Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1995, Blaðsíða 6
22
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1995
Sýningar
Ásmundarsalur
Freyjugötu 41
Á sunnudag lýkur málverkasýningu Tuma
Magnússonar. Málverkin, sem eru 9 talsins, fá
lit sinn frá ýmsum efnum í heiminum og eru
unnin með olíulit sem sprautað er á striga.
Café 17
Laugavegi 91
Þar stendur yfir sýning á Ijósmyndum eftir Jón
Pál Vilhelmsson tískuljósmyndara. Sýningin er
opin eins og Sautján og stendur yfir til 15. des-
ember.
Gallerí Art-Hún
Stangarhyl 7, Rvík
Þar stendur yfir sýning á verkum Erlu Axels-
dóttur, Helgu Ármannsdóttur, Elínborgar Guð-
mundsdóttur, Sigrúnar Gunnarsdóttur og Mar-
grétar Salome. Galleríið er opið alla virka daga
kl. 12-18.
Gallerí Birgir Andrésson
Vesturgötu 20
Hannes Lárusson sýnir ný verk unnin með
blandaðri taekni. Galleríið er opið kl. 14-18 á
fimmtudögum, en á öðrum tímum eftir sam-
komulagi.
Gallerí Fold
Laugavegi 118d
Þar stendur yfir sýning á vatnslitamyndum
Katrínar H. Agústsdóttur. Sýninguna nefnir
listakonan Húsin þrjú - Stjórnarsetrin. í kynn-
ingarhorni gallerísins sýnir Ásdís Sigurþórs-
dóttir verk unnin úr pappír. Galleríið er opið
daglega kl. 10-18 nema sunnudaga kl. 14-18.
Gallerí Geysir
Aðalstræti 2
Þar stendur yfir sýning tveggja ungra myndlist-
armanna, þeirra Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur
og Söru Maríu Skúladóttur, en þessi sýning er
jafnframt þeirra fyrsta sýning. Galleríið er opið
alla virka daga kl. 9-23 og um helgar kl. 12-18.
Sýningin stendur til 7. janúar.
Gallerí Greip
Þar stendur yfir sýning í tilefni af 100 ára af-
mæli myndasögunnar sem ber heitið .Nýjar
myndasöguf. Sýndar eru nýjar myndasögur
efitr islenska höfunda. Opið daglega nema
mánudaga kl. 14-18 og stendur sýningin til 17.
desember.
Gallerí Guðmundar
Ánanaustum 15
Galleríið er opið virka daga kl. 10-18.
Gallerí, Ingólfsstræti 8
Ásgerður Búadóttir sýnir vefnað. Sýningin
stendur tii 22. desember og er opin frá kl.
14-18, alla daga nema mánudaga.
Gallerí List
Skipholti 50b
Galleríið er opið alla daga kl. 11-18 nema laug-
ardaga kl. 11-14. Sýningar í gluggum á hverju
kvöldi.
Gallerí Ríkey
Hverfisgötu 59
Sýning á verkum Ríkeyjar. Opið kl. 13-18 virka
daga en laugardaga og sunnudaga kl. 13-16.
Gallerí Stöðlakot
Bökhlöðustíg 6
Messíana Tómasdóttir lejkmyndahöfundur
heldur sýningu sem hún nefnir Til sjöunda
regnbogans. Sýningin stendur til 16. desember
og er opin daglega kl. 14-18.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9
Þar stendur yfir sýning á verkum Grétu Mjallar
Bjamadóttur. Myndirnar á sýningunni eru graf-
íkverk, koparætingar, þrykktar á pappír. Sýn-
ingin hefur heitið „Sögur" og er opin á verslun-
artíma kl. 10-18 virka daga.
Hafnarborg
Þar stendur yfir sýning á siifur- og gullsmíða-
verkum eftir Hannu Tuomala, Tlmo Salsola og
Sigrfðar Á. Sigurðardóttur. .
Kaffi Mílanó
Faxafeni11
Markús Sigurðsson sýnir olíumálverk. Opið
mánud. kl. 9-19. Þriðjud., miðvikud. og
fimmtud. kl. 9-23.30, föstud. kl. 9-1 og laug-
ard. kl. 9-18.
Kaffistígur
Rauðarárstíg 32
Magnea Ósk Óskarsdóttir sýnir skúlptúra.
