Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1995, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1995, Blaðsíða 1
6. NÓVEMBER. 1995 IÞROTTIR Getraunir: Enski boltinn: 11x-22x-11x-1112 ítalski boltlnn: txx-121-x21-11x2 Lottó 5/38: 1 314 21 29 (16) ifliiiiiiiiiifiiiiiiiiiiiUtiiiiiíii Cogicí Fylki Bosníumaðurinn Enes Cogic er genginn í raðir Fylkis og mun leika með Árbæjarliðinu í 1. deildinni í knattspymu á næsta keppnistíma bili. Cogic er sterkur vamarmaður sem leikið hefur með ÍR-ingum síð- ustu tvö árin en þar á undan lék hann eitt tímabil með Haukum. Cogic er ætlað að fylla skarð Guð mundar Torfasonar sem lék sem afl- asti vamarmaöur með liðinu i sum- ar. Þetta em einu breytingamar sem hafa átt sér stað á leikmannahópi Fylkis. Grindavík og ÍBV á eftir Þórhalli Eins og kom fram í DV í síðustu viku er Þórhallur Dan Jóhannsson með tilboð frá norska 2. deildar liðinu Stryn og í samtali við DV i gær sagð- ist Þórhallur ekki hafa tekið ákvörð- un hvort hann færi til Noregs. Þór- hallur hefur ekki skrifað undir samning við Árbæjarliöið og sam kvæmt heimildum DV hafa Grinda- vik og ÍBV áhuga á að fá hann í sín- ar raðir. GH Mourning til Miami Bandaríska körfuknattleiksliðið Miami Heat gekk á fostudagskvöldið frá kaupum á hinum snjalla fram- herja frá Charlotte, Alonzo Mouming. Félögin skiptu á þremur leikmönnum, auk Moumings fóm bakvöröurinn Pete Myers og miðherjinn LeRon Ellis til Miami, en Charlotte fékk í staöinn bakvörðinn Glen Rice, miðherjann Matt Geiger og bakvörðinn Khalid Reeves. Mouming skrifaði undir fjögurra ára samning við Miami og talið er að hann sé 2,8 milljarða króna virði. Hann lenti i launadeilum við stjóm Charlotte sem neitaði að greiða hon- um 845 miUjónir króna á ári í fjögur ár. Mouming hefur tvivegis verið valinn í stjömuleik NBA-deildarinnar og skoraði 30 sinnum 30 stig eöa meira fyrir Charlotte síðasta vetur. Mouming lék sinn fyrsta leik með Miami í fyrrinótt og liðið vann ömgg - an sigur á Cleveland. FjaHað er um NBA-deildina á bls. 28. Shearer til Newcastle? Ensk blöð skýrðu frá því í gær að Kevin Keegan, fram-kvæmda- sfjóri enska knattspymufélagsins Newcastle, hygðist bjóða Black- bum einn milijarð króna í enska landsliösmið herjann Alan Shearer. Newcastle er komið með ftmm stiga forystu í úrvalsdeildinni en Keegan virðist ekki ætla að láta þar viö sitja og framlína liðsins yrði orðin ógnvænleg með bæði Shearer og Les Ferdinand, sem hefur gert 17 mörk á tímabilinu. Þá er reiknað með því að Middlesborough reyni að fá til sin hinn sóknarmann Blackbum.Chris Sutton. Gunnar þjálfar Hácken - fyrsta verkefnið að finna íslenskan leikmann fyrir liðið Gunnar Gíslason Fréttaritari:Eyjólfur Harðarson, DV, Svíþjóð: Gunnar Gíslason, fyrrum landsliðsmaöur í knattspymu, hefur verið ráðinn aðstoðar- þjálfari hjá sænska 1. deildar liðinu Hacken. í samtali við DV í gær sagði Áke Nilsson, framkvæmdastjóri Hácken, að innan 14 daga yrði ákveðið hvort ráðinn yrði aðalþjálfari hjá félag inu en ef ekki þá yrði Gunnar einn við stjómvölinn. Pyrsta verkefni Gunnars er að fara til Ungverjalands og fylgjast með leikjum íslendinga og Ungverja í Evrópukeppni landsliða, u-21 árs leiknum og A-leiknum. „Við viljum endi- ega fá íslenska leikmenn í okkar raðir því við náum engum árangri ef við höfðum ekki íslending í liðinu,“ sagði Nilsson við DV. Gunnar er ekki ókunnugur félaginu því hann lék með liðinu í samtals fjögur ár. Fyrst árin 1989-1991 og síðan 1993 en á milli köm hann heim til íslands og þjálfaði og lék með KA. Síðustu tvö árin hefur Gunnar verið aðstoðar- þjálfari hjá sænska 3. deildar liðinu Lerum jafnframt því sem hann hefur leikið með liðinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.