Þjóðviljinn - 16.10.1991, Side 3

Þjóðviljinn - 16.10.1991, Side 3
í DAG 16. október er miðvikudagur. Gallusmessa. 289. dagur ársins. Sólarupprás ( Reykjavík kl. 8.19 - sólarlag kl.18.06. Viðburðir Karl Kautsky fæddur 1854. Verkalýðsfelag Patreks- fjarðar stofnað 1928. Þjóðviljinn fyrir 50 árum Nýtt Dagblað: Fasistaher- inn nálgast vztu varnar- virkjalínu Moskva að vest- an. Borgarbúar búast til vamar við hlið rauða hers- ins. Tvær milljónir sovét hermanna verja leiðirnar til Moskva. fyrir 25 árum Kemur ný bók frá Lax- ness? Hjá Helgafelli er að- alspurningin: Kemur bók frá Halldori Laxness eða ekki. Fari svo, að skáldið skili handriti bráðlega, verður allt annað látið sitja á hakanum, komi hins vegar engin bók frá Lax- ness má búast við öðrum bókum út fyrirjól. Sá spaki Allar góðar bækur eru líkar að því leytinu til að þær eru sannari en ef þær hefðu gerst í raunveruleikanum. (Ernest Hemingway) á slæmu atvinnuástandi á Suðumesjum Kristján Pálsson, bæjarstjóri í Njarðvík Mín skoðun er sú að atvinnuleysi sé héma fyrst og fremst vegna mikilla sveiflna í sjávarútvegi, og erfiðrar stöðu fiskvinnslufyrir- tækja sem ekki hafa fengið næg- an fisk til að halda uppi atvinnu. Bæjarstjómin í Njarðvík hefur bent á kosti þess að allur fiskur sem veiddur er á íslandsmiðum fari í gegnum íslenska fiskmark- aði. Ef menn vilja ættu erlendir fiskkaupendur að geta átt aðgang að þeim. En með því væri alla- vega komið á einhveiju jafnræði, þannig að íslenskir kaupendur ættu að geta boðið í fiskinn áður en hann fer út. Þegar beinn út- flutningur er heimilaður eins og núna er mikið ójafnræði milli innlendra og erlendra aðila. Þeg- ar fiskurinn er kominn út er hann t.d. léttari og greiða erlendu aðil- amir ekkert fyrir þá rýmun. Ef þeir verða að bjóða í fiskinn héma er greitt fyrir hann allan en ekki að hluta. Þetta óréttlæti er alveg óþolandi og rétt að benda þingmönnum á að þetta þarf að taka fostum tökum. Ábati af EES rýr fyrir sjávarútveginn Hagnaður íslensks sjáv- arútvegs af því að tengjast Evrópubanda- laginu eða Evrópska efnahagssvæðinu er rýr, sam- kvæmt skýrslu Þjóðhagsstofnun- ar um íslenskan þjóðarbúskap og Evrópska efnahagssvæðið. Niðurstaða um áhrif EES á ís- lenskan sjávarútveg er að miklar líkur séu á því að þótt Island teng- ist EES muni sjávarútvegurinn áfram verða undanþeginn því frelsi í viðskiptum sem verið er að inn- leiða á sviði iðnaðar og þjónustu í EB-löndunum. „Þær takmarkanir á viðskiptum með sjávarafurðir og aðfong veiða og vinnslu, tollar og styrkir til sjávarútvegs EB fela í sér kosmað fyrir íslendinga. Líkur eru á að Is- lendingar muni þurfa að bera stór- an hluta af þessum kosmaði áfram, jafnvel þótt þeir gerist aðilar að EES. Af þessum ástæðum má ætla að ábati íslensks sjávarútvegs af því að tengjast EB/EES verði minni en sá ábati sem aðrar þjóðir gera ráð fyrir i þeim greinum iðn- aðar og þjónustu sem eru öflugast- ar í þeirra löndum. Vegna mikil- vægi sjávarútvegsins hér á landi má ætla að beinn þjóðhagslegur ávinningur Islendinga af því að tengjast EB/EES verði minni held- ur en aðrar þjóðir gera sér vonir um.“ Þá segir í skýrslunni að ekki virðist fysilegur kostur fyrir Is- lendinga að gerast aðilar að sjávar- útvegsstefnu EB. Og er helsta ástæðan sú að fiskveiðistjómun I skýrslu Þjóðhagsstofnunar segir að ekki virðist fýsilegur kostur fyrir Islendinga að gerast aðilar að sjávarút- vegsstefnu EB. Og er helsta ástæðan sú að fiskveiðistjórnun okkar hefur skilað betri árangri en hjá EB og að einnig er margt óljóst varðandi framtíð sjávarútvegsstefnu EB. okkar hefur skilað betri árangri en hjá EB og að einnig er margt óljóst varðandi framtið sjávarútvegs- stefhu EB. Þjóðhagsstofnun bendir á að Islendingar eru mjög háðir við- skiptum með sjávarfang við EB- löndin. Segir að íslenskt efnahags- líf yrði fyrir vemlegum búsifjum ef mikilvæg tollfríðindi yrðu felld niður eða ef reynt yrði að torvelda útfluting á sjávarafurðum til EB. Stofhunin telur þó litlar líkur á að svo verði, þótt ekki sé ástæða til að útiloka þann möguleika. Þá segir að niðurfelling