Þjóðviljinn - 04.09.1991, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 04.09.1991, Blaðsíða 5
9 120 húsnæðisumsóknir frá einstæðum mæðrum Hjálparsamtökin „Móðir og barn“, sem tóku til starfa fyrir tæpum tveimur árum, hafa fengið samtals 120 umsóknir frá einstæðum mæðrum um leiguhúsnæði frá því að þau tóku til starfa. Mikið af umsóknum hefur borist síðasta mánuðinn. Samtökin eru nú með ellefu íbúðir á leigu fyrir þrettán einstæðar mæður og börn þeirra. Frá upphafi hafa „Móðir og bam“ liðsinnt 26 konum og 29 bömum þeirra með þessum hætti, þ.e. séð um útvegun húsnæðis í til- tekinn tíma og niðurgreitt leigu um þriðjung. Samtökin taka aðallega á leigu tveggja herbergja íbúðir og er mánaðarleiga fyrir þær í kring- um 30-32.000 krónur. Þar af borga leigjendur um tvo þriðju en sam- tökin þriðjung. Stefnt er að því að í íramtíðinni geti samtökin komið sér upp eigin húsnæði til þessara nota. Jón Valur Jensson formaður samtakanna segir skort á leiguhús- næði mikinn og samtökin þurfi að auka fjáröflun mjög á næstunni. „Það er mikil þörf á samtökum sem þessum. Einstæðar mæður em oft lágt launaðar og vegna erfiðra aðstæðna þurfa þær oft að komast í húsnæði sem þær geta verið ömgg- ar um í ákveðinn tíma,“ segir hann. „Margar þeirra sem hringja í okkur hafa sent fjöldamörg tilboð eftir auglýsingum en ekkert geng- ið, bæði vegna þess að eftirspumin er mikil og líka vegna þess að þær em með böm. Þær tala margar um að þær finni fyrir fordómum hjá leigusölum vegna þess.“ Starfsemi samtakanna „Móðir og bam“ er fjármögnuð með fram- lögum frá einstaklingum og fyrir- tækjum. Ríkið veitti þeim 350.000 kr. framlag á þessu ári og borgin 110.000 kr. Jón Valur sagði þetta engan veginn duga til og fijáls framlög yrðu að brúa bilið. „Þeir sem vilja fá upplýsingar um sam- tökin og leggja okkur lið geta hringt á skrifstofúna okkar í sima 22275 og fengið sent heim nýút- komið fféttabréf,“ sagði hann. -vd. Iðntæknistofnun fékk fyrsta áfanga umhverfisathugana vegna álvers Umhverfisnefnd Atlantsáls hefur gengið frá verksamningi við Iðntæknistofnun um að stofnunin hafi umsjón með undirbún- ingsathugunum og öflun gagna um ýmsa umhverfisþætti varð- andi byggingu álvers á Keilisnesi. Gengið var frá samningnum í fyrra- dag og hefst verkefnið strax. Því á að vera lokið um miðjan nóvember. Iðntæknistofnun mun einnig lið- sinna umhverfisnefnd Atlantsáls við undirbúning viðræðna við umhverf- isráðherra, um athuganir varðandi umhverfismál vegna fyrirhugaðra ffamkvæmda við álver. „Við munum skilgreina þær kröfur sem uppfylla þarf varðandi mælingar á svæðinu áður en hafist er handa og síðan þær mælingar sem þurfa að eiga sér stað í álver- inu,“ sagði Páll Kr. Pálsson, forstjóri Iðntæknistofnunar. „Við munum síðan leita tilboða í þessar mælingar meðal aðila hér innanlands, bera til- boðin saman og skila þeim saman- burði til Atlantsáls. Þetta er fyrsti áfanginn í þessu umhverfisverkefhi. í næsta áfanga verða gerðir samn- ingar við þá sem gert hafa tilboð í hinar ýmsu umhverfismælingar og síðan mun Atlantsál ráða einhvem aðila sem verkefnisstjóra yfir sjálffi framk væmdinni.