Þjóðviljinn - 28.05.1991, Qupperneq 10
Ýmislegt
Gamalt og gott pönk
Vantar eldri plötur með Tappa tí-
karrassi, Kuklinu ofl. Sími 672463,
Ingi, e. kl. 18.
Perlur-perlufestar
Óskum eftir perlum og perlufest-
um af öllum gerðum og stærðum,
helst fyrir Iftinn pening. Mega vera
gamlar, slitnarog ónýtar. Uppl. hjá
Sigriði i síma 681331 á daginn og
620247 utan vinnutíma.
Fyrir veiðimenn
Saia er hafin í vorveiðina á vatna-
svæði Staðarhólsár og Hvolsár í
Dölum. Fullbúið sjö herbergja
veiðihús á staðnum. Einnig eru
lausir nokkrir dagar i laxveiðina í
sumar. Mikii silungsveiði. Uppl. í
símum 651882, 44606 og 42009.
Til sölu
10 gíra drengjahjól, stórt fuglabúr,
2 hamstrabúr, stórt og lítið. Uppl. í
vinnusíma 79840 og heimasíma
79464, Auður.
Tvöfaldari-aðdráttarlinsa
Óska eftir að kaupa tvöfaldara fyr-
ir Olympus myndavél (OM-10) og
aðdráttarlinsu. Uppl. í síma
611833, Eggert.
Takiö eftir
Þið sem eruð að byrja að búa njót-
ið einstaks tækifæris. Til sölu á
spottprís: Sjónvarp, barnakerra, 4
dekk-13“, garðsláttuvél, teborð,
12 manna matarstell, 5 manna
tjald og margt, margt fleira. Stein-
ólfur, sími 689651.
Óskast keypt
Laust skilrúm, svampdýnu svefn-
sófa og vel með farið sófasett.
Einnig vel með farið Ijóst gólfteppi.
Uppl. í síma 83199.
Heimilis- og raftæki
Tölvuleikir
Óska eftir leikjum á Commodore
64 tölvu. Sími 17087.
Over-look
vél óskast keypt. Uppl. gefur Anna
I síma 666698.
Óskast fyrir lítið
Eldhúsinnrétting, isskápur, gólf-
teppi, -dúkur, gólfborð, hurðir,
húsgögn ofl. Einnig óskast Dodge
Duster eða álíka bíll. Sími 34498.
Sýningarvél
Óska eftir sýningarvél fyrir lit-
skyggnur. Sími 667098.
Útidyrahurð
Óska eftir notaöri útidyrahurð.
Sími 23523.
Vefstóll
Vantar lítinn vefstól, ódýrt eða gef-
ins. Má vera lasinn. Sigurbjörg,
sími 611579.
Til sölu
Svampdýna, 150x36 sm. og tvær
75x20 sm. Hentugt í sumarbú-
stað. Einnig sex lengjur af glugga-
tjöldum 140x250 sm. Á sama stað
fást gefins 5 púðar 54x54 sm. og 5
púðar 54x46 sm. og símastóll.
Uppl. ísíma 36117.
Vinnuskúr-rafmagnstafla
Vinnuskúr til sölu, sem ný þriggja
fasa rafmagnstafla fylgir. Selst
hugsanlega sitt I hvoru lagi. Uppl.
í síma 650329
Garðplöntur
til sölu á góðu verði. Svo sem ri-
samjaðurjurt, burknar, primúlur og
margtfleira. Uppl. í síma 17193.
Húsnæði
fbúð óskast
Þriggja til Ijögurra herbergja íbúð
óskast til leigu. Staðsetning helst í
Vesturbergi eða Hólahverfi. Uppl.
í síma 72490.
fbúð í Vesturbæ
Óska eftir þriggja herbergja íbúð í
vesturbæ Reykjavíkur frá 1. ágúst
n.k. Skilvísum greiðslum heitið.
Uppl. í síma 40591.
Húsnæði óskast
Viljum taka á leigu tveggja til
þriggja herbergja íbúð frá 1. júlí
nk. Æskileg staðsetning: Miðbær
Reykjavíkur, Þingholtin eða Teiga-
hverfi. 100% meðmæli ef þess er
óskað. Vinsamlegast hikið ekki við
að hafa samband í vinnusíma
689000 eða heimasíma 25254.
fbúð óskast
Einstæð móðir með þriggja ára
dóttur óskar eftir góðri ódýrri íbúð
á leigu. Uppl. í síma 17548 eftir kl.
19.00.
íbúðaskipti
Tveggja herbergja íbúð á góðum
stað í Amsterdam fæst i skiptum
fýrir íbúð í Reykjavík eða ná-
arenni, í júli og ef til vill ágúst.
Ibúðin er með húsgögnum og pí-
anói. Uppl. í síma 17087 eða 90-
31-20-463085.