Kjarvalsstaðir
Slðasta sýningarhelgi á íslenskri samtímalist
sem ber yfirskriftina Eins konar hverdagsróma-
tík. 16 listamenn sýna. Þá er f miðrými og for-
sölum yfirlitssýning á verkum Einars Sveins-
sonar arkitekts (1906-1973) og sýningin Kjar-
val - mótunarár 1885-1930. Sýningunum lýkur
á sunnudag.
Oþið kl. 10-18. Kaffistofa og safnverslun opin á
sama tfma.
Listasafn Einars Jónssonar
Njarðargötu, síml 551 3797
Safnið er lokað f desember og janúar. Högg-
myndagarðurinn er opinn alla daga. Inngangur
er frá Freyjugötu.
Llstasafn íslands
Frfkirkjuvegi 7
Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-18.
Rut Rebekka er nú að opna sína tólftu einkasýningu. DV-mynd GS
Rut Rebekka í Norræna húsinu:
Þrjátíu olíumálverk
„Þetta eru allt fígúratíf og ex-
pressionísk málverk. Ég byggi mik-
ið á teikningunni en núna undanfar-
ið hef ég verið að leysa hana rosa-
lega upp og færa hana nær málverk-
inu. Það er alltaf þetta jafnvægi á
milli hvað er teikning og hvað er
virkilegt málverk. Þetta byggir líka
mjög mikið á litnum og teikning-
unni í bland sem er svona uppleyst.
Þetta eru allt saman myndir af
fólki,“ segir Rut Rebekka listmálari
en á morgun opnar hún sýningu á
verkum síniun í kjallara Norræna
hússins.
„Þessi verk eru öll unnin á þessu
ári og myndirnar eru meðalstórar
en þetta eru þrjátíu olíumálverk.
Nöfn myndanna minna eru opin og
segja lítið en gefa áhorfandanum
lausan tauminn með ímyndaraflið
sitt,“ segir listmálarinn sem hefur
gefíð sýningunni sinni nafnið Skynj-
un.
Eins og fyrr er getið eru myndirn-
ar af fólki og Rut Rebekka segir þær
vera byggðar á reynslu sinni. Konur
eru áberandi á þessum myndum en
þó er líka karla þar að finna. „Ég tel
þetta'vera rökrétta þróun fram að
því sem ég hef gert áður. Ég er búin
að leysa upp en ég var áður miklu
stífari í forminu," segir Rut
Rebekka.
Sýningin í Norræna húsinu
stendur til 22. desember en Rut
Rebekka hefur áður haldið ellefu
einkasýningar.
Glerlist í Laugardal:
Skriðjöklar og hraun
Glerlist er heiti sýningar sem nú
stendur yflr í ListgaUeríi Listhúss-
ins í Laugardal. Þar sýnir Pía Rakel
Sverrisdóttir verk sín en hún stund-
aði nám í Kunstakademíunni í
Kaupmannahöfn og . í Danmarks
Designskole og þar byrjaði Pía
Rakel að vinna rúðugler í keram-
ikofni og sandblása myndir í glerið.
Myndefnið er aðaUega sótt í ís-
lenska náttúru, skriðjökla og hraun
sem brennt er í glerið og síðan eru
ristar í það myndrúnir unnar úr
draumtáknum.
Pía Rakel býr og starfar í Kaup-
mannahöfn og hefur sýnt víða um
heim síðustu 10 ár.
Myndasögur
Um síðustu helgi voru opnaðar
tvær sýningar í tilefni af 100 ára af-
mæli myndasögunnar. Þetta eru
sýningamar Myndasögur í myndlist
í sýningarsalnum Við Hamarinn í
Hafnarfirði og Nýjar myndasögur í
Gallerí Greip. Sýningunum lýkur
17. desember.
Englar og erótík
Englar og erótík er heiti samsýn-
ingar sem nú stendur yfir í Listhúsi
39 í Hafnarfirði. Þrettán listamenn
eiga verk á sýningunni en þeir eru
Aðalheiður Skarphéðinsdóttir, Auð-
ur Vésteinsdóttir, Einar Már Guð-
varðarson, Elín Guðmundsdóttir,
Guðný Hafsteinsdóttir, Hjördís Frí-
mann, Ingiríður Óðinsdóttir, Lárus
Karl Ingason, kíargrét Guðmunds-
dóttir, Pétur Bjamason, Sigríður
Ágústsdóttir, Sigríður Erla og Sus-
anne Christense .
Á sýningunni eru myndverk unn-
in í margvísleg efni, m.a. fjaðrir,
gler, stein, brons, leir, olíu, pastel og
hör.
