Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1995, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1995, Qupperneq 1
IÞROTTIR 2. OKTÓBER 1995 Getraunir: Sænsk/enski boltinn: X11-X21-111-2122 Italski boltinn: xx1 -212-1 x1 -1212 Lottó 5/38: 9131529 31 (6) KR-ingar vilja fá Guðjón Guðmundux Hilmarsson, DV, Liveipool: Stjóm Knattspymudeildar KR átti fund meö Guðjóni Þórðarsyni í gasr um áframhald hans sem þjálfari meistaraflokks félagsins. Engin niðurstaða fékkst í málið en þráðurinn verður tekinn upp þegar heim er komið. Það er vilji innan stjómar Knattspymudeildar KR að halda Guðjóni. Lið KR kom heim í nótt eftir að hafa dvalið nokkra daga í Liverpool eftir Evrópuleikinn við Everton. Malin Lake til ÍBV Þorsteinn Gurmarsson, DV, Eyjum: Kvennalið ÍBV í handknattleik hefur fengið góðan liðsstyrk. Sænska landsliðskonan, Malin Lake, hefur ákveðið að ganga til liðs við félagið og er hún væntan- leg til landsins á miðvikudaginn. Malin hefur leikið með Örebro og á að baki um 50 landsleiki fyrir sænska landsliðið. Malin er al- hliða útileikmaður. Knattspyrna: Slæmt tap hjá topp- liði Milan - sjá bls. 23 Handknattleikur: Díana með ellefu mörk og FH vann Víking - sjá bls. 26 Allt um leik íslendinga og Rúmena í gærkvöldi - sjá bls. 28 Knattspyrna: Jafntefli í miklum rokleik á Skaganum - sjá bls. 23 Golf: Langer sló best allra á írlandi - sjá bls. 27 Ólafur B. Schram áfram formaður HSÍ Ólafur B. Schram var endurkjörinn formaður HSÍ á þingi þess sem lauk í Hafiiarfirði síðdegis í gær. Nokkrar veigamiklar breytingar vom sam- þykktar á þinginu og þar á meðal stjóm sambandsins. Hún felst í því að sambandsstjóm og framkvæmdastjóm vom lagðar niður en í staö þeirra mun stjóm HSÍ fara með yfirstjóm. Velta HSÍ í fyrra nam um 67 milljónum en í ár er búist við að veltan verði í kringum 54 milljónir. Munurinn á milli ára felst í fleiri landsleikjum sem háðir vora til undirbúnings fyrir heimsmeistarakeppnina á sl. vori. í skýrslu framkvæmdanefndar HM ’95 kom fram að um 7,7 milljóna króna hagnaður var af heimsmeistarakeppninni. Velta keppninnar var um 241 milljón króna. Nánari umfjöllun af þinginu á bls. 27. Guðni bestur hjá Bolton Gúðmundur Hilmarsson, DV, Liverpool: Guðni Bergsson var besti maður Bolton í leiknum gegn Q.P.R. á laugardaginn. Hann átti mjög góðan leik í vöminni en ekki nægði það liðinu því Lundúnaliðið sigraði í leiknum með marki á lokamínútunni. Bolton átti meira í leiknmn en miðjan og sóknin hjá liðinu er veik, sem og staða liðsins í úrvalsdeildinni. Sjá enska boltann bls. 22. Atli endurráðinn þjálfari hjá ÍBV Þorsteinn Gunnarsson, DV, Eyjum: Atli Eðvaldsson var um helg- ina endurráðinn sem þjálfari ÍBV næsta sumar. Undir hans stjórn náði ÍBV þriðja sætinu á nýaf- stöðnu íslandsmóti og Evrópu- sæti sem er besti árangur ÍBV síðan 1990. Af þesum tilefni sagði Atli að enn betur yrði vandað til undir- búnings fýrir næsta sumar en ÍBV fer í tvær ferðir til útlanda í vetur, m.a. til Kýpur i febrúar. Búist er við að allir leikmenn liðsins verði áfram en jafnframt er stefnt að því að styrkja hópinn enn frekar með nýjum leikmönn- um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.