Þjóðviljinn - 10.01.1992, Blaðsíða 13
S k á k
Nlu fyrrverandi
Sovétmenn
töpuéu fyrir
einum Indverja
Skákpistlahöfundar þurfa eins og
aðrir að læra landaffæðina upp á nýtt.
Hverrar þjóðar er t.d. Garrij Ka-
sparov, heimsmeistari í skák? Baku-
undrið var hann eitt sinni kallaður;
svo kemur fræg stund er hann sópar
ermskum skyldmennum sínum, bú-
settum í Baku, upp i flugvél sem lend-
ir í Moskvu. Þetta var glæsilegur
flótti, þeir (hveijir?) ættu að gera bíó-
mynd um þennan atburð, sagði hann
og var nú ekki lengur Azeri, heldur
Armeni. Semsagt: deilan um Nag-
omo-Kharabakh tók hús á honum
með ffernur óvenjulegum hætti og
Azerbadsjan glataði sínum frægasta
syni. I Moskvu lét hann til sín taka á
vettvangi hins nýstofhaða lýðræðis-
flokks og hefúr öðlast þar ýmsar vegt-
yllur. Lýðskrumari, sagði Anatolij
Karpov, sviptur dýrðarljóma Bré-
snjef-áranna. í októberbyijun 1990
tefldu þeir erkifjendur í New York sitt
finmta heimsmeistaraeinvígi. Þá
blakti fáni Rússlands fýrir Kasparov.
Þegar einvíginu lauk hlutaði hann
sundur miljón dollara verðlaunabikar-
inn og gaf Armenum.
Eg ætla ekki að fara að sundur-
greina frekar þá tíu keppendur sem
tóku þátt í ofúrmótinu í Reggjo Emil-
ia sem lauk um síðustu helgi. í mínum
augum em þetta allt saman fyrrver-
andi Sovétmenn og einn glaðbeittur
Indveiji. Wisvanathan Anand stendur
uppi sem sigurvegari og menn velta
því fýrir sér hvort skákgyðjan Caissa
sé að leita uppmna síns. Lýsing á stíl
hans: hann teflir hratt, hann teflir vel,
hann teflir allt. Lokaniðurstaðan:
1. Anand 6 v. (af 9). 2.-3. Ka-
sparov og Gelfand 5 1/2 v.
4. Karpov 5 v. 5.-7. Ivantsjúk,
Khalifman og Polugajevskij 4 1/2 v.
8.-9. Salov og Gurevitsj 4 v. 10. Belj-
avskij 1 1/2 v.
Anand lagði Valeri Salov í fýrstu
umferð og síðan Gamj í annað sinn í
röð, nú með svörtu. I fjórðu umferð
tapaði hann fýrir Gurevitsj en svaraði
með því að vinna Polugajevskij i 5.
umferð. Þá komu þijú jaftitefli í röð
en í síðustu umferð lagði Indveijinn
hinn lánlausa Alexander Beljavskij og
tryggði sér sigurinn einn. Kasparov
vann Gurevitsj í 1. umferð, Ivantsjúk í
þeirri fjórðu og Beljavskij í sjöttu um-
ferð. En hann var fastur í jafnteflisgír
í síðustu umferðunum. Karpov vann
Beljavskij og Gurevitsj en tapaði hin-
vegar fyrir IGialifman.
Það er auðugur ítalskur öldungur,
Paoli að nafni, sem stendur fýrir mót-
unum í Reggio Emilia ár hvert og
hann virðist hafa mikið dálæti á skák-
mönnum úr A-Evrópu. Gífúrlegur
fjöldi jafntefla hefúr einkennt mörg
þessara móta. Kannski er það tímafýr-
irkomulagið sem veldur þessu, 50
leikir á 3 klst., en líklegri skýring er
sú að til Reggio hafa vanið komur sín-
ar stórmeistarar á borð við Zoltan Ri-
bli. En þegar mæta til leiks kappar á
borð við Kasparov heyrir lognmollan
sögunni til. Úrslitaskák mótsins:
2. umferð:
Garrij Kasparov -
Wisvanthan Anand
Frönsk vöm
1. e4
(Kasparov hefur í seinni tíð snúið
sér æ meira að skarpasta upphafs-
leiknum.)