“ Páll sagði Iðntæknistofhun von- ast til að fá einnig verkefnisstjóm með öðrum áfanga en gera þarf sér- staklega_ tilboð í hann eins og þann fyrsta. í tilboði Iðntæknistofnunar var verkinu skipt í þijá áfanga og Atlantsál hyggst fylgja þeim heild- artillþgum. Aður hafði verið rætt um að einkaaðili myndi sjá um verkefnis- stjómina fyrir Atlantsál en opinber- ar stofhanir annast verkið sjálft. „Iðntæknistofnun er opinber stofhun sem heyrir undir iðnaðarráðuneytið en við erum hins vegar með mjög hátt sértekjuhlutfall, þ.e.a.s. rikis- ffamlag er ekki nema rúm 35% af veltu á þessu ári. A grundvelli þessa virðast þeir einfaldlega hafa skil- greint okkur sem einkaaðila," sagði Páll. „Þessi mikla sértekjuöflun okkar virðist hafa haff þau áhrif að þeir telja okkur verðugan samstarfs- aðila, auk þess sem við erum að byggja upp sérstaka umhverfis- tæknideild sem mun sinna sérstak- lega verkefnum sem þessu.“ Atlantsál hyggst veija um 50 miljónum króna í umhverfisrann- sóknir í heild, en ekki er gefið upp hvemig þær greiðslur skiptast. -vd. Bo kveður Á morgun miðvikudag Ieikur íslenska knatt- spyrnulandsliðið vináttu- leik við það danska á Laugardalsvellinum. Leikurinn verður jafn- ffamt sá síðasti sem lands- liðið leikur undir stjóm Bo Johansson. Eftirmaður hans verður Ásgeir Elíasson þjálf- ari Fram sem mun stjóma liðnu í næsta alvömleik gegn Spánveijum þann 25. sept- ember n.k. á Laugardalsvell- inum, í Evrópukeppni lands- liða. í sextán manna leik- hópnum sem Bo hefur valið eru þeir Ólafur Gottskálks- son KR, Birkir Kristinsson Fram, Atli Eðvaldsson KR, Sævar Jónsson Val, Valur Valsson Breiðabliki, Einar Páll Tómasson Val, Ólafúr Kristjánsson FH, Þorvaldur Örlygsson Fram, Sigurður Jónsson Arsenal, Ölafur Þórðarson Lyn, Hlynur Stef- ánsson ÍBV, Guðmundur Ingi Magnússon Víkingi, Amór Guðjohnsen Bordea- ux, Eyjólfur Sverrisson Stuttgart, Rikharður Daða- son Fram og Amar Grétars- son Breiðabliki. Eins og sést á þessu vali komast markahæstu leik- menn Islandsmótsins ekki í hópinn, frekar en fyrri dag- inn. Sá markahæsti í hópn- um, af þeim sem spilar hér innanlands, er bakvörðurinn Atli Eðvaldsson sem hefúr skorað átta mörk fyrir KR. Dómarari leiksins og línuverðir koma ffá Skot- landi. Leikurinn hefst klukk- an 18,15. -grh Þrjú ný leikrit í september sjálfúr og er það í fyrsta skipti sem hann hefiir með höndum leikstjóm í Þjóðleikhúsinu. Með helstu hlut- verk fara Sigurður Sigurjónsson, Ólafia Hrönn Jónsdóttir, Öm Áma- son, Sigurður Skúlason og Erlingur Gíslason. Það er Gretar Reynisson sem annast leikmynd, Stefanía Ad- ólfsdóttir búningahönnun en Jó- hann G. Jóhannsson tónlist. I október verður leikritið: Kæra Jelena ffumsýnt á litla sviðinu. Þetta er sovéskt leikrit eftir Ljúd- mílu Razúmovskaju, sem nú fer mikla sigurfor um Vesturlönd. Á stóra sviðinu verður þá jafhffamt frumsýnt leikritið: Himneskt er að lifa. Það er eftir Paul Osbome