Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1995, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995
5
Fréttir
Ammundur Backman lögmaður gagnrýnir söfnunarstjóm Samhugar 1 verki:
Fráleitt að fórnarlömb
undirriti eiðstaf um þögn
- forsvarsmenn söfnunarstjómar hafa lekið upplýsingum um einstaklinga
„Mínir umbjóðendur hafa sagt mér
að þeir hafi skrifað undir einhvern
eiðstaf um að þetta ætti að vera í
þagnargildi. Þau eru ákaflega ósátt
við þá afgreiðslu vegna þess að síðan
hafa forsvarsmenn söfnunarsjóðsins
veriö að láta leka út einhverjar mein-
ingar um það að Hafsteinn geti trútt
um talað og hann hafi fengið einna
mest. Það er því engin þögn um þetta
mál,“ segir Arnmundur Backman,
lögmaður þeirra fórnarlamba Súða-
víkurslyssins sem fluttu á brott eftir
hörmungamar á síðasta vetri. Hann
vitnar þarna til þess að stjórn söfn-
unarinnar Samhugar í verki lét þá
sem fengu bætur undirrita eiðstaf
um að þeir segðu ekki frá upphæð
þeirra bóta sem þeir fengu. Þetta var
gert að skilyrði fyrir því að fólkiö
fengi bætur. Þá vitnar Ammundur
til þess að haft hefur verið eftir ein-
stökum stjórnarmönnum að Haf-
steinn Númason og kona hans hafi
fengiö mikinn stuðning úr sjóðnum.
Ammundur skrifaði söfhunar-
stjórn bréf í vetur þar sem hann
krafðist þess að úthlutunin yrði gerð
opinber.
„Nú er bara verið að bíða eftir því
að uppgjör sjóðsins fari fram og það
verði birt ráðstöfun fjárins. í kjölfar-
ið verður sú krafa óstöðvandi að það
verði greint frá þessum bótum,
hveriir fengu hvað. Sérstaklega þar
sem það liggur nú fyrir að þeir sem
ekki hrökkluðust í burtu og ætla að
byija þama upp á nýtt fá meira en
aörir. Þeir sem fóm verst út úr þessu
og urðu fyrir ástvinamissi og mestu
sorginni, þeir fá miinna fyrir að
hrökklast í burtu,“ segir Ammund-
ur.
Talsverð gagnrýni hefur komið
fram hjá fólki sem gaf í söfnunina
vegna þeirrar leyndar sem hvílt hef-
ur yfir úthlutunum. Er ekki sann-
gjarnt gagnvart gefendum að stjórn
sjóðsins geri hreint fyrir sínum dyr-
um?
„Mér finnst að gefendur eigi að fá
að vita í hvað fjármununum var ráö-
stafað í öllum aðalatriðum. Hvað fór
í bætur og hvað fór í annað. Megin-
reglan á að vera sú að það á ekki að
vera leynd yfir þessu. Þessi hugmynd
að menn séu látnir skrifa undir ein-
hvem eiðstaf er auðvitað fráleit,"
segir Arnmundur Backman.
-rt
Höfn:
Stórsíld
landaðen
starfsfólk
vantar
Júlía Imsland, DV, Höfn:
Síldarvertíðin á þessu hausti fer
vel af stað og er vinnsla hafin bæði
hjá Skinney og Borgey. Jóna Eð-
valdsdóttir, síldarskip Skinneyjar,
hefur landað um 550 tonnum síðasta
hálfa mánuðinn. Rétt fyrir helgi
landaði Húnaröst 300 tonnum af síld
hjá Borgey.
Síldin er frekar stór og fituinnihald
17%. Unnið var alla helgina við sölt-
un, fiökun og frystingu. Að sögn
Ágústs Sigurðssonar, verkstjóra hjá
Borgey, vantar enn margt fólk til
starfa og ef tekið er mið af þeim
tölum sem gefnar em upp um at-
vinnulausa í landinu virðist htil eft-
irspum að komast í vinnu.
Stldarlöndun á Höfn,
DV-mynd Júlía
I
i
I
I
Varnarmálaskrifstofan setur ofan í við sýslumanninn á Keflavlkurflugvelli:
Skipað að virða þagnarskyldu
- endanlegur sigur fýrir mig, segir Skarphéðinn H. Einarsson
„Þetta bréf er endanlegur sigur
fyrir mig í útistööunum við sýslu-
manninn á Keflavíkurflugvelli.
Næsta skref hjá mér er að stefna
utanríkisráðherra og krefjast bóta
fyrir það tjón sem ég hef orðið fyrir
vegna brots sýslumannsins," segir
Skarphéðinn H. Einarsson, Njarð-
víkingur sem kærði Þorgeir Þor-
steinsson, sýslumann á Keflavíkur-
flugvelh, til umboðsmanns Alþingis
vegna meints brots á þagnarskyldu.
