Þjóðviljinn - 29.05.1991, Qupperneq 1
BSRB vill þjóðaratkvæði um EES
Aþingi BSRB i gær
urðu miklar umræður
um Evrópska efna-
hagssvæðið. Sam-
þykkt var ályktun um að skora á
íslensk stjórnvöld að fram fari
þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild
að Evrópska efnahagssvæðinu.
Þingið telur aðild íslands i EB
komi alls ekki til greina. Þing-
fulltrúar skiptust á skoðunum
um málið og lagði Ragnar Stef-
ánsson m.a. til að öllum sam-
þykktum um inngöngu í efna-
hagsbandalög yrði hafnað. Aðrir
lögðu til að sótt yrði tafarlaust
um aðild að EB, en hlaut það
ekki mikinn hljómgrunn meðal
þingfulltrúa.
„36. þing BSRB skorar á ís-
lensk stjómvöld að áður en til inn-
göngu í EES komi verði viðhöfð
þjóðaratkvæðagreiðsla,“ segir í
ályktun sem samþykkt var með
þorra atkvæða á þinginu í gær. Áð-
umefnd tillaga var samþykkt eftir
að þingið hafði fjallað um og sam-
þykkt ályktun neíhdar um Evrópu-
málin.
Á þinginu var tillaga nefndar
er fjallaði um Evrópumálin á dag-
skrá. I ályktun þingsins kemur
m.a. ffam að það leggur áherslu á
þá afstöðu að innganga i Evrópu-
bandalagið af íslands hálfu sé alls
ekki á dagskrá og komi ekki til
greina.
í ályktuninni kemur einnig
fram ítrekun, að í viðræðum EFTA
ríkjanna við Evrópubandalagið um
sameiginlegt evrópskt efnahags-
svæði verði ekkj hvikað ffá sjálfs-
ákvörðunarrétti Islendinga, né yfir-
ráðum þeirra yfir auðlindum lands-
ins og efnahagslögsögu þess.
Og að í engu verður skertur
samningaréttur, reglur um meng-
unarvamir, vinnuaðstöðu og um-
hverfi, jafnréttismál, réttindi bama
og þau réttindamál sem náðst hafa
íslensku launafólki til handa. í hví-
vetna gildi þær reglur sem bestar
þekkjast í þeim ríkjum sem samn-
ingar um sameiginleg efhahags-
svæði tækju til.
Þingið lagði einnig áherslu á að
félagsmálin hafa ekki skipað þann
sess í umræðunni sem verkalýðs-
hreyfingin hefur gert kröfu um.
I ályktuninni kemur og ffam
hvatning til stjómar BSRB að
fylgjast náið með viðræðum sem
lúta að samskiptum íslands og Evr-
ópubandalagsins, og að Bandalag-
ið beiti sér gegn öllum ákvörðun-
um sem skaðað gætu íslenska
hagsmuni.
Einnig leggur þingið til að lagt
Tillaga um afnám
lífeyrissjóða kolfelld
Mikill kurr var meðal
þingfulltrúa BSRB,
vegna fréttaflutnings
Morgunbiaðsins af BSRB-þing-
inu. I gær fjallaði Morgunblaðið
um tillögur nokkurra þingfull-
trúa um að leggja lífeyrissjóði
félagsins niður. Þeim þingfull-
trúum er Þjóðviljinn ræddi við
fannst skrítið að eini fréttaflutn-
ingur Morgunblaðsins af þing-
inu væri óskhyggja fárra ein-
staklinga um að leggja lífeyris-
sjóðina niður.
Ögmundur Jónasson sagði
vegna þessa, - Ég spurði sjálfan
mig í morgun hvort þetta gæti ver-
ið einhver óskhyggja í Morgun-
blaðinu.
- Hitt er annað mál að það em
margir sem vonast eftir því að
geta lagt lífeyrissjóðinn af, og sjá
raunar einhverjar ofsjónir yfir
honum. Niðurstaða þingsins varð-
andi lífeyrissjóðina var almennur
stuðningur við þá í núverandi
mynd. Samtökin beittu sér i raun
gegn því að hann yrði skertur á
einhvem hátt. Reyndar var hvatt
til þess að lífeyrisréttindi opin-
berra starfsmanna yrðu aukin og
bætt, sagði Ögmundur.
-sþ
Hitabylgja á Vopnafirði
Um hádegisbilið í gær var
um 21 stigs hiti í forsælu í
Vopnafirði og áttu margir
erfitt með að einbeita sér við
vinnu sína innandyra vegna
hita.
Blankalogn var þar eystra í
gær og heiðskírt, og að sögn Ell-
erts Árnasonar starfsmanns
Vopnafjarðarhrepps er svona veð-
ursæld algeng þama á þessum árs-
tíma. Ungviðið og aðrir sem það
gátu, nutu sólarinnar léttklæddir
og undu hag sínum hið besta.
Ferðamenn em þegar byijaðir að
venja komur sinar til Vopnafjarðar
og tjalda á tjaldstæði þorpsins eða
gista á hóteli staðarins.
-grh
skuli ofurkapp á að örva umræðu hagsbandalögum yrði alfarið hafn- ályktim, stjómvöld til að beijast af
og fræðslu um þennan málaflokk. að. Tillaga Ragnars var felld alefli gegn innflutningi á eiturlyfj-
Ragnar Stefánsson ásamt fleir- naumlega eða með 63 atkvæðum um og vopnum.
um lagði til að innganga í Evrópu- gegn 54.
bandalagið og hvers kyns efna- Þing BSRB hvetur og í þessari -sþ
Þingfulltrúi á þingi BSRB hlustar með athygli á umræður um Evrópumálin. Mynd: Kristinn.