Til leigu
sumarhús á mið-ftalíu. Uppl. I
síma 91-23076.
fbúð óskast
Ungt barnlaust par óskar eftir
tveggja herbergja íbúð frá 1. sept-
ember. Uppl. I síma 13322.
fbúð til leigu
Góð tveggja herbergja íbúð til
leigu með húsgögnum í ár - til 1.
ágúst 1992. Fyrirframgreiðsla 2
mánuðir. Uppl. í síma 15459.
fbúð til ieigu
Til leigu er þriggja herbergja íbúð í
Birkeröd í Danmörku. Leigist
minnst í tvö ár. (búðin getur losnað
fljótlega. Uppl. I síma 666842 eftir
kl. 16 á daginn.
Húsgögn
Rúmdýna
Listadún-dýna með flauelsáklæði,
200x150 sm. Rúm fylgir ef óskað
er. Verð kr. 9000. Sími 642556.
Óska eftir
rúmi eða sófa, helst gefins eða
ódýrt. Einnig standlampa og vegg-
lömpum. Uppl. í síma 678689.
Selst ódýrt
Stólar með áföstum boröplötum
(horn) og húsbóndastóll, tilvalið i
sumarbústaðinn. Einnig bókahill-
ur, tilvaldar fyrir bækur, með
áfastri skrifborðsplötu. Uppl. í
síma 26134.
Frystiskápur
Stór heimilis frystiskápur til sölu
v/búferlaflutninga. Tvö frystihólf.
Skápurinn er nýuppgerður (ný
pressa) af Frostverk Garðabæ.
Uppl. í síma 650329.
Hjói
Kvenreiðhjól óskast
Þriggja gíra kvenreiðhjól óskast,
einnig barnasæti aftan á hjól.
Uppl. í síma 17548 eftir kl. 19.00.
Barnastóll á hjól
Óska eftir að kaupa barnastól á
reiöhjól. Uppl. í síma 675626.
Barnahjól
Reiðhjól, Sten Master, 3ja gíra til
sölu. Telpu- eða drengjahjól, hent-
ar 6-9 ára börnum. Sími 674324.
Til sölu
BMX vel með farið drengjahjól.
Verð ca. 10.000,- kr. Uppl. I sím-
um 40648 eða 73050.
Dýrahald
Mjallhvít er tínd
Hvít læða hvarf frá heimili sínu,
Hraunteigi 26, þann 30. apríl sl. og
hefur ekki sést síðan. Hún er snjó-
hvít að lit með bláa glitsteinaól um
hálsinn, merkta Hraunteigi 26. Nú
hvet ég nágranna mína og alla
dýravini til að athuga hvort Mjall-
hvít hafi getaö lokast inni I
geymslu eða bílskúr, sem sjaldan
er farið í. Finnandi vinsamlegast
hafi samband í síma 681936.
Dýravinir
Fjórir kettlingar fást gefins. Uppl. I
síma 19792 eða 21387.
Klár til sölu
Moldóttur hestur með tölti til sölu.
Tilvalinn fyrir unglinga eða lltið
vana. Sanngjarnt verð. Uppl. í
síma 10339.
Kettlingar
Tveir kassavanir kettlingar, Ijósir
að lit, fást gefins. Sími 620541.
Kettlingar
Fallegir kassavanir kettlingar fást
gefins á góð heimili. Uppl. í síma
40147.
Fyrir börn
Barnastóll
Mjög vel með farinn Maxi Cosy
barnastóll til sölu. Selst á hálfvirði.
Burðarrúm getur fylgt. uppl. í síma
666748.
Barnagæsla
Telpa óskar eftir að gæta barns í
sumar. Helst í Kópavogi. Sími
46289.
Barnagæsla
Ég er vön stelpa á 13. ári og óska
eftir að passa barn í sumar hálfan
eða allan daginn í Austurbæ
Kópavogs. Hef fariö á námskeið
RKÍ. Úlfhildur, sími 45443 eða
41005.
Frá Bændaskólanum
á Hvanneyri
Námskeið á Hvanneyri
6.-7. júní Skjólbelti
10.-12. júní Verkun votheys í rúlluböggum
Námskeiðið er skipulagt af bútæknideild Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins og Bændaskólan-
um á Hvanneyri.
13. júní Matjurtarækt
Skráning og nánari upplýsingar á skrifstofu
Bændaskólans á Hvanneyri S. 93-70000.
Skólastjóri
Vigtarmenn
Námskeið til löggildingar vigtarmanna verður hald-
ið í Reykjavík dagana 5. og 6. júní n.k. ef næg
þátttaka fæst.
Skráning þátttakenda fer fram á Löggildingarstof-
unni, og veitir hún jafnframt allar nánari upplýsing-
ar I síma 91-681122.
