Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1995, Qupperneq 7
MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 1995
27
Skagatvíburarnir:
Fyrirspurnir
frá Sviss,
Frakklandi og
Þýskalandi
„Við höfum frétt af fyrirspurnum
frá Sviss, Frakklandi og Þýska-
landi. Það er bara vonandi að eitt-
hvað fari að skýrast í þessum mál-
um en ég hef samt trú á að jafnvel
ekkert gerist fyrr en eftir leikinn
gegn Tyrkjum hér heima 11. októb-
er,“ sagði Skagamaðurinn Arnar
Gunnlaugsson í samtali við DV í
gærkvöldi.
Aðspurður sagði Arnar að þeim
tvíburum htist vel á að fara til
Frakklands en maður frá franska
félaginu Sochaux fylgdist með þeim
í Evrópuleiknum gegn Raith Ro-
vers í síðustu viku. Hann hreifst
af tvíburunum og sagði að þeir
myndu eflaust styrkja það. Útsend-
ari franska liðsins setti sig í sam-
band við umboðsmann tvíburana.
Ekki hefur komið í ljós hvað hefur
komið út úr þeim viðræðum.
„Við ætlum okkar að fara hægt í
þessum málum og velja rétta kost-
inn í ró og og næði,“ sagði Arnar
Gunnlaugsson.
• Arnar Gunnlaugsson og Bjarki Gunnlaugsson eru undir smásjánni
hjá mörgum liðum í Evrópu.
2. deild karla í handknattleik:
Stórsigur HK
gegn Þórsurum
Fjórir leikir fóru fram í 2. deild
karla á íslandsmótinu í handknatt-
leik um helgina. Fylkir sigraði
Breiðablik, 24-22. Magnús Bald-
vinsson skoraði sex mörk fyrir
Fylki en hjá Breiðabhki var Er-
lendur Stefánsson markahæstur
með sex mörk.
Þór frá Akureyri kom suður og
lék tvo leiki. Þann fyrri gegn Ár-
manni sigraði Þór með yfirburð-
um, 19-32. í síðari leiknum gegn
HK mættu liðið hins vegar ofjörl-
um sínum og tapaði stórt, 31-17.
Leik BÍ og Fjölnis var frestað því
ekkert var flogið vestur í gær.
• Bernhard Langer fagnar sigri á opna Evrópumófinu í Dublin. Langer
hefur ekki púttað betur á sínum ferli en um helgina. Símamynd Reuter
Otrúleg pútt og Langer
vann glæsilegan sigur
Þýski kylfmgurinn Bernhard Lan-
ger sýndi ótrúleg tilþrif á lokaspretti
European Open stórmótinu í golfi á
írlandi um helgina. Langer púttaði
af hreinni snilld og tryggði sér ein-
vígi um sigurinn við Barry Lane með
því að setja niður 70 feta pútt á loka-
holunni.
Langer hafði áður í keppninni sett
niður 60 feta pútt og sýndi ótrúlegt
öryggi með pútterinn um helgina.
Englendingurinn Barry Lane hafði
haft forystuna á mótinu allt þar til
komið var að 72. og síðustu holunni.
Langer lék holurxa á erni, tveimur
höggum undir pari og jafnaði þar
með metin við Lane. í bráðabanan-
um hélt Langer áfram á sömu braut
og á annarri holunni setti hann niður
22 feta pútt og tryggði sér sigurinn.
Langer lék á 280 höggum, 8 höggum
undir pari vallarins. Fyrir sigurinn
fékk Langer um 12 milljónir króna í
verðlaun. Þetta var þriðji sigurinn
hjá Langer á „Evróputúrnum“ á
þessu ári.
„70 feta púttið er líklega mikilvæg-
asta pútt sem ég hef framkvæmt á
mínum ferh. Ég vissi auðvitað ekki
hvort ég gæti unnið þegar kúlan datt
niður í holuna en þetta draumapútt
lagði grunninn að þessum sæta sigri.
Það kom í ljós síðar og ég er í sjö-
unda himni með þennan sigur,"
sagði Langer sem fagnaði sigrinum
með óvenjulega miklum látum enda
maðurinn jafnan álitinn rólegur að
eðlisfari: „Fólk heldur að ég sé ekki
mjög tilfinningaríkur kylfingur en
ég er jafn spenntur og hver annar.
Kannski ekki eins spenntur og Bal-
lesteros og nokkrir aðrir en ég held
að þið getið vel séð að ég er mjög
ánægður maður í dag,“ sagöi Langer
eftir sigurinn.
