Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1995, Qupperneq 4
20
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1995
:<
:<a&ist
T6NL I S IA R
..ÖiíJÍfílJII
Piltur og stúlka - Endist varla...
Með
Pollyönnuróm
Pilturinn og stúlkan eru Tómas Hermannsson og Ingunn Gylfadóttir.
Þau vöktu athygli fyrir einum tveimur árum fyrir góða frammistöðu í
Söngvakeppni Sjónvarpsins og reyndar söng Ingunn inn á heila breið-
skífu fyrir þrettán árum, þá bam að aldri.
Endist varla ... er ósköp látlaus og snyrtileg plata. Höfuðprýði henn-
ar eru textamir eða ljóðin, flest eftir Þorvald Þorsteinsson, Odd Bjarna
Þorvaldsson og Sjón. Ingunn syngur öll lögin nema eitt. Söngrödd henn-
ar er viðfelldin og hlý og rómurinn svo yfirmáta jákvæður að ef sögu-
persónan Pollyanna mætti mæla er ég viss um að rödd hennar væri svip-
uð og Ingunnar.
Galli plötunnar er hins vegar hve „hógvær" hún er út í gegn. Útsetn-
ingar eru fremur einlitar og lyfta lögunum ekki á flug að neinu marki.
En fyrir vikið njóta textarnir og ljóðin sín kannski betur en ef lögin
stælu frá þeim athyglinni.
Ásgeir Tómasson
KK - Gleöifólkiö
A A A
Kominn á sinn
stað aftur
Kristján Kristjánsson eða KK
hinn yngri hefur notið vinsælda og
virðingar í islensku tónlistarlífi frá
því hann sneri heim frá S víaríki um
1990. Hann sló í gegn með plötunni
Lucky One þar sem hann fléttaði
saman létta sveitatónlist, þjóð-
lagatónlist, blús og rokkabillý með miklum ágætum og blik í auga.
Síðan kom platan Hotel Föroyar sem ekki náði alveg sama Qugi og
Lucky One þótt þar væri margt góðra laga. Og nú kemur svo þriðja plat-
an, Gleðifólkið, og eins og nafnið gefur til kynna hefur KK léttleikann
og gleðina aftur í fyrirrúmi og ber platan það með sér. Samt er þetta
ekki samfelldur gáski og gleði, því fer fjarri; hér er til að mynda gullfal-
legt, tregablandið minningarlag KK um systur sína Inger Ágústu (d. 1992)
sem önnur systir hans, Ellen, syngur frábærlega vel. Lagið minnir reynd-
ar lítillega á lag Bobs Dylans, The Times They Are a Changing, án þess
þó að það trufli verulega og einhverra hluta vegna er texti lagsins á
ensku, sá eini á plötunni.
Reyndar eru fleiri lög á plötunni því marki brennd að þau hljóma ei-
litið kunnuglega en þar er þó frekar um það að ræða að KK sé að fara í
eigin smiðju frekar en annarra. Það lækkar vissulega aðeins risið á plöt-
unni en samt rís hún hátt og er tvímælalaust það besta sem KK hefur
látið frá sér fara síðan Lucky One kom út.
Gleðifólkið tekur þeirri plötu að sumu leyti fram og að öðru ekki, til
dæmis eru útsetningar og hljóðfæraleikur alíur mun betri og vandaðri
á þessari plötu og þar á Eyþór Gunnarsson mestan heiðurinn, býst ég
við, en flest það sem hann snertir á í tónlist verður að gulli. Áðrir að-
stoðarmenn eru heldur ekki af lakara taginu eða þeir Þorleifur Guðjóns-
son, Pálmi Gunnarsson, Gunnlaugur Briem og Tómas M. Tómasson.
Textar plötunnar eru allir eftir KK og þar dregur hann upp hinar og
þessar mannlífsmyndir og gerir það vel. Enski textinn sem áður var
minnst á er sérlega fallegur.
Með Gleðifólkinu geta aðdáendur KK tekið gleði sína á ný og hún set-
ur KK aftur í fremstu röð þar sem hann á heima.
E.S. Sendi KK bestu óskir um góðan bata.