1... e6
2. d4 d5
3. Rd2
(Tarrasch-afbrigðið sást í skák
HEIMSBIKARMOT ,
FLUGLEIÐA 1991 !r
Wiswanathan Anand teflir klukkufjöltefli við unga skákmenn á: meðan heims-
bikarmót Flugleiða stóð yfir. Hér á hann í höggi við Helga Áss Grétarsson.
Skákinni lauk með jafntefli.
Kasparovs og Kharitonov á Sovét-
meistaramótinu 1988. í Tilburg í
haust lék hann hinsvegar 3. exd5 gegn
Viktor Kortsnoj ogNigel Short.)
3.. . c5
4. exd5 Dxd5
5. dxc5
(Mun algengara er 5. Rgf3 en
heimsmeistarinn forðast oft mjög
troðnar slóðir.)
5.. . Bxc5
6. Rgf3 Rf6
7. Bd3 0-0
8. De2 Rbd7
9. Re4 b6
10. Rxc5 Dxc5
11. Be3 Dc7
12. Bd4 Bb7
13. O-O-O!?
(Hraustlega leikið. Mun öruggara
var 13. 0-0 en Kasparov var í víga-
hug. Hann átti harma að hefina frá
seinni umferð Interpolis- mótsins í
Tilburg.)
13.. . Rc5
14. Be5 Rxd3+
15. Hxd3 Dc4
16. Rd4 Be4
17. He3 Dxa2!
(Hraustlega leikið. Eftir 17. ..
Dxe2 18. Hxe2 (eða
18. Rxe2) Bd5 19. Bxf6 gxf6 hef-
ur hvítur örlítið betri stöðu og Anand
vill frekar ffeista gæfúnnar í flóknu
miðtafli. Eins og framhaldið leiðir í
ljós reynist þetta hárrétt ákvörðun.)
18. Bxf6 Bg6!
19. Ha3 Dd5
20. h4?
(Afleitur leikur sem grundvallast
á eintómum misskilningi. Hvítur fær
ekki forðað manninum en hann átti að
leika 20. Be5 f6 21. Rf3 fxe5 22. Hdl
og staðan er í jafnvægi eftir 22. ..
De4.)
20... gxf6
21. h5 Dxd4
22. hxg6 hxg6
23. Hah3 f5!
(Þótt ótrúlegt sé virðist sem Ka-
sparov hafi ekki tekið þennan einfalda
leik með í reikninginn. Hann er tveim
peðum undir og á afar erfitt um vik.)
24. Hh4 f4
(24... Df6 kom einnig til greina.)
25. DO Hac8 33. De3 e5
26. Hxf4 Dc5
27. c3 Kg7
28. Hhh4 De5
29. g3 Del+
30. Kc2 Hcd8
31. Hd4 De5
32. Hhf4 Dc7
34. Hxd8 Hxd8
35. He4 Hd5
36. g4 b5
37. g5 Dd6
38. D a5!
(Hvítur hefúr náð að skorða peða-
meirihluta svarts á kóngsvæng en peð
svarts á drottningarvæng búast til þess
að sprengja upp kóngsstöðuna.)
39. De2 De6
40. Dh2 Df5
41. Dg3 Dd7
42. Del b4!
(Óþægilegur leikur, svo ekki sé
meira sagt. Anand hirðir ekki um að
valda e5-peðið. Ef 43. Hxe5 þá 43. ..
Da4+ 44. Kcl (44. b3 Da2+ 45. Kcl
Hd3! og vinnur.) bxc3! 45. bxc3 Df4+
46. Hd3 Hd3 og vinnur.) 43. cxb4
Da4+ 44. b3 (Eða 44. Kcl axb4! 45.
Hxe5 Dal+ 46. Kc2 b3+! 47. Kxb3
Hb5+! og vinnur.)
44.. . Da2+
45. Kc3 a4!
46. bxa4 Da3+
47. Kc2 Dxa4+
48. Kc3
(48. Kb2 stoðar lítt vegna 48. ..
