Þjóðviljinn - 28.05.1991, Page 4

Þjóðviljinn - 28.05.1991, Page 4
FEETTIR A Umsjón: Dagur Þorleifsson Sjálfsvíg algeng baráttu- og mótmæla aoferð Tamíla Höfuð konunnar, sem taliö er Ifklegt að hafa oröið Rajiv Gandhi að bana og sjálfri sér um leið - frelsistígrar á Sri Lanka hafa sent konur sem karfa til sjálfs- vfgsárása. Rannsóknalögregla og leyniþjónustumenn í Madras, höfuðborg ind- verska fylkisins Tamílna- dú, segja að ýmislegt bendi til þess að banamenn Rajivs Gandhi, fyrrum forsætisráðherra Ind- lands, séu tamílskir skæruliðar á Sri Lanka. Samtök skæruliða þessara, sem gjarnan eru kallaðir tamíltígrar eða frelsistígrar, höfðu þungan hug á Gandhi vegna af- skipta stjórnar hans af borgara- stnðinu a Sri Lanka. Auk Gandhis fórust 15 mann- eskjur í sprengingunni í Sriperum- budur skammt frá Madras fyrir viku. Lögreglan segir að borin hafi verið kennsl á öll líkin, þótt flest væru sundurtætt eftir sprenginguna. Þeir sem fórust voru flestir forustumenn á staðnum, starfsmenn Þjóðþings- flokksins og lögreglumenn. Aðeins einar líkamsleifamar em enn óþekktar. Þær eru af konu sem lögregla segir hafa verið 25-30 ára, smáa vexti og tamílska í útliti. Lög- reglan telur að hún hafi hafl sprengi- efnið vafið um mitti sér eða mjaðm- ir og þannig verið frá því gengið að það springi er hún hneigði sig fyrir Gandni. Efri hluti líkama hennar Fertug kona tamílsk frá Sri Lanka, nefnd Vasanthi, var hand- tekin í gær í Cuddalore, borg um 150 km suður af Madras, höfuð- borg Tamílnadú, að sögn lögreglu. Mun ekki grunlaust um að nún hafi átt hlut að sprengjutilræðinu, sem varð að bana Rajiv Gandhi, fynum forsætisráðherra Indlands, og a.m.k. 15 manneskjum öðmm. hvarf gersamlega við sprenginguna og höfuðið kastaðist tíu metra frá bolnum. Andlitið er furðu lítið skaddað. Innan um það sem eftir var af líkama konu þessarar fundust leif- ar af sprengju og er talið að sumt af því hafi verið framleitt í Bretlandi. 1987, þegar Rajiv Gandhi var forsætisráðnerra, sendi Indland her- lið út á Sri Lanka með samþykki stjómarinnar þar til að stilla til friðar í borgarastríði hennar og tamílskra sjálfstæðisflokka. Það gekk ekki betur en svo að áður en langt um leið var Indlandsher sjálfur kominn í stríð við tamílsku skæruliðana. Féllu margir af báðum og illvirki voru framin, t.d. kváðu indverskir her- menn hafa nauðgað fjölmörgum ta- mílskum konum. Gandhi, sem þótt- ist sjá fram á að þama væm Indveij- ar á leiðinni með að koma sér upp sinu eigin Víetnamstríði, kvaddi her sinn heim af eynni. A Sri Lanka em Tamílar næst- fjölmennasta þjóðin, en þeir em líka þorri íbúa í Tamílnadú, þar sem mik- íll meirihluti þeirra byr. Þeir hafa ekki verið með öllu hressir við þau umskipti sem urðu er Indland hætti að vera hluti af Bretaveldi og varð í staðinn sjálfstætt lýðveldi. Þótti þá sumum að við, af enskumælandi Menn sem vom nærstaddir segjast hafa séð konu í dekkra lagi yfirlitum hlaupa til móts við Gand- ni, að því er virtist til að leggja blómsveig um háls honum. Hafi hún komið á fundarstaðinn