Þjóðviljinn - 06.11.1991, Page 9
Mtoinmg________
Steinunn Anna Olafsdóttir
Fædd 14.4. 1956 - Dáin 25.10. 1991
Við Steina fluttumst bæði til
Kaupmannahafnar 1976, en borgin
var þá athvarf leitandi íslenskra
ungmenna. Suma rak undan
straumum og vindi, en lífsleit
Steinu var af öðrum og virkari
toga. Hún varð strax eins og fiskur
í vatni hins danska mannhafs og
eignaðist marga danska vini. Jafn-
framt vann hún eins og íslending-
ur, þ.e. meira en fulla vinnu, og
keypti sér fljótlega íbúð. Samt gat
hún líka tekið þátt í lífi Haftiarís-
lendinga af þeim lífskrafli sem
alltaf einkenndi hana.
Lífsleit Steinu bar hana aftur til
Islands, en að ári liðnu kom hún
aftur til Hafnar, og það var um það
leyti, árið 1982, sem við bundumst
vinaböndum. Hópur íslendinga,
sem hafði verið í Kaupmannahöfh
um 5-10 ára skeið, þjappaðist sam-
an á þeim misserum sem þá fóru í
hönd. Við tókum öll virkan þátt í
dönsku mannlífi, en sú ramma ís-
lenska taug dró okkur jafnffamt
saman.
Ég kynntist mörgum Dönum
og fólki af öðru þjóðemi í gegnum
Steinu. Samskiptin ristu ofl dýpra
en venjulegur kunningsskapur, og
nú átta ég mig á því að það var
ekki síst vegna þess að Steina
leiddi okkur saman. Hún var þess
eðlis að samræðumar urðu aldrei
yfirborðslegar þar sem hún sat í
hóp. Hún var bæði einlæg og gerði
óspart grin að sjálfri sér, svo að
enginn gat tekið sjálfan sig of há-
tíðlega í návist hennar. Svo vin-
mörg var Steina, að þegar hún hélt
upp á þrítugsafmæli sitt í Kaup-
mannahöfn, bauð hún bara nánum
vinum til veislu, en þar vom 50
manns. Þó vissi ég að hún ræktaði
vináttu sina við allt þetta fólk, ekki
með reglubundnum skylduheim-
sóknum eða kurteisissímtölum,
heldur gaf hún sig alla þegar hún
var með fólki, hvort sem hún fór í
stuttar helgarferðir með því eða sat
með því einstök kvöld sem oft
teygðust ffam undir morgun.
Meðal danskra vina Steinu var
ljóðskáldið F. P. Jac, eitt fremsta
ljóðskáld sinnar kynslóðar. Hann
var svo gagntekinn af Steinu að
eina ljóðabók sína, Misfats, orti
hann að vemlegu leyti til hennar.
Hún varð honum að tákni sjálfrar
náttúrunnar og uppmnaleikans, í
gegnum hana smíðaði hann draum-
mynd um ísland, þar sem mann-
eskjan og náttúran em enn óspillt,
andstætt ómennskri Evrópu. Steina
var ekki allt of hrifin af því að vera
gerð svona að tákni, hún leit á sig
sem manneskju af holdi og blóði,
en þessi ljóð em til marks um það
hversu sterk áhrif Steina hafði á
fólk.
Sjálf orti Steina ljóð og þeir
sem sáu þau hvöttu hana áfram á
þeirri braut. Hún var þó lengi í
vafa um það hvort hún hefði næg
tök á tungumálinu; henni fannst
hún hafa tekið út of mikinn þroska
i Danmörku til að geta notað is-
lensku og hún minnti fólk gjaman
á að danskan var ekki móðurmál
hennar. Um þrítugt dreif hún sig
svo að ljúka stúdentsprófi, og
dönskukennarar hennar hvöttu
hana til að rækta ffekar ritleikni
sína og næmi á bókmenntir. Einu
sinni var henni úthlutað ritgerðar-
verkefninu „Samanburður á per-
sónusköpun Sölku Völku og Uglu
með tilliti til þróunar í ritferli Hall-
dórs Laxness og þeirra samfélags-
breytinga sem urðu milli útkomu
þessara tveggja bóka.“ Þetta var í
raun efni í doktorsritgerð, en
Steina komst frá því með sóma.
