Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1995, Síða 7
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1995
27
Úrvalsdeildin í körfubolta:
Þetta er allt
að smella
hjá okkur
- sagði Guðjón Skúlason eftir sigur Keflavíkur á KR
Bjöm Leósson skriíar:
„Þetta hefur verið erfið törn að
undanfórnu, 4 leikir á 8 dögum og
þessi leikur var aUs ekki léttur. Þeir
voru aldrei langt undan, en sigur
okkar var þó aldrei í hættu. Sóknin
var ekki nógu góð hjá okkur, en við
bættum það upp með góðri vörn þar
sem þeir skoruðu aðeins 32 stig á
okkur í fyrri hálfleik,“ sagði Guöjón
Skúlason Keflvíkingur, eftir öruggan
73-88 sigur á Nesinu.
Heimamenn náðu sér aldrei al-
mennilega á strik að þessu sinni.
Aðeins þeir Bow og Herman voru
sjálfum sér líkir, en villuvandræði
settu verulega strik í reikninginn hjá
liðinu. fngvar Ormarsson komst til
dæmis aldrei inn í leikinn, en hann
var í villuvandræðum frá fyrstu mín-
útum. Baráttan var í lagi í vörninni,
en í sókninni gekk erfiðlega að kom-
ast í gegnum svæðisvörn gestanna.
Sterk vörn hjá Keflavík
Keflvíkingar léku vörnina mjög vel
og ófáa boltana hirtu þeir af heima-
mörmurn. Burns og Guðjón voru góð-
ir í sókninni og Gunnar Einarsson
kom sterkur inn undir lokin. Falur
stjómaði sókninni vel, en Jón Kr.
hefur flutt sig yflr í stöðu framherja.
Sóknin hefur oft gengið betur og
hittnin var slök eins og hjá KR-
ingum. Reyndar virðast flest liðin í
deildinni eiga nokkuð langt í land að
ná jafn góðum leikjum og t.d. í fyrra
og gæti skýringin verið sú að upp til
hópa séu leikmenn séu yfirleitt ekki
komnir í sitt besta form.
„ Já, liðin virðast almennt ekki vera
komin á fulla ferð. En þetta er allt
að smella saman hjá okkur. Næstu
leikir verða erfiðir, gegn Haukum,
Njarðvík, ÍR og Tindastóli, en barátt-
an í riðlinum okkar er mjög hörð.
Við erum með breiðan og góðan hóp
og ætlum okkur alla leið,“ sagði Guð-
jón Skúlason Keflvíkingur.
Ekki búiðaðfinna
eftirmann Axels
KR-liðið lék undir stjórn Kristins
Vilbergssonar, framkvæmdastjóra
körfuknattleiksdeildar KR, í þessum
leik, eins og gegn Tindastóli á
fimmtudag. Ekki hefur enn verið
fundinn eftirmaður Axels Nikulás-
sonar, sem hætti með liðið í síðustu
viku. Að sögn Sófusar Guðjónssonar,
formanns deildarinnar, munu þau
mál skýrast 'fiótlega í vikunni.
KR-Keflavík
(32-42) 73-88
3-2, 11-9, 16-22, 22-26, 22-36,
32-42. 40-53, 52-59, 58-70, 68-80,
73-88.
Stig KR: Jonathan Bow 28, Her-
mann Hauksson 24, Óskar Kristj-
ánsson 8, Ósvaldur Knudsen 6,
Lárus Árnason 4 og Arnar Sig-
urðsson 3.
Stig Keflavíkur: Lenear Burns
28, Guðjón Skúlason 24, Falur
Harðarson 12, Albert Óskarsson
8, Gunnar Einarsson 7, Sigurður
Ingimundarson 6 og Jón Kr. Gísla-
son 1.
Fráköst: KR 27 (Bow 19, Ósvald-
ur 10), Keflavík 33 (Bums 15).
3ja stiga körfur: KR 4, Keflavík
5. -
Stoðsendingar: KR: Lárus 13,
Keflavík: Falur 7.
Dómarar: Kristinn Albertsson
og Jón Bender: Mjög smámuna-
samir og kom það niður ó leiknum.
