriít-
ið þyngri mynd en Paradísar-
bíóið, en hún er falleg og
áhugaverð og Mastroianni er
engum líkur.
Nikita ***
Nikita er nýjasta afrek Luc
Bessons. Undirheimar Parísar
fá nýja hetju, Nikitu sem er
eins konar kvenkyns 007.
Tryllt ást (Wild at heart)***'
Hinn undarlegi David Lynch
kemur hér með undarlega og
stórgóða mynd fyrir alla kvik-
myndaunnendur.
Paradísarbíóið****
(Cinema Paradiso)
Langt yfir alla stjörnugjöf hafin.
Svona mynd er aðeins gerð
einu sinni og þessvegna má
enginn sem hefur hið minnsta
gaman af kvikmyndum missa
af henni.
Bíóborgin
Á síðasta snúning**
(Pacific hights)
Lengi vel er þetta spennumynd
með dálítið skemmtilega sér-
stökum söguþræði en endirinn
er alltof fyrirsjáanlegur og
skemmir fyrir heildinni.
Memphis Belle ***
Það er ekki annað hægt en að
heillast af þessum hetjum há-
loftanna. Þetta er skemmtilega
gamaldags mynd um hugrekki
og vináttu.
Uns sekt er sönnuð**'
(Presumed innocent)
Plottið er gott en leikurinn er
misjafn. Julia og Bedelia hífa
hana upp úr meðalmennsk-
unni.
Bíóhöllin
Hættuleg tegund **
(Arachnophobia)
Bannvænar köngulær frá Ven-
ezuela herja á smábæ í Kali-
forníu. Köngulærnar fá stjörnu
fyrir frábæran leik.
Regnboginn
Úlfadansar ****
(Dances with wolves)
Þeir sem halda að vestrinn sé
dauður ættu að drífa sig á
þessa stórkostlegu mynd. Hríf-
andi og mögnuð.
Litli þjófurinn **'
Ung stúlka gerir uppreisn gegn
umhverfi sínu á árunum eftir
seinni heimstyrjöld í Frakk-
landi. Góður leikur en ekki
nógu sterk.
Ryð ***
Ryð er í alla staði mjög vel
gerð og fagmannleg mynd.
Lokaatriðið er með þeim betri í
íslenskri kvikmyndasögu. Miss-
ið ekki af henni.
Stjörnubíó
Á mörkum lífs og dauða**
(Flatliners)
Myndin er eins og langt tónlist-
armyndband þar sem hljóm-
sveitina vantar. en óneitanlega
spennandi skemmtun.
Laugarásbíó
Stella **
Bette Midler er mjög góð í
þessari hálf fyndnu - hálf dram-
atísku mynd um mæðgur. Mun-
ið eftir vasaklútunum.
Leikskólalöggan**
(Kindergarten cop)
Schwartzenegger sýnir að
hann getur meira en skotið fólk
í tætlur með vélbyssu. Hann og
börnin eru fyndin og væmin á
víxl.
SIF
Á FÖEMUM ¥EGI
Magnús H.
Gíslason
að var í raun og veru
nokkurt álitamál hvem-
ig skynsamlegast væri
að veija deginum í dag.
Mér nægði það, að vera
kominn inn að Brjáns-
læk annað kvöld því báturinn fer
ekki þaðan fyrr en á sunnudag. Það
var htnsvegar hreint ekki hrist fram
úr erminni að vera tvo daga að
staulast þennan spöl. Og óneitan-
lega var það freistandi að halda
kyrra fyrir hér í Haga í dag. Fram á
það kunni ég hins vegar ekki við
að fara. Öðm máli gegndi að bera
upp slíka málaleitan á Bijánslæk,
þvi þar var endastöð fyrir þá, sem
ætluðu með bátnum, hvaðan svo
sem þeir komu. Auk þess myndi
hygginn ferðamaður ekki setja allt
sitt traust á einn dag á þessum tíma
árs, væri annars kostur.
Landssímastöð var í Haga og
var síminn þama í herberginu hjá
mér. Hákon var sjálfúr við símann
og kom inn til mín kl. 9. Hringdi
þá strax í Jóhann sýslumann
Skaptason á Patreksfirði. Skyldi nú
hreppstjórinn í Haga vera að hvísla
því að sýslumanninum á Patreks-
firði að á ljörur hans hefði rekið
sakamann að norðan, hugsaði ég?
