Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Qupperneq 8
28
MÁNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1995
íþróttir
Knattspyma:
Enski knattspymuþjálfarinn
Bob Houghton, sem gerði garðinn
frægan sem þjálfari sænska liðs-
ins Malmö FF, er spenntur fyrir
því aö koma til íslands og taka
að sér þjálfun.
Houghton er mjög virtur þjálf-
ari og á glæsilegan feril að baki
sem slíkur. Hann gerði Malmö
FF að sænskum meisturum fiór-
um sinnum og jafnmörgum sinn-
um varð liðið bikarmeistari undir
hans stjóm. Þá komst liðið alla
leiö í úrslit í Evrópukeppninni en
tapaði þar fyrir Nottingham For-
est, 1-0, árið 1979. Houghton hef-
ur undanfarin ár starfað sem
þjálfari í Grikklandi og í Sviss
auk þess sem hann þjálfaði
landslið Katar.
Ross yill koma aftur
Þá hefur íslandsvinurinn Ian
Ross, fyrrum þjálfari Vals og KR
og Keflavíkur, áhuga á að reyna
fyrir sér á íslandi að nýju. Ross
starfaöi síðast hér á landi í fyrra
en hann hætti að eigin ósk sem
þjállari Keflvíkinga þegar fimm
umferðum var lokið í 1. deild og
gerðist aðstoðarþjálfari Hudd-
ersfield í ensku 1. deildinni.
Ingi Björn
þjálfar
FH-inga
Samningar em nánast i höfn
hjá knattspyrnudeild FH og Inga
Birni Albertssyni þess efnis að
hann muni stýra liðinu í 2. deild-
inni í knattspyrnu á næsta
keppnistímabili.
Ingi tók víð FH-liðinu þegar
fimm umferðum var ólokið í 1.
deildinni í sumar, af Ólafi Jó-
hannessyni, og þrátt fyrir góðan
endasprett tókst liðinu ekki að
forðast fall í 2. deild.
Mikill hugur er í FH-ingum og
að þeirra sögn á ekki að staldra
í 2. deild nema eitt ár. Að sögn
forráðamanna FH vita þeír ekki
annað en að ailir þeir leikmenn
sem léku með liðinu í sumar
verði áfram í herbúðum félags-
ins. Buið er að ganga frá samn-
ingum við lykilmenn á borð Ólaf
Kristjánsson, Hörð Magnússon
og Auðun Helgason.
Körfubolti:
Loksins
titill
til ÍR
ÍR-ingar unnu sinn fyrsta titil í
körfuknattleik í 18 ár þegar þeir
lögðu KR-inga í úrslitaleik
Reykjavíkurmótsins i gærkvöldi,
81-78. KR-ingar höfðu yfirhönd-
ina lengst af leiksins, höfðu yfir
í hálfleik, 45-37, en ÍR-ingar áttu
góðan endasprett og tryggðu sér
sigur með vítaskotum Herberts
Arnarssonar á lokaminútunni.
Stig ÍR: Herbert Arnarsson 28,
Jón öm Guðmundsson 15, Eirík-
ur Önundarson 14, Broddi Sig-
urðsson 9, John Rhodes 8, Guðni
Einarsson 5, Bjöm Steffensen 2.
Stig KR: Jonathan Bow 23, Her-
mann Hauksson 21, Ingvar Orm-
arsson 13, Láras Ámason 11, Ós-
valdur Knudsen 5, Finnur Vil-
hjálmsson 2, Amar Sigurðsson
2, óskar Kristjánsson 1.
DV
Þjálfaramálln í 1. deildinni 1 knattspyrnu:
Lúkas líklega kyrr
viðræður komnar í gang hjá flestum félögum 1 deildinni
Lúkas Kostic veröur að öllum lík-
indum áfram við stjómvölinn sem
þjálfari 1. deildar liðs Grindavíkur í
knattspyrnu á næsta keppnistíma-
bili.
„Það standa yfir viðræður á milli
okkar og Kostics og það er mikill
áhugi meöal okkar aö hafa hann
áfram. Ég tel mestar líkur á að svo
verði,“ sagði Svavar Sigurðsson,
formaður knattspyrnudeildar
Grindavíkur, við DV í gær.