Skíma í
Listhúsi Ófeigs
Sjö myndlistarmenn hafa stofnað
til sýningar, sem ber nafhið Skíma,
í Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg
5. Sýningin gefur fólki tilefni að
eygja ljós í skammdeginu og horfa
til bjartari daga. Sýnendur eru
Hringur Jóhannesson, Magnús
Tómasson, Ófeigur Bjömsson, Ragn-
heiður Jónsdóttir, Sigurður Þórir,
Þorbjörg Höskuldsdóttir og Örn Þor-
steinsson.
Þetta eru allt landsþekktir lista-
menn sem vinna með hin ólíkustu
efni og hafa haldið fjölmargar sýn-
ingar hér heima og erlendis. Sýning-
in í Listhúsinu verður opnuð í dag.
Mótunarár
Kjarvals
Um helgina lýkur eftirtöldum
sýningum á Kjarvalsstöðum: Kjar-
val - mótunarár 1895-1930, Eins
konar hversdagsrómantík og Einar
Sveinsson, arkitekt og húsameistari
ríkisins.
Mokkakaffi:
Einstakar herfarir
Magnús Pálsson er höfundur sýn-
ingar á Mokka sem kölluð er Hundr-
aðárastríðið. Hún fjallar enda um
þetta losaralega Evrópustríð á 14.
öld sem myndi tæpast kallast stríð í
nútímamerkingu orðsins heldur
voru þarna einstakar herfarir
enskra konunga til að halda uppi
erfðakalli til frönsku krúnunnar.
Ýmsir prinsar og aðalsmenn austar
og sunnar úr Evrópu drógust inn í
átökin og þar með blönduðust þar
inn í ýmis erfðaog landvinningamál.
Verkinu er lýst sem rjóðri eða
raddskúlptúr og fjallar síður en svo
strangsögulega um 100 ára stríðið.
Sýningin verðiu- opnuð með gjöm-
ingi annað kvöld.
Ný og eldri verk
Listamennirnir Guðbjörg Lind
Nú stendur yfir í Hafnarborg sýning
á silfur- og gullsmíðaverkum eftir
Hannu Tuomala, Timo Salsola og
Sigríði A. Sigurðardóttur en á mynd-
inni gefur að líta hluta af því sem fyr-
ir augu bér.
Jónsdóttir, Lísbet Sveinsdóttir,
Magdalena Margrét Kjartansdóttir
og Valgarður Gunnarsson munu
opna vinnustofur sínar fyrir al-
menning á sunnudaginn kl. 14.
Til sýnis verða ný og eldri verk,
unnin í olíu, túss og grafík. Lista-
mennirnir hafa allir tekið þátt í
fjölda sýninga bæði hér heima og er-
lendis. Vinnustofúrnar eru á 2. hæð
að Suðurlandsbraut 26.
Listasafnið
á Akureyri
Nú líður að lokum sýninga Guð-
mundar Ármanns Sigurjónssonar,
Erlu Þórarinsdóttur og Andrew M.
McKenzie í Listasafninu á Akur-
eyri. Guðmundur Ármann sýnir
málverk og einþrykk, Erla sýnir
smámyndir og innsetningu og Mc-
Kenzie sýnir sömuleiðis innsetn-
ingu.
Málverk Tuma
Málverkasýningu Tuma Magnús-
sonar í Ásmundarsal lýkur á sunnu-
daginn. Hann sýnir þar níu mál-
verk, unnin með olíulit sem spraut-
að er á striga.
Sýningar
Listasafn Kópavogs
Hamraborg 4
Margrét Elíasdóttir sýnir olíumálverk. í Gerðar-
safni sýnir Þorgerður Sigurðardóttir tréristur.
Sýningarnar standa til 17. desember og eru
opnar daglega kl. 12-18 nema á mánudögum.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Laugarnestanga
Sýning á vðldum andlitsmyndum eftir Sigurjón
Ólafsson „Þessir kollóttu steinat* mun standa í
allan vetur. Safnið er opið á laugardögum og
sunnudögum kl. 14-17. Kaffistofa safnsins er
opin á sama tíma.
Listhúsið í Laugardal
Engjateigi 17, sími 568 0430
Þar stendur yfir myndlistarsýning á verkum eft-
ir Sjöfn Har. Sýningin ber yfirskriftina „islensk
náttúra, íslenskt landslag." Opið virka daga kl.
