Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1995, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1995, Page 6
26 MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 1995 íþróttir________________ Fer Leiftur í TOTO-keppni? Helgi Jánsson, DV, Ólafafirdi: Þrátt fyrir allt eru taldar helm- ingslíkur á því aö Leiftur fái sæti i TOTO-keppninni á næsta sumri. Leiftur varð undir í baráttunni við Keflavík um fjórða sætið í 1. deild og var þá talið að möguleik- ar Leifturs um sæti yæru þar með úti. í fyrra sótti KSÍ um tvö sæti fyrir íslensk félagslið en fékk að- eins eitt sem féll i skaut Keflvik- inga. Að sögn Þorsteins Þorvaldsson- ar, formanns Knattspyrnudeildar Leifturs, eru líkur fyrir því að mörg lið dragi sig út úr keppninni næst vegna þess að tímasetning hennar hentar þeim ekki. Mörg þeirra eru þá ennþá í sumarfríi og ekki komin i æfingu af þeim sökum. Þorsteinn taldi að helm- ingslíkur væru á því að Leiftur fengi sæti eftir samtal við Eggert Magnússon, formann KSÍ. TekurSieinnvið kvennaliði ÍA? Eins og komið hefur fram í DV hyggst Smári Guðjónsson, þjálf- ari kvennaliðs ÍA i knattspymu, ekki þjálfa liðið á næstu leíktiö. Samkvæmt heimildum DV eru hreyfingar um það að Steinn Helgason taki við stjórninni af Smára. Steinn hefur áöur þjálfað ÍA og Breiðablik ogverið aöstoðarþjálf- ari karlaliðs ÍA. Papinhótarað fara frá Bayern Annar franskur knattspyrnu- maður er í sviðsljósinu þessa dag- ana, Jean-Pierre Papin hjá Bay- era Múnchen. Papin er ævareiður út í Otto Rehhagel, þjálfara Bayern, og segir veru hans hjá félaginu stórt vandamál. Þá 14 mánuði sem Papin hefur verið hjá Bayern hef- ur hann að mestu setið á vara- mannabekknum og fellur það eðlilega illa: „Ef þetta breytist ekki snarlega þá vil ég fara frá Bayem. Ef ég er ekki valinn i lið- ið vil ég fá skýringar á því. Þjálf- arinn talar ekki viö mig." „Leyfiðhonum aðkvarta" Otto Rehhagel, þjálfari Bayern, hefur svarað ásökunura Papins og veit vel af óánægju hans. „Ef hann vill kvarta þá leyfiö honum það. Ef ég þarf að gera breytingar á líöi minu er þaö mitt mál. Ég þarf ekki aö eyða klukkustundum í að tala við leik- menn,“ segir Rehhagel. Franz Beckenbauer er lika meðvitaður um hugarástand Papins: „Ég þekki Papin og veit hve brjálaður hann er. Hann verður hins vegar að sýna skilning og ég er viss um að við munum einhvem tímann þurfa á honum aö halda," segir Beckenbauer. SeveBallesteros tekursérhvfld Einn frægasti kylfingur heims, Spánverjinn Severiano Ballest- eros, hefur ákveðið að taka sér fimm mánaða hvíld frá keppni í goifi. Ástæöan fyrir þessari ákvörö- un Spánveijans er þrálát bak- meiðsli. í yfirlýsingu frá kylf- ingnum i gær segir hann aö eng- inn megi láta sér detta í hug aö hann sé að hætta 38 ára gamall. Ballesteros sagðist í gær ætla aö nota fríið til að eyða meiri tíma með fjölskyldu sinni og hefia sið- an leik aö nýju í byxjun næsta árs. Ballesteros sagði í gær að hann ætlaöi aö hætta sem at- vinnumaður 54 ára gamall. DV Arsþing HSI um helgina í Hafnarfirði: Sambandsstjórn var lögð niður - 7,7 miUjóna hagnaður af HM ’95 Leiktímar, einn í hvorum hálfleik, lenging hálfleiks úr 10 mínútum í 15 mínútur voru meðal nýrra reglna sem samþykktar voru á þingi HSÍ sem haldið var i Hafnarfirði um helg- ina. Stór breyting var gerð á yfir- stjóm HSÍ en sambands- og fram- kvæmdastjórn var lögð niður. Stjórn HSÍ mun því í