Þjóðviljinn - 10.01.1992, Qupperneq 14
Krumminn á skjánum
Fjölskylduhelgi
framundan í eldhúsinu
Dagskrá sjónvarpsstöðvanna um
helgina verður með hefðbundnu
sniði, sumt er þess virði að horfa
á, en annað er svo lélegt að tím-
anum með fjölskyldunni er betur
varið í að setja saman púsluspil
við eldhúsborðið en að láta sér
leiðast við skjáinn.
Hjá Sjónvarpinu á föstudags-
kvöldið verður að venju boðið upp
á Derrick hinn þýska, miðaldra
lögreglumann, sem verið hefur svo
vel liðinn af íslenskum sjónvarps-
áhorfendum. Bíómynd Sjónvarps-
ins á föstudagskvöldið hefst kl.
22.40 og heitir hún Leiðin til
frelsis. Með aðalhlutverkin fara
Omar Sharif og Jane Seymour, en
þau tvö ásamt því að Bretamir
hjálpa Kananum við framleiðsluna
gerir myndina áhugaverða.
Stöð 2 verður með þrjár bíó-
myndir fyrir áskrifendur sína á
föstudagskvöldið. Fyrsta myndin,
Þetta með gærkvöldið..., íjallar
um erfiðleika fólks við að fóta sig í
nútímaþjóðfélagi. Tveir vinir og
tvær vinkonur lenda í vandamáli er
tvö af þeim fella hugi saman. Þau
sem eftir standa eru ekki of sátt við
ráðahaginn, og þau sem eru ást-
fangin eru sjálf ekki of viss í sinni
sök. Önnur mynd kvöldsins er
frambærileg gamanmynd með
Eddie Murphy og Richard Pryor í
aðalhlutverki. Myndin, Nætur í
Harlem, nær til vinsæls viðfangs-
efnis í sögu kvikmyndanna eða
bannárin sem Bandaríkjamenn
bölvuðu hvað mest á sínum tíma.
Síðasta mynd kvöldsins er Af-
skræming. Kannski ekki í orðsins
fyllstu merkingu, en samkvæmt
kynningarriti Stöðvar 2 er þama
um að ræða bandaríska mynd sem
vekur jafnvel fleiri spumingar en
hún getur leyst. Meira þarf ekki að
segja um þá mynd, en þeir sem
hafa áhuga em beðnir vel að njóta.
Laugardagskvöldið hjá Sjón-
varpinu verður með betra móti, þó
ekki sé nema fyrir þá sök að ‘92 á
Stöðinni hefur göngu sína stjóm-
málamönnum og fleimm til hrell-
ingar. Bíómyndir Sjónvarpsins
verða tvær. Sú fyrri er heppileg
fyrir miðaldra húsmæður, en í
henni er það hin rómantíska Bar-
bara Cartland sem leggur til sögu-
þráðinn. Myndin fjallar í stuttu
máli um ástir, afbrýði, svikráð,
drengskap, illmennsku, fagrar kon-
ur og hrausta menn.
Seinni myndin Metsölubókin
er ein margra góðra sem leikstjór-
inn John Flynn hefur unnið. Fjallar
hún um óvenjulegt samband
tveggja fjandmanna, línudans á
bláþræði milli lífs og dauða, innri
baráttu milli haturs og vináttu,
trausts og tortryggni. Mynd sem
hægt er að mæla með.
Stöð 2 hefst eins og á öðmm
laugardögum kl. 09.00 um morg-
unin með uppáhaldsbamapíu for-
eldranna, bamaefninu. Um það
leyti sem fullorðna fólkið skriður
fram úr kl. 12.50 verður biómynd-
in Foreldrahlutverk á dagskrá.
Steve Martin leikur aðalhlutverkið
og á hann í hinu mesta basli í til-
raunum sínum til að verða hið full-
komna foreldri.
Síðan víkur sögunni aftur að
bömunum með skemmtilegum
dagskrárlið, þijú bíó. Stöð 2 er
með vinsælar og sígild ævintýri
fyrir bömin á sama tíma og enska
knattspyman er hjá Ríkissjónvarp-
inu. Sjálfsagt hefúr þetta skapað
deilur inni á heimilum, en þeir sem
eiga myndbandstæki verða að nota
það ef lausn á að finnast.