á toll- um á sjávarafurðum einsog salt- fiski, skreið, saltsíld, ferskum fisk- flökum og unnum lagmetisvömm myndi skila auknum tekjum. Þjóð- hagslegt verðmæti slíkra tolla- lækkana væri því vemlegt. Þá segir í skýrslunni að flest bendi til þess að íslenskur sjávarút- vegur þurfi ekki að óttast framtíð- ina ef hann keppir við sjávarútveg annarra landa á jafhréttisgrund- velli. Hinsvegar sé viss hætta á að útflutningur ísfisks aukist áfram og vinnsla fisks hér heima minnki ef íslenskir fiskverkendur verði utan tollmúra af því tagi sem nú em. Því sé mikilvægt að ná samningum við EB um að fblla þessa tolla nið- ur. -Sáf Þjóðleg lambaslátrun Fyrir utan hefðbundna bændur eru íslendingar svo vel settir að eiga svo- kallaða frístundabændur. Frístundabændur eiga það sam- eiginlegt að búa bara með sauðfé enda hættir frístundabúskapur að rísa undir nafni ef búið er með kýr með þeirri ánauð sem fylgir mjöltum kvölds og morgna. Fjáreign þessara manna, upp á fimm til tíu ær hjá hverjum, þætti heldur snautleg í alvöru búskap. Þó lúta afurðir þessara smábúa sömu lögmálum og afurðir annarra eins og sjá má af því að ekki verður með sæmilegu móti komist hjá að slátra lömbunum á haustin, ef ætlunin er að éta kjötið ura vet- urinn. Þessi einfoldu sannindi vefjast um þessar mundir ákaf- lega fyrir íslenska stjórnkerfinu, V sem virðist nú vera að ná stjórn- kerfi Evrópubandalagsins í þvi að gera einföld mál og auðleyst flókin og óleysanleg. Frístundabændur i Grindavík hafa nýlega lógað lömbum sínum og þykir sannað að slátrunin hafi tekist giftusamlega. Hefur stjóm- kerfið ráðið þessa staðreynd af innihaldinu i frystigámi sem_ stend- ur undir vegg suður þar. I gámi þessum taldist yfirvöldunum svo til að væru nokkrir lambsskrokkar, líklega einn eða tveir skrokkar af veturgömlu og fáeinir af gamalám sem lokið höfðu því hlutverki sinu að sjá eigendunum fyrir ljúffengu kjöti í nokkur ár. Þetta fundu yfir- völdin út með einfaldri stærðfræði: skrokkamir í gáminum eru sagðir álíka margir og kindur sem dag nokkum vom leiddar inn í húsið handan veggjarins og ekkert hefur spurst til síðan. Hefur áreiðanlega oft verið lakar reiknað á Islandi. Nú hagar svo til að ekki má lóga kindum hérlendis nema sam- kvæmt reglugerð. Grindvískum fh'stundabændum láðist því miður að lesa reglugerð þessa og létu sig hafa að skera eigið fé líkt og gert hefur verið í byggðarlaginu frá því að land byggðist. Hafi þeir góðu menn álitið að yfirvöldin létu átölulaust fella fé utan reglugerða sem enginn hefur lesið nema þau, þá er það mikill misskilningur. Þau gerðu að vísu ekkert til að stöðva verknaðinn en sendu lögregluna á staðinn þegar búið var að flá, taka innan úr og koma skrokkunum í frystigám. Fengu nú bændur til- kynningu um að fé þetta væri ólöglega fellt og væri því óætt samkvæmt reglugerð. Létu yfir- völdin innsigla gáminn til að koma í veg fyrir að bændur gerðust svo djarfir að leggja sér kjöt af eigin sláturfé til munns. Er málið komið í óleysanlegan hnút. Féð er steind- autt og engin leið að vinda ofan af atburðarásinni og lóga því lögum samkvæmt. Ekki má viðurkenna að bændur hafi gleymt að lesa reglugerðir frá því að land byggð- ist og fyrirgefa þeim. Ekki er hægt að breyta reglugerðinni og gera at- hæfið löglegt. Ekki er heldur hægt að leyfa mönnum að éta kjöt af lömbum sem slátrað hefur verið utan við lög og rétt. Ekki geta yfir- völdin hent kjötinu nema þá að taka það eignamámi og til þess kann að vera nauðsynlegt að setja sérstök eignamámslög um sauðfé í Grindavík. í stuttu máli sagt: málið er óleysanlegt fyrir yfirvöldin og vantar nú illa Alexander mikla sem hefði leyst þennan hnút með þeim einfalda hætti að skera innsiglið af gáminum góða, og snúa sér að öðr- um og mikilvægari viðfangsefhum en að þvarga við bændur sem hafa ekkert til saka unnið annað en að slátra fé sínu að hausti á þjóðlegan máta, eins og gert hefur verið frá upphafi byggðar á íslandi. - Þrándur Síða 3 ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 16. október 1991

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.