Áhorfendur: Um 250.
Maður leiksins: Lenear Burns,
Keflavik.
Staðan
A-riðill:
Keflavík....11 9 2 1045-883 18
Haukar.......11 9 2 942-789 18
Tindastóll... 1-1 8 3 856-826 16
Njarövík.....11 8 3 986-867 16
ÍR...........11 6 5 916-875 12
Breiðablik... 11 2 9 860-1042 4
B-riðill:
Grindavik... 11 7 4 1027-872 14
KR...........11 6 5 935-933 12
Skallagr.....11 5 6 846-876 10
Þór A........11 4 7 919-912 8
Akranes......11 2 9 874-992 4
Valur........11 0 11 725-1064 0
Stigahæstir:
Milton Bell, Akranesi....;...281
JonathanBow.KR...............268
Michael Thoele, Breiðabliki..267
Torrey John, Tindastóli......264
Teitur Öriygsson, Njarðvík....... 250
Fred Wilbams, Þór.......... 248
Herbert Araarsson, ÍR........235
fþróttir
Kristinn Vilbergsson stjórnar KR-ingum á meðan ekki hefur fundist arftaki
Axels Nikulássonar. Kristinn hefur ástæðu til að vera áhyggjufullur.
DV-mynd ÞÖK
StaðaÍA
orðin slæm
Daníel Ólafsson, DV, Akranesi:
Það var mikið skorað á Skagan-
um í gærkvöldi og enn einu sinni
urðu heimamenn að játa sig sigr-
aða í úrvalsdeildinni. Nú voru
það Njarðvíkingar sem unnu
auðveldan sigur á Skagamönn-
um, 117-91.
Njarðvíkingar náðu strax góðu
forskoti en góður kafli heima-
manna í fyrri hálfleik varð þess
valdandi að munurinn var lítill í
hálfleik. í síðari hálfleik yfirspil-
uðu Njarðvíkingar Skagamenn
hins vegar algerlega.
Staðan Skagamanna er orðin allt
annað en glæsileg og þeir verða að
taka sig verulega á ef þeir ætla að
halda sæti sínu f deildinni.
Bestir í liði Skagamanna voru
þeir Milton Bell, Elvar Þórólfsson
og Haraldur Leifsson, og hjá
Njarðvíkingum voru þeir Teitur
Örlygsson, Rondey Robinson og
Kristinn Einarsson bestir.
Akmnes - Njarðvík
(42-50) 91-117
7-10, 11-22, 21-31, 34-44, (42-50),
48-63, 67-82, 72-92, 91-117.
Stig ÍA: Milton Bell 31, Elvar
Þórólfsson 17, Haraldur Leifsson
16, Jón Þ. Þórðarson 10, Bjarni
Magnússon 8, Dagur Þórisson 7,
Guðmundur Sigurjónsson 2.
Stig Njarðvíkur: Teitur Örlygs-
son 30, Rondey Robinson 21, Krist-
inn Einarsson 20, Friörik Ragnars-
son 16, Jón Júlíus Ámason 9, Jó-
hannes Kristbjömsson 8, Rúnar
Árnason 7, Páll Kristinsson 6.
Fráköst: 3ja stiga körfur: IA 7,
Njarövík 7.
Dómarar: Georg Andrésson og
Bergur Steingrímsson, dæmdu vel.
Áhorfendur: Um 200.
Maðurleiksins: Milton Bell, ÍA.
Bragi fór
ákostum
Einar Páisson, DV, Borgamesi:
„Þetta var mikilvægur sigur
eftir frekar slakt gengi upp á síðk-
astiö. Þetta gekk upp frá fyrstu
mínútu. Ég vona aö við séum
komnir á rétta braut,“ sagði Tóm-
as Holton, þjálfhri Skallagríms,
eftir leikinn. -
Leikurinn var ójafn strax frá
fýrstu mínútu og fijótlega dró í
sundur með liðunum. Það var
ljóst eftir upphafsmínúturnar i
hvaö stefhdi. Heimamenn tóku
öll völd á vellinum og voru búnir
að gera út um leikinn í leikhléi.