Nei, ekki var það nú svo slæmt, en
tegar sýslumaður frétti að ég væri
jama í húsum hreppstjórans vildi
íann hafa tal af mér. Erindið var þá
aðeins að fá fféttir af því hvemig
mér hefði gengið síðan við skild-
um,, og óska méi góðrar heimferð-
ar. Eg þakkaði honum hinsvegar
fyrir þær alúðlegu viðtökur, sem ég
fékk á heimili hans og bað hann
fyrir kveðjur til þeirra Salómons,
Jóakims, Péturs frá Stökkum og
Ama Gunnars, kaupfélagsstjóra.
Gamla konan, sem tók á móti
mér í gær og reyndist vera tengda-
móðir Hákonar, kom nú inn til mín
með fötin, sem ég fór úr frammi á
ganginum í gær. Vom þau nú öll
skraufþurr orðin. Upp úr dúmum
kom að hún var náskyld konu
Guðmundar vinar míns á Eiríks-
stöðum í Svartárdal, en hún var
ættuð úr Breiðafjarðareyjum. Bað
hún mig að skila kveðju til hennar,
hvað ég lofaði að gera, þótt það
kynni, af eðlilegum ástæðum, að
dragast nokkuð.
Og nú var ljósmóðirin komin
heim. Hún sagðist eiga hest, sem
ættaður væri frá Eyhildarholti.
Lýsingin á honum sannfærði mig
um, að þama væri kominn hestur,
steingrár að lit og döggur á tagl og
fax, sem ég neyddist til að selja
fyrir nokkrum ámm, til þess að
geta greitt skólakostnað. Kom því
ekki til af góðu að ég fargaði hon-
um. Fyrir hann vom mér boðnar
450 kr. og skildist mér að það væri
með hæsta verði sem fékkst fyrir
reiðhesta í þá daga. Þetta var harð-
viljugur, hágengur töltari. Ljós-
moðirin sagði mér að hann væri
sinn einkahestur, sér þætti ákaflega
vænt um hann og hann færi aldrei
lifandi úr sinni eigu. Það þótti mér
ánægjuleg yfirlýsing því ég er þess
fúllviss, að Sporði mínum líður vel
hjá þessari ágætu konu.
Það fór sem mig grunaði, að
Hákon lagði það eindregið til að ég
héldi kyrru fyrir hjá sér í dag. Það
var freistandi tilboð, en sú varfæmi
mín, að treysta ekki að óþörfú á
veðurfar morgundagsins, þar sem
spáð var þá lika versnandi veðri,
vóg þyngra. Hákon skildi þá af-
stöðu og lét nú sækja tvo hesta.
Fékk mér annan en Bjama syni
sínum hinn og bað hann að fylgja
mér inn að Vaðli, og hafði þá verið
farinn helmingur leiðarinnar inn að
Brjánslæk. Hann gerði það ekki
endasleppt við mig, gamli maður-
inn. Og svo rölti ég þá síðasta
áfangann minn hér a Vestfjörðun-
um, að þessu sinni.
Að Bijánslæk kom ég um kl.
5.30 og var þá þvínær aldimmt
orðið. Eg knúði dyra og innan
skamms bjrtist ung stúlka í dyra-
gættinni. Eg tjáði henni það áform
mitt að komast með bátnum til
Stykkishólms á sunnudag. Væm
tök á því að bíða þama þangað til?
Jú, jú, ekkert sjálfsagðara og leiddi
mig til stofú. Bóndi reyndist vera
úti í Flatey og ekki væntanlegur
þaðan fyrr en einhvemtíma um
nóttina. Fljótlega var mér boðið
upp á kaffi og heitar lummur. Ekki
var það nú amaleg byijun. En ekki
sá ég þama annað fólk en yngu
stúlkuna og roskna konu. Eg var
hálf smeykur um að kvöldið yrði
lengi að líða. Mér datt í hug að
bjóðast til að flytja þama fyrirlest-
ur en féll frá þvi við nánari um-
hugsun, þar sem mér sýndust engin
mót á því að áheyrendumir yrðu
nema tveir. Því setti ég traust mitt
á útvarpið. En það reyndist þá vera
bilað. Sem betur fór rakst ég á
nokkrar bækur í svefnherberginu.