í bíl með tveimur karlmönnum og ann- arri konu, í ljósara lagi yfirlitum. Þessi þrjú hafi hraðað ser á brott þegar efiir sprenginguna. breskum valdhöfum, hefðu tekið hindímælandi norðurindverskir. Stjómvöld lýðveldisins vildu að enska yrði lögð niður sem opinbert mál og að hindí yrði helsta opinbera mál landsins alls. Bmgðust Tamílar yþá reiðír við, bentu á að hindí væri índóevrópskt mál eins og enska og héldu því fram að hún væri Tamíl- um, sem tala dravídamál, engu síður framandi en tunga Breta. Var and- staðan svo römm í Tamílnadú við þessa breytingu að lndlandsstjóm sló um síðir undan, ákvað að enska yrði áfram eitt opinberra mála uns öll indversku fylkin yrðu sammála 'um að hindí kæmi í hennar stað. Indverskir stjómmála- og sagn- fræðingar, sumir þeirra Tamílar, segja að það sé fom hefð með þeirri þjoð að beita sjálfsvígum sem bar- áttuaðferð og í hefndarskyni. Benda þeir í því sambandi á ýmislegt úr sögu síðustu áratuga. Iravatham Mahadevan, tamílsk- ur sagnfræðingur og ritstjóri, segir til marks um hversu ódeigir landar sínir séu að tiltölulega mikið sé um það meðal þeirra að vaða eld og stinga nálum gegnum kinnar sér við vissar helgiathafnir. Þegar það var á döfinni að láta hindí taka við af ensku brenndu 27 manns í Tamílnadú sig til bana í mótmælaskyni. Kváðu þau sjálfsvíg hafa knúð indversku stjomina til eft- irgjafar, öðm fremur. Deilur Tamíla á Sri Lanka og stjómvalda þar gerðust blóðugar a síðustu árum áttunda áratugar, m.a. vegna þess að Tamílar óttuðust að stjomvöld ætluðu að leggja tamílsku mður sem skólamál. Tamil Eelam- frelsistígrar, helstu samtök uppreisn- armanna þar sem vilja sjálfstætt ríki fyrir Tamíla á eynni, hafa í áratugs stríði sínu við Sri Lankastjóm gert mikið að því að senda fólk, konur sem karla, til sjálfsvígsárása. Skæm- liðar frelsistígra em vanir að hafa hylki með blásýmsalti í bandi um hálsinn. Tígramir hófu á sínum tíma árásir á Indlandsher eftir að 13 for- ingjar þeirra, sem Indveijar hand- tóku, höfðu svipt sig lífi. A.R Venkateswaran, indverskur stjómmálafræðingur tamílskrar ætt- ar, segir eðlilegt að allt sem snerti þjóðtunguna sé viðkvæmt mál svo fomri þjóð sem Tamílum. Hann hef- ur og pá kenningu að mótmæli með sjálfsvígum séu algengust í fomum menningarlöndum. Gamsa- khurdía kjörinn með 87% Zvíad Gamsakhurdía, for- seti sovéska lýðveldisins Ge- orgíu, var endurkjörinn í það embætti með 87 af hundraði at- kvæða á sunnudag, að sögn kjörstjómar. Frambjóðendur vom alls sex. Þetta er í fyrsta sinn sem forseti sovésks lýð- veldis er kosinn í beinum kosn- ingum. Hringborðsbandalagið, flokkabandalag undir fomstu Gamsakhurdía, sigraði komm- únistaflokk lýðveldisins í þing- kosningum s.l. haust og hefur síðan verið við völd. Kaus þingið Gamsakhurdía forseta í okt. Hann stefnir að því að Ge- orgía verði alsjálfstætt ríki og að miðstjóm í lýðveldinu verði efld. Þjóðemisminnihlutar, einkum Ossetar og Abkasar, vilja ekki að Georgía verði sjálfstæð og þeir og fleiri and- stæðingar Gamsakhurdía saka hann um