Þjóðviljinn - 05.12.1991, Blaðsíða 5
Fkétter
Bylting til
velfamaoar
Það þyrfti að stofna nýjan
flokk á Islandi, sem væri
fyrir almenning. Sá flokk-
ur ætti að hafa atvinnu-
starfsemina og launafólkið í ðnd-
vegi, en ekki framapot einstakra
manna á þingi, eins og er í dag.
Hér þarf byltingu til velfarnaðar
ef fólk á að getað lifað í landinu.
Það er síðan spurning hvort það
sé ekki orðið of seint, sagði
Björk Gunnarsdóttir skrifstofu-
maður um sitt álit á stöðu mála í
þjóðfélaginu í dag.
Björk sagði það einkennandi
íyrir pólitíkusana í dag, að þeir
hugsuou fyrst um sjálfa sig áður en
þeir sneru sér að málefnum al-
mennings í landinu. Það væri af
sem áður var að menn hafi staðið
og fallið með sinni sannfæringu. I
tví sambandi benti Björk á fram-
væmdastjóra Vinnuveitendasam-
bandsins, Þórarin V. Þórarinsson,
og sagði að hann hefði fyrir kosn-
ingar tekið stórt upp í sig og sagt
að nú væru bjartir tímar framund-
an.
Tímamir voru líka bjartari, en
það sem síðasta ríkisstjóm gerði
fyrir launafólk er núna allt komið
úr böndunum. Mér finnst að Þórar-
inn ætti að halda opinn borgara-
fund og sitja þar fyrir svömm. Ég
skora í raun á hann að ffamkvæma
þetta og leyfa okkur almenningn-
um að spyija hann út úr. Við vitum
jú að hann er kominn út á hála
braut þessa dagana.
Aðspurð hvort hún hefði ein-
hveija lausn á samningsmálunum,
sagðist Björk ekki ráða neinu í
þeim efhum.
Mér finnst samt að engin for-
senda sé fyrir launahækkunum í
dag. Hins vegar þarf að breyta
skattkerfmu. Ef ekki verður ráðist
á skattkerfið fljótlega er ég hrædd
um að ástandið eigi eflir að versna
fyrir launafólk. -sþ
Enn slær
í brýnu
á AÍþingi
Björk Gunnarsdóttir skrifstofumaður hefur ákveðnar skoðanir á þjóð-
málunum. Hún vill kenna pólitíkusunum um hversu ástandið sé orðið
slæmt í dag. Mynd: Kristinn.
Austfirskir
kratar
styðja sinn
mann
í stjórnmálaályktun
kjördæmisráös Alþýðu-
flokksins á Austurlandi frá
því á laugardag er bent á að
kjördæmisráð flokksins hafi
ályktað einróma að láta
reyna til þrautar að mynda
vinstri stjórn sl. vor. Því er
lýst að þingmaður flokksins
á Austurlandi, séra Gunn-
laugur Stefánsson, hafi hing-
að til tekið þátt í stjórnar-
samstarfl Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks af fullum
heilindum, en „nú reynir á
hvort ríkisstjórnin er vand-
anum vaxin.“
Kjördæmisráðið vill efna-
hagsaðgerðir er tryggi jöfhun
lífskjara, fulla atvinnu og jafn-
vægi í byggð landsins. Hvatt
er til upptöku húsaleigubóta og
hækkunar skattfrelsismarks.
Lagt er til að settur verði skatt-
ur á fjármagnstekjur og að
fjárfestingarstefna þessarar
ríkisstjómar verði endurskoð-
uð til að tryggja betur jafnvægi
í byggð landsins, svo eitthvað
sé nefnt af tillögum kjördæm-
isráðsins. Þá leggur aðalfundur
kjördæmisráðsins áherslu á að
það styðji afstöðu þingmanns
síns gegn hækkun skólagjalda.
-gpm
Umræður um breytingar
á lögum sem banna er-
lendum skipum að
landa í íslenskum höfn-
um leiddust út í almenna um-
ræðu um stefnu í skipasmíðum á
Islandi á Alþingi á þriðjudags-
kvöld. Össur Skarphéðinsson,
Alfl., gagnrýndi framsóknar-
menn fyrir að hafa verið á móti
breytingum sem hefðu getað
komið skipasmíðastöðvum vcl.
Þetta opnaði á gagnrýni stjóm-
arandstöðunnar á Jón Sigurðsson
iðnaðarráðherra og hans hlut varð-
andi skip^smíðar hérlendis undan-
farin ár. Olafur Ragnar Grímsson,
Abl., lýsti síðustu átta árum sem
mesta samdráttarsk,eiði í sögu
skipasmiðaiðnaðar á Islandi.
Jón Sigurðsson viðurkenndi að
hann hefði ekki haft og hefði ekki
hug á niðurgreiðslum ríkisins í
þessu sambandi.
Steingrímur J.
Sigfússon, Abl.,
gagnrýndi stefnuna
1 þessum málum
mjög og taldi það
enga töfralausn nú
að leyfa erlendum
skipum að landa í
íslenskum höfhum
og koma þar inn til
viðgerða.
I andsvari við
ræðu Steingríms
líkti Jón honum við
hana sem reigir sig
á haug. Það vprð til
^58 að Olafur
gnar óskaði þess
af forseta þingsins
að Jón yrði víttur
eða að minnsta
kosti að fundi yrði
frestað þar til iðnaðarraðherra yrði
rórri og fengi tækifæri til að lesa
heima um mannasiði og þingsköp,
einsog hann orðaði það. Og var
umræðunni frestað.
Þetta varð síðan tilefni til frek-
ari umræðna í gasr. Salome Þor-
kelsdóttir, forseti þingsins, taldi
Olaf Ragnar ekki ijalla efnislega
um dagskrárliðinn, Eftirlaun til
aldraðra, þegar hann hóf ræðu sína
Mynd: Smart.
aör'.v3ur
<STr HJALPARSTOFNUN
VOJý KIRKJUNNAR
á ívitnun í Jón Baldvin Hannibals-
son, formapn Alþýðuflokksins, í
Mannlífi. I þingskapaumræðu í
kjölfarið var gagnrýnt að forseti
væri þannig að ritskoða hvað
ræðumenn segðu. Hjörleifur Gutt-
ormsson, Abl., og Kristín Einars-
dóttir, Kvl., töldu þetta bæði vara-
sama braut sem forseti væri komin
út á. En Salome benti á ákvæði um
vítur i þingskaparlögum, þó hún
benti á að þún hefði ekki notað það
orðalag. Olafi Ragnari þótti pað
óeðlilegt að þessu ákvæði væri
beitt þannig á hann þegar það var
ógert vegna ummæla Jóns um
Steingrím J.
Svavar Gestsson, Abl., er fyrsti
flutningsmaður að frumvarpi til
laga um þriggja ára þróunarátak í
skipasmíðaiðnaði, nýsmíðum og
skipaviðgerðupi, sem var lagt ffam
á þmgi í gær. I frumvarpinu er gert
ráo fyrir að séu skip smíðuð er-
lendis með ríkisstyrkjum verði á
það lagt sex prósent jöfhunargjald
nér heima og einnig að séu skip
tekin til úreldingar á móti nýju
skipi skuli draga 20 prósent fra
stærð skipsins sem úrelt er ef nýja
skipið er smíðað erlendis. Fmm-
varpið er lagt ffam vegna þess
vanda sem við blasir í islenskum
skipasmíðaiðnaði, segir í greinar-
gerð þess. -gpm
yý"W«r, u
Crn'y«'ein^'yi.rrstseaíi
Síða 5
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 5. desember 1991