Bragi Magnússon fór á kostum
í liði Skallagrims. Þá var Sigmar
Egilsson sterkur en Borgnesingar
gátu leyft sér þann munað að
hvíla Ermolinskij mestallan síð-
ari háliMkinn.
í liði Blika var Halldór Krist-
mannsson einna bestur.
Skallagr - Breiðabl
(49-23) 96-67
10-7, 22-13, 34-18, (49-23), 58-28,
67-36, 78-56, 85-60, 96-67.
Stig Skallagríms: Bragi Magn-
ússon 40, Ermolinskij 12, Grétar
Guölaugsson 11, Sigmar Egilsson
10, Gunnar Þorsteinsson 6, Ari
Gunnarsson 5, Tómas Holton 5,
Sveinbjörn Sigurðsson 3, Guðjón
Þórisson 2, Andri Theodórsson 2.
Stig Breiðabliks: Michael Tho-
ele 27, Halldór Kristmannsson 17,
Daði Sigurþórsson 6, Erlingur Erl-
ingsson. 5, Birkir Mikaelsson 5,
Agnar Ólsen 4, Einar Hermanns-
son 2, Finnur Sigurðsson 1.
Fráköst: Skailagrímur 41,
Breiðab 38.
3ja stiga körfur: Skallagr 8,
Breiðabi 6.
Dómarar: Rögnvaldur Hreið-
arss. og Einar Einarsson.
Áhorfendur: 369.
Maður leiksins: Bragi Magnús-
son, SkaUagrími.
ÍR-ingarréðu
ekkiviðBirgi
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þegar stjömurnar eiga ekki
góðan leik verður einhver að taka
af skarið. Mér gekk mjög vel og
ég er ánægður með að nú náðum
við að hefja leikinn vel en sátum
ekki eftir eins og svo oft áður,“
sagði Birgir Birgisson, hetja Þórs-
ara þegar þeir unnu ÍR-inga, 86-75.
Birgir er yfirleitt ekki með
stigahæstu mönnum í liði Þórs
en hins vegar ákaflega mikilvæg-
ur liðinu fyrir baráttu sína, góöan
varnarleik og fráköst.
Leikurinn var jafn allan tím-
ann, byrjunin mjög góð og fjörug
hjá báðúm liðum og Herbert hélt
ÍR-ingum inni í leiknum með frá-
bærri hittni í fyrri hálfleik. í síð-
ari hálfleik var það barátta og
aftur barátta sem fram fór á vell-
inum en minna um falleg tilþrif.
Hefði Herbert ekki veriö jafn
„heitur" framan af og raun var á
hefði ÍR fengið skell: Sem fyrr
sagði var Birgir langbestur Þórs-
ara og Kristinn átti ágæta spretti.
Þór-ÍR
(42-37)80-75
4—4, 16-6, 27-25, 33-25, 33-34,
(42-37), 46- 50, 52-50, 57-58, 65-70,
84-70, 78-75, 80-75.
Stig Þórs: Birgir Birgisson 23,
Kristinn Friðriksson 20, Fred Will-
iams 14, Konráð Óskarsson 9,
Kristján Guðlaugsson 9, Hafsteinn
Lúðvíksson 3, Stefán Hreinsson 2.
Stig ÍR: Herbert Arnarson 31,
Rodes 12, Eiríkur Önundars. 10,
Jón Öra Guðmundss. 7, Guðni Ein-
arsson 6, Márus Amarson 4, Broddi
Sigurðsson 3, Eggert Garðarsson 2.
Þriggja stiga körfur: Þór 7, ÍR 5.
Fráköst: Þór 34, ÍR 38.
Dómarar: Leifur Garðarsson og
Helgi Bragason, mjög góðir.
Áhorfendur: Um 200.
Maður ieiksins: Birgir Birgis-
son, Þór.
Sigfúsátti
stórleik
Ingibjörg Hiniiksdóttir skiiíar:
Sigfús Gissurarson átti stórleik
þegar Haukar lögðu Valsmenn aö
Hlíðarenda í gær, 75-94. Með sigr-
inum halda Haukar stöðu sinni á
toppi A-riðils ásamt Keflavík.
