Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1995, Page 8
28
MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 1995
íþróttir_____________________
ísland- Rúmenía
(12-11) 24-23
0-1, 1-2, 3-2, 7-3, 9-5, 9-7, 11-8,
12-9, (12-11), 12-12, 14-14, 15-16,
17-16, 18-18, 19-19, 20-21, 23-21,
23-23, 24-23.
Mörk íslands: Bjarki Sigurðsson
6, Gunnar Beinteinsson 5, Júlíus
Jónasson 4/1, Patrekur Jóhannes-
son 3, Ólafur Stefánsson 3, Geir
Sveinsson 2, Valdimar Grímsson
1/1.
Varin skot: Guðmundur Hrafn-
kelsson 11/1, Bergsveinn Berg-
sveinsson 1.
Mörk Rúmeníu: Licu 6, Voica
5/1, Popovici 5, Dedu 2, Prisacaru
2, Pop 2, Besta 1.
Varin skot: Apostu 6, Toacsen 5.
Brottvisanir: ísland 12 mínútur,
Rúmenía 6 mínútur.
Dómarar: Wille og Vorderleitn-
er frá Austurríki, ágætir.
Áhorfendur: Um 1100 manns
greiddu aðgangseyri.
Maður leiksins: Bjarki Sigurðs-
son.
Vil þakka
áhorfendum
fyrir leikinn
Róbert Róbertsson skrifer:
„Ég er nokkuð sáttur við leik-
inn. Sigur er alltaf sigur og við
fengum 2 stig í þessum leik.
Markmiðið var að vinna leikinn
með þremur mörkum en það
tókst því miður ekki. Ég held að
leikurinn hafi veriö prýðileg
skemmtun. í þessum leik var
sóknarleikurinn betri en í þeim
fyrri og það var margt jákvætt
við þetta. Ég vU sérstaklega
þakka áhorfendum sem voru
mjög góðir og studdu vel við bak-
ið á okkur. Ég er búinn að vera
með liðiö á 5-6 æfingum þannig
að það er ekki hægt að ætlast til
of mikils enn þá. En ég held að
við séum á réttri leið. Riðillinn
er galopinn enda lítið búið og það
getur allt gerst í þessu,“ sagði
Þorbjöm Jensson landshðsþjálf-
ari við DV eftir leikinn.
Skipti miklu máli
að vinna leikinn
„Við stefndum á þriggja marka
sigur en það skipti öllu máli að
vinna leikinn og það hafðist.
Rúmenar eru með mjög gott lið
og það er frábær árangur að ná
að sigra þá. Við stefnum að því
aö taka stig af Rússum í næsta
leik og það getum við ef við náum
toppleik,“ sagði Gunnar Bein-
teinsson, leikmaður íslenska liös-
ins.
Sýndum karakter
í lok leiksins
„Við sýndum mikinn karakter í
lok leiksins og náðum að tryggja
okkur sigurinn. Þaö var góð stíg-
andi í þessu, fannst mér, og við
lékum lengst af vel sóknarlega.
Vörnin var erfið og við náðum
ekki að leika hana nógu vel eftir
miðjan fyrri hálfleik. Þeir léku
alveg eins og ég átti von á en þessi
leikur var betri en leikurinn í
Rúmeníu," sagði Bjarki Sigurös-
son, leikmaður íslenska liðsins.
Þetta eru tvö
mjög góð lið
„Þetta eru tvö mjög góð lið og ég
held að jafntefli hefði verið sann-
gjörnustu úrslitin í þessum leik.
Islendingar höfðu meiri sigur-
vilja í lokin og ég vil óska þeim
til hamingju með sigurinn. Þetta
verður hörð barátta milli Rúmen-
íu og íslands um annað sætið í
riðlinum. Það eru margir erfiðir
leikir eftir og ómögulegt að spá
hvor hefur betur. Mér fannst
þessi leikur mjög góöur, sérstak-
lega sóknarlega séð, en við getum
leikið betri vörn og hefðum átt
meiri möguleika ef vömin hefði
verið sterkari hjá okkur,“ sagði
Doru Simion, aðalþjálfari rúm-
enska landsliðsins, eftir leikinn.
Sirkusmark Bjarka
gerði gæf umuninn
- ísland áfram með í baráttunni í Evrópukeppninni eftir sigur á Rúmeníu
Víðir Sigurðsson skrifar:
ísland er áfram með í baráttunni
um sæti í úrslitum Evrópukeppninn-
ar eftir frækilegan sigur á Rúmeníu
í Kaplakrika í gærkvöldi, 24-23.
Bjarki Sigurðsson skoraði sigur-
markið með sirkustilþrifum, 13 sek-
úndum fyrir leikslok, eftir aukakast
Patreks Jóhannessonar, en íslenska
liðið hafði þá misst niður tveggja
marka forskot og var einum manni
færri síðustu mínútu leiksins.
Liðin eru því jöfn að stigum eftir
innbyrðis leiki þeirra en bæði lið eiga
eftir að mæta Rússum tvívegis og
Pólverjum tvívegis. Mikið er í húfi,
tvö efstu lið riðilsins komast í úrslita-
keppnina, sem hefur mikið að segja
varðandi þátttöku á stórmótum
næstu árin.