Mér er sérstaklega minnisstætt að
henni fannst Ugla óraunvemleg
persóna, en Salka Valka snerti
strengi í Steinu og kaflinn um hana
var ritaður af miklu innsæi.
Steina vildi fá betri þjálfún í að
skrifa, og það var held ég helsti
hvatinn að því að hún sótti um inn-
göngu í Blaðamannaskólann í Ár-
ósum. Þrátt fyrir harða samkeppni
komst Steina í skólann, og fýrstu
misserin spurði hún oft sjálfa sig
og vini sína: „Er ég á réttum stað?
Mig langar mest til að skrifa bók-
menntir og það á margt betur við
mig en harðar staðreyndir frétta-
mennskunnar." En Steina vildi
ekki gera neitt öðm vísi en vel, og
fljótlega náði hún slíkum tökum á
blaðamennskunni, að henni stóðu
opnar dyr til starfsþjálfúnar á Po-
litiken. Þar var hún ekki heldur sett
í nein léttaverkefhi, því að hún
skrifaði oft forsíðufréttir og annað
„hot stuff' á svo til öllum sviðum
blaðamennsku. Síðustu misserin
hugsaði hún um það með sívaxandi
alvöru, hvar hún gæti best notið sín
í íslenskum fjölmiðlaheimi, helst
strax að námi loknu.
Minningarnar um samveru-
stundir með Steinu em legíó. Það
einkenndi hana að henni fannst sárt
að kveðja, og oft fékk hún vini
sína til að drekka einn bjór eða
einn kaffibolla í viðbót, og svo
annan, á meðan samræðumar
dýpkuðu. Það vom margir strengir
í lundarfari Steinu. Stundum fíflað-
ist hún og kom í veg fyrir að nokk-
ur í nágrenni hennar segði orð af
viti. Stundum var hún málefnaleg,
stundum lét hún innsæi og tilfinn-
ingar ráða ferðinni, og hún gat
bæði verið ofsakát og leið. Aldrei
lét hún þó þunglyndi ná tökum á
sér, og seiglan og lífskrafturinn
einkenndi hana hvort sem hún var
stödd í öldudal eða á toppnum.
Hún var trygg vinum sínum, en þó
ekki eigingjöm. Hún samgladdist
mér í einlægni þegar ég sagði
henni að ég hefði fúndið lífsföra-
naut minn, og þegar Kristín kom í
heimsókn til Kaupmannahafnar,
skipulagði Steina í snatri eitt kvöld
þar sem þær gætu hist í fyrsta sinn,
án mín, og þær urðu strax mestu
mátar.
Síðan andlátsfféttin barst, hefúr
mér verið tregt tungu að hræra.
Þóm og öðrum sem eiga um sárast
að binda get ég sagt það eitt til
huggunar, að Steina gaf umhverfi
sínu meira á skammri ævi en flest-
um auðnast á langri. Hennar er
víða minnst, ekki aðeins með eftir-
sjá, heldur líka þakklæti.
Gestur Guðmundsson
Alþýðubandalagið
Norðurlandi eystra
Þórshöfn og nágrenni
Fundur verður I Alþýðubandalagsfélaginu fimmtudaginn
7. nóvember kl. 18 I Félagsheimilinu, kaffistofunni.
Þingmennimir Ólafur Ragnar Grímsson, Kristinn H. Gunnarsson
og Steingrlmur J. Sigfússon mæta á fundinn og ræða
málin.
Einnig verða kosnir fúlltrúar á landsfund AB.
Stjómln
Alþýðubandalagið
Norðurlandi eystra
Raufarhöfn
Fundur verður I Alþýðubandalagsfélaginu föstudaginn 8. nóv-
ember kl. 18 I Félagsheimilinu.
Þingmennimir Ólafur Ragnar Grímsson og Steingrlmur J. Sig-
fússon mæta á fundinn og ræða málin.
Stjórnin
AB Akureyrí
Félagsfundur
Alþýðubandalag Akureyrar heldur almennan félagsfund laugar-
daginn 9. nóvember I Lárusarhúsi kl. 10 árdegis.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa á landsfund.
2. Félagar I nefndum sitja fyrir svörum.
Heitt á könnunni.