Sigurður Þór Salvarsson
Gus gus - Gus gus
irki<
Frambærilegt
íslenskt
tæknipopp
Þrátt fyrir að tölvuvædd
danstónlist I harðari kantinum
hafi notið mikilla vinsælda hér
á landi sem og annars staðar
undanfarin ár hafa íslenskir
tónlistarmenn ekki gert mikið
að þvi að leggja hana fyrir sig.
Þar kemur eflaust enn og aftur til smæð okkar og fæð og tregða útgef-
enda til að veðja á slíka hesta, gæti ég trúað. Enn fremur þrífst þessi teg-
und tónlistar fyrst og fremst á lifandi flutningi á sérstökum dansstöð-
um og þar er ekki um auðugan garð að gresja hjá okkur.
Ekki veit ég hvort þessi fyrsta plata Gus gus hópsins boðar nýja tíma
í þessum efnum hérlendis, en í það minnsta kveður hér við nýjan tón
þó ekki stígi hópurinn skrefið alla leið í tæknipoppinu, heldur er þessi
plata blanda af því soul, fönki og poppi þar sem tæknipoppið er undir-
staðan. Gus gus hópurinn er skipaður þeim Daníel Ágúst Haraldssyni,
Magnúsi Jónssyni, Birgi Þórarinssyni, Emelíönu Torrini, Magnúsi Guð-
mundssyni og Hafdísi Huld og er í beinu sambandi við stuttmyndina
Nautn sem nýverið var frumsýnd í Reykjavík.
Lögin á plötunni eru flestöll eftir liðsmenn Gus gus og tekst þeim
nokkuð vel til í stórum dráttum þótt lögin séu æði misjöfn að gæðum.
Þetta er vissulega frekar óaðgengileg tónlist til að setjast niður og hlusta
á en hún er samt þess eðlis að hana verður að láta gerjast innra með sér
um skeið áður en farið er að tjá sig um hana. Og það verður að segja
um hana að hún vinnur frekar á við hlustun en hitt. Lögin eru ágæt-
lega melódísk flest hver þótt mismunandi djúpt sé á melódíunum og
flutningur er fyrsta flokks í alla staði. Þetta er hins vegar ekki tónlist
sem skilur mikið eftir sig og líftími hennar er styttri en flestrar annarr-
ar dægurtónlistar. Sigurður Þór Salvarsson
pruevr
CtXD BRFATM
Ki-MEMefRANGf
»S Jt-Sl'S VOUfl P«t?
Mf SSAGf rBOM IDSWV
PUItPLE
Brotabrot af lögum
Gunnars Þórðarsonar
»
Gunnar Þórðarson varð fimmtugur í byrjun ársins. í
mars voru þrjátíu ár liðin síðan fyrstu lögin hans voru
hljóðrituð, það eru Hljómalögin Fyrsti kossinn og Bláu aug-
un þín. Á þessu tímamótaári þótti því rétt að gefa út plötu
meö sýnishomi af lögum Gtmnars og útkoman varð tvö-
faldi diskurinn Þitt fyrsta bros með „aðeins“ ljörutíu lög-
um af þeim aragrúa sem Gunnar hefur sent frá sér. En
hvað skyldu lögin hans vera mörg?
„Ég held að ég eigi 320 lög skráð,“ svarar listamaðurinn.
„Þessi fjörutíu sem koma út núna eru vissulega bara sýn-
ishom af því sem hefur verið.gefið út en ég held að þau
séu það skásta sem ég hef gert á þessu sviði. Tíminn hef-
ur unnið á mörgum þessara laga sem vom kannski vinsæl
meðan þau vora ný en önnur eldast betur fyrir einhverra
hluta sakir. Þau fengu að fara á plötuna.“
Jónatan Garðarsson, útgáfústjóri hjá fyrirtækinu Spori,
valdi lögin á Þitt fyrsta bros. Gunnar fór síðan yfir listann
og breytti svolitlu. „ Annars vorum við bara furðu sammála
um hvað ætti að vera með og hverju ætti að sleppa."