13-18 og laugardaga kl. 11-16. Þá stendur
einnig yfir I Listhúsinu sýning á glerlist Píu
Rakelar Sverrisdóttur.
Listhús 39
Strandgötu, Hafnarfirði
Þar stendur yfir samsýnining 13 listamanna
sem ber heitið Englar og erótík. Á sýningunni
eru myndverk unnin í margvfsleg efni, m.a.
fjarðir, gler, stein, brons, leirolíu, pastel og hör.
Sýningunni lýkur 31. desember. Opið virka
daga kl. 10-18, laugardaga kl. 12-18 og
sunnudaga kl. 14-18.
Listhús Ófeigs
Skólavörðustfg 5
I dag verður opnuð sýningin Sklma. Eftirtaldir
listamenn sýna: Hringur Jóhannesson, Magnús
Tómasson, Ófeigur Björnsson, Ragnheiður
Jónsdóttir, Sigurður Þórir, Þorbjörg Höskulds-
dóttir og Óm Þorsteinsson. Sýningin stendur til
14. janúar.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
Breiðholti
Þar stendur yfir sýning á verkum margra
heimsþekktra listamanna sem sýnt hafa hjá
málaranum Helga Þorgils Friðjónssyni í Gallerí
Gangi undanfarin 15 ár. Alls eiga 19 listamenn
verk á sýningunni. Sýningin stendur til 8. janú-
ar. Myndlistarsýning Hlyns Hallssonar í Effinu
stendur fram til áramóta. Sýningarnar eru opn-
ar kl. 13-19 mánudaga til fimmtudaga og kl.
13-17 föstudaga til sunnudaga.
Mokka kaffi
Skólavörðustíg
Magnús Pálsson opnar sýningu sem hann kall-
ar Hundraðárastríðið á laugardag kl. 21.
Nesstofusafn
Neströð, Seltjarnarnesi
Safnið opið á sunnudögum, þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 13-17.
Norræna húsið
Á morgun kl. 14 opnar Rebekka Rut sýningu á
um 30 olíumálverkum. Sýningin er opin dag-
lega kl. 14-19.
Nýlistasafnið
v/Vatnsslíg
Þar stendur yfir sýningin „Viðhorf góðar stelp-
ur/slæmar konur Attitudes, good girls /bad
women". Það eru sextán amerískar konur, allar
myndlistarmenn og meðlimir í Artemisia gallery
i Chicagoborg sem taka þátt f sýningunni. Sýn-
ingin er opin daglega kl. 14-18 og stendur hún
til 17. desember.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11, Hatnarf., simi 555 4321
Opið sunnud. og þriðjud. kl. 15-18.
Sparisjóðurinn í Garðabæ
Garðatorgi
í tilefni 20 ára kaupstaðarréttinda Garðabæjar
1. janúar 1996 stendur yfir yfirlitssýning á
myndlistarverkum í eigu bæjarins. Um er að
ræða myndir sem Garðabær hefur eignast í
gegnum tíðina. Sýningin er opin á opnunarlíma
Sparisjóðsins frá kl. 8.30 til 16 alla virka daga til
19. janúar.
Við Hamarinn
Hafnarfirðf
Þar stendur yfir sýning í tilefni af 100 ára af-
mæli myndasögunnar. Sýningin ber heitið
„Myndasögur í myndlist”. Alls eru verk eftir um
15 íslenska myndlistarmenn. Sýningin er opin
daglega nema mánudaga kl. 14-18 og stendur
til sunnudagsins 17. desember.
Þjóðminjasafnið
Opið sunnud, þriðjud. fimmtud. og laugard. kl.
12-17.
Sýning á vinnustofu
Listamennimir Guðbjörg Lind Jónsdóttir, Lísbet
Sveinsdóttir, Magdalena Margrét Kjartansdóttir
og Valgarður Gunnarsson munu opna vinnu-
stofur sínar fyrir almenning sunnudaginn 10.
desember kl. 14. Til sýnis verða ný og eldri verk
unnin í olíu, túss og gratfk. Vinnustofurnar eru
á annarri hæð að Suðuriandsbraut 26. Opið um
helgar kl. 14-18 og virka daga kl. 12-18 til 17.
desember.
Listasafnið
Akureyrl
Nú liður að lokum sýninga Guðmundar Ár-
manns Sigurjónssonar, Erlu Þórarinsdóttur og
Andrew M. Mckenzie. Síðasta sýningarhelgi er
dagana 7.-8. desember.