framtiðinni skipa sjö menn. Áður fyrr voru í sambands- stjórninni 21 og 7 í framkvæmda- nefhdinni. Ólafur B. Schram var endurkjör- inn formaður HSÍ. Velta sambands- ins i fyrra nam 67 milljónum en í ár stefnir í að veltan verði um 54 millj- ónir. Munurinn á milli ára felst með- al annars í færri landsleikjum en þeir voru drjúg tekjulind í undirbún- ingi landsliðsins fyrir heimsmeist- arakeppnina sem haldin var hér á landi á sl. vori. Leikhlé, sem fram að þessu hefur staðið í 10 mínútur, verður hér eftir 15 mínútur. Enn fremur var sam- þykkt að stoppa leiktímann í eina mínútu í hvomm hálfleik en með því gefst þjálfurum tækifæri til að koma ábendingum til leikmanna sinna. Þessar breytingar taka þegar gildi á mótum á vegum HSÍ. Svona fyrirkomulag hefur um ára- bil verið við lýði í körfuboltanum. Fleiri Evrópuþjóðir hafa farið inn á þessa braut og er taliö að hún verði samþykkt innan Alþjóða handknatt- leikssambandsins á þinginu sam haldið verður samhliða ólympíuleik- unum í Atlanta næsta sumar. Meðal annarra breytinga sem þing- heimur samþykkti var að kostnaður félaga vegna dómara skyldi greiddur fyrir leiki en ekki eftir á eins og ver- ið hefur um langt árabil. Reglugerð um meistarakeppni var samþykkt og verður HSÍ framkvæmdaaðili henn- ar hér eftir. Tveimur tillögum var vísað til laga- nefndar til umfiöllunar fyrir næsta þing 1 vor. Sú fyrri lítur að fiölgun útlendinga úr einum í tvo í hverju liði og hinn síðari að breyttu úrslita- fyrirkomulgi á 2. deild karla. 7,7 milljóna króna hagnaður af HM ’95 í skýrslu framkvæmdastjórnar HM ’95, sem lögð var fram á þinginu, kom fram að hagnaður af heimsmeistara- keppninni hefði verið 7,7 milljónir króna. Velta keppninnar var 241 milljón króna. Merjn voru almennt sáttir með þessa niðurstöðu eftir ýmis áföll fyrir keppnina. Óvæntur kostnaðarliður varð vegna upptöku á sjónvarpsefni en ekki var vitað um hann áður en lagt var upp. Hann nam samtals 38 millj- ónum króna. Aldrei áður hafði inn formaður HSÍ um helgina. kostnaður af þessu tagi fallið á móts- haldara. Á þessu sést að hagnaður- inn hefði orðið mun meiri ef kostnað- ur vegna upptöku á sjónvarpsefni heíði ekki komið til. „Þetta var gott þing í alla staði. Ég var ánægður með skýrslu stjórnar framkvæmdanefndar HM ’95 sem var undir sfiórn Hákonar Gunnars- sonar. Ég lít bara björtum augum til næsta starfsárs HSÍ,“ sagði Ólafur B. Schram, formaður HSÍ, eftir þing- slit í gær. í stjórn HSÍ eru eftirtaldir: Ólafur B. Schram formaður, Kjartan Steinbach varaformaður, Jóhanna Ágústa Sigurðardóttir gjaldkeri, Gú- staf Adolf Gústafsson ritari, Ragn- heiður Karlsdóttir, Bjarni Snæbjörn Sigurðsson, Ásgerður Halldórsdóttir eru meðsfiórendur. Víkingar úr leik á EM í borðtennis Víkingar em úr leik í Evrópukeppni meistaraliða í borötennis eftir 4-0 ósigur gegn ísraelska meistaraliðinu Hapoel-Ramat-Gan í Reykjavík á laugar- dag. í einliðaleiknum lék Ólafur Rafnsson fyrst gegn Josef Bogen og tapaði, 9-21, 13-21. Guðmundur E. Stephensen lék gegn Erez Seia og tapaði, 18-21, og 20-22. Kristján Jónasson tapaði fyrir Guy Basis, 14-21, og 14-21. Loks léku þeir Guðmundur E. Stephensen og Peter Nilsson í tvíliðaleik gegn Josef Bogan og Guy Basis. ísraelsmennimir sigruðu, 16-21, og 18-21. DV-mynd S Umted ser e eftir peningum - verðbréf félagsins faUa einnig í verði Guðmundur Hilmarason, DV, Líverpool; Ensk dagblöð eyddu þó nokkru