Þjóðviljinn - 28.05.1991, Síða 9

Þjóðviljinn - 28.05.1991, Síða 9
Jón Hjaltalín endurkj örinn ^ formaður HSI S 34. ársþingi Handknatt- leikssambands íslands sem haldið var í Keflavik um heigina var Jón Hjaltalín Magnússon endurkjörinn formaður sambandsins . Fyrir þingið var fastlega búist við mót- framboði gegn Jóni en af þvi varð ekld. Fjárhagsáætlun sambandsins er upp á nær 80 miljónir króna og er gert ráð fyrir að hagnaður verði af rekstri sambandsins á næsta ári uppá 13 miljónir króna. En eins og kunn- ugt er þá nema skuldir þess rúmum 40 miljónum króna. Þar af eru 24 miljónir langtímaskuldir en 17 milj- ónir króna í víxilskuldum. Forráðamenn HSI fóru á dögun- um á fund fjármálaráðherra og menntamálaráðherra til að kynna fyrir þeim fjárhag sambandsins þar sem þeir fóru fram á 10 miljón króna framlag ffá ríkissjóði. Að sögn for- manns HSÍ höfðu ráðherramir fullan skilning á stöðu sambandsins en báru fyrir sig erfiðri fjárhagsstöðu hins opinbera. Þó munu þeir hafa tekið jákvætt í það að í þingbyijun í haust yrði farið ffam á sérstakan stuðning Alþingis við Handknatt- leikssambandið. En eins og kunnugt er þá verður Heimsmeistaramótið í handknattleik haldið hérlendis árið 1995 og bjóst Jón H. Magnússon við því að fyrsta skólfustungan að íþróttahúsinu í Kópavogi verði tekin í sumar eða í haust. Þá var á þinginu samþykkt breyt- ingartillaga frá Fimleikafélagi Hafn- arfj arðar um breytt fyrirkomulag í keppni 1. deildar karla á næsta leik- ári. Samkvæmt því munu liðin tólf í 1. deildinni leika tvöfalda umferð heiman og heima og það lið sem sigrar í forkeppninni mun síðan taka þátt í Evrópukeppni félagsliða. Að þessari keppni lokinni hefst síðan út- sláttarkeppni fyrstu átta liðanna sem fer þannig ffam að efsta liðið keppir á móti þvi áttunda, lið í öðru sæti gegn því í sjöunda sæti og svo koll af kolli. I fyrstu umferð þessarar út- sláttarkeppni verður leikið þar til annað liðið hefur náð að sigra and- stæðing sinn tvisvar og verður leikið til þrautar í hverjum leik og engin jafhtefli. I þessari keppni fær það lið heimaleikinn sem stóð sig betur í forkeppninni og einnig ef kemur til oddaleiks. Að þessu loknu munu síðan tvö efstu liðin leika til úrslita um sjálfan Islandsmeistaratitilinn og það lið vinnur sem nær að sigra í þremur leikjum. I forkeppninni fellur neðsta liðið beint í aðra deild en liðin í 10. og 11. sæti leika aukaleiki um áffamhald- andi veru í 1. deildinni. Það lið sem vinnur fyrst tvo leiki heldur sínu sæti en hitt fellur. Þannig falla tvö lið í aðra deild og tvö koma upp úr þeirri annarri. Jafhffamt var það samþykkt á ársþinginu að heimaliðið fær allar tekjur af leiknum þó með þeirri und- antekningu ef til oddaleiks kemur, þá skiptast tekjumar þannig að heima- liðið fær 60% þeirra en mótheijinn 40%. Tillaga ffá IBV og Fram um að tveir erlendir ríkisborgarar mættu leika með sama liði var hinsvegar felld. En samskonar tillaga hefur áð- ur séð dagsins ljós á ársþingum HSI, en ávallt verið felld. -grh Brotið blað í sögu Juventus / fyrsta skipti í tuttugu og átta ár verður ítalska stórliðið Juvent- us ekki með í Evrópukeppninni í knattspyrnu