Þjóðviljinn - 21.01.1992, Page 7
Eruenbar
A Umsión: Daerur Þorleifsson
Enn eitt stríð út af Makedóníu?
Júgóslavía er áfram órólega hornið á Evrópu og hættan eykst
heldur á því að Balkanskagi veröi það í heild sinni, eins og hann
var að margra mati fyrrmeir. í Balkanstríðunum 1912-13 börð-
ust Serbar, Búlgarar, Grikkir og Tyrkir um Makedóníu, land þetta
varð þrætuepli í heimsstyrjöldunum báðum og nú eru áminnstar
fjórar þjóðir farnar að takast á um hana enn á ný. I þeirri tog-
streitu eru nú Albapir þar að auki með og eins og vænta mátti
Makedónar sjálflr. Á deilu þeirri, sem er í vexti út af Makedóníu,
eru margar hliðar.
Basíll og Kolskeggur
íbúar Makedóníu í fomöld,
þegar þeir feðgar Filippos og Al-
exander mikli gerðu þar garðinn
frægan, voru náskyldir Grikkjum,
en á sjöttu öld flæddu Slavar suð-
ur þangað með þeim afleiðingum
að landið varð slavneskt að máli
og hefur mikið til setið við það
síðan. Af öðmm málum er slav-
neska makedónskan skyldust búl-
görsku, enda vom Iandsmenn oft
fyrr á tíð taldir með Búlgömm og
vom tengdir þeim pólitískt og í
kirkjumálum. Voru Makedónar
stundum kallaðir Vestur-Búlgarar.
Það vom þeir sem Basíll annar
Býsanskeisari gersigraði 1014 í
ormstunni við Balatitsa. Býsans-
menn tóku þá 14.000 stríðsfanga,
og lét keisari stinga bæði augun úr
99 mönnum af hverjum hundrað,
en ekki nema annað augað úr
þeim hundraðasta. Vera má að
Kolskeggur á Hlíðarenda, sem að
sögn Njálu var í Væringjaliði um
það leyti, hafi barist með Basíl i
þeim slag.
Búlgarar hafa af ofangreindum
ástæðum talið sig eiga meiri rétt á
Makedóníu en aðrir, en töpuðu
mestum hluta hennar í hendur
Serbum og Grikkjum í Balkan-
stríðum og gerðu misheppnaðar
tilraunir til að ná henni úr höndum
þeirra í heimsstyrjöldunum báð-
um. Nú hafa Búlgarar viðurkennt
sjálfstæði Makedóníu (bæði það
lýðveldi og Bosnía-Herzegóvína
hafa lýst yfir sjálfstæði) til mikils
ergelsis bæði Serbum og Grikkj-
um, sem telja að nú séu Búlgarar
komnir á stjá eina ferðina enn, í
þeirri von að þeim takist að
krækja í umrætt land við upplausn
Júgóslaviu.
Tyrkinn aftur á stjá
Serbar fyrir sitt leyti stritast
við að halda í það sem eftir er af
Júgóslavíu gömlu og Svartfelling-
ar standa i því með þeim. Þeir
stefna að því að halda bæði Bo-
sníu- Herzegóvínu og Makedóníu
kyrrum í sambandslýðveldinu
(auk þess sem þeir tregðast við
sleppa þeim þriðjungi Króatíu sem
þeir hafa hertekið).
Við upplausn Júgóslavíu hafa
Tyrkir á ný farið að sýna áhuga á
ítökum á Balkanskaga, sem þeir
riktu yfir í aldaraðir en hafa ekki
mátt sín mikils á síðan í Balkan-
stríðum. Á milli þeirra og bræðra
þeirra í íslam, Albana og Bosníu-
múslíma, eru að takast sambönd.
Þá hefur stjóm Tyrklands lýst því
yfir að hún muni viðurkenna
Makedóníu sem sjálfstætt ríki.
Við þessu hafa Grikkir bmgð-
ist mjög illa. Ottast þeir að ef
Makedónía fái alþjóðlega viður-
kenningu sem sjálfstætt ríki muni
þess skammt að bíða að hún geri
kröfu til suðurhluta Makedóníu,
sem kom í hlut Grikkja eftir Balk-
anstríð.
Krafa um
nafnbreytingu lands
I þessu sambandi hefúr gríska
stjómin borið fram kröfu, sem
sumum kann undarleg að þykja,
þ.e.a.s. á þá leið að Makedónum
sé gert að taka upp nýtt nafn á
landi sínu og ríki, og verði það
skilyrði íýrir því að þeir fái sína
þráðu alþjóðlegu viðurkenningu. í
samræmi við þessa kröfu kallar
Grikkjastjórn júgóslavneska
Makedóna aldrei annað en „Skop-
jemenn“ og stjóm þeirra „Skopje-
stjóm“, eftir höfuðborginni þar-
lendis.