að vera í þann veginn að gera lýðveldið að einræðis- ríki. Georgíuþing afnam sjálf- stjóm Suður-Ossetíu s.l. ár og hafa síðan verið viðsjár miklar með Georgíumönnum og Os- setum. Tugir manna hafa verið drepnir í þeim illindum. Kosningamar á sunnudag náðu hvorki til Suður-Ossetíu né Abkasíu, sem er við Svarta- haf. í kosningabaráttunni sakaði Gamsakhurdía keppinauta sína um að ganga erinda sovésku stjómarinnar og segjast þeir þó allir vilja fullt sjálfstæði eins og hann. Gert er ráð fyrir að við sig- ur Gamsakhurdía færist í auk- ana togstreitan milli sovésku stjómariimar annarsvegar og hinsvegar lýðvelda þeirra sem stefna að fullu sjálfstæði eða mjög víðtækri sjálfstjóm. Srilankísk kona handtekin Afmæu Jóhannes J [óhannesson ] iistmálari 70 ára I huga sjómannssonar er lífseig sú kennd að finnast allir skipsfé- lagar föður hans eða bræðra vera félagar og vinir hans líka og allrar fjölskyldunnar. Eg held að þessi kennd hafi gert sig gildandi hjá mér gagnvart öllum í hópi ungra listamanna, sem fengu far með flutningaskipinu Súðinni í febrúar 1949. Þar fóm saman í hópi söngv- arar og listmálarar og var ferðinni haldið til Ítalíu. Með í for var Ket- ill bróðir minn og einn af ferðafé- lögum hans var Jóhannes Jóhanne- son listmálari og gullsmiður, sem var sjötugur í gær, 27. maí. En það var fýrst seint á árinu 1951 að ég kynntist Jóhannesi, sem þá var alkominn til landsins eftir nám við Accademia di Belle Arti í Flórens á Ítalíu og dvöl hans í París. Hann, félagar hans og vinir höfðu það mikið seiðmagn, að ég varð fljótt eins og grár köttur á vinnustofu hans í Kamp Knox, þessu mikla braggahverfl í vestur- bænum, sem þá var fullt af fjöl- skrúðugu mannlífi og list: Málara- list, tónlist og leiklist. Frá þessum tíma svífur enn í huga mér mynd- efni af bamaleikvelli hverfisins, sem Jóhannes tók til rækilegrar meðferðar í mörgum myndum: Böm í rólum. Það ætti sannarlega að vera mörgum í árgöngum okkar Jó- hannesar til mikillar gleði að myndlist, sem fyrir 40 árum var að skapast í vinnustofum í Kamp Knox og síðar í misgóðu húsnæði víða um bæinn, hefur nú verið fundinn staður í góðum hýbýlum margra samlanda, og í Iistasöfnum okkar, opinberum byggingum og bönkum. Jóhannes er fæddur undir þeirri heillastjömu að sjá óskadrauminn um veglegt hús fyrir Listasafn ls- lands rætast á þann hátt að öllum er til sæmdar, sem að því stóðu. Hann lagði fram mikið starf með Selmu Jónsdóttur og mörgu öðru góðu fólki til að láta þennan draum rætast. Listasafn Háskóla islands hefur orðið mikill hvati fyrir þá sem þar starfa og ganga um garða. Það er alltaf sérstök ánægja að koma í sal- arkynni Lögbergs, hús lagadeildar Háskólans, og sjá þar kraftmikil myndverk eftir Jóhannes og Krist- ján Davíðsson. Það er leitt að Dr. Albert C. Bames hinum hugum- stóra og moldríka myndlistarfröm- uði Bandaríkjanna skyldi ekki auðnast að sjá, hve vel þessum tveimur íslensku nemendum auðn- aðist að ávaxta þá listmenntun, sem þeir sóttu til stofnunar hans í Fíladeldfiu 1945. Kæri vinur: Þú tókst