Þjóðviljinn - 21.01.1992, Page 1
—?----------------------
Ovissa í strandsiglingum
Það voru tækniframfarir og umbylting í samgöngumálum sem ollu
þvi að ríkið hlaut að hætta að leggja fram fé til vöruflutninga og
þjónustu með ströndinni, eins og það á sínum tíma lagði niður far-
þegaflutninga, sagði Halldór Blöndal samgönguráðherra í sérstök-
um umræðum um Rikisskip á Alþingi í gær.
I skýrslu hans kemur fram að eng-
in trygging er fyrir því að sama þjón-
ustustigi og áður verði haldið uppi við
afskekktari byggðir, þótt Samskip yf-
irtaki reksturinn a hluta, og ljóst er að
strandflutningar á milli Norður- og
Austurlands munu leggjast af með
niðurlagningu fyrirtækisins. Þá er ljóst
að atvinnuleysi og óvissa bíður nú
flestra starfsmanna Ríkisskipa.
I umræðunum var ráðherra gagn-
rýndur fyrir að taka slíkar steífiumark-
andi ákvarðanir með Ieynd og án sér-
stakrar umfjöllunar á Alþingi.
I skýrslu sinni sagðist ráðherra
hafa notið ráðgjafar Endurskoðunar
Akureyrar hf. sem er endurskpðunar-
fyrirtæki tengt Eimskipafélagi Islands.
Hafði endurskoðunarfyrirtækið sett
ffam 3 valkosti: breytt rekstrarform
þar sem þjónusta væri einskorðuð við
afskipta staði, sölu á fyrirtækinu til að-
ila er vildi annast reksturinn, eða að
leggja niður fyrirtækið í áfongum.
I máli Kristins H. Gunnarssonar,
stjómarmanns Ríkisskipa, kom ffam
að skýrsla Endurskoðunarfyrirtækisins
hefði kostað um 200.000 kr. blaðsíðan
eða 2,5 miljónir.
Guðrún Helgadóttir sagði í um-
ræðunni að hér væri um fullkominn
hráskinnaleik að ræða. Sagði hún að
ráðherra hefði hunsað starfsmenn Rík-
isskipa, landsbyggðarfólkið sem notið
hefði þjónustu fyrirtækisins og sjálft
Alþingi með meðferð sinni á málinu
og að þess yrði væntanlega skammt að
bíða að nafnið á kaupanda Esjunnar,
Samskip, myndi breytast og Ei- koma
í staðinn fyrir Sa-.
Eyjólfirr Konráð Jónsson, fúlltrúi
undirbúningsnefndar að stofnun al-
menningshlutafélags um Ríkisskip,
sagði að hætta væri á einokun í innan-
lands- og millilandasiglingum hér á
landi. Hann sagði að samningar við
Samskip hefðu verið gerðir án vitund-
ar undirbúningsnefndar um almenn-
ingshlutafélag en sagðist óska þess að
Samskip yrðu í ffamtíðinni öflugt al-
menningshlutafélag er tiyggt gæti
eðlilega samkeppni i siglingum hér á
landi.
Steingrimur J. Sigfússon sagði
það óhæfú að tekin skyldi ákvörðun
um endalok þessarar þjónustu við
landsbyggðina án sérstakrar faglegrar
umfjöllunar á Alþingi.
-ólg.
9-10 vindstig mældust á suðvestanverðu landinu í gærdag og fór vindhraðinn í einstökum hviðum upp í 64 hnúta. Reykvíkingar, ungir sem
aldnir, áttu fullt í fangi með að berjast gegn rokinu. Miljónatjón varð I Hafnarfiröi þegar byggingarkrani féll um koll. Lögreglan í Reykjavík þurfti
að aka skólabörnum í Grafarvogi heim að dyrum. Mynd: Kristinn.