Gunnar Þórðarson hefur lítið sent frá sér af popp- eða
rokklögum á síðustu árum. Hann segir að það þýði þó ekki
að hann sé hættur að fást við þá tegund tónsmíða. „Nei, ég
er ekki hættur en eldmóðurinn er ekki sá sami og fyrr,“
segir hann sposkur á svip. „Áhuginn hefur minnkað tölu-
vert með áranum. Og svo hefur maður líka gert sér grein
fyrir að þögnin getur líka verið góð!“
Kvikmyndatónlist
Gunnar Þórðarson hefur nýlokið við að semja og hljóð-
rita tónlist við kvikmyndina Agnesi sem verður framsýnd
rétt fyrir jól. „Þetta var mikO vinnutöm undir það síðasta
og ég er að ná mér niður eftir hana. Myndin sýnist mér að
hafi heppnast afbragðs vel. Hún er rómantísk og átakamik-
il í senn. Segir frá dramatískum atburðum á þann hátt að
flestir ættu að hrífast af henni.“
Agnes er önnur kvikmyndin sem Gunnar semur tónlist
við. Hin var Óðal feðranna og tónlistina við hana unnu
Gunnar Þórðarson: Tíminn vinnur misjafnlega vel á dægur-
tónlistinni. Ljósm. Magnús Blöndal
hann og Magnús Eiríksson í sameiningu. Gunnar hefur
aftur á móti samið tónlist við fjölmargar sjónvarpsupp-
færslur. En hvað tekur nú við þegar Agnes er frá?
„Ég hef verið að stúdera tónlist að undanfómu og held
því áfram,“ svarar hann. „Svo hef ég verið að semja dálít-
ið og á orðið nokkuð af ófluttu efni. Það er hins vegar nokk-
uð vont að koma slíkri tónlist að hjá Sinfóníunni. Ef það
gerðist þyrfti ég nú að leggjast á verkin og vinna þau að-
eins betur til að þau yrðu boðleg fyrir minn smekk."
-ÁT-
Notendavænir Vinir Dóra
fór þá í hljómleikaferð um landið og
var ætlunin að ná karakter spila-
mennskunnar af skemmtistöðunum
inn á plötuna. Það sem til varð í hljóm-
leikaferðinni var síðan þróað og mót-
að í hljóðverinu. Halldór Bragason seg-
ir að þessi vinna hafi verið mjög
skemmtileg. Pjetur Stefánsson var síð-
an fenginn til að semja texta við lögin.
Upphaflega áttu textahöfundar að
verða fleiri en Pjetur var snöggur að
vinna og því var ákveðið að
skerpa á heildarsvipnum
með því að hafa einn textahöf-
und.
„Plötur Vina Dóra hafa ekki
verið unnar svona hingað til,“
segir Dóri. „En fyrir vikið gafst
okkur tækifæri til að bæta við og
breyta lögunum þangað til þau
vora farin að hljóma eins og við
vildum hafa þau. Síðan vora þau
gerð þannig úr garði að þau rynnu
sem ljúflegast niður hjá hlustend-
um.
Lögin hljóma svo náttúrlega allt
öðruvísi á hljómleikum en á plötunni,"
bætir hann við. „Það er markmið hjá
okkur að vera aldrei eins tvö kvöld í
röð. Við höfðum lögin á plötunni öll í
styttra lagi og það gefur okkur færi á
að lengja þau upp í sex til tiu mínútur
ef stemningin í salnum býður upp á það.
Markmiðið er að skapa alltaf eitthvað
nýtt á hverju kvöldi. Ef maður væri
alltaf að spila sömu rulluna væri alveg
eins hægt að fá sér einhverja aðra
vinnu. í raun og vera erum við fyrst og
fremst að spila fyrir sjálfa okkur. Það
að einhverjir vilji koma og hlusta er
bara ánægjuleg viðbót." -ÁT-
Hljómsveitin Vinir Dóra breytir
nokkuð um svip á nýju plötunni sinni
Hittu mig frá því sem áður var. Gamli,
góði blúsgallinn hefur verið hengdur
upp í skáp og fram dreginn annar og
popplegri en áður.