Löggildingarstofan
Vantar leikföng
Við erum 10 börn, 1-6 ára hjá dag-
mömmu. Okkur vantar leikföng
bæði stór og smá. Ef þú átt eitt-
hvað sem þú ert ekki að nota er-
um við tilbúin að sækja það til þín.
Sími 43361 kl. 13-15 eða 40670 e.
kl. 18.
Foreldrar í Kópavogi athugið
Ég er 13 ára stelpa vön barna-
pössun og ég óska eftir að passa
barn í sumar, hálfan eða allan
daginn. Ég hef farið á barnfóstru-
námskeið RKl. Lovísa Hannes-
dóttir í síma 43605.
Bííar og varahiutir
Lada Samara
Lada Samara árg. 1988 til sölu.
Ekin 62 þúsund km. Sumar+vetr-
ardekk, útvarp og segulband.
Góður bíll, næsta skoðun 1992.
Verð kr. 190 þús. staðgreitt. Sími
642173.
Lada 1500
Til sölu Lada 1500 Classic árg.
'89, ekinn 17 þús. Vél 1500 cc. og
5 gíra kassi. Topplúga, útvarp og
segulband. Verð kr. 360 þús. Eng-
in skipti. Sími 35231.
Dekk
Til sölu sumardekk, 4 st. 155x12
og 4 st. 165x13. Seljast á kr. 1500
stykkið. Einnig 4 vetrardekk á felg-
um, 155x12 á kr. 2000 stykkið. Öll
dekkin sem ný. Sími 674324.
Mazda-mótor
Vantar mótor í Mazda 626, 2000,
árgerð 82. Uppl. í síma 32941.
Atvinna óskast
Atvinna
Ég er 31 árs, hef undirstöðu-
menntun frá Viðskiptadeild Hl (1.
einkun (bókfærslu). Einnig grunn-
menntun í tölvufræðum úr TVÍ og
Hl. Hef vald á RTG, Fortran 4, HT
Pascal og Base. Hef reynslu af
bókhaldi fyrirtækja, góða tölvu og
vil taka að mér verkefni, bókhalds-
störf, ritvinnslustörf eða annað.
Hef bókhalds- og ritvinnslukerfi.
Þeir sem hafa áhuga hringi I sima
27489, Stefán svarar.
Au-per
Fjögurra manna þýsk læknisfjöl-
skylda f Hamborg óskar eftir au-
per stúlku frá mánaðamótum ág-
sept 1991. Hjón og tvö böm,
þriggja og sjö ára ( heimili. Æski-
legt væri að stúlkan kunni eitthvað
í þýsku og hafi bílpróf. Uppl. gefur
Elín Einarsdóttir í síma 75283.
Afleysingar
Tvftuga stúlku vantar vinnu ( af-
leysingum á tímabilinu 27. maí til
10. júl(. Flest kemur til greina.
Sími 686271 eða 674052 á kvöld-
in.
Þjönusta
Dyrasímar
Dyrasímaþjónusta, viðgerðir og
nýlagnir. Eigum varahluti í eldri
dyrasímakerfi. Setjum upp ný
kerfi. Vanir menn, vönduð vinna.
Simi 656778.
Viðgerðir
Tek að mér smáviðgerðir á hús-
munum. Hef rennibekk. Uppl. í
síma 32941.
Nudd
Get bætt við mig viðskipatavinum
( slökunar- og ilmolíunudd. Sími
674506 e. kl. 18.
AB Keflavík og Njarðvlkum Opið hús Opið hús I Ásbergi á laugardögum kl. 14. Félagar og stuðningsmenn velkomnir í kaffi og rabb. Stjórnín AB Reykjanesi Drætti frestað Drætti í kosningahappdrætti G- listans á Reykjanesi er frest- að til 20. maf nk. Kosningastjórnin aðamót. Félagar og stuðningsmenn em hvattir til að gera skil sem fyrst. Kosningastjórn G-listans í Reykjavík Alþýðubandalagið í Kópavogi
Alþýðubandalagið Miðstjórn Alþýðubandalagsins Miðstjómarfundur Alþýðubandalagsins verður haldinn dag- anna 8. og 9. júní næstkomandi á Selfossi. Dagskrá nánar auglýst s(ðar. Steingrímur J. Sigfússon
AB Norðurlandi eystra Kosningahappdrætti Dregið var f kosningahappdrætti ABNE 1. ma( og númerin innsigluð. Vinningsnúmer verða birt I Þjóðviljanum um leið og full skil hafa átt sér stað. Kosningastjórnin Alþýðubandalagið í Reykjavlk Kosningahappdrætti Dregið hefur verið 1 kosningahappdrætti G-listans í Reykjavík. Vinningsnúmerin voru innsigluð og verða birt fljótlega eftir mán-
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 28. maí 1991
Síða 10