Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1995, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1995, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1995 25 Iþróttir rkahæstur Haukamanna og skoraði 6 mörk. DV-mynd Brynjar Gauti jarnt afnarfírði vörður deildarinnar. Petr Baumruk ir skilaði einnig sínu í vörn og sókn. Eftir að hafa unnið fyrstu þrjá leiki fi sína á mótinu hafa Stjörnumenn tapað í tveimur leikjum í röð. Varnarleikur if Hðsins var slakur og sóknarleikurinn ig á köflum stiröur. Sigurður Bjarnason i- komst einna best frá leik Stjörnunnar í en var þó fullskotglaður undir lokin. Ingvar Ragnarsson stóð sig vel í mark- n inu í síðari hálfleik en þeir Dmitri g Fihppov 'og Magnús Sigurðsson náðu sér ekki á strik og munar um minna. i sviðum vörnin var sérstaklega sterk. Leikurinn var ekki mjög spennandi því FH-ingar sýndu strax yfirburði sína og höfðu ör- uggt forskot allan leikinn. Lið FH lék vel í heildina og fáir sköruðu fram úr. í liði Selfoss var Valdimar Grímsson einn fárra sem börðust allan leikinn. HaukaiStjavnan (16-15) 27-25 0-1, 4-3, 8-5, 9-9, 12-10, 13-13 (16-15), 18-15, 19-18, 24-19, 27-22, 27-25. Mörk Hauka: Aron Kristjánsson 6, Halldór Ingólfsson 5, Petr Baumruk 5, Björgvin Þorgeirsson 3, Gunnar Gunnarsson 3/2, Þorkell Magnússon 2, Jón Freyr Egilsson 2, Oskar Sigurðsson 1. Varin skot: Bjarni Frostason 18. Mörk Stjörnunnar: Dmítri Filippov 9/6, Sigurður Bjamason 5, Gylfl Birgisson 4, Jón Þórðarson 2, Konráð Oiavsson 2, Magnús Magnússon 2, Magnús Sigurðsson Varin skot: Ingvar Ragnarsson 18/2 Dómarar:Gunnar Viðarsson og Sigurgeir Sveinsson. Sluppu þokkalega frá leiknum en þó hall- aöi dómgæsla þeirra heldur á gest- ina. Áhorfendur: Um 600. Maður leiksins: Bjami Frostason, Haukum. Staðan í Nissandeildinni i handknattleik eftir leikina í gær- kvöldi: KA...........5 5 0 0 152-130 10 FH...........5 3 1 1 143-119 7 Valur........5 3 1 1 116-106 7 Haukar......5 3 11 117-114 7 Stjarnan.....5 3 0 2 127-121 6 ÍR...........5 2 1 2 103-110 5 Grótta.......5 2 0 3 113-114 4 ÍBV..........5 2 0 3 110-111 4 Selfoss......5 2 0 3 126-131 4 Aftureld....,5 2 Ö 3 124-132 4 Víkingur 5 10 4 110-115 2 KR.......-...5 0 0 5 115-153 0 Duranona allt íöllu hjáKA - skoraði 12 glæsileg mörk er KA vann ÍR, 23-28 Þórður Gíslason skrifar: „KA er með þannig lið að ef menn gera mistök, eins og við vorum að gera, er þeim refsað harkalega. Ann- ars voru í þessu góðir kaflar og við erum á réttri leið,“ sagði Eyjólfur Bragason, þjálfari ÍR, eftir tap ÍR- inga geng toppliði KA, 23-28, í Selja- skóla í gærkvöldi. KA-menn hafa fullt hús stiga og styrktu stöðu sína því Stjarnan tapaði fyrir Haukum. ÍR-ingar hófu leikinn af miklum krafti og gerðu þrjú fyrstu mörk leiksins. í stöðunni 4-1 var eins og KA-menn vöknuðu af værum svefni og í hönd fór fimmtán mínútna frá- bær leikkafli, þar sem Patrekur fór fyrir norðanmönnum, og