Mætum öll.
Stjórnln
Tíundi landsfundur
Alþýðubandalagsins
Tlundi landsfundur Alþýðubandalagsins verður haldinn dagana
21.-24. nóvember 1991 I Reykjavík. Fundurinn verður settur
fimmtudaginn 21. nóvember kl. 17:30 og lýkur sunnudaginn 24.
nóvember kl. 14:00.
Dagskrá auglýst siðar.
Alþýðubandalaglö
Alþýðubandalagið I Reykjavlk
Evrópska
efnahagssvæðið
Undirbúningur fyrir landsfund. Vinnuhópur
undir stjórn Stefaníu Traustadóttur um þátt-
töku íslands f EES er boðaður á fund I
kvöld, miðvikudaginn 6. nóvember, kl.
20.30 að Laugavegi 3.
Stjórnln
ABR
Skrifstofan opin
Skrifstofa Alþýðubandalagsins I Reykjavlk að Laugavegi 3 er
opin á mánudögum frá klukkan 17-19.
Stjómin
Alþýðubandalagið I Reykjavík
Umhverfismál
Undirbúningur fyrir landsfund Alþýðu-
bandalagsins. Vinnuhópur undir stjórn
Auöar Sveinsdóttur heldur fund mið-
vikudaginn 6. nóvember kl. 20.30 að
Laugavegi 3.
Stjórnin
Alþýðubandalagið I Kópavogi
Laugardagskaffi
Alþýðubandalagið I Kópavogi býður upp á
morgunkaffi laugardagsmorguninn 9. nóv-
ember klukkan 10-12. Valþór Hlöðversson
bæjarfulltrúi verður á staðnum.
Allir velkomnir
Bæjarmálaráö ABK
FRÁ
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU
Styrkur til handritarannsókna
í Kaupmannahöfn
(framhaldi af lyktum handritamálsins ákváðu dönsk
stjómvöld að veita Islenskum fræðimanni styrk til
handritarannsókna við stofnun Árna Magnússonar
^et Arnamagnæanske Institut) i Kaupmannahöfn.
Styrkurinn veitist til allt að tólf mánaða dvalar og
nemur nú um 16.100 dönskum krónum á mánuði,
auk ferðakostnaðar.
Styrkur Árna Magnússonar
(Det Arnamagnæanske Legat)
Með sameiningu eftirtalinna sjóða, Det Arnamagnæ-
anske Legat (frá 1760), Konrad Gíslasons Fond (frá
1891) og Bogi Th. Melsteds Historikerfond (frá 1926)
hefur verið stofnaður einn sjóður, Det Arnamagnæ-
anske Legat. Verkefni hins nýja sjóðs er að veita (s-
lenskum ríkisborgumm styrki til rannsókna í Árna-
safni eða í öðrum söfnum I Kaupmannahöfn. Styrkir
verða veittir námsmönnum og kandídötum, sem
hafa sýnt svo mikla þekkingu á sviði norrænnar eða
islenskrar tungu, sögu eða bókmennta, að vænta
megi að þeir muni inna af hendi verk í þessum grein-
um, sem þættu skara fram úr.
Umsóknarfrestur um ofangreinda styrki er til 25. nóv-
ember n.k., en umsóknir ber að stila til Ámanefndar
(Den Arnamagnæanske Kommission) í Kaupmanna-
höfn. Nánari upplýsingar um styrkina og tilhögun
umsókna fást í menntamálaráðuneytinu, Stofnun
Áma Magnússonar á (slandi og skrifstofu heimspeki-
deildar Háskóla (slands.
Menntamálaráðuneytið
4. nóvember 1991
RAFRÚN H.F. IIÍLSICÚHS
Smiðjuvegi 11 E
Alhliða rafvcrktakaþjónusta — -■■■■
Allt efni til raflagna
GLÓFAXI HF.
Sími641012 ÁRMÚLA 42 10^ REYKJAVlK SlMI: 3 42 36
J7/
Orkumælar
frá
KAMflTHlTT hirrRO A/H
Á
:ur MF.
Innflutnlngur — Tfcknlpjónust*
Rennslismælar
frá
HYDROMETER
Sími652633
Síða 9
ÞJÓÖVILJINN Miðvikudagur 6. nóvember 1991