eftir að liðinu mistókst að ávinna sér þátt- tökurétt þegar það tapaði 2:0 fyrir liði Genoa í síðustu umferð í fyrstu deildinni ítölsku sem leikin var á sunnudag. Að sama skapi var mikið um dýrðir í Genoaborg, því fyrir síðustu umferðina hafbi hitt fyrstudeildarlið borgarinnar, Sampdoria, tryggt sér ítalska meistaratitilinn í fyrsta sinn í sögu félagsins þegar liðið sigraði Lecce sannfærandi, með þremur mörkum gegn engu. í öðru sæti í 1. deildinni var AC Milan og Inter í því þriðja. Það verða því tvö lið frá Genoaborg sem keppa í Evrópu- keppninni á næsta tímabili. Samp- doria í Evrópukeppni meistaraliða og Genoa í Evrópukeppni félagsliða. Áskrifendur að Stöð 2 fengu að sjá leik Juventus og Genoa í beinni útsendingu á sunnudag, en Stöðin hefur í samvinnu við Samvinnuferðir - Landsýn sýnt beint ffá ítölsku deildinni allt keppnistímabilið. Von- andi verður ffamhald á þessum út- sendingum í haust. Það er skemmst ffá því að segja að Juventus hafði ekkert í lið Genoa að segja sem hafði yfirburði allan leikinn. Fyrsta markið leit dagsins ljós á 20. mínútu leiksins þegar Branco, bakvörðurinn snjalli, skoraði afar glæsilegt mark beint úr aukaspymu af um 20-30 metra færi. Rétt áður en aukaspymana var tekin tók þjálfari Juventus þá ákvörðun að skipta dýrasta leikmanni heims, Ro- berto Baggio, sem var sýnilega meiddur, útaf fyrir Di Canio. Leik- menn Genoa gerðu síðan út um leik- inn þegar ekki var liðin heil mínúta af seinni hálfleik. Þá skoraði tékk- neski landsliðsmaðurinn Skurahavy ódýrt mark eftir hrapalleg mistök í vöm Juventus. Þetta fyrmm stórveldi i ítalska boltanum hefur valdið stuðnings- mönnum miklum vonbrigðum á ný- afstöðnu keppnistímabili, því margir bjuggust við því sterku i upphafi mótsins. Væntingamar voru því meiri þegar þess er gætt að liðið hef- ur á að skipa fimasterkum leikmönn- um, sem einhverra hluta vegna stóð- ust ekki álagið. Hinsvegar er deildarsigur Samp- doria einkar glæsilegur og sannfær- andi. Til marks um getu liðsins má geta þess að í síðasta deildarleiknum náði það að vinna upp tveggja marka forskot Lazio í Róm, en leiknum lyktaði með jafhtefli 3:3. Þá má ekki gleyma stórleik liðsins gegn Inter Milan á lokasprettinum þegar Samp- doria vann 2:0 í leik sem lengi verð- ur í minnum hafður. Þar sýndi mark- vörður Sampdoria markvörslu eins og hún gerist best og varði allt sem á markið kom og meðal annars víta- spymu ffá Lothar Mattheus. Sam- kvæmt síðustu fféttum mun kappinn, sem jafnframt er fyrirliði þýska landsliðsins, vera á leiðinni frá Inter Milan til Real Madrid á Spáni, en hann hefur verið hjá Inter í þijú ár. Jafhffamt herma fréttir að þjálfari Inter muni taka við þjálfarastöðu hjá Juventus fyrir næsta keppnistímabil og taka með sér þangað þýska bak- vörðinn Andreas Brehme. En hann var einnig í þýska landsliðinu sem varð heimsmeistari í fyrra. Þá hafa heyrst raddir þess efnis að kvamast muni úr hollenska trió- inu hjá AC Milan og að Marco von Basten sé jafnvel á förum til Barcel- ona. -grh ÍÞRÓTTIR A Umsjón: Guðmundur Rúnar Heiðarsson (slenska landsliðið I sundi fatlaðra ásamt þjálfara við komuna til Keflavfkur I gaer