Fallist Makedónar á að skipta
um nafn á sjálfum sér, telja Grikk-
ir að í því felist yfirlýsing um að
þeir geri engar landakröfur suður
fyrir landamæri. Þar að auki segja
Grikkir að þetta sé þeim við-
kvæmt mál af þjóðemisástæðum;
Makedónía sé grískt heiti og hafi
uppmnalega verið nafn grísks rík-
is. Kalla þeir því stuld á nafninu
ef slavneskir menn tileinki sér
það.
Draumur um
Stór-Albaníu
Að þvi er best verður vitað um
Makedóna sjálfa, vilja þeir verða
Múslímar em flölmennir í Júgóslavíu
og víða má sjá þar merki þess og
minjar um yfirráð Tyrkja.
fullsjálfstæðir og fá alþjóðlega
viðurkenningu fyrir því eins og
Króatar og Slóvenar hafa nú feng-
ið. En nú em slavneskir Makedón-
ar að sumra sögn ekki nema um
Norðmenn og Svíar:
Kvartað yfir „noregsbröndurum“
Norska sendiráðiö í Stokk-
hólmi bar nýlega fram um-
kvörtun við sænska sjón-
varpið út af að flestra dómi mis-
heppnaðri og miður smekklegri
gamansemi á kostnað Norðmanna
í sjónvarpinu rétt fyrir jólin.
Þessi sérstaka gamansemi var
meira að segja birt í bamatíma og
var meginatriðið að fram kom mað-
ur, sem lét eins og fáviti, og var orð-
ið Norge (Noregur) saumað í höfuð-
fat hans.
Þetta er í samræmi við gamla
hefð „noregsbrandara" Svía, sem
flestir eru á þá leið að Norðmenn séu
menn ekki úr hófi vitrir, eða a.m.k.
ekki jafn vitrir og Svíar. Yfirleitt er
þetta allt í góðu (Norðmcnn svara
íyrir sig með „svíabröndurum"), en
fyrir kemur þó að sumum þykir fúll-
langt gengið. Og það þótti ýmsum
Norðmönnum í þetta sinn.
Talskona norska sendiráðsins í
Stokkhólmi segir í viðtali við norska
blaðið Verdens Gang, að hún viti til
þess að norskum bömum í Stokk-
hólmi hafi sámað umrædd gaman-
semi í bamatímanum og jafnframt
furðað sig á því hvað þetta ætti eig-
inlega að þýða.
Talsverður vöxtur hefur hlaupið í
þennan sérstaka þátt sænskrar fyndni
síðustu áratugi. Svíar em líklega
samviskusamasta þjóð sem til er,
þegar á heildina er litið, og leggja sig
Staðarnet
Innkaupastofnun ríkisins, Borgartúni 7, Reykjavík, fyrir
hönd dómsmálaráðuneytis, Arnarhvoii, Reykjavík, óskar
eftir tilboðum í staðarnet á fimm sýsluskrifstofum.
Verkið felst m.a. í tengingu lagnakerfis með samtals um
190 úttökum, vélbúnaði lagnakerfis, netstjóra ásamt
fylgibúnaði, gátt, 20 eldri notendatölvum og prenturum,
50 nýjum notendatölvum og prenturum, niðurtekt á nú-
verandi tölvukerfum, kennslu, handbókum o.fl. Verk-
kaupi útvegar notendabúnað og strengi fyrir lagnakerfi.
Verkinu skal lokið fyrir 15. júní 1992, að meðtöldum 4
vikna reynslutíma.
Útboðsgögn eru afhent hjá Innkaupastofnun ríkisins,
Borgartúni 7, Reykjavík, eftir kl. 13:00, mánudaginn 20.
janúar 1992, gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð hjá Innkaupastofnun ríkisins kl.
11:00, þriðjudaginn 11. febrúar 1992.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
______BORGARTUNI 7. 105 REVKJAVIK
í samræmi við það alla fram til að
forðast alla þá hegðun sem ætla má
að talist geti miður góð, sérstaklega
ef sú hegðun er þar að auki ekki í
tísku. Það alversta að dómi Svia ffá
því að heimsstyrjöldinni síðari lauk
hefur verið að láta sér verða á „ras-
ismi_“.