Fyrsta bíómynd kvöldsins er
Óvænt örlög um mann sem hverf-
ur í dularfullri sprengingu. Eftir
standa tvær konur sem áttu í ástar-
sambandi við hann, en þær vissu
hvomg af hinni. Önnur myndin
heitir Einhver sem vakir yfir
mér..., og fjallar hún um lögreglu-
þjón sem fær það verkefni að gæta
ríkrar konu sem er vitni í mikil-
vægu morðmáli. Það er eins og það
er, en milli þeirra kvikna ástir og
rómantíkin nær yflrhendinni yfir
spcnnunni i myndinni. Síðast á
dagskránni á laugardagskvöldið er
myndin Öryggissveitin, bandarísk
spennumynd með gamansömu
ívafi. Laganna vörður er hafður
fyrir rangri sök og er rekinn úr
löggunni. Hann fær vinnu sem ör-
yggisvörður þar sem ýmislegt er
óreint í mjölinu.
-sþ
'92
á Stö&inni
Stjórnmálamennirnir mega nú
fara að vara sig þar sem ‘92 á
Stöðinni er aftur komin á lagg-
irnar. Sjónvarpsstöðin sem lítur
á engan hlut sem heilagan kry-
fur til mergjar viðkvæma þætti
þjóðlífsins. Þeir eru aftur komn-
ir á kreik, strákarnir á Stöðinni.
Þetta er fjórða árið sem þeir
kumpánar leggja til atlögu við
skammdegisþunglyndi, deyfð
og drunga mörlandans. Með
sinni alkunnu snilld skýra þeir
atburði líðandi stundar eftir sínu
höfði. Snúa þeim á haus, snúa
þeim á rönguna, snúa þeim í
hringi, eða bara snúa útúr
þeim.
Eins og áður eru það, Sigurð-
ur Siguijónsson, Öm Amason,
Randver Þorláksson og Pálmi
Gestsson sem sjá til þess að við
skiljum fréttimar réttum skiln-
ingi undir verkstjóm fréttastjór-
ans Karls Agústs Ulfssonar.
Þessi fyrsti þáttur vetrarins,
telst vera sextugasti fréttaskýr-
ingaþáttur Spaugstofumanna, en
sú breyting hefúr nú orðið á að
Tage Ammendrup, sem stýrt hef-
ur upptökunum lengst af, lætur
nú af störfúm við Stöðina, en
Kristín Ema Amardóttir tekur
við starfl hans. Um efni þáttarins
er lítið hægt að fjölyrða, en lík-
legt er að ýmsum ráðherrum
þjóðarinnar verði gert hátt undir
höfði. Við bíðum spennt eftir
réttri hlið á málunum.
S j ó n v a r p
Föstudagur
18.00 Paddington Lokaþáttur.
18.30 Beykigróf Nýr, breskur
myndatlokkur þar sem segir frá
uppátækjum unglinga í félags-
miðstöð i Newcastle á Englandi.
Þýðandi Ólöf Pétursdóttir.
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Tíðarandinn Þáttur um vand-
aða dægurtónlist. Umsjón Skúli
Helgason.
19.25 Gamla gengið Breskur
myndaflokkur um njósnara í
bresku leyniþjónustunni. Aðal-
hlutverk: Tom Conti og Tom
Standing.
20.00 Fréttir og veður
20.35 Kastljós
21.10 Derrick Þýskur sakamála-
þáttur. Aðalhlutverk: Horst Tapp-
ert.
22.15 Nýja línan Þýskur þáttur um
vortískuna. Þýðandi Kristrún
Þórðardóttir.
22.40 Leiðin til frelsis Bresk/banda-
risk sakamálmynd um spillingu
og brask í undirheimum Hong
Kong. Leikstjóri Steve Feke. Að-
alhlutverk: Jane Seymour, Den-
holm Elliot, Omar Sharif og Dav-
id Warner. Þýðandi: Gunnar
Þorsteinsson.
00.15 Útvarpsfréttir í dagskráriok
Laugardagur
13.50 Meistaragolf Svipmyndir frá
móti atvinnumanna í Bandarikj-
unum I haust. Umsjón: Logi
Bergmann Eiðsson og Páll Ket-
ilsson.
