Þjóðviljinn - 29.05.1991, Síða 4
FIÉTTBR
EPRDF tekur
Addis Ababa —
stríði lokið?
Herflokkar eþíópsku
uppreisnarhreyfingar-
innar EPRDF, þar sem
Tígremenn hafa for-
ustuna, réðust í dögun
í gær inn í Addis Ababa, höfuð-
borg Eþíópíu, og náðu öilum
helstu stöðum þar á sitt vald á
þremur kiukkustundum. Var þá
nákvæmlega vika liðin frá því að
Mengistu forseti, sem ríkt hafði
þarlendis í næstum hálfan annan
áratug, stökk úr landi við lítinn
orðstir.
Af hálfu liðsmanna fyrrverandi
Mengistustjómar varð lítið um
vamir og var það helst að lífvörður
forsetans flúna reyndi að koma
einhverri vöm fyrir sig í forseta-
höllinni. Höfðu uppreisnarmenn
búist við að þar yrði nokkur við-
staða, þar eð lífvarðarliðið, sem
Norður- Kóreumenn þjálfúðu fyrir
Mengistu, hefúr verið talið í harð-
snúnara lagi.
Af frásögnum fréttamanna að
dæma era EPRDF-liðar vel vopn-
um búnir og vopn þeirra flest sov-
ésk, herfang frá her Mengistus.
Hermennimir era margir í stutt-
buxum og plastilskóm og með
vefjarhetti. Aðrir era í rokkbolum
með áletrunum eins og „byssur og
rósir“ og „lærisveinar eyðilegging-
ar.“ Þeir era margir mjög ungir,
einhveijir ekld eldri en 12 ára að
sögn eins fféttamannsins. Konur
era einnig í liðinu og ein þeirra,
rúmlega tvítug, sagði einum ffétta-
manninum að hún hefði verið í her
uppreisnarmanna frá tíu ára aldri.
EPRDF-liðar vora sem von er
til kátir yfir sigrinum og ffétta-
menn segja að góður agi sé á her
þeirra.
Stjóm sú, sem mynduð var í
Addis Ababa að Mengistu flúnum
er nú að líkindum liðin undir lok
og í gærkvöldi vissi enginn hvar
Tesfaye Gabre Kidan, eftirmaður
Mengistus á forsetastóli, væri nið-
ur kominn. Hinsvegar fféttist að
hersveitir þeirrar stjómar i Dire
Dawa og Harar í landi austanverðu
hefðu enn ekki gefíst upp og að
herlið, sem flúið hefði undan upp-
reisnarmönnum í Eritreu suður í
Djibúti, væri á leið yfir landamær-
in til Eþíópíu, sennilega með það
fyrir augum að sameinast liðinu í
nefndum tveimur borgum.
Friðarráðstefnu stjómarinnar
og uppreisnarflokka, sem nýhafin
Liðsmenn hinnar nú horfnu
Vörn þeirra entist ( viku eftir
á undanhaldi inn ( höfuðborgina.
ffá þeim.
var i Lundúnum með Herman Co-
hen, embættismann í bandariska
utanríkisráðuneytinu, sem mála-
miðlara, hefúr verið slitið. Gerðist
það eftir að Cohen hvatti EPRDF
til að taka Addis Ababa án tafar.
Gekk þá Tesfaye Dinka, forsætis-
ráðherra í hinni nú horfnu stjóm, af
fundi í mótmælaskyni. Mun hon-
um hafa þótt Bandaríkin skipta sér
ótilhlýðilega af innanríkismálum
Eþíópíu með áskoraninni. Þar að
auki tóku Bandaríkin með henni
afstöðu með EPRDF. Cohen segist
hafa hvatt uppreisnarmenn til að
taka höfúðborgina í því skyni að
„komið yrði þar á reglu.“
Hann sagði einnig í gær að
EPRDF myndi stjóma Eþíópíu til
bráðabirgða. Fljótlega yrði efnt til
ráðstefnu með það fyrir augum að
mynda bráðabirgðastjóm með hlut-
deild margra aðila. Fer ekki leynt
að Bandaríkin hafa að einhveiju
marki hönd í bagga með því, sem
nú er að gerast í Eþiópíu, uppreisn-
armönnum í vil. Hafa þau þó haft
ffekar illan bifur á EPRDF, er hef-
ur marxlenínska hugmyndafræði,
sem að vísu umdeilt er hvemig sé í
smáatriðum og sumir telja að
hreyfingin haldi ekki mjög fast
við.