Grindvíkingar héldu lokahóf sitt
eftir stórsigurinn gegn Blikum á
laugardaginn. Þar var Milan
Jankovic kjörinn bestileimaöur liðs-
ins í sumar, Álbert Sævarsson mark-
vörður fékk viðurkenningu fyrir
mestu framfarir og Tómas Ingi Tóm-
asson varð markakóngur liðsins.
Blikar ræða við Bjarna
Blikar hófu í gær viðræður við
Bjama Jóhannsson um að hann
haldi áfram starfi sínum sem þjálfari
Breiðabliks. í viðtölum við stjómar-
menn Breiðabliks í gær benti flest til
þess að Bjarni yrði endurráðinn. Um
leikmannahópinn er ekki vitað á
þessari stundu en mjög líklegt er að
framherjinn snjalli, Rastislav Lazo-
rik, verði áfram í herbúðum Blika
en mörg félög hér á landi hafa rennt
hýru auga til hans.
Kristinn áfram hjá Val?
Valsmenn eru ekki farnir af stað í
neinar viðræður við þjálfara en að
sögn stjómarmanns í Val kemur
sterklega til greina að ræða fyrst við
Kristin Bjömsson. „Það væri óeðli-
legt ef við töluðum ekki við hann
eftir þessa glæsilegu endurkomu
hans til Vals,“ sagði viðmælandi í
stjóm Vals við DV í gær.
Obreytt hjá Leiftri
„Það er okkar vilji að þetta verði
óbreytt og að Óskar Ingimundarson
haldi áfram að þjálfa Leiftursliðiö.
Það er samt ekkert frágengið í þeim
málum. Þetta er spuming um vinnu
fyrir Óskar og við eram að vinna í
því,“ sagði Þorsteinn Þorvaldsson,
formaður knattspyrnudeildar Leift-
urs, við DV í gær.
Búið er að ganga frá samningum
við flesta leikmenn um að þeir verði
áfrcim og þar má nefna menn eins
og Gunnar Oddsson, Júlíus Tryggva-
son, Ragnar Gíslason, Pál Guð-
mundsson og Júgóslavana Nebojsa
Corovic og Slobodan Milisic. Milisic,
sem slasaðist á hálsi um mitt íslands-
mót og gat ekki leikið meira eftir
það, er að jafna sig og verður klár í
slaginn fyrir næsta sumar.
Óvissa hjá Keflavík
Forráðamenn Keflvíkinga sögðu í
samtali við DV í gær að ekki væri
fariö aö ræða af neinu viti hver yrði
næsti þjálfari liðsins. Samkvæmt
heimildum DV er ekki gert ráð fyrir
að Þórir Sigfússon verði áfram með
liðið.
Eyjamenn tala við Atla
Eyjamenn munu í vikunni hefia við-
ræður við Atla Eðvaldsson en gagn-
kvæmur vilji er fyrir því hjá báðum
aöilum að hann haldi starfi sínu
áfram. Undir stjórn Atla tryggðu
Eyjamenn sér sæti í Evrópukeppni
félagsliða að ári með því að ná þriðja
sæti 1. deildarinnar.
- ráðinn þjálfari Fram til tveggja ára
Ásgeir Elíasson var í gær ráðinn
þjálfari meistaraflokks Fram í knatt-
spymu til næstu tveggja ára. Ásgeir
tekur við af Magnúsi Jónssyni sem
tók við Fram liðinu snemma sumars
eftir að Marteini Geirssyni hafði ver-
ið vikið úr starfi þjálfara. Fram mun
leika í 2. deildinni á næstu leiktíð en
liðið féll eftir að hafa hafnað í neðsta
sæti 1. deildarinnar sem iauk á laug-
ardaginn.
