Þjóðviljinn - 16.10.1991, Page 1

Þjóðviljinn - 16.10.1991, Page 1
wms#\ ■ Wmm Hii# **,*’»***-•'* V.í<.>v Undirskriftimar breyta engu um St. Jósefsspítala Hafnflrðingum er það mætavel ljóst, eins og öllum öðrum, að við verðum að endurskipu- leggja sjúkrahúsaþjónustuna á höfuðborgarsvæðinu, sagði Sig- hvatur Björgvinsson heilbrigðis- ráðherra, aðspurður um hvort tekið yrði tillit til þeirrar skoð- unar yfir 10.000 manns í Hafn- arfirði, Garðabæ og Bessastaða- hreppi að ekki beri að breyta rekstri St. Jósefsspítala. Undirskriftimar voru afhentar heilbrigðisráðherra í gær. Sighvatur segir endurskipu- lagningu brýna af tveimur ástæð- um. „Onnur ástæðan er sú að á sl. 20 árum hafa orðið miklar breyt- ingar á starfsemi sjúkrahúsa sem hafa breytt þeim kröfum sem þarf að gera til þeirra og hvemig skipu- lag sjúkrahúsþjónustu á landinu öllu þarf að vera. Hin ástæðan er sú að menn hafa ekki lengur pen- inga til að greiða þann reikning sem óbreyttur rekstur kostar,“ sagði hann. Hafnfirðingar, sem barist hafa gegn þvi að spítalanum verði breytt í hjúkmnarheimili, hafa bent á að í Hafharfírði sé fyrir hendi Bdakaup í forsætis' ráðuneyti Forsætisráðuneytið hefur fest kaup á sérstökum bfl til nota í sendiferðir. Bfllinn er af gerðinni Lancer Station ár- gerð 1990 og kostaði rúmlega 1,4 miljónir króna. Bíllinn er keyptur hjá Hekluumboðinu. Ráðuneytið hefur til þessa látið duga að notfæra sér send- ilsþjónustu sem rekin er hjá fjármálaráðneytinu fyrir nokkur ráðuneyti. Sendill þaðan hefur komið tvisvar á dag í forsætis- ráðuneytið til að taka við því sem þarf að sendast með. „Það eru miklar sendingar hér sem oft liggur á að koma út. Við höíum því þurft að nota leigu- bíla þess á milli sem sendillinn kemur og þetta dregur úr þeim kostnaði,“ segir Helga Jónsdótt- ir, skrifstofustjóri í forsætis- ráðuneytinu. -vd. ágæt þjónusta fyrir aldraða. Bið- listavandinn sé í Reykjavík, fyrst og fremst. Sighvatur kvaðst í sam- bandi við þetta vilja benda á að Hafnfirðingar nýti sjúkrahúsaþjón- ustu í Reykjavík og Landakotsspít- ali tilheyrði t.d. ekíci Vesturbænum þótt hann væri staðsettur þar. „Við erum með eitt sameiginlegt þjón- ustusvæði og verðum auðvitað að skipuleggja rekstur á því með þarf- ir þess í heild í huga. Hafnfirðingar eru bara hluti af þessu höfuðborg- arsvæði,“ sagði hann. Ráðherra mun hitta forsvars- menn St. Jósefsspítala í lok þessar- ar viku eða eftir helgi. „Eg á þá von á því að fá tillögur þeirra og þær verða skoðaðar. Ég hef líka sagt þeim það að þessi tala um nið- urskurð, 115 miljónir, sé ekki það heilög að það megi ekki gera ffá- vik frá henni.“ Aðspurður um hvort mögulegt væri að halda áfram sjúkrahúsrekstri eftir þennan niðurskurð svaraði ráðherra því til að það væri ekki hægt nema með skipulagsbreytingu á rekstri og samstarfi við önnur sjúkrahús á höfuðborgarsvæðinu. „En menn hafa ekki lengur fjármagn til að kosta óbreyttan rekstur sem myndi hafa það í for með sér, ef ekki er breytt til, að það yrði að loka stöð- ugt fleiri sjúkrarúmum,“ sagði Sig- hvatur. -vd. Ema Frfða Berg, formaður Bandalags kvenna í Hafnarfirði, afhenti heilbrigðisráðherra undirskriftir 10.300 manns sem vilja ekki að rekstri St. Jósefsspítala verði breytt. Mynd: Jim Smart. Byggðastofnun brýtur í bága við tilskipun stjómvalda ^ kvörðun stjórnar A Byggðastofnunar um að lána fé til tveggja Iax- jL jLeldisfyrirtækja gengur þvert á tilskipun ríkisstjórnar- innar um að ekki verði greitt meira til laxeldisfyrirtækja en verið hefur fram að þessu. Guð- mundur Malmquist, forstjóri stofnunarinnar, segir að ákvörðun stjórnarinnar muni ekki hafa fordæmisgildi þar sem búið sé að leggja allflest laxejdisfyrirtæki niður. Akvörðun stjómar Byggða- stofnunar í gær um að lána fé til Miklalax og Silfurstjömunnar er einkennileg í Ijósi þess að ríkis- stjómin gaf þá yfirlýsingu í sumar að ekki yrði frekar lánað til lax- eldisfyrirtækja. Nefnd er ríksi- stjómin skipaði lagði þá til að ákveðin fyrirtæki skiptu á milli sín um 300 miljónum króna. Þau fyrirtæki sem þá vom valin vom af nefndinni talin líklegust af lax- eldisfyrirtækjum til að skila ein- hverjum hagnaði í framtíðinni. Miklilax, sem skuldaði Byggðastofnun 582 miljónir króna, fær samkvæmt ákvörðun stjómarinnar um 113 miljónir af eigin fé stofnunarinnar. Þar af er efirgjöf á skuld fyrirtækisins á viðskiptareikningi við stofnunina upp á 65 miljónir, fé fyrir ýmsar framkvæmdir við fyrirtækið upp á 31,2 miljónir og fóður- og launa- kostnaður fyrir næsta ár upp á 17 miljónir króna. Silfurstjarnan, sem skuldaði Byggðastofnun 341 miljón króna, fær styrk frá stofn- uninni upp á 25 miljónir. Styrkur þessi á að fara til að koma upp mjúkfóðurgerð og dreifikerfl fyrir fóður. Guðmundur Malmquist, for- stjóri Byggðastofnunar, sagði i gær að Byggðastofnun ætti um 20% af hlutafé fyrirtækjanna. Einnig væri staða fyrirtækjanna slík að ef ekkert yrði að gert yrðu þau hreinlega lýst gjaldþrota. Hann sagði að í stað þess að missa þær 900 miljónir króna sem lægju í fyrirtækjunum i formi lána, væri betra að styrkja rekst- urinn og vonast til að fá eitthvað af peningunum til baka. Þegar Guðmundur var spurður hvort þessi ákvörðun hefði ekki fordæmisgildi fyrir önnur fyrir- tæki sem ekki hefðu hlotið náð fyrir augum nefndarinnar sem rík- isstjómin skipaði til að skipta 300 miljón krónum sl. sumar, sagði hann að svo ætti ekki að vera. „Það em fyrirtæki á Tálknafirði og svo þessi tvö fyrirtæki. önnur fyrirtæki em nú hætt starfsemi, þannig að þetta hefur ekki for- dæmisgildi.“ -sþ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.