Valsmenn teíldu fram nýjum
bandarískum leikstjómanda í
gær, Ronald Bayleis. „Mér líst
bara vel á strákinn. Þaö munaði
mikið um það að Ragnar Jónsson
lék ekki með og það verður gott
að fá hann aftur inn í leikinn.
Hins vegar verðum við að spiia
af meiri skynsemi heldur en við
gerðum í seinni hálfleik. Ronald
virðist vera mjög góöur, hann er
góður leikstjómandi, fer vel með
boltann, á góðar sendingar og
getur skorað þegar á því þarf aö
halda,“ sagði Torfi Magnússon,
þjálfari Vals.
Valur - Haukar
(37-41) 75-94
6-5, 5-11, 17-18, 19-26, 32-33,
(37-41), 37-47, 45-47, 48-57, 54-70,
60-81, 63-86, 75-94.
Stig Vals: Ronald Bayleis 27,
Bergur Emilsson 13, Bjarki Gú-
stafsson 12, Bjarki Guðmundsson
10, Ivar Webster 7, Sveinn Zóega 4
og Guðmundur Guðjónsson 2
Stig Hauka: Sigfús Gissurarson
28, Jason Willford 23, Sigurður
Jónsson 9, Pétur Ingvarsson 8, ívar
Ásgrimsson 8, Þór Hermannsson
7, Jón Amar Ingvarsson 6, Guðni
Hafsteinsson 3 og Björgvin Jóns-
son 2.
Fráköst: Valur 31, Haúkar 24
3ja stiga körfur: Valur 8/22,
Haukar 9/18
Vítanýting: Valur 14/16, Haukar
9/17
Dómarar: Kristján Möller og
Þorgeir Jón Júlíusson, þokkalegir.
Áhorfendur: 175
Maður leiksins: Sigfús Giss-
urarson' Haukum
Hefekkiséð
þaðsvartara
Ægir Mar Karason, DV, Suöumesjum::
„Það gekk nánast allt upp hjá
okkur og áttum við stórgóða kafla
í leiknum þar sem gestirnir sáu
ekki til sólar,“ Saagði Friörik
Rúnarsson, þjálfari Grindvík-
inga, eftir stórsigur á spútnikliði
Tindastóls, 97-68.
Það voru flestir sem bjuggust
við hörkuleik en annað kom á
daginn. Grindvíkingar tóku fljót-
lega öll völd og voru búnir að
gera út um leikinn í fyrri hálf-
leik. Stólarnir virkuðu mjög
þreyttir og þungir en heimamenn
léku vel og eru í uppsveiflu.
„Ég hef ekki séð það svartara í
þau 2 ár sem ég hef verið með
liðið. Þetta var lélegasti leikur
okkar og stærsta tapiö. Það gekk
ekkert upp hjá okkur,“ sagði Páll
Kolbeinsson, þjálfari Tindastóls.
Liðsheild Grindvíkinga skóp
sigurinn en hjá Tindastóli var
Torrey allt í öllu.
Grindavík - Tindastóll
(47-31) 97-68
2-4, 9-9, 15-9, 30-18, 30-23, 43-23,
(47-31), 67-37, 83-52, 90-55, 97-68.
Stig Grindavíkur: Herman My-
ers 24, Helgi Guðfmnsson 15, Guö-
mundur Bragason 13, Hjörtur
Harðarson 13, Marel Guðlaugsson
9, Unndór Sigurðsson 8, Páll Vil-
bergsson 6, Ingi K. Ingólfsson 6,
Sigurbjörn Einarsson 3.
Stig Tindastóls: John Torrey 34,
Arnar Kárason 9, Lárus D. Pálsson
8, Pétur Guðmundsson 7, Hinrik
Gunnarsson 6, Baldur Einarsson
3, Ómar Sigmarsson 2.
Fráköst: Grindavík 34, Tinda-
stóll 29.
3ja stiga körfur: Grindavík 10,
Tindastóll 5.
Dómarar: Kristinn Óskarsson
og Björgvin Rúnarsson, góðir.
Áhorfendur: 420.
Maður leiksins: Herman Myers,
Grindavik.