Hdl o.s.ftv.)
48.. . Da3+
49. Kc2 Hd3
- og Kasparov gafst upp.
C
o
<s>
ví2
O
O ^
Ö)v2 ,
-i- co
B r i d g e
Reykjavíkurmótiö hafiö
Reykjavíkurmótið í sveita-
keppni hófst sl. mánudag. 22
sveitir taka þátt í mótinu að
þessu sinni. Er þessar línur eru
skrifaðar, er lokið 4 umferðum.
Staða efstu sveita var þá þessi:
Hjalti Elíasson 84 stig, Lands-
bréf 82 stig, Erla Sigurjónsdóttir
73 stig, Myndbandalagið 71 stig,
S. Ármann Magnússon 68 stig,
Rauða Ljónið 65 stig (og á leik
inni), Gunnlaugur Kristjánsson 63
stig, Sigmundur Stefánsson 63 stig,
Keiluhöllin 60 stig, L.A. Café 56
stig, Roche 56 stig, Tryggingamið-
stöðin 55 stig og Verðbréf íslands-
banka 54 stig (og á leik inni).
Mótinu var fram haldið í gær-
kvöldi. Á morgun (laugardag)
verða 4 umferðir (hefst kl. 10 ár-
degis) og 3 umferðir svo á sunnu-
dag.
11 efstu sveitimar komast á Is-
landsmótið í sveitakeppni, en 4
efstu spila til úrslita um Reykjavík-
urhomið.
Aðalsteinn Jörgensen og Jón
Baldurson em á fomm til Hollands
til þátttöku í hinu geysisterka
Pandata Gemini stómteistaramóti.
16 pör munu taka þátt í mótinu,
sem spilað verður dagana 16.-19.
janúar. 10 spil verða á milli para.
Þeim Aðalsteini og Jóni var boðið
sérstaklega til þessa móls, fyrir
HM.
Að spilamennsku lokinni fara
þeir félagar yftr til London og slást
í hóp með þeim Guðmundi Páli
Amarsyni og Þorláki Jónssyni.
Bæði pörin munu taka þátt í heims-
frægu Sunday Times móti, sem
kennt er við samnefnt dagblað þar
ytra. Það mót verður spilað dagana
22.-24. janúar og munu 16 pör taka
þátt í mótinu.
Þeim Aðalsteini og Jóni og
Guðmundi Þorláki barst sérstakt
boð í þctta mót, eftir sigurinn á
HM.
Og eftir Bridgehátíð, á þriðju-
deginum, fara svo Jón Baldursson
og Aðalsteinn Jörgensen og Guð-
laugur R. Jóhannsson og Öm Am-
þórsson til frönsku borgarinnar
Nice. Þar munu pörin taka þátt í
sterkri sveitakeppni. Boð á þetta
mót barst til BSI, eftir sigurinn á
HM.
Yfirstandandi Reykjavíkurmót
verður hið lengsta (spilaflesta) i
áraraðir. Alls munu 336 spil verða
spiluð. Ansi stíft að hafa 16 spil
milli sveita, sérstaklega með hlið-
sjón af því, að nú fara í hönd dagar
og helgar þar sem framboð á spila-
mennsku verður yfrið nóg. Að
ósekju hefði mátt fækka spilum í
14 eða jafnvel 10 í leik.
Bridgedcild Skagftrðinga hóf
starfsemi sína á nýju ári, með eins
kvölds tvímenningskeppni sl.
þriðjudag. Rúmlega 20 pör mættu
til leiks. Efstu skorir fengu: (NS)
Edda Thorlacius - Isak Om Sig-
urðsson 236 og Leifur Jóhannesson
- Jean Jensen 231. í AV var skor-
að: Ármann J. Lámsson 253 og
Hjálmar S. Pálsson - Stígur Her-
lufsen 236.
Næstu þriðjudaga verður áfram
eins kvölds tvímenningskeppni.
Anton Haraldsson og Pétur
Guðjónsson urðu yfirburðarsigur-
vegarar í jólamóti Bridgefélags
Akureyrar. Þeir hlutu 893 stig
(skoruðu 75% í síðari umferðinni).