Miklar líkur era nú á að næst-
um þijátíu ára stríði Eþíópíu sé
loksins að ljúka, en öruggt er það
ekki enn.
REYKIAUSA
DAGINN
W TÓBAKSVARNANEFND
Ungmenni i Tígre
(Tigray), búin að lands-
sið. Það eru uppreisn-
armenn þaðan sem nú
hafa tekiö Addis Ab-
aba.
þekktri herfræðistofnun í Lundúnum.
TRÚARBRÖGÐ: Um skiptingu
landsmanna milli þeirra ber heimild-
um illa saman, eins og um fleira, og
stafar það sennilega af ófúllkominni
hagskýrslugerð þarlendis og vöntun
á rannsóknum um margt. Samkvæmt
Islensku alffæðiorðabókinni er rúm-
ur helmingur landsmanna i eþíópsku
kirkjunni, rúmlega 30 af hundraði
múslímar og um 11% játa „frumstæð
trúarbrögð", þ.e. afríska heiðni. Önn-
ur heimild segir 45% Eþíópa játa ís-
lam, um 35 af hundraði kenningar
eþíópsku kirkjunnar og um 20% alf-
íska heiðni.
ÞJÓÐERNI, TUNGUMÁL: í
Eþíópíu eru menn, líkt og í flestum
öðrum Affíkulöndum, af mörgum
þjóðemum. Samkvæmt nýlegri
heimild er fjölmennasta þjóðin þar
Oromóar (40%), sem búa einkum á
hálendinu sunnanvert. Mál þeirra er
kúsjískt, skylt sómölsku. Þeir munu
vera kristnir sumir, aðrir múslímar
og enn aðrir heiðnir. Semísk mál,
amharíska, tígre og tigrinja (það síð-
astnefnda í Eritreu), eru skv. sömu
heimild töluð af um 32% og sóm-
alska og skyldar mállýskur af um
13%. Semískumælandi menn munu
flestir vera kristnir en Sómalar eru
múslímar.
STÆRÐ: Rúmlega 1.251.000
ferkílómetrar.
LANDSLAG, GRÓÐUR:
Landið er það hálendasta í Affiku og
er hálendið mest um það vestanvert.
Stór svæði era yfir 2000 m yfir sjáv-
armáli. Hálendið var fremur grösugt
og skógi vaxið, en skógareyðing hef-
ur valdið uppblæstri jarðvegs. Vegna
hæðarinnar er loftslag þar svalt, mið-
að við það sem gerist í Affíku. Stór
svæði af austanverðu landi eru lág-
lendari, þar er heitara, gróður minni
og víða eyðimörk.
HÖFUÐBORG: Addis Ababa.
íbúar eru þar samkvæmt einni heim-
ild tæplega ein og hálf miljón, sam-
kvæmt annarri þijár. Önnur mesta
borg er Asmara, höfúðborg Eritreu,
með um 425.000 íbúa.
ATVINNU- OG EFNAHAGS-
MÁL: Verg þjóðarframleiðsla á
mannsbam var rúmlega 120 dollarar
síðast þegar vitað var (1988, heimild
Alþjóðabankinn). Er landið eitt
þeirra fátækustu í heimi. Heimildum
ber stórlega illa saman um skiptingu
landsmanna eftir atvinnugreinum,
þannig eru handbærar tölur um hve
margir hafi framfæri sitt af Iandbún-
aði ffá 42 upp í 85 af hundraði. En
ljóst er að iðnaður er lítill og land-
búnaður, bæði kvikfjárrækt og akur-
yrkja, því aðalatvinnuvegur. Fremur
lítið er um málma og verðmæt jarð-
efni. Helsta útflutningsvaran er kafli
og fær rikið fyrir það um 60 af
hundraði útflutningstekna sinna.