ásamt þjálfara, þar sem hver og einn fékk blómvönd. Sigrún Huld, fimmfaldur heimsmeistari er þriðja frá hægri. Mynd: Jim Smart Frábær árangur hjá fötluðum heimsmet landamet, Norðurlandamóti fatl- A aðra í sundi sem fram / \ fór í Noregi um siðustu /"""\ helgi setti Sigrún Huld JL JL Hrafnsdóttir fimm og jafnmörg Norður- en allt í allt setti ís- lenska landsliðið hvorki fleiri né færri en tuttugu og átta íslands- met. Alls fékk íslenska liðið 13 gull- verðlaun, 17 silfur og 12 brons og varð í þriðja sæti á eftir Svíþjóð og Noregi. Sigrún Huld, sem er þroska- heft og var valinn íþróttamaður fatl- aða árið 1989, setti heimsmet og Norðurlandamet í 100 og 400 metra skriðsundi, 200 metra fjórsundi, 100 metra baksundi og 100 metra bringu- sundi. Þá vann Ólafur Eiríksson, sem var kjörinn íþróttamaður fatlaða i fyrra, til fimm gullverðlauna en að auki unnu þau Rut Sverrisdóttir, Gunnar Þ. Gunnarsson og Bára Er- lingsdóttir eina grein hvert. Við heimkomuna í gær sagði Sigrún Huld að erfiðustu keppnis- greinamar heföu verið fjórsundið og 50 metra flugsundið en þar lenti hún i öðru sæti. Hún sagði að keppnis- iaugin heföi verið góð en keppnin dálítið hörð. Sigrún Huld æfir fjórum sinnum í viku sem hún segir alls ekki vera of mikið. Erlingur Jóhannsson sundþjálfari sagði að árangur liðsins hefoi verið mun betri en hann bjóst við. Hann sagði að næsta stórverkefni lands- liðsins væri Evrópumeistaramótið fyrir hreyfihamlaða og blinda i Barc- elona í ágúst næstkomandi. Erlingur sagði að eini munurinn við að þjálfa fatlaða og heilbrigða væri sá að gefa þjttffi föltuðum einstaklingi meiri tima en þjálfun og undirbúningur fyrir keppni væri sá hinn sami. Landslið fatlaðra í sundi æfir fimm daga í viku og meðal annars í Há- túni, sundlauginni í Kópavogi, Sund- höll Reykjavíkur og Laugardalslaug- inni. Anna K. Vilhjálmsdóttir ffam- kvæmdastjóri íþróttasambands fatl- aðra sagði þennan árangur sund- fólksins vera alveg ótrúlega góðan og í raun væri erfitt að gera sér grein fynr þvi hvílíkur árangur þetta væri. Hún sagði að næsta stórverkefhi hjá fötluðum væri í Kaupmannahöfh í lok næsta mánaðar þegar 37 manna hópur tekur þar þátt í bama- og ung- lingamóti. Til fararinnar hafa verið valin 25 ungmenni víðs vegar af landinu sem eiga það sdoimerkt að vera byijendur í sinni íþróttagrein. grh Námsmanna- skattkort 1991 send út í byrjun júní í byrjun júní veröa námsmannaskattkort vegna ónýtts persónuafsláttar fyrir janúar - apríl 1991 send til námsmanna í framhalds- skólum og 10. bekkjum grunnskóla sem rétt eiga á þeim. Þessir aðilar þurfa því ekki að sækja um námsmannaskattkort nema í undantekn- ingartilvikum. Unnt er að sækja um viðbótar- námsmannaskattkort frá miðjum júlí nk. ef persónuafsláttur fyrir maí hefur ekki verið nýttur. Námsmenn við erlenda skóla þurfa að sækja sérstaklega um námsmannaskatt- kort til ríkisskattstjóra. Vakin er athygli á því að áður útgefin námsmannaskattkort gilda ekki á árinu 1991. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Síða 9 ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 28. mal 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.