Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1995, Page 4
20
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995
Mariah Carey — Daydream
Stöðnuð
Ég neita að trúa því að Mariah Carey sé stöðnuð fyrir lífstíð. Til þess
er hún ailt of ung. Formúlan sem hún datt niður á fyrir tveimur eða
þremur plötum er hins vegar orðin nokkuð slitin og mætti söngkonan
gjarnan fara að sýna dálitla ævintýralöngun, til dæmis með því að skipta
um samstarfsmenn og sjá hvort sköpunin tekur ekki óvænta og ferska
stefnu.
Það er svo sem ekki margt upp á plötuna Daydream að klaga nema
helst það að manni fmnst allt hljóma eins og maður hafi heyrt það áður;
rafmagnstrommusláttur, tölvubassi, gervistrengir. Helst að bregði fyrir
lifandi gítar en þá er farið afar sparlega með hann. Mariah Carey er
óumdeilanlega þokkalegasti lagasmiður en þegar þeim er pakkað í sömu
umbúðimar aftur og aftur hætta þau að njóta sín. Meira að segja lagið
Open Arms, sem hún fékk lánað frá hljómsveitinni Journey, fellur í
heildina eins og flís við rass þegar búið er að fremja það á tölvutromm-
ur, tölvubassa og fleiri tölvur.
Frú Carey sagði i nýlegu viðtali að henni væri sífellt að aukast sjálf-
straust í lífinu og langaði til að hafa meiri afskipti af hijóðversvinnu.
laga sinna en hingað til. Vonandi tekst henni að hrista svo upp i sjálffi
sér fyrir næstu plötu aö hún hljómi ekki nákvæmlega eins og þær næstu
á undan.
Ásgeir Tómasson
itri* 3
1 Sónata — Hugarflugur
irki
Ovenjuleg og
efnileg
hljómsveit
Það er ljóst að plötuútgáfa er að taka
stakkaskiptum hér á landi með aukinni tækni og lækkandi upptöku-
kostnaði. Á markaðinn streymir hver platan á fætur annarri sem við-
komandi listamenn eða hljómsveitir gefa út á eigin kostnað. Um þetta
er bara gott eitt að segja, breiddin og fjölbreytnin eykst og fleirum gefst
tækifæri á að láta fjöldann í sér heyra.
Hljómsveitin Sónata er einn af þessum nýju vaxtarbroddum á mark-
aðnum og kemur þægilega á óvart. Tónlistin er vissulega af gamalkunn-
um toga; ballöðupopp, en það er hljóðfæraskipan sveitarinnar og aðstoð-
armanna hennar sem vekur athygli nú á tímum tölvuvæddra hljóðfæra.
Til viðbótar hefðbundnum hljóðfærum er óbó til dæmis eitt af fastahljóð-
færum hljómsveitarinnar og svo kemur heill strengjakvartett við sögu,
Silkikvartettinn sem samanstendur af tveimur fiðlum, selfói og lágfiðlu.
Þá má ennffemur heyra í trompeti, horni og kontrabassa.
Lögin eru öll frumsamin af Einari Erni Jónssyni, píanó-, bassa- og
hljómborðsleikara Sónötu utan eitt sem hann semur með Þorsteini Ein-
arssyni gítarleikara. Einar Örn semur líka texta og syngur ásamt hin-
um liðsmönnum Sónötu, þeim Önnu S. Þorvaldsdóttur, Gunnari Bene-
diktssyni, Jóni Jósep Snæbjömssyni og Theódóru Lind Þorvaldsdóttur.
En þrátt fyrir fjölbreyttan söng er hann um leið veikasti hlekkur plöt-
unnar; það heyrist um of að óvanir og óslípaðir söngvarar eru á ferð-
inni. Hugsanlega hefði með meiri tilkostnaði mátt slípa mestu vankant-
ana af söngnum en þá kemur aftur að því atriði að lykillinn að útgáfu
af þessu tagi er lítill kostnaður.
Hins vegar er engum blöðum um það að fletta að Einar Öm Jónsson
er sérlega efnilegur lagasmiður; hér er hvert lagið öðm faUegra og hver
veit nema að þessi plata verði til þess að vekja á honum athygli þannig
að Sónata geti kostaö meim til næst. Hún á það skilið.
Sigurður Þór Salvarsson
XIII — Serpentyne
**
Magn er ekki
sama og gæði
Serpentyne er önnur plata hljómsveitar-
innar XHI og það má ljóst vera að hér em metnaðarfúllir menn á ferð
enda fékk fyrsta plata sveitarinnar prýðisviðtökur. Prímusmótor hljóm-
sveitarinnar er Hallur Stefánsson sem syngur, leikur á gítar, trommur,
píanó og munnhörpu og semur auk þess öll lög og texta. Hallur er auð-
heyrilega hæfileikarikur lagasmiður en kappið er hins vegar meira en
forsjáin sem glöggt má sjá af því að á plötunni em heil 13 lög sem em
heilar 72 mínútur í spilun!