14.45 Enska knattspyrnan. Bein út-
sending frá leik Chelsea og Tot-
tenham Hotspur á Stamford
Bridge í London. Einnig verður
fylgst með öðrum leikjum og
staðan í þeim birt jafnóðum og
dregur til tíðinda. Umsjón: Arnar
Björnsson.
17.00 (þróttaþátturinn Fjallað verð-
ur um íþróttamenn og íþróttavið-
burði hér heima og eriendis.
Boltahornið verður á sínum stað
og klukkan 17.50 verða úrslit
dagsins birt. Umsjón: Samúel
Örn Erlingsson.
18.00 Múmínálfamir Teiknimynda-
flokkur um álfana í Múmíndal
þar sem allt mögulegt og
ómögulegt getur gerst. Þýðandi:
Kristin Mántylá. Leikraddir: Krist-
ján Franklín Magnús og Sigrún
Edda Björnsdóttir.
18.30 Kasper og vinir hans Banda-
rískur myndaflokkur um vofukríl-
ið Kasper. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson leikraddir: Leikhópur-
inn Fantasía.
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Poppkorn Glódís Gunnars-
dóttir kynnir tónlistarmyndbönd
af ýmsu tagi. Dagskrárgerð Þið-
rik Ch. Emilsson.
19.30 Úr ríki náttúrunnar. Sæotur-
inn Bresk fræðslumynd. Þýðandi
og þulur: Gylfi Pálsson.
20.00 Fréttir og veður
20.35 Lottó
20.40 '92 á Stöðinni Spaugstofan
er aftur komin á kreik, en hana
skipa: Kari Ágúst Úlfsson, Pálmi
Gestsson, Randver Þorláksson,
Siguröur Sigurjónsson og Örn
Árnason. Upptökum stýrir Kristín
Erna Arnardóttir.
21.05 Fyrirmyndarfaðir Bandarískur
gamanmyndaflokkur. Þýðandi
Guöni Kolbeinsson.
21.30 Hetjan og heföarkonan Bresk
sjónvarpsmynd, byggð á sögu
eftir Barböru Cartland. Sagan
gerist um miðja 17. öld og segir
frá ástum og öriögum ungrar
konu og stigamanns í ríki Karls II
konungs. Leikstjóri: John Hough.
Aðalhlutverk: Emma Samms,
Oliver Reed, Claire Bloom, Mi-
chael York og sir John Mills.
Þýðandi Kristrún Þórðardóttir.
23.00 Metsölubókin Bandarísk bíó-
mynd frá 1987. Lögreglumaður
tekur fram pennann og skrifar
endurminningar sinar við lítinn
fögnuð sumra. Leikstjóri: John
Flynn. Aðalhlutverk: James
Woods, Brian Dennehy og Alli-
son Balson. Þýðandi Örnólfur
Árnason.
00.35 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
Sunnudagur
13.40 Nýárstónleikar i Vínarborg
Fílharmóníusveitin í Vinarborg
leikur verk eftir Jóhann og Jósef
Strauss og Otto Nicolai undir
stjórn Carlosar Kleibers, og ball-
ettdansarar frá Rikisóperunni í
Vinarborg dansa undir stjórn
Geriinde Diel. Kynnir Bergþóra
Jónsdóttir. (Evróvision - Austur-
ríska sjónvarpið)
15.40 Heimsmeistaramót kvenna i
knattspyrnu Svipmyndir frá mót-
inu sem fram fór í Kína skömmu
fyrir áramót. Umsjón Samúel
Órn Eriingsson.
16.30 Ef að er gáð (2) Asmi Þátta-
röð um börn og sjúkdóma. Um-
sjón: Guölaug María Bjarnadóttir
og Erla B. Skúladóttir. Dagskrár-
gerð: Hákon Már Oddsson.
16.50 Lifsbarátta dýranna (6)
Byggð og ból Breskur heimilda-
myndaflokkur í tólf þáttum þar
sem David Attenborough athug-
ar þær furðulegu leiðir sem lif-
verur hvarvetna á jörðinni fara til
að sigra I lífsbaráttu sinni. Þýð-
andi og þulur Óskar Ingimars-
son.
17.40 f uppnámi Skákkennsla i tólf
þáttum. Höfundar og leiðbeirv-
dendur eru stórmeistararnir
Helgi Ólafsson og Jón L. Árna-
son og í þessum þætti verður
m.a. fjallaö um ítalska leikinn,
franska vörn og Aljekinvörn.