7
ASI gagnrýnir
verðhækkanir Kópavogsbæjar
Við spörum bæjarbúum útsvar uppá á annað hundrað milj-
ónir, ef miðað er við þær hækkanir sem verða annars stað-
ar. Hækkun vatnsskattsins er bara örfáar krónur miðað við
hvað við hefðum getað aukið álögurnar á bæjarbúa, sagði
Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi, aðspurður um áskorun
Ásmundar Stefánssonar, forseta Alþýðusambandsins, um að bærinn
I bréft til bæjarstjórans í Kópa-
vogi segir Ásmundur Stefánsson að
samkvæmt upplýsingum ffá skrif-
Afgreiðsla
Þjóðviljans
Sú breyting hefúr verið gerð á
opnunartima afgreiðslu blaðsins,
að ffamvegis verður hún opin frá
klukkan 8 til klukkan 16, mánu-
daga til föstudaga. Lokað á laugar-
dögum. Blaðberar og aðrir sem
eiga daglega erindi við afgreiðsl-
una eru beðnir að taka mið af
þessu.
stofú Kópavogsbæjar hafi álagriing-
arhlutfall fasteignaskatts lækkað úr
0,50% í 0,485%. Samtímis haft
álagningarhlutfail vatnsskatts hækk-
að úr 0,13% í 0,20%. Þar eð um
sama gjaldstofn sé að ræða sé ein-
faldast að líta á álagninguna í heild
og hafi því sameiginleg álagning
þessara hða hækkað úr 0,63% í
0,685% sem sé 8,7% hækkun þess-
ara gjalda umffam verðjagshækkun.
Ennífemur bepdir Ásmundur á í
bréft sínu að >rÁ síðasta ári var
Kópavogskaupstaður eitt af þeim
sveitarfélögum sem hækkuðu fast-
eignagjöld langt umfram verðlags-
hækkanir. Það er því þeim mun al-
varlegra að Kópavogskaupstaður
skuli nú, að því er virðist eitt sveit-
arfélaga, hækka gjöldin langt um-
ffam, almennar verðlagshækkanir."
Ásmundur segir að stöðugleiki
haldist því aðeins að allir leggist á
eitt, en ekki ef sumir nýti sér það
svigrúm sem aðrir gefa til að auka
sinn hlut. „Það skiptir því miklu að
Kópavogskaupstaður hlaupist ekki
undan merkjum á þann hátt sem hér
hefúr gerst,“ segir Ásmundur í bréft
sínu og skorar um leið á bæiarstjóra
Kópavogs að taka þessa ákvörðun
til endurskoðunar.
Sigurður Geirdal sagðist að-
spurður ekki gefa mikið fynr þetta
bréf ffá Ásmundi. Hann teldi það í
raun forkastanlegt að stór felags-
samtök eins og Alþýðusambandið
skiptu sér af innri málum kaupstað-
arins eins og hér væri um að ræða.
- Nágrannasveitarfélög okkar
hafa verið að hækka útsvarsprósent-
una hjá sér en um það er ekkert sagt.
Við tókum þá ákvörðun að gera það
ekki heldur höldum henni í 6,7%
eins og hefur verið. Ef við hefðum
hækkað útsvarið eins og við máttum
era hefði það verið aukin skatt-
eimta uppá á annað hundrað milj-
ónir. Þess í stað ákváðum við að
Iækka fasteignaskattinn og hækka
vatnsskattinn til samræmis við
Hafnarfjörð t.d. Sameiginlega munu
því þessir liðir hækka um 6-7 milj-
ónir. Það sjá allir að það munar tölu-
verðu á þeirri tölu og á annað
hundrað miljónum sem við heföum
getað hækkað skatta hjá bæjarbúum,
sagði Sigurður.
Aðspurður hvort bærinn tæki
þessa ákvörðun til endurskoðunar
eins og forseti ASI fór ffam á í bréfi
sínu, sagðist Siguróur ekki skilja
þennan áhuga ASI á málefnum
Kópavogs.
Það mælti enginn því mót þegar
Hafnarfjörður hækkaði útsvarspró-
sentu bæjarins úr 6,7% í 7,5%, sagði
Sigurður. -sþ
Leikskóli
á hrak-
hólum