Minna má nú gagn gera þótt menn séu ffjóir því þessi lagafjöldi er
tvímælalaust helsti akkilesarhæll plötunnar. Bæði er tónlistin frekar
eintóna í þyngri kantinum og því getur svona mikill skammtur í einu
virkað ákaflega þreytandi. En meginástæðan er þó sú að lagasafnið held-
ur ekki dampi aha plötuna á enda.
Þetta eru grundvallarmistök að mínu mati; með verulega gagnrýnum
niðurskurði hefði mátt gera þetta að virkilega áheyrilegri plötu því að
hér er nokkur mjög góð lög að finna og nokkur þokkalega góð til viðbót-
ar. Fækkun laga á plötunni um helming eða svo hefði breytt öllu fyrir
útkomuna. Hallur hefur greinilega gott eyra fyrir melódíum og ef hann
vandar sig betur við niðurskurðinn næst má hugsanlega búast við tíð-
indum.
Sigurður Þór Salvarsson
DV
Cigarette sendir
frá sér Double Talk
Hljómsveitin Cigarette hefur tiltölulega lít
ið leikið opinberlega ff á því að hún varð
til í vor. Ástæðan er einfold, að sögn
Heiðrúnar Önnu Björnsdóttur
söngkonu. Hópurinn hefur
verið önnum kafinn við
annað:
„Við höfum aðallega
haldið okkur í stúdíó-
inu eða verið að búa
okkur undir vinnu í
því,“ segir hún. „Við
spiluðum að vísu allar
helgar í júlí en síðan
kom að því að við
þurftum að búa okkur
undir að taka upp plöt-
una okkar og við vildum
þá ekki trufla þá vinnu með
því að halda tónleika. Meðan
á upptökunum stóð héldum við
einnig að okkur höndum. En nú
stenduf til að láta í sér heyra sem oft-
ast og mest.“
Plata Cigarette, Double Talk, kom út um mánaða-
mótin. Þessa dágana er hljómsveitin í óðaönn að æfa fyr-
ir útgáfutónleika sem verða í Loftkastalanum sextánda
nóvember. í kjölfar þeirra er ætlunin að koma víðar fram.
„Okkur langar mest til að halda okkur við að spila á tón-
íeikum en sleppa dansleikjahaldi,“ segir Heiðrún Anna.
„Við erum reyndar með frekar fá lög á prógramminu
þannig að við erum nú að undirbúa okkur fyrir spila-
mennsku á böllum. Eftir áramótin reiknum við þó með að
þurfa að breyta nokkuð um stefhu en hins vegar iíst engu
okkar á að taka þátt í sveitaballaslagnum næsta sumar.
Það er markaður sem ég held að við eigum lítið erindi á.“
Heiðrún bætir því við aö til tals hafi komið að eiga sam-
starf við dúettinn Zebra um tónleikahald en hann skipa
tveir liðsmenn Sálarinnar hans Jóris míns, þeir Guðmund-
ur Jónsson og Jens Hcmsson. Þeir senda einmitt frá sér
plötu síðar í mánuðinum. Þá stendur til að liðsfólk Cigar-
jrinn á svertaballamarkaðnum
næsta sumar er liðsfólki
hljómsvertarinnar
Cigarette Irtt
að skapi.
Ljósm. Arna
dóttir
ette
fari til
Lundúna
í janúar „til að
athuga stöðuna,"
eins og Heiðrún Anna
orðar það, „hugsanlega spilum
við eitthvað en erum aðallega að kanna hvemig landið ligg-
ur.“
Cigarette vakti fyrst athygli í sumar þegar lag hljóm-
sveitarinnar, I Don’t Believe You, kom út á safnplötu og
fékk hlýjar viðtökur. Því var síðan fylgt eftir með öðru
safnplötulagi, Bleeding Like a Star. Bæði þessi lög em á
Double Talk og síðan átta til viðbótar. En hver semur lög-
in:
„Við skiptum því nokkuð jafnt með okkur,“ svarar
Heiðrún Anna. „Ég held að það sé stór kostur við plötuna
að allir í hljómsveitinni semja tónlist. Þannig skapast meiri
breidd en ella.“
í Cigarette em auk hennar Einar Tönsberg bassaleik-
ari, Haraldur Jóhannesson gítarleikari, Sigtryggur Ari Jó-
hannsson, sem leikur á hljómborð, og Rafn Marteinsson
trommuleikari. -ÁT-
Byltingarmenn senda
frá sér plötuna Ekta
Ein þeirra hljómsveita sem kveður sér hljóðs á hljóm-
plötu á þessu hausti er Bylting frá Akureyri. Platan henn-
ar, Ekta, kom út fyrr í vikunni. Hún hefur að sögn Bylt-
ingarmanna að geyma blöndu af poppi, rokki, diskótónlist
og ballöðum, sem sagt eitthvað fyrir sem flesta,
eins konar þversnið af þvi sem er að
finna á prógrammi hljómsveitar-
innar.
Bylting hefur til þessa
einskorðað sig við dans-
leikjahald. „Við gerum
út frá Akureyri og for-
um hvert á land sem
er til að spila,“ segja
Byltingarmenn. „Það
má segja að hver helgi
sé bókuð hjá okkur.
Við höfum farið um
Norðurland, Vesturland
og Austurland að undan-
förnu og hyggjum senn á land-
vinninga á Suðurlandi!"
í Byltingu eru þeir Tómas Sævars-
son hljómborðsleikari, Þorvaldur Eyfjörð gít-
arleikari, Valur Halldórsson, sem leikur á trommur og
syngur, Bjarni Valdimarsson bassaleikari og Frímann
Rafrisson sem leikur á gítar. Allir radda þeir piltamir með
Val. Hann segist reyndar hafa í hyggju að fara að dæmi
Phils Collins, standa upp frá trommusettinu og sjá eingöngu
um sönginn á útgáfutónleikum sem eru fyrirhugaðir á
skemmtistaðnum 1929 á Akureyri 30. nóvember. Þá ætlar
Sigfús Óttarsson að leysa Val af og það er á honum að heyra
að helst vildi hann að Sigfús sæti við settið áfram. Bylting
ætlar síðan að halda annan og þriðja i útgáfutónleikum á
Kaffi Reykjavík fyrstu tvo dagana í desember.
Bylting gefur plötuna Ekta út sjálf. Sjö lög
af tíu á henni eru eftir liðsmenn
hljómsveitarinnar sjálfa. Þrjú
semur Karl 0. Olgeirsson
sem einnig kom við sögu
við hljóðritun plötunn-
ar. Hún var tekin upp
á Akureyri, í Stúdíói
Hljóðlist, sem er í
eigu Kristjáns Edel-
steins. Textar plöt-
unnar eru eftir Odd
Bjarna Þorkelsson
ljóðskáld í Aðaldal.
Liðsmenn Byltingar
segja um tónlistarlífið á
Akureyri að þar sé lítil sam-
keppni um þessar mundir. „Við
fundum meira fyr ir henni meðan við
vorum eingöngu að fást viö að spila á pöbb-
um,“ segja þeir. „Okkur þykir metnaðurinn heldur lítill
hjá þeim sem ættu að vera keppinautar okkar. Helst að þeir
hafi horn í síðu okkar fyrir að við skulum vera að gera eitt-
hvað metnaðarfyllra en að hanga á pöbb og spila tónlist eft-
ir aðra. Þetta er því miður staðreynd málsins. Við látum
það þó ekkert á okkur fá og ætlum að halda áfram að gera
okkar hluti eins og við teljum best að gera þá.“ -ÁT-
Red Hot Chili Peppers
— One Hot Minute:
★★★
Dave Navarro gítarleikari er í
öflugu formi og aðrir liðsmenn
sveitarinnar standa sig ágætlega.
Rick Rubin pródúsent heldur vel
utan um pakkann og skapar
þokkalega heild utan um fjölbreytta
plötú. -ÁT
Islandica — Römm er sú taug:
★★★
Þetta er áheyrileg plata, svolítið
skrýtin og skondin á köflum en gripur
sem maður væri alveg til í að mæla
með við erlenda kunningja. -ÁT
Appollo 13 — Úr kvikmynd:
★★★
Þama gefúr að heyra úrvalstónlist
með blönduðum hópi og má þar
nefna Santana, Trini Lopez, Thrre
Dog Night og Chuck Berry. -ÁT
Blome
—The Third Twin:
★★★
Platan kemur rækilega á óvart.
Þetta er dapurleg og stundum
þunglyndisleg tónlist sem er vönduð
og úthugsuð og maður þarf að hafa
fyrir því að hlusta á hana.
-ÁT
Litir—Kristín Eiríksdóttin
★★★
Tónlistin á plötunni er vissulega
hrá á köflmn. Það er bara af hinu
góða því að nóg kemur út af
fullslípuðum og jafrivel ofslípuðum
afurðum á landi hér.
-ÁT
— Southpaw Gramman
★★★
Morrissey-töfrarnir koma í ljós
hver af öðrum og maður hrífst með
af kraftinum og keyrslunni.
-SÞS