Mikil lækkun heimsmarkaðsverðs á
kaffi 1989 varð Eþíópíu því mikið
áfall.
Hagvöxtur hefur um langt skeið
ekki haft við fólksfjölgun og miklir
þurrkar hafa undanfarið valdið
hungri og lamað efnahag, sem þar að
auki er hart leikinn af stríðinu.
24. Herflotinn var tvær ffeigátur og
20 srnærri skip.
EPLF, sjálfstæðishreyfing sú í
Eritreu sem nú hefúr það land allt á
sínu valdi, er af tölum að dæma
mesta herveldið af uppreisnarflokk-
um þeim, er striddu gegn stjóm
Mengistus. Hefur EPLF 40.000-
50.000 manna fastaher og þar auki
um 30.000 menn í sérstökum varð-
liðasveitum. TPLF, sjálfstjómar-
flokkur Tígremanna, hefur 30.000-
40.000 menn undir vopnum og munu
þeir vera obbinn af her EPRDF, sem
stökkti Mengistu úr landi og hefur
nú tekið Addis Ababa. OLF, baráttu-
hreyfing Oromóaa, hefur 7000
manna vopnað lið. Tölur þessar allar
um heri í Eþíópíu eru frá IISS,
ÍBÚAFJÖLDI: Heimildum ber
ekki fyllilega saman um hann, en
líklega er hann nálægt 50 miljónum.
Ibúadreif er um 40 á ferkílóm.
Landslýð fjölgar um 2,9 af hundraði
árlega.
ÆVILÍKUR: 38 ár.
HERIR: Eþíópía var til skamms
tíma a.m.k. á pappímum eitt mesta
herveldi Afríku, en nú er óvíst
hversu mikið er eftir af stjómarhem-
um. Nýlega var talið að í her stjómar
Mengistus væm 438.000 manns, þar
af um 200.000 í alþýðuvarðliði svo-
kölluðu. Hann hafði þá mikinn fjölda
skriðdreka, vel vopnað stórskotalið
og um 120 stríðsflugvélar af sovésku
gerðunum MiG-21 og -23, auk þess
um 20 árásarþyrlur af gerðinni Mi-
Eric Heffer
látinn
Á mánudaginn lést Eric
Heffer, þingmaður fyrir
Verkamannaflokkinn breska
síðan 1964 og einn af forustu-
mönnum vinstri armsins í
þeim flokki um iangt skeið.
Hann varð 69 ára.
Heffer var aðstoðarráðherra í
stjóm Harolds Wilson á áttunda
áratugi. Á níunda áratugi, þegar
fylgismenn hefðbundins sósíal-
isma og þeir sem vildu ffjáls-
legri stefnu með það fyrir augum
að ná betur til miðjukjósenda
tókust á í flokknum, var Heffer
einn af hörðustu liðsoddum
þeirra fyrmefndu. Þær deilur
hefúr nú tekist að jafna undir
forastu Neils Kinnock.
Banamein Heffers var
krabbamein og síðustu árin var
hann mjög farinn að heilsu. Síð-
asta athöfn hans í stjómmálum
var að koma á þingið í jan. s.l.,
þótt heilsan leyfði það naumast,
til að greiða atkvæði gegn þátt-
töku Breta í Persaflóastríði.
Indlandsstióm
viss um sök
frelsistígra
Subramaniam Swami, dóms-
málaráðherra Indlands, sagði í
gær í viðtali við breska sjón-
varpið að stjóm hans væri viss
um að srílankíska uppreisnar-
hreyfingin Tamil Eelam- ffelsi-
stígrar hefði staðið að morðinu á
Rajiv Gandhi, fyrrum forsætis-
ráðherra. Sagði ráðherrann að
allt benti til þess að frelsistígr-
amir hefðu við undirbúning til-
ræðisins notið stuðnings ein-
hverra hópa í Tamílnadú.
I stuttu máli um Eþíópíu
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. maí 1991
Síða 4