„Við erum að gera okkur hlusúmar-
væna með þessari breytingu," segir
Dóri - Halldór Bragason - og glottir við
tönn. „Annars er ég ekki sammála því
að við höfum lagt blúsinn til hliðar.
Hann er þama enn þá en bara í
formi sem allir eiga aö geta notið.
Við ákváðum að gera plötu sem
myndi ekki bara höfða til sérvitring-
anna heldur renna ljúflega niður hjá
fleirum. Það hefur tekist að mínu viti
og sérvitringarnir eru, merkilegt
nokk, sáttir við breytinguna."
Vinir Dóra eru um þessar mundir
Halldór Bragason, Jón Ólafsson og Ás-
geir Óskarsson. Tríóformið hefúr verið
við lýði hjá hljómsveitinni í nærri tvö
ár. Halldór og Jón hafa spilað stöðugt
saman en nokkrir trommideikarar hafa
leyst Ásgeir af hólmi, menn eins og
Gunnlaugur Briem, Birgir Baldursson,
Sigfús Óttarsson, Björgvin Ploder og
Sigurður Reynisson. Allt öndvegis spil-
arar að sögn Dóra, enda veitir ekki af
að hafa almennilega menn í hverju
rúmi þegar hljóðfæraleikaramir eru
bara þrír.
Á plötunni Hittu mig leikur Þor-
steinn Magnússon á gítar með Dóra í
nokkrum lögum og einnig bregður
Hammondleik Péturs Hjaltesteds fyrir
hér og þar. Þeir taka hins vegar ekki
þátt í hljómleikahaldi við kynningu
plötunnar. Hljómsveitin hefur farið
víða um land að undanfomu og hélt
Vinir Dóra:
Mun
skemmti-
legra að
spila úti á
landi en á
höfuðborg-
arsvæðinu.
meðal annars útgáfutónleikana á
Vopnafirði 24. növember.
„Við spilum einfaldlega miklu meira
úti á landi en á höfuðborgarsvæðinu,“
segir Dóri, „því að þar er skemmtilegra
að spila.
. .. Nei, nei, það háir okkur ekkert
að söngvarinn þurfi jafnframt að spila
á gitar. Þetta þurfti Hendrix að búa við
og sömuleiðis Clapton!"
Mótað í Jhljóðveri
Hugmyndin að plötunni Hittu mig
kviknaði síðasta sumar. Hljómsveitin
MA-kvartettinn - MA-kvartettinn:
★★★i
Það ber að fagna því að þau allt of
fáu lög MA-kvartettsins, sem varð-
veitst hafa, skuli komin á geisladisk.
Fjórmenningarnir, sem skipuðu
kvartettinn, voru sannarlega „popp-
stjörnur" síns tíma. -ÁT
Ásgeir Tómasson - Veröld stór og smá:
★★★
Það þarf aö hlusta á tónlistina til
að njóta hennar og sér í lági slag-
verksleik höfundarins sem auð-
heyrilega velur ekki auðveldustu
lausnimar þegar hann útsetur fyrir
sjálfan sig. -ÁT
Halli Reynis — Hring eftir hring:
★★★
Textar plötmmar eru í óvenjuhá-
um gæöaflokki miðað við það sem
gengur og gerist á íslenskum mark-
aði og laglínur era léttar og liprar
sem auðvelt er að grípa og ósköp
þægilegar á að hlýða. -SÞS
Palli —Páll Óskar:
★★★
Þessi nýja plata Páls Óskars styrk-
ir stöðu hans sem eins besta söngv-
ara landsins og sýnir hve fjölhæfur
hann er. Hljóðfæraleikur er eins og
best verður á kosið.
-SÞS
Croucie d’oú LÁ - Emilíana Torrini:
★★★Á
Söngurinn er ótrúlega fjölbreytt-
ur og hreint með ólíkindum hversu
margvíslegum söngstíl Emilíana
hefur yfir að ráða.
-SÞS
Sundin blá - Ýmsir flytjendur:
★★★
Þormar Ingimarsson er að koma
fram á sjónarsviðið með plötunni
sem lagasmiður og vægt til orða tek-
iö þá lofar hann góðu.
-ÁT