Þjóðviljinn - 28.05.1991, Qupperneq 1
97. tölublað Þriðjudagur 28. maí 1991 56. árgangur
Ögmundur Jónasson formaður BSRB, var haröorður gagnvart þeim vaxtahækkunum sem gengið hafa yfir landsmenn nú undanfarið. Mynd:Kristinn.
BSRB boðar aðgerðir
gegn vaxtahækkunum
S g vil hér með setja fram þá hugmynd að við efnum til al-
Emenns fundar á fimmtudag að þinginu ioknu þar sem við
sýnum hug okkar í þessu málum og knýjum á um breytta
stefnu - hefjum gagnsókn gegn þessu ranglæti," sagði Ög-
mundur Jónasson formaður BSRB m.a. í setningarræðu
sinni á þingi Bandalags starfsmanna ríkis og bæja (BSRB) sem sett
var í gær. Ogmundur var þar að vísa til vaxtahækkanna ríkisstjórn-
arinnar og segir að þær komi harðast niður á þeim sem lægst hafa
launin.
1 setningarræðu sinni á 36.
þingi BSRB, sem hófst í gær, gerði
Ógmundur Jónasson formaður
BSRB, að umtalsefhi sinu vaxta-
hækkanir sem komið hafa yfir
landsmenn undanfama daga. Og-
mundur sagði m.a., „Sérstaklega
vil ég nefna hinar forkastanlegu
vaxtahækkanir undanfama daga
sem eru afturvirkar í þokkabót.
Menn segja að eitt skuli yfir alla
ganga þess vegna eigi að vera aft-
urvirkni. En það gengur ekkert eitt
yfir alla. Eða skiTja menn ekki að
vegna þess hve lítið lánshlutfallið
var um árabil úr opinbera húsnæð-
iskerfmu þurfhi fjölskyldumar að
leita á náðir fjármagnskerfisins
með óheyrilegum vaxtakostnaði.
Þetta vom forsendumar á þeim
tima. Nú er verið að breyta þeim,
bæta við klyfjamar, einmitt á þessu
fólki. Setja skrúfu á þá sem þegar
vom klemmdir. Finnst mönnum
virkilega ekki nóg að gert? Og
varðandi framtíðina. Þar er talað
um sjálfseignarstefhu. Ég fullyrði
hins vegar að með þeim ráðstöfun-
um sem nú er verið að gripa til er
verið að útiloka þriðjung fjöl-
skyldna í landinu frá því að eignast
íbúð. I vor var sagt að loka ætti al-
menna húsnæðiskerfinu en af-
greiða biðröðina. Það var einnig
ákveðið að auka lánshlutfall í hús-
bréfakerfinu fyrir þá sem em að
kaupa í fyrsta skipti og gera þeim
þannig kleift að komast inn í hús-
bréfakerfið. Þetta á að svíkja og
með einu pennastriki er biðröðin
þurrkuð út, þvert ofan i gefin lof-
orð. Þar með er hætt allri aðstoð
við þúsundir fjölskyldna til að
komast yfir íbúð í fyrsta skipti.
Þeim vísað á hinn fijálsa leigu-
markað. Þetta er óskynsamlegt því
þetta kemur til með að auka rikis-
útgjöld en ekki spara þau eins og
markmiðið er sagt vera. Þetta er
líka ósanngjamt og við látum ekki
bjóða okkur þetta,“ sagði Ögmund-
ur.
Stjóm BSRB samþykkti á
fundi sl. föstudag að vera með al-
mennan fund í Háskólabíó nk.
fimmtudag þar sem vaxtahækkim-
um undanfama daga og vikur yrði
mótmælt, og einnig em uppi ráða-
gerðir um mótmælastöðu fyrir utan
Stjómarráðið sama dag. Fulltrúar á
þinginu virtust sammála að eftir
vinnu í nefhdum yrði samþykkt
harðorð ályktun gagnvart fnim-
kvæði stjómvalda í vaxtahækkun-
um. Einnig telja hinir ýmsu fulltrú-
ar að þetta þing muni verða stefnu-
markandi í væntanlegum kjara-
samningum í haust. -sþ
Jón í
Seðla-
bankann
Jón Sigurðsson iðnaðar-
ráðherra neitar því ekki að
um það hafl verið rætt að
hann yrði Seðlabankastjóri
upp úr miðju kjörtímabili
núverandi ríkisstjórnar. DV
birti frétt þessa efnis í gær og
segir í fréttinni að þingmenn
Alþýðuflokksins hafi staðfest
þetta og að um þetta hafl
verið gert heiðursmanna-
samkomulag í flokknum fyr-
ir kosningar.
Jón, sem var í efsta sæti
lista Alþýðuflokksins á
Reykjanesi, sagði í samtali við
Þjóðviljann í gær að þetta væri
ekki á dagskrá, að fréttin væri
fyrirsögn án fréttar og ekki
studd staðreyndum eða vera-
leikanum. En þegar gengið var
á hann méð hvort um þetta hafi
verið talað neitar hann því
ekki.
Jón var spurður hvort
aldrei hafi verið rætt í hans
hópi að hann yrði Seðlabanka-
stjóri á miðju kjörtímabili:
„Það hefur margt verið rætt og
skrafað," sagði.Jón. - Þar á
meðal þetta? „Ég segi ekkert
um það. Þetta mál er ekkert á
dagskrá,“ svaraði iðnaðarráð-
herra og þegar frekar var á
hann gengið spurði hann til
baka hvort blaðamaðurinn
hefði aldrei drakkið kaffi með
öðrum.
Rannveig Guðmundsdóttir,
sem var í þriðja sæti á lista Al-
þýðuflokksins á Reykjanesi,
sagðist ekkert þekkja til þessa
máls og aldrei hafa handsalað
neitt þessu líkt.
Jón Baldvin Hannibalsson
formaður flokksins vildi ekki
annað segja en þetta: ,JEf það
er verið með þessu að eigna
forystu Alþýðuflokksins eitt-
hvað slíkt samkomulag þá hef-
ur það farið framhjá mér.“
-gpm
stjóri