plássi undir frammistöðu liða sinna á Evrópumótunum í knatt- spymu fram að þessu í haust. Ensk félög hafa átt undir högg að sækja og sum þeirra komist áfram í 2. umferö á elleftu stundu. Blöðin velta fyrir sér slæmu gengi Manchester United í Evrópu- keppni félgsliöa en rússkneska lið- ið Volgograd sló enska liðið út úr keppninni í vikunni með því að gera jafntefli á Old Trafíbrd. Reiknimeistarar blaðanna segja að Manchester United hafi tapaö um tiu milljóna punda, sem er um einn milljarður íslenskar króna, úr því aö liðið var slegið út. Þá kom einnig fram að í kjölfar ósigursins heföu verðbréf i félag- inu fallið vemlega i verði. íslandsmótið 11. deild kvenna í handknattleik um helgina: FH-stúlkur komu mjög á óvart og sigruðu Víkinga í Krikanum Helga Sigmundsdóttir skritar: FH-ingar byrjuðu keppnistímabilið vel í kvennahandboltanum um helg- ina með sigri á Víkingi, 23-20, í Krik- anum. Díana Guðjónsdóttir átti stór- leik fyrir sitt nýja félag, skoraði 11 mörk, en hún lék sem kunnugt er áður með Fram. Þá kom ungur markvörður, Sara Frostadóttir, á óvart og átti góðan leik. Hún er að- eins 18 ára gömul en hún hefur und- anfarin ár búiö í Noregi og leikið þar handknattleik. „Þetta var mjög góður leikur hjá okkur. Ég er ánægður með vamar- leikinn og markvörsluna. Viö spiluð- um einnig vel í sókninni og þaö skil- aði okkur sigri,“ sagöi Stefán Arnar- són, þjálfari FH. Fyrri hálfleikur var jafn, FH hafði yfir í leikhléi 10-9. í síðari hálfleik var FH 2-3 mörkum yfir lengst af. Víkingur jafnaði þó 16-16 en lið FH var sterkara á endasprettinum. O Mörk FH: Díana 11, Bára 4, Hild- ur P. 3, Björg 2, Hildur E. 2 og Ólöf 1. • Mörk Víkings: Halla 6, Guð- munda 5, Svava S. 3, Hanna 2, Mar- grét 2, Þórdís 1 og Helga 1. Fylkir vann Val Valsstúlkur töpuðu fyrir Fylki á heimavelli sínum, 20-23 (13-13). Leik- urinn var jafn lengst af en Fylkir var þó með frumkvæðið í síðari hálfleik. • Mörk Vals: Krisfiana 10, Geröur 3, Lilja 2, Björk 2, Soifia 1, Sigurlaug 1 og Hafrún 1. • Mörk Fylkis: Anna H. 4, Anna E. 3, Ágústa 3, Helena 3, Lilja 3, Irina 2, Eva 2 og Rut 2 og Helga 1. ÍBA tapaði stórt Nýliðar ÍBA léku tvo leiki sunnan heiða um helgina og töpuðu þeim báðum stórt. Á fostudag mætti liðið Haukum í Strandgötu og þar urðu lokatölur 36-11 (17-3). • Markahæstar hjá Haukum: Auður 7, Heiðrún 7, Hulda 5. • Markahæstar hjá ÍBA: Sólveig 4, Magnea 3. Á laugardag tók KR á móti Akur- eyrarstúlkunum í Austurbergi. KR sigraði 34-17 (17-7). KR-stúlkur vom seinar í gang og komst ÍBA í 0-4 en KR jafnaði 6-6 og náði síðan góðri forystu allt upp frá því. • Mörk KR: Helga 7, Valdís 6, Harpa 5, Ólöf 3, Selma 3, Brynja 3, Sæunn 2, Anna 2, Edda 2 og Lísbeth 1. • Mörk ÍBA: Valdís 5, Anna B. 4, Magnea 2, Dóra 2, Sólveig 2, Elín 1 og Heiða 1. Öruggt hjá Fram í Eyjum Þoisteiim Gunnaisson, DV, Eyjum: Fram sigraði ÍBV örugglega í Eyj- um, 17-23. Staðan í leikhléi var 12-13. Fram tók leikinn í sínar hendur í upphafi síðari hálfleiks er þær Guðr- íður Guðjónsdóttir og Kolbrún Jó- hannsdóttir hristu af sér slenið. Stað- an breyttist úr 13-13 í 14-19 og sigur Fram var öruggur. • Mörk ÍBV: Ingibjörg 5, Sara 3, Andrea 3, Stefanía 3, Katrín 2/1, Helga 1. Þórunn og Hulda vörðu 5 skot hvor. • Mörk Fram: Guðríður 8/4, Haf- dís 5, Kristín 4, Þuríður 2/1, Berglind 2, Arna 2. Kolbrún varði 15/2 skot.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.