Stjórn upptöku: Bjarni Þór Sig-
urðsson.
17.50 Sunnudagshugvekja Helena
Jóhannsdóttir dansmær flytur.
18.00 Stundin okkar Fjölbreytt efni
fyrir yngstu börnin. Umsjón
Helga Steffensen. Dagskrár-
gerð: Kristin Pálsdóttir.
18.30 Sögur Elsu Beskow Afmæli
brúnu frænkunnar - seinni hluti.
Þýðandi: Jóhanna Jóhannsdótt-
ir. Lesari Inga Hildur Haralds-
dóttir.
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Vistaskipti Bandarlskur fram-
haldsmyndaflokkur. Þýðandi
Guðni Kolbeinsson.
19.30 Fákar Þýskur myndaflokkur
um fjölskyldu sem rekur búgarð
með íslensk hross í Þýskalandi.
Þýðandi Kristrún Þórðardóttir.
20.00 Fréttir og veöur
20.35 Konur í íslenskri Ijóölist Fyrsti
þáttur af þremur þar sem fjallaö
verður um hlut kvenna I ís-
lenkskri Ijóðlist. Umsjón Soffía
Auður Birgisdóttir. Dagskárgerð
Jón Egill Bergþórsson.
21.10 Leiöin til Avonlea Annar þátt-
ur. Kanadískur myndaflokkur,
byggður á sögu eftir Lucy Maud
Montgomery.. sem skrifaöi sög-
urnar um Önnu í Grænuhlíð.
Þættirnir hafa unniö til fjölda
verðlauna en I þeim er sagt frá
ævintýrum ungrar stúlku. Aðal-
hlutverk: Sarah Polley. Þýðandi
Ýrr Bertelsdóttir.
21.55 Lagiö mitt Nýr þáttur hefur
göngu sina i tilefni af Ári söngs-
ins þar sem ýmsir valinkunnir
menn og konur velja sin eftiriæt-
islög. Umsjón Þórunn Bjöms-
dóttir. Upptökum stýrir Tage Am-
mendrup.
22.05 I fjölleikahúsi Dagskrá frá
styrktarsamkomu fyrir gamla
lista- og blaðamenn, sem haldin
var i Circus Krone í Munchen.
Kynnir er Horst Tappert sem
sjónvarpsáhorfendur þekkja bet-
ur í hlutverki lögreglumannsins
Derricks. Þýðandi Veturliði
Guðnason. (Evróvision - ARD)
23.50 Útvarpsfréttir i dagskráriok.
Mánudagur
18.00 Töfraglugginn .
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Á mörkunum.
19.30 Roseanne.
20.00 Fréttir og veður
20.35 Fólkið í forsælu .
21.00 Iþróttahorniö Fjallað um
íþróttaviðburði helgarinnar og
sýndar svipmyndir frá knatt-
spyrnuleikjum í Evrópu. Umsjón
Samúel Örn Eriingsson.
21.30 Litróf Litið verður inn á sýn-
ingu Auðar Svanhvitar Sigurðar-
dóttur hattagerðarkonu. Skálda-
hópurinn Suttungar flytur Ijóð.
Sýnt verður brot úr sýningu leik-
hóps eldri borgara á FugTi í búri
eftir Iðunni og Kristínu Steins-
dætur og rabbað við Sigrfði Ey-
þórsdóttur leikstjóra, og í Mál-
horninu verður að þessu sinni
Helgi Sæmundsson skáld og rit-
stjóri. Umsjón Arthúr Björgvin
Bollason. Dagskrárgerð: Kristín
Björg Þorsteinsdóttir.
22.00 Marie Curie Annar þáttur af
þremur um ævi og störf franska
eðlisfræðingsins Marie Curie
sem fyrst kvenna vann til nób-
elsverðlauna. Aöalhlutverk:
Marie-Christine Barrault.
23.00 Ellefufréttir
23.10 Marie Curie - framhald.
23.40 Dagskráriok
Fostudagur
16.45 Nágrannar
17.30 Gosi
17.50 Ævintýri Villa og Tedda .