þannig til orða einhveiju sinni að „maður gæti nú verið að mála. þótt maður væri ekki með pensilinn." Mér hef- ur alltaf fundist þessi orð lýsa bet- ur en flest annað, sem ég hef heyrt, hvað það merkir að gera það hug- verk úr formum og litum, sem við köllum málverk. Slík hugsmíð er dulúðarfull og á sér þróunarferil í sálarlífinu og áhrifum frá umhverf- inu, sem oftast er erfitt að henda reiður á nema þá kannski fyrir suma innvígða. Nokkru eftir upp- haf geimflaugaaldar og geimfara, þóttumst við sjá að þú og Þorvald- ur Skúlason voru ekki eins jarð- tengdir í formsköpun og litameð- ferð og áður. A fietinum fóru að birtast margskonar lithnettir og fjölbreytt kerfi af litgeislum. Þú gafst mér eina Spútnik-mynd til að gera mér kleyft að fara í andlega geimferð án þess að taka neina sér- staka áhættu. Mikið var að ske á þessum tíma. Þú rakst skartgripaverslun með verkstæði við Skólavörðustíg- inn og sá ég marga gripina verða til og skoðaði þá vandlega full- smíðaða: Hringi, armbönd, háls- men, bókahnífa, kaleika fyrir kirkj- ur, og silfurhesta fyrir rithöfunda og skáld, sem valdir voru til verð- Iauna. I fyrstu hafði ég lítinn smekk fyrir þessum munum. Smátt og smátt fóru sumir gripirnir að vinna sér land í huga mér. Ég hef fynr löngu gert mér grein fyrir því að silfur, gull og gimsteinar eru kröfuharðir efniviðir fyrir lista- menn. Þrátt fyrir ýmsar annir varst þú allt í einu kominn I hálflgildings geimferð með menningarsendi- nefnd til Kína. Ég staldra við bréf frá þér í september 1961 skrifað á Hótel Peking. Þú segir: Nefnd frá Vís- indaakademíunni í Peking á að gefa okkur staðgóðar upplýsingar um efnahagsþróun Kína þau 12 ár sem liðin eru frá frelsun landsins. Síðan kemur í bréfinu ítarleg lýs- ing á uppbyggingu kommúnu, sem stofhuð var 1958 í nágrenni Peking og þið sendinefndarmenn heim- sóttuð. Gaman væri að vita hvemig gengið hefur hjá blessuðu fólkinu. Vonandi hefur það ekki þurfl að selja Kron sitt og Samband. Þegar þú komst úr þessu merkilega ferðalagi hlaut vinahóp- urinn að skipa þér, um tíma, sess með stórmennum eins og Marco Póló. Þegar ég horfi á líkneskið úr jaðisteini af fiskimanni, sem þú færðir mér frá Kína, vakna hjá mér ýmsar minningar um veiði- mennsku okkar á liðnum árum. Það hefur orðið nokkurt hlé á stangveiði okkar, þótt ég telji okk- ur ennþá fullfæra við íþróttina. Ég tel mig þó síður færan núorðið til að detta i Þingvallavatn, eins og ég gerði við murtuveiðar fyrir nokkr- um árum að bestu vinum viðstödd- um. Þegar ég hugsa til þess, hve margt ég hef fengið að sjá hjá þér, fæ ég stundum dálitla sektarkennd af því, hvað þú fékkst að sjá af því, sem ég var að myndgreina í smá- sjánni. Ég hlýt þó að hafa sýnt þér ílöngu rauðu blóðkomin. Kæri vinur, við Erla óskum þér og Álfheiði, mömmu þinni og allri fjölskyldunni til hamingju með daginn. Ólafur Jensson ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 28. maí 1991 Síða 4 rtftíi' istn .ös. •wgiíDutpnq Hk'iiLJH/utjm

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.