Þjóðviljinn - 28.05.1991, Blaðsíða 6
m
Á að leyfa hval-
veiðar á ný ?
Marta Hilmarsdóttir
húsmóðir:
Já. Ég tel hann ekkert í
útrýmingarhættu.
Skapti Jónsson
vinnur hjá Rauðakrossi
fslands:
Já, því ég held að stofn-
arnir þoli það alveg.
Sigrún Sigurðardóttir
sölumaður hjá IMKO:
Já, endilega, ég er svo
hrædd um að hvalurinn
éti annars allan fiskinn.
Helga Guðjónsdóttir
húsmóðir:
Já, því ekki það? Þetta
er bara vani hjá okkur ís-
lendingum.
Christian Rígolett
útlendingur á íslandi:
Ég veit það ekki. Ég hef
ekki fylgst með þessu
máli.
Glatt á
hjalla í lauginni
Það voru margir sem tóku þátt í sunddegi aldraðra og hér sjáum við nokkra sundkappa.
að var mikið um að vera í
Sundhöll Reykjavíkur í
gær en þá var haldinn
sunddagur aldraðra.Oft
ímynda sér margir ellina sem
tímabil eymdar og hrörnunar en
það var ekki að sjá á þessu hressa
fólki sem þarna var mætt.
Það var mikil kátína og gleði
sem réði rikjum og var andrúmsloft
sundhallarinnar mjög gott.
Guðrún Nielsen, iþróttakennari,
er formaður félags áhugafólks um
fþróttir aldraðra, sem stofnað var
1985, en félagið stóð fyrir þessum
degi. Hún sagði þáttöku aldraðra
hafa verið mjög góða í félaginu al-
mennt og að aldraðir væru duglegir
við líkamsæfingamar.
Hugmyndina að þessu félagi
fékk Guðrún frá Dönum og mark-
mið þess er að vinna að úlbreiðslu
íþróttaiðkana á meðal aldraðra.
Þáttakan í þessu félagi er miðuð
við ellilaunþega, 67 ára og eldri.
„Sundið er kjöríþrótt fyrir þá
sem eru á einhvem hátt bæídaðir,“
sagði Guðrún. Hún sagði sundið
hjálpa mikið öldmðu fólki sem ætti
við slæma gigt að stríða og að það
hressti fólk við, bæði á sál og lík-
ama.
Við tókum nokkra sundkappa
tali og fyrst var það Þorbjörg
Bjamadóttir húsmóðir. Þorbjörg er
72 ára gömul og hún fer í sund
vegna þess að hún er með slæma
slitgigt og segir sundið hafa góð
áhrif á gigtina.
Þorbjörg er að læra að synda og
heldur sig því enn í gmnnu laug-
inni. ,J3g var svo hrædd við vatnið í
byijun að ég gat varla staðið í
gmnnu lauginni,“ sagði Þorbjörg.
Nú stefhir hún að því að fara í
djúpu laugina næsta vetur.
Einar Ógmundsson er 74 ára og
hann hefur synt ffá því í febrúar s.l.
Núna fer hann á hveijum einasta
degi í sund. „Mér finnst alveg sér-
staklega gott að synda og þetta
hressir mig svo mikið við,“ sagði
Einar. „Sundið er gott fyrir fólk á
öllum aldri og fólk á að nota sér
svona góða þjónustu sem er í boði.“
Einar fer stundum í djúpu laug-
ina og hann ætlar sér að verða flug-
syndur.
„Eg hef ekki hugsað mér að
taka þátt í neinum mótum, ég geri
þetta bara svona fyrir mig,“ sagði
Einar að lokum.
Emst Bachman er sundkennari
aldraðra og hann kennir þeim einn-
ig leikfimi sem ffam fer í lauginni.
Hann notar tónlist við kennsluna og
segir fólk mjög hrifið af þessu.
-KMH
Einar Ögmundsson fer í sund á
hverjum degi og hann segir sundið
gera sér mjög gott.