18.15 Blátt áfram.
18.40 Bylmingur.
19.19 19.19
20.10 Kænar konur Bráðskemmti-
legur gamanmyndaflokkur um
fjórar konur sem reka saman fyr-
irtæki og gengur oft á ýmsu.
20.35 Feröast um tímann Sam
Beckett, frumkvööull tímaflakks
þeytist hingað og þangaö um
tímann með það að leiöarljósi að
leiðrétta það sem farið hefur úr-
skeiðis.
21.25 Þetta með gærkvöldið...
Bráðskemmtileg mynd um ástar-
samband tveggja ungmenna og
áhrifin sem það hefur á vinina,
lifið og tilveruna almennt. Sjá
nánar bls. 36-37. Aðalhlutverk:
Rob Lowe, James Belushi, Demi
Moore og Elisabeth Perkins.
Leikstjóri: Edward Zwick.
23.15 Nætur í Harlem Spennandi
og gamansöm mynd um glæpa-
flokka í Hartem-hverfinu í New
York á fjórða áratugnum. Þeir fé-
lagarnir Eddie Murphy og Rich-
ard Pryor fara á kostum, en auk
þeirra kemur fjöldi frægra leikara
fram í myndinni. Sjá nánar bls.
36-37. Aöalhlutverk: Eddie
Murphy, Richard Pryor, Danny
Alello og Jasmine Guy. Leikstjóri
Eddy Murphy. (1989)
01.10 Afskræming Þegar Amy
missir eiginmann sinn er hún
umvafin ást, umhyggju og sam-
úð ættingja og vina. En eru þaö
hagsmunir hennar eða þeirra
eigin sem þeir eru að gæta? Við
lát eiginmannsins varð Amy for-
rik og það líður ekki á löngu þar
til það fara að renna á hana tvær
grímur. Hvað ætlast þetta fólk
eiginlega fyrir? Hvert er leyndar-
mál hennar sjálfrar? Aðalhlut-
verk: Piper Laurie, Steve Rails-
back, Olivia Hussey, June
Chadwick og Terence Knox.
Stranglega bönnuð börnum.
02.50 Dagskrárlok Við tekur nætur-
dagskrá Bylgjunnar.
Laugardagur
09.00 Með afa.
10.30 Á skotskónum Teiknimynd
um stráka sem finnst ekkert
skemmtilegra en að spila fót-
bolta.
10.50 Af hverju er himinninn blár?
Fræðandi teiknimynd.
11.00 Dýrasögur Vandaður þáttur
fyrir börn.
11.15 Lási lögga Teiknimynd.
12.00 Landkönnun National Geo-
graphic Við fetum ótroðnar slóðir
og kynnumst framandi löndum
og menningu I fylgd sérfræðinga
frá National Geographic félag-
inu.
12.50 Foreldrahlutverk Frábær
gamanmynd með fjölda þekktra
leikara. Aðalhlutverk: Steve
Martin, Mary Steenburgen, Di-
anne West, Jason Robarts, Rick
Moranis, Tom Hulce og Keanu
Reeves. Leikstjóri: Ron Howard.
(1989)
15.00 Þrjúbíó Galdaranomin góða
Skemmtileg og spennandi fjöl-
skyldumynd frá Disney. Áhuga-
norn, sem leikin er af Angelu
Lansbury, hjálpar bresku stjóm-
inni I síöari heimstyrjöldinni. Að-
alhlutverk: Angela Lansbury,
David Tomlinson, Roddy McDo-
wall og Sam Jaffe. Leikstjóri Ro-
bert Stevenson. (1971)
17.00 Falcon Crest
18.00 Popp og kók Hressileg og
splunkuný tónlistarmyndbönd í
þætti sem sendur er samtlmis út
á Stjörnunni.
18.30 Gillette sportpakkinn Fjöl-
breyttur íþróttaþáttur utan úr
heimi.
20.00 Fyndnar fjölskyldusögur
Meinfyndnar glefsur úr llfi venju-
legs fólks.
20.25 Maður fólksins Nýr gaman-
myndaflokkur um mann sem
flækist óvænt inn I bæjarpólitík-
ina. Aðalhlutverk: James Gam-
er.
20.55 30 ára afmæli Amnesty Inter-
national Skemmtiþáttur þar sem
margar helstu stjömur heimsins
leggja góöu málefni liö i tali og
tónum.