Rúmenar standa hins vegar betur
að vígi því samanlögð úrslit innbyrð-
is leikja ráða ef liðin verða jöfn að
stigum í lokin. Því bendir allt til þess
að ísland þurfi að ná að minnsta
kosti einu stigi af Rússum, sem verð-
ur þrautin þyngri.
íslenska Uðiö náði undirtökunum
á fyrstu tíu mínútum leiksins þegar
þaö komst í 7-3. Þau náðust með
grimmum vamarleik og markvörslu
Guðmundar Hrafnkelssonar sem
varði 5 skot á þessum upphafskafla.
Grimmdin tók hins vegar sinn toll í
brottvísunum og Rúmenar minnk-
uðu muninn smám saman. Þeim
tókst þó ekki að jafna þrátt fyrir
fjölda færa til þess en staðan hélst
óbreytt, 12-11, síðustu 8 mínútur
fyrri hálfleiksins.
Síðari hálfleikurinn var gífurlega
spennandi. Rúmenar jöfnuðu strax,
12-12, og eftir þaö var jafnt á öllum
tölum, allt til leiksloka. ísland komst
yfirleitt yfir, en þó leit ekki vel út
þegar staðan var 20-21, Rúmenum í
hag, og talsvert var farið að gæta
mistaka i leik íslenska liðsins, bæði
í sókn og vörn. En þrjú mörk í röð
sneru leiknum íslandi í hag, og síðan
kom hinn æsispennandi lokakafli.
Baráttan og leikgleðin voru svo
sannarlega til staðar hjá íslenska lið-
inu og Þorbimi Jenssyni hefur
greinilega tekist að byggja þá þætti
upp eftir ófarimar á HM. Vömin er
spiluð framar en áður, sem hefur
sína kosti og galla, en það gefur fleiri
möguleika á hraðaupphlaupum en
áður.
Ánægjulegast var að sjá til homa-
mannanna, Bjarki Sigurðsson var
kannski hlekkurinn sem vantaði í
fyrri leiknum í Rúmeníu, og Gunnar
Beinteinsson hefur greinilega öölast
nýtt líf með landsliðinu. Markvarsla
Guðmundar í fyrri hálfleiknum var
geysilega mikilvæg, en hins vegar
vörðu íslensku markverðirnir aðeins
tvö skot í seinni hálfleik. Það kom
þó ekki að sök, góö vörn sá til þess
að rúmensku mörkin urðu samt ekki
nema 12 í hálfleiknum.
Skyttumar Licu og Voica voru í
aðalhlutverkum hjá Rúmenum, af
Licu mátti ekki líta, þá var hann
búinn að skora. Leikurinn í gær-
kvöldi og úrslit leikjanna tveggja
sýna að þessar þjóðir eru afar svipað-
ar að styrkleika og nú skiptir
frammistaða þeirra gegn hinum lið-
unum öllu máli.
Bjarki bættistvið
Einn leikmaður bættist í ís-
lenska landsliðshópinn frá því í
fyrri leik liðanna í Rúmeníu,
Bjarki Sigurðsson.
Sá fyrsti á heimavelli
Leikurinn í gærkvöld var fyrsti
leikur Þorbjarnar Jenssonar
landsliðsþjálfara með íslenska
liðið á heimavelli.
Ekkifultthús
Það var ekki fullt hús í Kapla-
krika í gærkvöld þótt það væri
sæmilega þétt setið. Það kom á
óvart þegar um svona mikilvæg-
an leik var að ræða. Laugardals-
höllin var upptekin vegna tölvu-
sýningar.
Engar skiptingar
Varamannabekkur íslenska
landsliðsins hefur í gegnum árin
oft á tíðum verið með miklar
innáskiptingar og því var óvenju-
legt að sjá að í gær var ekkert
skipt inn á, hvorki í vörn né sókn,
fyrr en eftir 20 mínútna leik. Þá
kom Jón Kristjánsson inn á og
var umsvifalaust rekinn út af!
Peysan í tætlur
Júlíus Jónasson tók heldur
harkalega á rúmenska línu-
manninum Alexandru Dedu í
fyrri hálfleiknum, reif bókstaf-
lega utan af honum treyjuna svo
Dedu stóð eftir ber að ofan. Júlíus
var að sjálfsögðu rekinn af velli,
enda sekt hans öUum ljós. Dedu
• fór út af en kom inn á skömmu
síðar í samanlímdri treyjunni.
Filippovmeðll
Dmitri Filippov, hinn snjalli
leikmaður Stjörnunnar, skoraði
11 mörk á miðvikudaginn þegar
Rússar unnu Pólverja, 33-23, í
fyrstu umferð riðilsins á mið-
vikudaginn. Liðin mættust aftur
í Póllandi í gærkvöld en úrslit
höfðu ekki borist þegar blaðið fór
í prentun.
Allirnotaðir
Allir 12 leikmenn íslenska liðs-
ins voru notaðir í gærkvöld.
.Valdimar Grímsson kom síðastur
inn á, þegar 8 mínútur voru eftir,
til að taka vítakast. Hann jafnaði
þá, 21-21.
• Geir Sveinsson í kröppum dansi á línunni gegn Rúmenum i Kaplakrika i gærkvöldi. Rúmenar höfðu góðar gætur
á honum en Geir náði samt að skora tvö mörk. DV-mynd ÞÖK
i
f
/