Þjóðviljinn - 29.05.1991, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 29.05.1991, Qupperneq 6
« Njóta íslendingar mannréttinda? Halla Amar húsmóðir: Nei. Það er bara svo margt að ( þessu þjóðfé- lagi. Jóhannes Hermannsson fyrirframan myndverk s(n. Myndír: Kristinn Bogi Þórðarson á búðarrölti: Já, því þeir geta gert nokkum veginn það sem þeim sýnist. Helga Ólafsdóttir nemi: Ég veit það ekki. Ásdís Gíslason ritari: Já, því allir hafa sama rétt hér. Guðmundur Kjartansson framkvæmdastjóri: Já. Vegna þess að við bú- um í frjálsu landi. Sýning á myndverkum fatlaðra í Listasafni Islands Næstkomandi sunnudag, 2. júní á sjómannadaginn, lýkur sýningu á myndverkum nemenda í Starfsþjáifun fatlaðra í kjallara Listasafns Islands, en sýningin hefur staðið yfir frá þvi á miðvikudaginn í síðustu viku. Öll myndverkin eru máluð með vatnslitum og þema sýningarinnar er sálartré þeirra einstaklinga sem þátt taka í sýningunni. Þeir fotluðu einstaklingar sem verk eiga á sýningunni sýna flestir þijú verk þar sem þeir mála sitt sál- artré í þremur mismunandi útgáf- um. Fyrst er það hið eiginlega sál- artré; svo það sem býr innra með trénu og að lokum það sem sést fyrir ofan sjálft sálartréð. Eins og gefur að skilja er útfærsla nemend- anna í Starfsþjálfun fatlaðra á þessu myndefni með ýmsum til- brigðum. Enda eiga hér hlut að máli einstaklingar sem búa við mismunandi mikla fötlun. Leið- beinandi nemendanna var Halldóra Halldórsdóttir, en hún hefur tvíveg- is heimsótt skólann og haldið þar myndlistamámskeið við afar góðar undirtektir. í þijá eftirmiðdaga í röð var teiknað og málað og fjórða Jaginn var farið í Listasafh Islands. I einni slíkri heimsókn var nem- endunum boðið að sýna afrakstur vinnu sinnar í fyrirlestrasal safnis- ins sem að sjálfsögðu var þegið með þökkum. Meðal þeirra sem eiga myndir á sýningunni er tuttugu og fimm ára gamall Tálknfirðingur, Jóhann- es Hermannsson sem fékk heila- blóðfall fyrir ári síðan og er í hjóla- stól. Hann hafði ekki komið nálægt myndlist áður en eftir að hann komst að í Starfsþjálfun fatlaðra að Hátúní 10 A segir hann að þetta listform sé hans aðaláhugamál. Til Starfsþjálfun fatlaðra er skóli sem var stofhaður árið 1987 og er skólinn rekinn í samvinnu Öryrkja- bandalagsins og félagsmálaráðu- neytisins. Tilgangur skólans er að gefa fötluðum kost á endurhæfingu sem gæti nýst þeim við atvinnuleit eða frekari nám. Til marks um það var tekið stúdentspróf við skólann í bókfærslu í fyrra. í Starfsþjálfuninni stunda um það bil tuttugu og fimm nemendur nám á hverri önn í tveimur bekkj- ardeildum og skiptist námið í þrjar annir. A hverri önn eru þrettán kennsluvikur og kennslustundir 20- 23 í hverri viku. Kennslugreinar eru tölvunotkun, stærðfræði, ís- lenska, enska, féíagsfræði og bók- færsla. María Kristjánsdóttir kennari í ensku og stræðfræði segir nemend- uma vera gífurlega áhugasama, enda hafi margir þeirra þeðið lengi eftir því að komast að. I skólanum er eingöngu fullorðið fólk sem lok- ið heftir grunnskólaprófi, en þó hafa verið gerðar undantekningar þar á. María segir að í sjálfu sér ætti skóli sem þessi ekki að vera til því fatlaðir einstaklingar eiga að geta stundað sitt nám í venjulegum skólum. -grh I Sálartrésmyndum Þuríðar Georgsdóttir er meðal annars lögð áhersla á bjartsýni og friðelskandi heim. marks um áhugann á efninu segir Jóhannes að það hafi tekið sig að- eins eina klukkustund að mála sín- ar þrjár myndir sem hann nefnir Sálartré Jóhannesar. Þuríður Georgsdóttir, sem á við bijóskeyðingu og vöðvabólgu að stríða, segir að í sínum sálartrés- myndum sé áherslan lögð á bjart- sýni og frið. ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. maí1991 Síða 6

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.