tíu KA- mörk gegn tveimur ÍR-inga breyttu stööunni í 6-11. En ÍR-ingar náðu að rífa sig upp og með góðum varnar- leik í upphafi síðari hálfleiks náðu þeir að minnka muninn niður í eitt mark. Á þessum kafla og fram að síð- ustu tíu mínútunum voru ÍR-ingar miklir klaufar. Þeir voru að spila vel í vöminni og unnu boltann hvað eftir annað en fóru ákaflega illa að ráði sínu í sókninni. Þama höfðu þeir alla burði til að komast yfir því KA-menn voru ekki að leika neitt sérstaklega vel. En þegar tíu mínútur voru til leiksloka höfðu KA-menn tveggja marka for- skot, þá leiddist Duranona þófið og tók leikinn í sínar stóm hendur. Fyrst gerði Patrekur mark, 21-24, og í kjöl- farið fylgdu fjögur mörk frá Kúbverj- anum. ÍR lék góðan varnarieik og var Magnús góður í markinu. Daði gerði falleg mörk í sókninni en var þó nokk- uö mistækur í skotum sínum, en greinilegt er að þama er mjög efnileg skytta á ferð. Hjá KA var Patrekur bestur, hann tók af skarið þegar illa gekk og gerði falleg mörk á mikilvæg- um augnablikum. Duranona átti eins og áður er sagt síðustu mínútur leiks- ins og sýndi einnig mikið öryggi í víta- köstunum. Guðmundur átti einnig góðan leik í markinu. „Þetta var erfiður leikur allan tím- ann, við spiluðu vel á köflum en illa þar á milli. ÍR-ingar eru seigir, þeir spiluðu góða vöm og markvarslan var einnig góð,“ sagði Alfreð Gíslason, þjálfari KA. (11-15)23-28 3-0, 4-1, 4-6, 6-8, 6-11 (11-15), 14-18, 17-18, 21-23, 21-27, 23-28. • MörkÍR: Daði Hafþórsson 9/5, Jóhann Ásgeirsson 3, Njörður Árnason 3, Magnús Már Þórðar- son 2, Ólafur Siguriónsson 2, Frosti Guölaugsson 2, Guðfinnur Krist- mannsson 1, Ragnar Óskarsson 1. Varin skot: Magnús Sigmundsson 16. • Mörk KA: Julian Duranona 12/6, Patrekur Jóhannesson 8, Jó- hann Jóhannsson 3, Björgvin Björgvinsson 2, Heimir Haralds- son 1, Erlingur Kristjánsson 1, Leó Örn Þorleifsson 1. Varin skot: Guðmundur A. Jóns- son 16. Brottvísanir: ÍR 6 mín., KA 8 mín, Dómarar: Gísli H. Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson, ágætir, Áhorfendur: 459. Maðttr leiksins: Patrekur Jó- hannesson, KA. „Góður skóli fyrir strákana“ - sagði Þorbergur Aðalsteinsson eftir sigur Eyjamanna á Víkingum Róbert Róbertsson skriiar: „Þetta er ungt og mjög efnilegt lið hjá okkur og það eru 10 af 16 manna hópnum sem enn leika með 2. flokki. Þetta er góður skóli fyrir þessa stráka og þessi sigur veitir þeim mik- ið sjálfstraust fyrir næstu leiki,“ sagði Þorbergur Aðalsteinsson, þjálf- ari Vestmannaeyinga, eftir að þeir höfðu unnið sanngjarnan sigur á Víkingum, 18-21, í Víkinni í gær- kvöldi. Það var fyrst og fremst sterkur varnarleikur Eyjamanna og snilldar- markvarsla Sigmars Þrastar Óskars- son sem skóp sigur þeirra. Víkingar áttu,í miklum vandræðum í sóknar- leik sínum og flestar sóknir þeirra enduðu á stórum og sterkum varn- armúr Eyjamanna eða Sigmari Þresti í markinu. Eyjamenn voru mun