Colin Montgomerie, Bretlandi, og
Bandaríkjamaðurinn Jay Townsend
urðu jafnir í 3.-4. sæti og það nægði
Montgomerie til að komast í efsta
sætið á peningalistanum í Evrópu.
Einu stórmóti er ólokið hjá at-
vinnukylfingunum. Það er Volvo
masters sem fram fer þann 29. októb-
er. Með góðri frammistöðu þar gæti
Bemhard Langer skotist í efsta sætið
á peningalistanum.
Lokastaða efstu manna á opna Evr-
ópumótinu varð þessi:
Barnhard Langer.............280
Barry Lane..................280
Colin Montgomerie...........283
JayTownsend.................283
Costantino Rocca............284
SteenTinning................285
Fabrice Tarnaud.............285
Joakim Haeggman.............286
íþróttir
RuelFoxseldur
tilTottenham
Tottenham og Newcastle kom-
ust að samkomulagi um helgina
aö Tottenham keypti Ruel Fox
fyrir fjögur hundruð milljónir
króna. Fox kom frá Norwich til
Newcastle fyrir 19 mánuðum en
náði aldrei að vinna sér fast sæti
í liðinu. „Viö höfum haft augastað
á Fox um tíma og erum ánægðir
að hafa krækt i þennan snjalla
leikmann,“ sagði Gerry Francis,
framkvæmdastjóri Tottenham.
GóðursigurDana
áSvisslendingum
áEMíhandbolta
Danska landsliöið í handknatt-
leik hóf ríðlakeppni Evrópumóts-
ins af krafti þegar liðið sigraði
Svisslendinga, 23-19, í Kaup-
mannahöfn. Þetta var fyrsti leik-
urinn í riðlinum og sýnir hann
að Danir mæta sterkir til leiks.
Nikolaj Jakobsen og Morten
Bjerre skoruðu sex hvor fyrir
Danina en hjá Sviss var stór-
skyttan Marc Baumgartner
markahæstur með sex mörk.
Amokachiallur
aðkomatil
Daniel Amokachi, sem fékk
höfuðhögg í leiknum gegn KR sl.
fimmtudagskvöld, er allur að
koma til og yfirgaf Fazakerley
sjúkrahúsið í Liverpool á laugar-
dagsmorguninn. Hann var hress
i bragði og taldi hann yrði að taka
sér frí frá æftngum og keppni
næstu tvær vikurnar meðan
hann væri aö jafna sig fullkom-
lega.
Mcanespie í
raðir Bolton
Hinn sterki bakvörður skoska
liðsins Raith Rovers, Stewe Mca-
nespie, lék sinn fyrsta leik með
Bolton gegn QPR á laugardaginn
var. Deginum áður gengu féiögin
frá kaupunum sem voru upp á
70 milljónir. Mcanespie þykir
mjög efnilegur og höfðu nokkur
liö haft hann undir smásjánni.
Hann lék með Raith Rovers gegn
Skagamönnum sl. fimmtudag.
Hermann bestur
hjá Eyjamönnum
Þorsteinn Guimaisson, DV, Eyjum:
Hermann Hreiðarsson, hinn
ungi og efnilegi vamarmaður,
var valinn leikmaður ársins á
lokahóíl ÍBV á laugardaginn var.
Heimann átti frábært sumar með
ÍBV og varð meðal annars stiga-
hæstur í boltagjöf DV ásamt 01-
afi Þórðarsyní. Tryggvi Guð-
mundsson var valinn efnilegasti
leikmaður ÍBV auk þess sem
hann fékk markakóngsbikarinn.
Þá fékk Jóhann Sveinn Sveinsson
(Sveinssonar) Fréttabikarinn
sem besti leíkmaður 2. flokks.
Sigurður bestur
áSkaganum
Daniel Ólafeson, DV, Akranesi:
Knattspymufólk á Akranesi
hélt uppskeruhátíð sína á laugar-
dagskvöldið. Siguröur Jónsson
var kosinn bestur í meistara-
flokki karla og Kári Steinn Reyn-
isson var kiörinn efnilegastur.
Mai*grét Ákadóttir var kosín best
í meistaraflokki kvenna og Ingi-
björg Ólafsdóttir efnilegust.
Ólafur Þórðarson var kjörinn
Búnaðartenkaleikinaður ársins
en það eru stuðningsaðilar sem
veita þau verðlaun,