í viðleitni sinni til að forðast öll
blindsker af því tagi hafa Svíar að
mestu hætt að hafa í frammi fyndni á
kostnað annarra þjóða. En af ein-
hverjum ástæðum, sem ekki liggja
alveg í augum uppi, hefúr sú varúð-
arregla ekki náð til Norðmanna. Og
er sumra mál að noregsbrandaramir
séu nú eina leyfilega útrásin, sem
Svíar hafi fyrir rasisma sinn. Því sé
ekki furða þótt þensla sé í þessari
fyndni.
VERKAKVENNAFÉLAGIÐ
FRAMSÓKN
Leiöbeiningar viö
framtalsgerð
Verkakvennafélagið Framsókn gefur félagsmönnum sín-
um kost á leiðbeiningum við gerð skattaframtala.
Þeir sem hafa hug á þessari þjónustu eru beðnir um að
hafa samband við skrifstofu Framsóknar og láta skrá sig
til viðtals eigi síðar en 31. janúar n.k. í síma 688930. Ekki
er unnt að taka við viðtalsbeiðnum eftir þann tíma.
Verkakvennafélagið Framsókn
VERKAKVENNAFÉLAGIÐ
FRAMSÓKN
Fundarboð
Verkakvennafélagið Framsókn heldur félagsfund fimmtu-
daginn 23. jan. 1992 kl. 20.30 í Sóknarsalnum, Skipholti
50A.
Dagskrá: 1. Kjaramál.
2. Heimild til verkfallsboðunar.
3. Önnur mál.
Sýnum nú samstöðu - mætum allar.
Stjórnin
Sýnið
skírteini við
innganginn.
helmingur íbúa lands sins, hinir
eru af ýmsum þjóðemisminnihlut-
um og lítt eða ekki hrifnir af sjálf-
stæðinu. Mest beita sér gegn þvi
Albanir, sem þar eru fjölmennasti
þjóðemisminnihlutinn.
Um næstsíðustu helgi efndu
þeir til þjóðaratkvæðagreiðslu sem
varð „rússnesk kosning“ (eins og
það var einu sinni kallað), ef
marka má fréttir þaðan, þvi að
samkvæmt þeim greiddu 99,9 af
hundraði þeirra sem kusu atkvæði
með því að Albanir i lýðveldinu
skildu sig frá því og gerðust sjálf-
stæðir. Eru nú miklar líkur á því
að með Albönum i Albaníu, serb-
neska héraðinu Kosovo og Make-
dóníu, sem alls em e.t.v. um sex
miljónir, sé nú vaxandi hreyftng í
þá átt að öll þau svæði sem að
mestu eða miklu leyti em byggð
Albönum sameinist í eitt stóral-
banskt riki.
Ráðamenn Evrópubandalags
hafa af öllu þessu stórar áhyggjur.
Þeim var ekkert áhugamál að lima
sundur Júgóslavíu og ákváðu að
gangast fyrir alþjóðlegri viður-
kenningu á Króatíu og Slóveníu
fyrst og fremst af því að þeir sáu
enga meiningu i þvi lengur að
reyna að halda þeim kyrmm í
sambandslýðveldinu. EB hefur
gert Serbum og Grikkjum það vin-
arbragð að láta viðurkenningu sína
ekki ná til Bosníu og Makedóníu.
Talið var að ef EB-ríkin viður-
kenndu Makedóníu myndu Grikk-
ir hefna sín með því að valda eins
miklum vandræðum í EB-sam-
starfmu og þeim væri unnt. Þar að
auki er ástandið í lýðveldunum
tveimur svo eldfimt að þeir í
Briissel munu telja það skynsam-
legast að blanda sér ekki í það,
nógu mikill höfuðverkur er samt
deila Króata og Serba fyrir þá.
Vinningstölur laugardaginn ( 10 )( 16 ) 18. jan. '92
( 21
( 22 J ( 26 J ( 20 )
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐÁHVERN VINNINGSHAFA
1. 5al5 2 1.573.248
4af5™ W 7 78.108
3. 4af5 147 6.416
; 4. 3al5 4.499 489
Heildarvinningsupphæð þessa viku: Kr. 6.836.415
2 M 1 1
upplysingarsImsvari91 -681511 lukkul!na991002
Mannfagnaðir!
Árshátíðir
Þorrablót
Brúðkaup
Erfidrykkjur
Fundir
Ráðstefhur
VEISLU-
RISIÐ
Hverfisgötu 105
Sími 62 52 70
Síða 7
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 21. janúar 1992