Þorbjörg Bjarnadóttir ætlar sér að
fara I djúpu laugina næsta vetur.
Djassinn dunar
að er unaðsleg sveifla í
borginni þessa dagana.
Blaðamaður Þjóðviljans
varð fyrir því láni að líta
inn á Púlsinn síðasta sunnudags-
kvöld. Þetta var ekki eintóm
heppni því eins og allir vita hjálp-
ar guð fyrst og fremst þeim sem
hjálpa sér sjálfír.
Þar léku Guðmundamir tveir, Ing-
ólfsson og Steingrimsson, og vom
pottþéttir eins og við mátti búast.
Það heyrir hins vegar varla til tíð-
inda. Ég man ekki lengur hve langt
er síðan ég heyrði fyrst í þeim félög-
um en mér finnst að þeir sem ekki
hafa ánetjast djasstónlist en langar til
þess að gefa henni tækifæri ættu að
skreppa á Kringlukrána á miðviku-
dagskvöldið. Þar verður kvartett
Guðmundar Ingólfssonar aftur í
sviðsljósinu. Bjami Sveinbjömsson
leikur á kontrabassa með kvartettin-
um og gerir það léttilega, en þetta
kvöld á Púlsinum var það gítarleik-
arinn sem skein skærast, að öllum
öðrum ólöstuðum. Bjöm Thoroddsen
er hreint og beint ffábær gítaristi. Ef
einhver efast getur sá hinn sami farið
og hlustað.
Af dagskrá RUREK
í dag er það annars að
segja að kl.16.30-17.30
leikur hljómsveitin
Kamivala liflega götu-
tónlist víðsvegar á svæði
Laugavegssamtakanna,
kl. 19.00-21.00 er kvöld-
verðarsveifla á Hótel
Borg, með Kristjáni
Magnússyni og Tómasi
R. Einarssyni. Á Hótel
Borg verður svo haldið
áfram kl.21.00-23.00. Þá
leikur Bent Jædig kvart-
ettinn. Bent Jædig er
einn þekktasti tenórsaxo-
fónleikari Dana. Hann
hefur leikið jazz síðan
1957 og á þeim tíma
Trló Bjöms Thoroddsen lék viö útitafliö I gær. Mynd: Kristinn.
komið ffam með mörgum helstu
stjömum jazzins. í 15 ár var Bent 1.
tenórsaxófónleikari í stórsveit
danska útvarpsins og leikur nú með
Emie Wilkins Almost Big Band.
Með Bent leika að þessu sinni: Ey-
þór Gunnarsson, píanó, Tómas R.
Einarsson, bassi o_g Einar Valur
Scheving, trommur. I kvöld er þar að
auki lifandi jazz í nokkrum veitinga-
húsum ffá kl.22.00 - 00.30. Sche-
ving-Lasanen sextettinn spilar í
Djúpinu. í Duushúsi gripur hljóm-
sveit Eddu Borg niður í ýmsar jazz-
tegundir. Auk söngkonunnar koma
við sögu: Þórir Baldursson, hljóm-
borð, Bjami Sveinbjömsson, bassi,
Gunnlaugur Briem, trommur og
Friðrik Karlsson leikur á gítar. Á
Kringlukránni býður Andrea Gylfa-
dóttir upp á jazzprógramm. Þar leik-
ur Kjartan Valdimarsson á píanó,
Richard Kom á bassa og Marteen
Van der Valk á trommur. A Púlsinum
verða Carl Möller og Finnur Eydal
ásamt færeysku bræðingshljómsveit-
inni Plúmm, sem hefur verið fulltrúi
Færeyinga víða um Norðurlönd. Á
Tveim vinum verður Sveiflusextett-
inn ásamt sextett Viðars Alffeðsson-
ar.
Rúrek virðist ætla að verða ein-
staklega glæsileg og vel heppnuð
jazzhátíð. Reynið að missa ekki af
henni.
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 28. maí1991
Síða 6