Þjóðviljinn

Dagsetning
  • fyrri mánuðurjúlí 1991næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    30123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    28293031123
    45678910

Þjóðviljinn - 13.07.1991, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 13.07.1991, Blaðsíða 15
SKRÁfjR GAT1Ð Á mínútunni átta hundruð Með miklu irafári var hringt ffá vamamálaskrifstofu utanrikis- réðuneytisins á ritstjóm Þjóðvilj- ans siðla dags á fimmtudag. Á Ifnunni var Amór nokkur Sigur- jónsson liðsforingi og var erindið að boða blaðamann á mikilvæg- an vamamálafund á mánudag. „Fundurinn hefst stundvíslega klukkan átta hundruð," sagði liðs- fbringinn. Blaðamaðurinn hváði og spurði svo hvaða tími það væri á mæltu máli. Svarið var að em á skrifetofunni þætti þægi- t að bregða fýrir sig hemaðar- máli þegar mikið lægi við svo ekki feeri milli mála við hvað væri átt, en fundurinn hæfist sem sagt klukkan átta árdegis. Annað málið sem blaðamanni var tjáð að ræða ætti á þessum mikilvæga fundi var hreinsunar- átakið á Straumnesfjalli og var um það fjallað á baksíðu Morg- unblaðsins f gær. Þannig má Ijóst vera að bein og rauðglóandi Ifna er milli Aðalstrætishaliarinnar og vamamálaskrifetofijnnar við Hlemmtong. Sólbaðstofurnar ekki sólarmegin Mérfinnst rigningin góð, kyrja þeir félagamir f Síðan skein sól sveit- inni og ábygg.iegt er að eigendur sólbaðstofa taka heilshugar undir þann söng. Nú heilir verið látlaust sólskin vikum saman og óþarfi að leggjjast á svitastorkinn bekk undir genrisól á þessu sólrika sumri. Grein0egt er að sólkonungamir enr orðnir daufir og flárhirslur |jeirTa tómar því nú er sf og æ ver- ið að bjóða sólbrúnkutíma í verð- laun á sfbyljurásunum og í auglýs- ingu frá skemmtistaðnum Casa- blanca í gær býður ein sólbaðstof- an 25. hverjum gesti það sem nefrit er óvæntur glaðningur í aug- lýsingunni; ókeypis Ijósatíma. Maður býður ekki sjómanni á humarbát f humarveislu... ÍDAG 13. júlí er laugardagur. Margrétarmessa. Hundadagar byrja. 194. dagur ársins. Sólaoipprás f Reykjavfk kl. 3.33 - sólarlag kl. 23.32. Stórstreyml. Viðburðir Skutull hefur göngu sfna á ísa- firði 1923. Þjóðviljinn fyrir 50 árum Búizt til nýrra stórátaka á aust- urvlgstöðvunum. Engar stór- vægilegar breytingar á víglín- unni. Vopnahléssamningar byrj- aðir I Sýrlandi. Bardagar hættu I fyrrinótt. Hver ertu? Miðaldra hvftur karl sem heitir Hjör- leifiir Sveinbjömsson og starfar sem blaðamaður. Ihvaða stjömumerki ertu? Bogmanninum. Hvað ertu að gera rtúna? Ég er f sumarfríi og er þessa stundina að spila tölvuleiki með bömunum mín- um. Hvað hatarþúmest? Að finna aldrei sokkinn á móti þessum staka sem maður pillar út úr þvottavél- inni. Hvað elskar þú mest? Þegar hlutimir smella saman f núinu en ekki bara f framtíðarplönum. Hvað er fólkJlest? Lygilega gott eins og Ari Jósefsson skáld sagði. Hvað er verst ifari karla? Sjálfumgleði, þótt hún sé svolítið bros- leg. Hvað er best ifari karla? Ákveðin einfeídni. Hvað er verst ifari kvenna? Sálarútaustur. Hvað er best í fari kvenna? Samheldni og góður mórall sem fylgir því að vera á uppleið. Óttastu um ástkœra ylhýra málið? Nei. Ertu myrkfælinn? Svona smá. Hefurðu séð draug? Nei. Vœrirðu ekki þú hver vildirðu vera? Ég sjálfur fynr svona 20 árum. Hefurðu hugleitt að breyta lifi þinu al- gjörlega? Já, í þá átt að hætta að láta brauðstritið stjóma mér og fara að stjóma þvi i staðina Hvað er það versta sem gæti komið fyrirþig? Að eitthvað illt henti bömin mín. Hvað er áhrifamesta leikrit sem þú hefurséð? Leikrit Þíbylju: „Dalur hinna blindu.“ Leiðinlegasta bók sem þú hefur lesið? Það er svo hörð samkeppni að það er erfitt að gera upp á milli þeirra allra. Skemmtilegasta kvikmynd sem þú hef- urséð? „Paradísarbíóið." Attu bam eða gœludýr? Ég á tvö böm og tvo ketti. Ertu með einhverja dellu? Ég er óvirkur skákfikill. Ertu með einhverja komplexa? Ekld neina alvarlega. Kanntu að reka nagla i vegg? Já. Hvað er kynæsandi? Að horfá djúpt í augun á elskunni sirmi. Áttu þér uppáhaldsflik? Já, það em allar mínar flikur síðasta mánuðinn áður en þær detta í sundur af sliti. Ertu dagdreyminn? Já, það er ég stundum. Ertu feiminn? Mér finnst það ekki sjálfirm en það em dáli tið slriptar skoðanir um það. Skipta peningar máli í lífi þinu? Já, sem hreyfiafl hluta sem hægt er að gera. Hvað er það sem mestu skiptir i lifi þinu? Að lifa I sátt og samlyndi við mitt fólk og að leggja mitt lóð á vogarskálamar til að heimurinn sökkvi ekki í mengun og annan djöfulskap. fyrir 25 árum Loks fenginn bæjarstjóri I Hafn- arfirðl? Rekstrarstöðvun hjá Stálskipasmiöjunni I Kópavogi. Fyrirhugaðar kosningar I S-Vi- etnam skrlpaleikur. Fjögur stærstu trúarsamtök I landinu neita að taka þátt I þeim. Sá spaki Sá sem sefur er ekki til. (Lukas Moodysson) Gafstu Kobba að boröa, mamma? T Takk kæriega. Nú geturðu hreinlega velt mér upp úr steiksósu áður en ég fer upp I herbergið mitt! Síða 15 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. júlf 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað: 130. tölublað (13.07.1991)
https://timarit.is/issue/226349

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

130. tölublað (13.07.1991)

Aðgerðir: