Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1995, Síða 5
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1995
21
DANSSTAÐIR
Ásakaffi
Grundarfirði
Stuðboltarnir í Draumalandinu
skemmta á laugardagskvöld.
Áslákur
Mosfellsbæ
Lifandi tónlist föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Daríshúsið í Glæsibæ
k föstudags- og laugardagskvöld ieik-
ur hljómsveitin „Lúdó og Stefán".
Duus-hús
v/Fischersund, s. 14446
Opið kl. 18-1 v.d., 18-3 föstud. og
Iaugard.
Feiti dvergurinn
Höfðabakka 1
Laugardagskvöld leikur hljómsveitin
Texas Two Step country tónlist, með-
al gesta kvöldsins verða bandarísku
dansararnir „TWo Step".
Fógetinn
Hljómsveitin Útlagar skemmtir föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Gaukur á Stöng
Hljómsveitin DJ Nökkvi og Kúló
Grande leikur föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Hafnarkráin
Lifandi tónlist á hveiju kvöldi.
Hótel ísland
Skemmtun Ladda í Ásbyrgi föstu-
dagskvöld og laugardagskvöld. „Þó
líði ár og öld" sýning Björgvins Hall-
dórssonar. Hljómsveitin Karma leik-
ur fyrir dansi að lokinni sýningu.
Hótel Saga
Súlnasalur: „Uppserkuhátíð hesta-
manna" föstudagskvöld. Lokað
vegna einkasamkvæmis laugardags-
kvöld. Mímisbar: Ragnar Bjamason
og Stefán Jökulsson sjá um fjörið á
Mímisbar föstudags- og laugardags-
kvöld.
Kaffi Reykjavík
Danshljómsveitin KOS ásamt Evu Ás-
rúnu föstudags og laugardagskvöld.
Bjarni Ara og Grétar Örvarsson
sunnudagskvöld.
LA-Café
Laugavegi 45, s. 626120
Um helgina: Matur kl. 18-22.30 með
léttri tónlist, síðan diskótek til kl. 3.
Hátt aldurstakmark. Alla miðviku-
daga, fimmtudaga og sunnudaga til
10. desember „bjórhátíð" og mun
hljómsveitin Papar skemmta öll
kvöldin.
Ingólfscafé
Diskótek föstudags- og Iaugardags-
kvöld.
Jazzbarinn
Lifandi tónlist föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Leikhúskjallarinn
Diskótek um helgina.
Skálafell
Mosfellsbæ
Lifandi tónlist föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Sveitasetrið Blönduósi
Rúnar Þór og hljómsveit leika föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Ölkjallarinn
Arnar og Þórir leika föstudags- og
laugardagskvöid.
Ölver
Glæsibæ
Karaoke um helgina. Opið alla virka
daga frá kl. 11.30 til 1 og til 3 föstu-
dag.
Hunang á Austurlandi
Hljómsveitin Hunan Ieikur á Pizza 67
á Egilsstöðum föstudagskvöld og í Eg-
iisbúð á Neskaupsstað laugardags-
kvöld.
Hljómsveitin 66
Hljómsveitin 66 Ieikur á Bíókaffi á
Siglufirði föstudagskvöld og í Sjallan-
um Akureyri iaugardagskvöld.
Nuno gg mUljóttamæring-
amir a Selfosst
Nuno Miguel og Milljónamæringarn-
ir verða á Októberfestifali á Gjánni,
Selfossi föstudagskvöld.
Hljómsveitin Kirsuber
Hljómsveitin Kirsuber leikur á
Calypso í Vestmannaeyjum föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Sixties á Norðurlandi
Hljómsveitin Sixties verður með
bítlaball í Miðgarði, Skagafirði föstu-
dagskvöld.
Hljómsveitin Útlagar
Hljómsveitin Útlagar Ieika á Fógetan-
um föstudags- og laugardagskvöld.
Fógetinn:
Ótengdir útlagar
Hljómsveitin Útlagar mun leika á
veitingastaðnum Fógetanum föstu-
dagskvöldið 17. nóvember og laugar-
dagskvöldið 18. nóvember. Útlagamir
spila órafmagnaöa tónlist úr ýmsum
áttum á þessum tónleikum. Útlagam-
ir em Albert Ingason, sem leikur á
sneril og syngur, Ámi Ingason, sem
leikur á kassagítar og syngur, Ragn-
ar Grétarsson, sem leikur kontrabassi
og syngur, og Þröstur Óskarsson sem
leikur á gítar og syngur.
Hljómsveitin Utlagar leikur órafmagnað á Fógetanum um helgina.
Hunang á Austurlandi
Norðfirðingar geta dillað sér við diskótónlist þegar hljóm-
sveitin Hunang heimsækir þá um um helgina.