Kvöldinu eyddi ég í þær.
Horfur á laugardag og sunnudag
Norð-austlæg átt, nokkuð hvasst norð-vestanlands og með
norðurströndinni en hægari annarst staðar. Dálítil rigning eða slydda
á suð-austur- og austurlandi, léttskýjað suð-vestanlands.
Hiti um frostmark vestanlands en 1 til 5 stiga hiti á austurlandi
KROSSGÁTAN
Lárétt: 1 æsa 4 hörfa 6 aur 7 brenna 9
reykir 12 tryllast 14 glöð 15 tíðum 18
viðkvæmar 19 galdur 20 muldri 21 um-
gerð
Lóðrétt: 2 þannig 3 mjög 4 lof 5 blása 7
verst 8 varkárir 10 vindi 11 beinir 13 út-
lim 17 flana 18 vesöl
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: 1 beit 4 raft 6 ami 7 farg 9 sótt
12 eldur 14 lík 15 Eir 16 kerfi 19 erji 20
æðra 21 angra
Lóðrétt: 2 eða 3 tagl 4 risu 5 fet 7 falleg
8 rekkja 10 óreiða 11 tarfar 13 dúr 17
ein 19 fær
APÓTEK
Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabuða vikuna 8. til 14. mars. er I
Vesturb. Apóteki og Háaleitis Apóteki.
Fyrrnefnda apótekið er opið um helgar og
annast næturvörslu alla daga kl. 22 til 9 (til
10 á frídögum).
Síðamefnda apótekið er opiö á kvöldin kl.
18 til 22 virka daga og á laugardögumkl. 9-
22 samhliða hinu fyrrnefnda.
LÖGGAN
Reykjavik....................w 1 11 66
Neyöam. ef símkerfi bregs t.« 67 11 66
Kópavogur....................« 4 12 00
Seltjamarnes.................« 1 84 55
Hafnarfjöröur................« 5 11 66
Garðabær.....................« 5 11 66
Akureyri.....................« 2 32 22
Slökkvilið og sjúkrabílar
Reykjavík....................« 111 00
Kópavogur....................«1 11 00
Seltjamarnes.................* 1 11 00
Hafnarfjörður................* 5 11 00
Garðabær.....................* 5 11 00
Akureyri.....................w 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn-arnes
og Kópavog er í Heilsuverndar-stöð
Reykjavlkur alla virka daga frá kl. 17 til 8,
á laugardögum og helgidögum allan
sólarhringinn. Vitjanabeiðnir,
símaráöleggingar og tímapantanir í
« 21230. Upplýsingar um lækna- og
lyfjaþjónustu eru gefnar i símsvara 18888.
Borgarspitalinn: Vakt virka daga frá kl. 8 til
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni
eöa ná ekki til hans. Landspitalinn:
Göngudeildin er opin frá kl. 20 til 21.
Slysadeild Borgarspít-alans er opin allan
sólarhringinn,
« 696600.
Neyöarvak Tannlæknafélags Islands er
starfrækt um helgar og stórhátíðir.
Símsvari 681041.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl-an, «
53722. Næturvakt lækna,
® 51100.
Garðabæn Heilsugæslan Garðaflöt,
tr 656066, upplýsingar um vaktlækni
«51100.
Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á
Læknamiðstööinni, « 22311, hjá Akureyrar
Apóteki, « 22445. Nætur- og
helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985-
23221 (farsfmi).
Keflavfk: Dagvakt, upplýsingar f
« 14000.
Vestmannaeyjar Neyðarvakt lækna,
« 11966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartfmar: Landspítalinn: Alla daga
kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-spftalinn:
Virka daga kl. 18:30 til 19:30, um helgar kl.
15 til 18 og eftir samkomulagi.
Fæðingardeild Land-spltalans: Alla daga
kl. 15 til 16, feðra-timi kl. 19:30 til 20:30.