1 næstu sætum urðu: Stefán Ragn-
arson - Ólafur Ágústsson 748 og
Gissur Jónasson - Ragnhildur
Gunnarsdóttir 715. Yfir 30 pör
tóku þátt í mótinu.
Hjónaklúbburinn hefur starf-
semi sína á nýju ári næsta þriðju-
dag. Bridgefélag byrjenda spilar á
móti félaginu (annan hvem þriðju-
dag). Spilað er í Sigtúni 9 og hefst
blaðamennska hjá báðum félögun-
um kl. 19:30.
Bridgeskólinn í Reykjavík er
að fara af stað með ný kennslu-
námskcið. Innritun og nánari upp-
lýsingar gefur Guðmundur Páll
Amarson í s. 91-27316 milli kl. 15
og 18 virka daga.
Árlegt jólamót Bridgefélags
Hafnarfjarðar og Sparisjóðs Hafn-
aríjarðar var spilað laugardaginn
28. des. Metþátttaka var á mótinu,
eða 88 pör. Er það mesta þátttaka í
Opnu móti á Islandi til þessa (utan
móta á vegum BSI).
Úrslit urðu þessi:
N/S-riðill:
Aðalsteinn Jörgensen - Bjöm
Eysteinsson 930
Friðjón Þórhallsson - Jón Þor-
varðarson 917
Jaqui McGreal - Þorlákur
Jónsson 886
A/V riðill:
Anton R. Gunnarsson - Ragnar
Magnússon 960
Jón Baldursson - Matthías Þor-
valdsson 896
Baldvin Valdimarsson - Hjál-
týr Baldursson 895
Vert er að vekja athygli á því,
að þetta er í fjórða skiptið í röð
sem Anton R. Gunnarsson sigrar í
þessu móti. Anton er búsettur í
Noregi þessa dagana.
Næsta spil. Andstæðingur okk-
ar hafði spilað 4 spaða og fengið
10 slagi. Enginn sá neitt athugavert
við það. Blindur sá þó ástæðu til að
hrósa félaga sínunt fyrir góða
spilamennsku. Lítum á, fyrir hvað
hrósið kom:
Norður
♦: ÁD6
♦: 9432
♦ : 953
*: D107
Vestur
♦: 82
♦: ÁKD6
♦ : Á1076
*: 932
Sagnir höfðu gengið:
Suður Vestur Norður Austur
1 spaði Dobl 1 grand pass
2 lauf pass 3 spaðar pass
4 spaðar pass pass pass
Og þú spilar út hjartaás. Lítið
úr blindum, félagi íætur sjöuna
(sýnir okkur 2 eða 4 hjörtu) og
fimman kemur frá sagnhafa. Hvað
nú?
Sagnhafi á líklega skiptinguna
5- 1-3-4. Er þá ekki réttast að spila
hlutlausa vöm í framhaldinu og
vona að sagnhafi geft 3 slagi á tíg-
ul? Sennilega rétt ályktað, en
hveiju spilar þú í 2. slag? Hjarta-
kóng, smáu laufi eða trompi? í
þessu tilviki spilaði okkar maður
hjartakóng (hlutlaust, að honum
fannst). Og sagnhafi var ekki ýkja
lengi að fá 10 slagi. Hann átti:
Suður
♦: KG1074
▼: 5
♦: K82
*: ÁKG4
Sagnhafi spilaði einfaldlega
„öfugan blindan“ (sem á bridge-
máli þýðir að trompa á lengdina í
tromplitnum). Trompaði annað
hjartað, og nú var samgangur við
blindan til að trompa hin tvö hjört-
un. 10 slagir. En ef Vestur spilar
spaða í 2. slag, skapast samgangs-
vandi milli handa N/S og sagnhafi
fer óhjákvæmilega einn niður.
Þriðja trompið hjá Austur verður
stórveldi. Ath.
Þau eru mörg spilin á þessa
vegu í íþróttinni.
C
NYTT HELGARBLAÐ
1 3 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992