Diskóhljómsveit-
in Hunang leikur á
Pizza ’67 á Egilsstöð-
um fóstudagskvöld-
ið 17. nóvember og
flytur sig síðan aust-
ur í Neskaupstað
laugardagskvöldið
18. nóvember og
spilar í Egilsbúð.
Þar ætla Norðfirð-
ingar að standa fyr-
ir kvölddagskrá auk
þess sem austfirskar
stúlkur keppa sín á
milli um titilinn
„ljósmyndafyrii;-
sæta Austurlands“.
Hunang gaf nýverið
út diskinn Travolta
sem notið hefur
mikilla vinsælda
meðal diskóunn-
enda.
Nuno og Milljónamæringarnir verða á
Selfossi föstudagskvöldið 17. nóv-
ember.
Nuno Miguel
og Milljóna-
mæringarnir
- oktoberfestival í Gjánni
Nuno Miguel og Milljónamærin-
gamir skemmta á „oktoberfestivali"
sem haldið verður í Gjánni á Selfossi
fostudagskvöldið 17. nóvember. í til-
efni þess verður bjórinn seldur á sér-
stöku tilboðsverði. Milljónamæring-
amir auk Nunos Miguels em Ástvald-
ur Traustason, Birgir Bragason,
Steingrímur Guðmundsson og Joel
Pálsson.
Sixties koma í fyrsta sinn fram í Miðgarði í Skagafirðinum í kvöld.
Sixties á
Norður-
landi
Bítlahljómsveitin
Sixties veröur með bítla-
ball fostudagskvöldið 17.
nóvember í Miðgarði í
Skagafjarðarsýslu. Það er í
fyrsta sinn sem þeir félag-
amir í bítlahljómsveitinni
spila í Miðgarði. Sixties var
að ljúka við upptökur á
plötu sem kemur út fyrir
jólin. Platan ber nafnið
Jólaæði og er allsérstæð
jólaplata þar sem húmor-
inn er í fyrirrúmi og jóla-
hátíðin skoðuð frá nýju
sjónarhomi.
Hljómsveitina skipa
Rúnar Örn Friðriksson,
söngur, Þórarinn Freys-
son, bassi, Guðmundur
Gunnlaugsson, trommur,
og Andrés Gunnlaugsson,
gítar.
66 á Norð-
urlandi
Siglfirðingar fá tækifæri til að
hlusta á hljómsveitina 66 fostu-
dagskvöldið 17. nóvember en hún
mun skemmta á Bíókaffi það
kvöld. Á laugardaginn verður
haldið austur á bóginn og sveitin
skemmtir í Sjallanum á Akureyri
um kvöldið. Meðlimir sveitarinn-
ar eru Birgir Haraldsson, sem
syngur, Karl Tómasson trommu-
leikari og Friðrik Haraldsson
bassaleikari.
Hótel Saga:
Uppskeru-
hátíð hesta-
manna
Hin árlega uppskeruhátíð
hestamanna verður haldin á Hót-
el Sögu föstudagskvöldið 17. nóv-
ember í Súlnasalnum. Húsið verð-
ur opnað fyrir aðra en matargesti
klukkan 23.30. Súlnasalurinn
verður lokaður vegna einkasam-
kvæmis laugardagskvöldið 18.
nóvember. A Mímisbar munu
Ragnar Bjamason og Stefán Jök-
ulsson sjá um fjörið, bæði fóstu-
dags- og laugardagskvöldið.
Rúnar Þór og hljómsveit skemmta
á Blönduósi um helgina.
Sveitasetrið á Blönduósi:
Rúnar Þór
í Hljóm-
skálanum
Rúnar Þór og hljómsveit spila
fyrir gesti fóstudagskvöldið 17.
nóvember og laugardagskvöldiö
18. nóvember i Hljómskálanum á
Sveitasetrinu á Blönduósi. Er
ekki að efa að koma Rúnars Þórs
mun kæta viðstadda því síðast er
hann kom iram í Hljómskálanum,
í september síðastliönum, troð-
fyllti hann húsið. Hljómskálinn
hefur allur verið endurbættur og
búiö er að koma fyrir nýjum og
glæsilegum 12 metra löngum bar
L.A. Café:
Papar á írsk-
um og þýsk-
um nótum
írsk og þýsk krárstemning mun einkenna hljómsveitar-
flutning sveitar Papanna á L.A. Café sunnudagskvöldið 19.
nóvember. Tilefnið er bjórhátíð staðarins þar sem kynntur
er meðal annars maltbjórinn Isenbeck. Drykkir verða á sér-
stöku afsláttarverði og matseðill staðarins verður með 50%
afslætti. Papamir skemmta áfram á L.A. Café þrjú næstu
sunnudagskvöld, fram til 10. desember.
Paparnir halda uppi þýskri og írskri krárstemningu á LA. Café, eins og þeim einum er lagið, á sunnu-
dagskvöldið.