Fæöingar-heimili Reykjavíkur v/Eirlksgötu:
Al-mennur timi kl. 15-16 alla daga, feðra-
qg systkinatfmi kl. 20-21 alla daga.
Öldrunarlækningadeild Landspítal-ans,
Hátúni 10B: Alla daga ki. 14 til 20 og eftir
samkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala:
Virka daga kl. 16 til 19, um helgar kl. 14 til
19:30. Heilsu-verndarstöðin við
Barónsstíg: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30
til 19:30. Landakotsspítali: Alla daga kl. 15
til 16 og 18:30 til 19. Barnadeild: Heim-
sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17 alla
daga. St. Jósefs-spítali Hafnar-firði: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30.
Kleppsspítalinn: Alla daga kl 15 til 16 og
18:30 til 19. Sjúkrahús Vestmannaeyja:
Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl. 15:30 til
16 og 19 til 19:30. Sjúkrahúsið Húsavik:
Alla daga kl. 15 til 16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Rauða kross húsið: Neyðarathvarf fyrir
unglinga, Tjarnargötu 35,
« 91-622266, opiö allan sólartiringinn.
Samtökin 78: Svarað er i upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbia og homma á
mánudags- og fimmtudags-kvöldum kl. 21
til 23. Sfmsvari á öðrum tlmum. « 91-
28539.
Sálfræðistöðin: Ráðgjöf í sálfræði-legum
efnum, « 91-687075.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laganema,
er veitt í síma 91-11012 milli kl. 19:30 og
22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagið, Álandi 13: Opið virka daga frá
kl. 8 til 17, « 91-688620.
„Opiö hús” fyrir krabbameinssjúk-linga og
aðstandendur þeirra i Skóg-arhlíð 8 á
fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmis-vandann
sem vilja styðja smitaða og sjúka og
aöstandendur þeirra i « 91-22400 og þar
er svaraö alla virka daga.
Upplýsingar um eyðni: « 91-622280, beint
samband við lækni/hjúkrunar-fræðing á
miðvikudögum kl. 18 til 19, annars
slmsvari.
Samtök um kvennaathvarf: « 91-21205,
húsaskjól og aöstoð við konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum, Vestur-
götu 3: Opið þriðjudaga kl. 20 til 22,
fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til
22, « 91-21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum: « 91-21500, símsvari.
Vinnuhópur um sifjaspellsmál:
« 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stlgamót, miðstöð fyrir konur og böm sem
orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vesturgötu
3, « 91-626868 og 91-626878 allan
sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
« 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt I
« 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
« 652936.
GENGIÐ
8„mars 1991 Kaup Sala Tollg
Bandarikjad.. .56,380 56,540 55,520
Sterl.pund... 105,996 106,267 106,571
Kanadadollar. .48,518 48,655 48,234
Dönsk króna.. . .9,447 9,474 9,517
Norsk króna.. . .9,289 9,315 9,351
Sænsk króna.. . .9,801 9,828 9,837
Finnskt mark. .15,085 15,127 15,130
Fran. franki. .10,656 10,686 10,739
Belg. franki. . .1,761 1,766 1,774
Sviss.franki. .41,670 41,788 42,220
Holl. gyllini .32,197 32,289 32,439
Þýskt mark... .36,286 36,389 36,563
ítölsk lira.. . .0,048 0,048 0,048
Austurr. sch. . .5,154 5,169 5,190
Portúg. escudo.0,417 0,418 0,418
Sp. peseti... . .0,583 0,584 0,586
Japanskt jen. . .0,414 0,415 0,419
írskt pund... .98,661 96,936 96,465
LÁNSKJARAVÍSnALA
Júni 1979 « 100
1986 1987 1988 1989 1990 1991
jan 1364 1565 1913 2279 2771 2969
feb 1396 1594 1958 2317 2806 3003
mar 1428 1614 1968 2346 2844 3009
apr 1425 1643 1989 2394 2859 —
mai 1432 1662 2020 2433 2873
jún 1448 1687 2020 2475 2887
júl 1463 1721 2051 2540 2905
ágú 1472 1743 2217 2557 2925
sep 1486 1778 2254 2584 2932
okt 1509 1797 2264 2640 2934
nóv 1517 1841 2272 2693 2938
Síða 17
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 9.mars 1991