22.30 Óvænt öriög Maður nokkur
hverfur I dularfullri sprengingu.
Eftir standa tvær konur sem áttu
i ástarsambandi við hann. Hvor-
ug vissi af hinni og fer heldur
betur að hitna í kolunum. Þetta
er bráðskemmtileg gamanmynd
með úrvals leikurum. Aðalhlut-
verk: Bette Midler, Shelley Long.
(1987) Bönnuð börnum.
00.05 Einhver sem vakir yfir mér...
Hörkuspennandi og rómantísk
mynd um lögregluþjón sem fær
það verkefni að gæta rikrar konu
sem er vitni í mikilvægu morð-
máli. Aöalhlutverk: Tom Beren-
ger, Mimi Rogers. (1987)
Myndin er stranglega bönnuð
börnum.
01.50 Öryggissveitin Bandarísk
spennumynd með gamansömu
ívafi. Laganna vörður er hafður
fyrir rangri sök og rekinn úr lögg-
unni. Aðalhlutverk: John Candy,
Robert Loggia og Meg Ryan.
(1986) Stranglega bönnuð böm-
um.
03.15 Dagskrártok Við tekur nætur-
dagskrá Bylgjunnar.
Sunnudagur
09.00 Úr ævintýrabókinni I þetta
skiptið sjáum viö sígilda ævintýr-
ið Friður og Ókindin. Þetta er
hugljúf saga um það að útlitið
skiptir ekki máli ef hjartað er á
réttum stað.
09.20 Litla hafmeyjan Skemmtileg
teiknimynd byggð á samnefndu
ævintýri H. C. Andersen.
09.45 Pétur Pan Skemmtileg teikni-
mynd.
10.10 Ævintýraheimur NINTENDO
Ketill og hundurinn hans, Depill,
lenda I nýjum ævintýrum.
10.35 Soffía og Virginía Systurnar
Soffía og Virginia eru sendar á
munaðarleysingjahæli eftir að
foreldrar þeirra hverfa á dular-
fullan hátt. Þær systumar taka
þessu ekki þegjandi og hljóða-
laust og hefja leit að foreldrum
sinum.
11.00 Blaðasnáparnir.
11.30 Naggarnir.
12.00 Atvinnumenn I þessum þætti
kynnumst við Guðna Bergssyni.
12.30 Italski boltinn Mörk vikunnar.
13.25 Italski boltinn.
15.20 NBA-körfuboltinn.
16.25 Stuttmynd Ung stúlka kynnist
föður sínum að nýju eftir að
hann strýkur úrfangelsi.
17.00 Listamannaskálinn.
18.00 60 minútur.
18.50 Skjaldbökumar.
20.00 Klassaplur.
21.15 Ástir, lýgar og morð
22.45 Arsenio Haíf Frábær spjall-
þáttur þar sem gamanleikarinn
Arsenio Hall fer á kostum sem
spjallþáttarstjórnandi. Arsenio
fær til sln góða gesti og spyr þá
spiörunum úr.
23.40 39 þrep Ein besta spennu-
mynd al'-a tíma. Maður nokkur
flækist óvart i njósnamál og fyrr
en varir er hann sakaöur um
morð og hundeltur um hálendi
Skotlanas. (1935)
01.35 Dagskráriok.
Mánudagur
16.45 Nágrannar
17.30 Litli folinn og félagar.
17.40 Maja býfluga
18.00 Hetjur himingeimsins
18.30 Kjallarinn
20.10 Italski boltinn.
20.30 Systurnar.
21.20 Ástir, lygar og morð,
23.00 Booker.
23.50 Segðu já Hér er á ferðinni
gamanmynd um rlkan eftiriætis-
krakka sem eru sett þau skilyrði
að sé hann ekki harðgiftur innan
. sólarhrings verði hann gerður
arflaus. Gagnrýnendur lofuðu Art
Hindle, en hann leikur eitt aðal-
hlutverkanna I spennuþáttunum
E.N.G., sem sýndir eru á Stöð 2,
og gamla brýnið Jonathan Wint-
ers. Aðalhlutverk: Art Hindle,
Jonathan Winters, Lissa Llayng
og David Lelisure.
00.20 Dagskráriok.
NÝTT HELGARBLAÐ
1 4 FÖSTUDAGUR I0. JANÚAR 1992