og er í þýðingu Flosa Ólafssonar. M. Butterfly eftir David Henry Hwang verður frumsýnt í nóvember á stóra sviðinu. Jólaleikrit Þjóðleikhússins verður Rómeó og Júlía, eftir Willi- am Shakespeare í þýðingu Helga Hálfdanarsonar. Það verður ffum- sýnt á stóra sviðinu 26. desember. Þetta er í fyrsta skipti sem Rómeó og Júlía sjást á sviði Þjóðleikhúss- ins. Balthasar Kormákur leikur Rómeó_ en Halldóra Bjömsdóttir Júlíu. I desember verður einnig frumsýnd leikgerð af, skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur: Eg heiti Is- björg. Ég er ljón. Hávar Siguijóns- son hefúr samið leikgerðina. I janúar kemur annað bama- leikrit og að þessu sinni er það vin- ur vors og blóma, Emil í Kattholti. í febrúar verður frumsýnt á stóra sviðinu leikritið Elín, Helga, Guð- riður. Þetta er sögulegt leikrit. Að því leyti á það samleið með sögu- legu leikriti Kjartans Ragnarssonar sem áður var nefnt, en sjónarhóll þessara tveggja verka mun vera gjörólíkur. I mars verður: Rita gengur menntaveginn ffumsýnt á litla svið- inu og söngleikurinn Nú er allt leyft, eflir Cole Porter, kemur á stóra sviðið í apríl. - kj Leikár Þjóðleikhússins hefst í Árósum í Danmörku, 6. september. Þar verður Næturgalinn sýndur. Leikritið er byggt á ævintýr- inu eftir H.C. Andersen og það er Þórhallur Sigurðsson sem leikstýrir. Næturgalinn var sýndur 176 sinnum á síðasta leikári. 35.000 áhorfendur i grunnskólum landsins sáu sýninguna. Nætur- galahópurinn mun leggja land undir fót um miðjan október. Þá verður farið og leikið fyrir börn á Vestur- og Norðurlandi. Bamaleikritið Búkolla, eftir Svein Einarsson, verður ffumsýnt á stóra sviðinu 15. september. Leik- ritið er spunnið úr íslensku þjóð- sagnaefni og þar koma skringilegar persónur við sögu. Jón Ásgeirsson hefúr samið tónlist við verkið, Una Collins sér um leikmynd og bún- inga en Þómnn Sigurðardóttir leik- stýrir. Um miðjan september verður einnig frumsýning á litla sviðinu. Þar er á ferð Ieikverkið: Sprengd hljóðhimna vinstra megin. Þetta er nýstárlegt verk eftir Magnús Páls- son myndlistarmann. Meðal per- sóna í leikritinu em Víoletta greifa- dóttir og Jón Bekk bílstjóri. Þar em ennfremur þau Jóhann Bötler, guð- inn Appolló og Sigismundur prins af Rússlandi og margir fíeiri. Magnús leikstýrir verkinu sjálfúr ásamt Þómnni S. Þorgrímsdóttur. Leikarar em Amar Jónsson, Edda Amljótsdóttir, Guðný Helgadóttir, Guðrún S. Gísladóttir, John Spe- ight, Kristbjörg Kjeld og Stefán Jónsson. Það verða aðeins örfáar sýning- aráþessu verki. I lok september verður svo önnur ffumsýning á stóra sviðinu. Það er leikrit eflir Kjartan Ragnars- son. Það heitir: Gleðispilið, eða faðir vorrar dramatisku listar. Leik- rit Kjartans fjallar um Sigurð Pét- ursson, sýslumann og fyrsta leik- skáld Islendinga. Vinur og vemdari Sigurðar, Geir Vídalín biskup, kemur einnig mikið við sögu. Kjartan leikstýrir verki sínu Sfða 5 ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 4. september 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.