Ásgeir mun hefia störf hjá Fram
um leið og samningur hans við KSÍ
rennur út eftir síðasta leik landsliðs-
ins í nóvember en hann hefur starfað
sem landsliðsþjálfari síðustu fiögur
árin. Ásgeir er öliun hnútum kunn-
ugur þjá Fram. Hann lék um árabO
með félaginu' og þjálfaði það í sjö ár,
frá árinu 1985 til 1991. Undir stjóm
Ásgeirs varð Fram stórveldi í ís-
lenskri knattspyrnu. Liðið varð ís-
landsmeistari 1986, 1988 og 1990, í
öðru sæti 1987 og 1991. Bikarmeistari
1985,1987 og 1989, Reykjavíkurmeist-
ari 1985 og 1986 og sigurvegari í
meistarakeppni KSI 1985, 1986 og
1989. Þá komst Fram í 2. umferð Evr-
ópukeppninnar í knattspyrnu undir
stjórn Asgeirs 1985 og 1990.
Ánægður að vera
kominn í Safamýrina
„Ég er mjög ánægður að vera kominn
í Safamýrina aftur. Hér leið mér
mjög vel að þjálfa og á vonandi eftir
að gera það áfram. Auðvitað var leið-
inlegt að horfa upp á liðið í sumar
en nú er það búið og nú þurfa menn
að snúa bökum saman og koma félag-
inu á þann stað sem þaö á heima.
Fram hefur alltaf stefnt á toppinn og
auðvitað verður stefnan tekin á áð
fara strax upp úr 2. deild,“ sagði Ás-
geir á blaðamannafundi sem Fram-
arar efndu til í gær í tilefni ráðningar
Ásgeirs.
Lausir samningar eru við alla leik-
menn félagsins og segjaforráðamenn
Fram að stefnt sé að halda öllum
þeim mannskap sem lék með liðinu
í sumar.
Steinar Þór Guðgeirsson, fyrirliði Fram, og Olafur Helgi Arnason, formaður knattspyrnudeildar Fram, taka hér í
höndina á Ásgeiri Elíassyni og bjóða hann velkominn á ný í Safamýrina sem næsti þjálfari félagsins.
DV-mynd Brynjar Gauti
Ásgeir á að koma
Fram til bjargar
Knattspyraa:
Bannið
aKiev
staðfest
Knattspymusamband Evrópu
staðfesti í gær þann úrskurð sinn
að dæma Dynamo Kiev í þriggja
ára bann frá þátttöku í Evrópu-
keppninni í knattspyrnu. Bannið
fær félagið eftir að upp komst að
það reyndi að múta dómaranum
í leik liösins gegn gríska liöinu
Panathinaikos. Forráöamenn
Dynamo Kiev hafa borið af sér
allar sakir og fóru fram á það við
UEFA að málið yrði tekið upp að
nýju. Forseti Úkraínu reyndí sitt
ítrasta til að fá dómi UEFA
hnekkt og að málinu yrði frestað.
Hann lofaði til að mynda að dóm-
stólar landsins myndu kanna til
hlítar allar hliðar málsins.
UEFA hefur ákveðið að danska
liðið Álaborg taki sæti Dynamo
Kiev í meistaradeild Evrópu.
Badminton:
Tveir
sigrar
hjá TBR
TBR hafnaði í 8.-12. sæti í Evr-
ópukeppni félagsliða í badminton
en riðlakeppninni lauk í Kristian-
sand í Noregi á fostudagskvöldið.
TBR vann þá Atletico Nadir frá
Spáni i lokaleiknum, 4-3, og end-
aði í þriöja sæti í sínum riðli.
Áður hafði TBR sigraö írsku
meistarana Alpha BC, 6-1, en tap-
að fyrir þýsku meisturunum í
Bayer Uerdingen, 0-7, og fyrir
finnsku meisturunum Tapio
Sulka, 2-5.
Gegn Spánvetjunum unnu
Tryggvi Nielsen og Vigdís Ás-
geirsdóttir sína mótherja í ein-
liöaleik, Broddi Kristjánsson og
Árni Þór Hallgrímsson i tvílíöa-
leik karla og Elsa Nielsen og Vig-
dís Ásgeírsdóttir í tvíliðaleik
kvenna. Þorsteinn Páll Hængs-
son og Elsa töpuöu hins vegar i
einliðaleik og Árni Þór og Guð-
rún Júlíusdóttir í tvenndarleik. :