betri í fyrri hálfleik og leiddu 7-12 í leikhléi. Víkingar börðust betur í síðari hálfleiknum og náðu að þétta vörn sína auk þess sem Reynir Reynisson fór í gang í markinu. Víkingar minnkuðu muninn í 2 mörk undir lokin en Eyjamenn áttu síðasta orðið og Gunnar Berg Viktorsson innsigl- aði sigur þeirra með marki úr víta- kasti. Sigmar Þröstur og Arnar Péturs- son voru bestir í hinu unga liði Eyja- manna sem gæti vel komið verulega á óvart í vetur. Reynir var bestur hjá Víkingum og Knútur Sigurðsson sýndi mikið öryggi í vítaköstunum. Víkingar eiga greinilega erfiðan vetur fram undan ef miða má við þennan leik enda lið- ið mikiö breytt frá því á síðasta keppnistimabili. Gróttuliðið er sýnd veiði en ekki gefin Halldór Halldórsson skrifar: „Þeir spiluðu mjög skynsamlega og héngu á boltanum og svæfðu vörnina hjá okkur. Ég er ánægður með stigin tvö en við fengum alltof mörg mörk á okkur. Sóknarleikurinn small ekki nægilega vel saman," sagði Bjarki Sigurðsson, leikmaður Afturelding- ar, eftir sigur Mosfellinga gegn Gróttu í Mosfellsbæ í gærkvöldi, 26-24. ' „Það er margt sem þarf að laga hjá okkur en þetta er samt allt á upp- leið,“ sagði Bjarki enn fremur. Leikurinn var nokkuð jafn þangað til sex mínútur voru til leiksloka. Þá missti Grótta tökin á leiknum. „Við töpuðum þessum leik á bölv- uðum klaufaskap. Við létum þá fiska af okkur boltann í sex eða sjö skipti og í öllum tilfellunum fengum við mark á okkur,“ sagði Ólafur Sveins- son, leikmaður Gróttu, eftir leikinn. „Við náðum að halda þeim vel niðri með góðum varnarleik en heppnin var með þeim í lokabaráttunni," sagði Ólafur enn fremur. Hjá Aftureldingu var Bjarki Sig- urðsson bestur ásamt Bergsveini Bergsveinssyni í markinu. Gunnar Andrésson meiddist illa undir lok leiksins, tognaði á ökkla og missir jafnvel af næstu leikjum. Hjá Gróttu var Sigtryggur Alberts- son mjög góður í markinu og einnig átti Júrí Sadovski mjög góðan leik. Yfirburðir hjá Val gegn KR Björn Leósson skrifar: ekki með, en hann er meiddur. náði Guðmundur Albertsson aö Valsmenn voru ekki i vandræð- Bitnaði það greinilega á leik Iiðs- sýna gamla takta. um með að leggja slaka KR-inga aö ins, en sóknarleikurinn var mjög Hjá Val var Jón Kristjánsson velliiNissan-deildinniíhandknatt- stirður og fátt gekk upp'gegn mjög sterkur, en var talsvert út af leikáHhðarendaígærkvöld, 30-23. sterkri vörn Valsmanna. Þaö er ems og aðrir lykilmenn. Ólafur Dagur Sigurðsson lék ekki með greinilegt að langur vetur er fram Stefánsson var mjpg sterkur þær Valsmönnum í þessum leik en undan hjá þeim röndóttu, Björgvin mínútur sem hann lék og Sigfús hann er óðum að ná sér af meiðsl- Barödal var sterkur á línunni Sigurðsson var góður á línunni. um. Hjá KR-ingum var skarð fyrir framan af en Valsmenn náön síðan skildi að Hilmar Þórlindsson lék að hemja hann. í síðari hálfleik

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.