Öryggisgæslufyrirtækið Vari lokar
öryggismiðstöð sinni um næstu mán-
aöamót og sameinast þá öryggismið-
stöð Securitas í húsnæði Securitas
fram til áramóta.
Um áramót hefst samvinna Vara,
Securitas, Slökkvistöðvarinnar í
Reykjavík, Slysavarnafélagsins, Sí-
vaka og Pósts og síma um rekstur
neyðarlínunnar 112 og flyst þá sú
þjónusta í nýtt húsnæði neyðarlín-
unnar.
Málsatvik voru þau aö Skarphéð-
inn taldi að sýslumaður mætti ekki
afhenda tryggingarfélagi upplýs-
ingar sem vörðuöu umferðaróhapp
sem hann lenti í. Umboðsmaður Al-
þingis komst að þeirri niðurstöðu að
um brot af hálfu sýslumanns hefði
verið að ræöa, eins og greint var frá
í DV þann 5. september.
Nú hefur vamarmálaskrifstofa ut-
anríkisráðuneytisins, en undir hana
heyrir sýslumannsembættið á Kefla-
Viðar Ágústsson, framkvaémda-
stjóri Vara, hafnar því að með þessu
séu öryggisgæslufyrirtækin aö sam-
einast og segir að þau muni starfa
áfram við öryggisgæslu hvert í sínu
lagi.
„Fyrirtækin hafa sömu hagsmuni
varðandi símsvörun í neyðarsíma á
landsvisu. Frá þessari sömu stöð
munum við gefa okkar viðskiptavin-
um þjónustu í sambandi við öryggis-
kerfi þeirra en það verða hka einu
víkurflugvelh, skipað sýslumanni
bréflega að fara aö áhti umboðs-
manns.
„Framvegis verði meðferð gagna
af hálfu embættisins hagaö í sam-
ræmi við þau sjónarmiö sem fram
koma í umræddu áhti umboðsmanns
Alþingis,“ segir í bréfinu frá varnar-
málaskrifstofu.
DV bar bréfið undir Þorgeir Þor-
steinsson sýslumann en hann vildi
ekki ræða efni þess og sagðist „fá
snertifletir þessara fyrirtækja. Vari
er sjálfstætt fyrirtæki með sína skrif-
stofu og aðra starfsemi. Fyrirkomu-
lagið á þessu verður bara eins og
þegar undirverktaki er keyptur til
aö annast hluta af þjónustunni," seg-
ir Viðar.
- En er Vari ekki bara að hverfa inn
í Securitas?
„Nei, ekki aldeihs," segir hann.
Sex starfsmenn sögðu upp störfum
hjá Vara um síðustu mánaðamót og
helhng af bréfum daglega án þess að
vera að tala mikið um það“.
Skarphéðinn telur að tjón sitt
vegna málsins nemi í það minnsta
einni milljón króna og þeim pening-
um hyggst hann ná aftur frá hinu
opinbera, þótt með málaferlum
verði, eins og hann orðaði það við
DV. -GK
stofnuöu nýtt öryggisgæslufyrir-
tæki, Öryggismiðstöð íslands. Jó-
hann Ólafsson, einn þeirra, segir að
starfsmennirnir hafi sagt upp vegna
ótta um fákeppni milli öryggisgæslu-
fyrirtækja í framhaldi af samstarfi
Vara og Securitas og því hafi þeir
stofnað nýtt fyrirtæki. Það hefur þeg-
artekiðtilstarfa. -GHS
Rannsókn á Frosta hf.:
Færekkihlut
bankans í Rit
„Það er ljóst aö það hafa komið
ákveðnar upplýsingar um að
Frosti hafi tengst ákveðnum mál-
um sem eru til rannsóknar. Þess
vegna töldum við okkur ekki fært
aö ganga frá samningum um sölu
á hlutafénu," segir Kristján Ósk-
arsson, framkvæmdastjóri
Framfarafélagsins hf. sem er í
eigu íslandsbanka, um fyrirhug-
aða sölu á 53 prósenta hlut í
rækjuverksmiöjunni Rit hf. á
ísafirði til Frosta hf. i Súðavík.
Sú rannsókn sem hann vísar til
þarna er meint kvótasvindl tog-
arans Bessa ÍS í Þýskalandi og
það aö kvóti þýska fyrirtækisins
Lubbert fór um skip Frosta hf.
Kristján segir að vfljayfirlýsing,
sem undirrituð var um söluna
þann 5. september sl. og kvað á
um aö gengið yrði frá kaupunum
fyrir 20. september, væri nú fallin
úr gildi.
„Þéssi hlulabréf eru nú til sölu
eins og áður enda hefur það veriö
markmið Framfarafélagsins að
vera ekki þátttakendur í rekstri
nema tímabundið,*1 segir Krístján.
Ingimar Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Frosta hf. í Súða-
vik, vfldi ekkert um máliö segja
þegar DV hafði samband við
hann: -rt
Rekstur neyðarlínunnar 112 hefst um áramótin:
Öryggismiðstöð Vara sameinast Securitas