Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1996, Side 8
24
• \ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996
Anita Tripicchio og Nils Peter Underland verða í Möguleikhúsinu um helgina en sýningin þeirra er fyrir alla 3ja ára
og eldri. DV-mynd Brynjar Gauti
V \ Norskur leikhópur í Möguleikhúsinu:
Með bakpoka
og banana
Norski leikhópurinn Tripicchio,
Underland & co sýnir leikritið Með
bakpoka og hanana í Möguleikhús-
inu við Hlemm um helgina. Sýning-
in hefur að undanfömu verið sýnd
víðs vegar í Noregi og era sýning-
arnar orðnar 120 talsins. Leikritið
er fyrir alla 3ja ára og eldri.
Tom og Jósefína
Með bakpoka og banana fjallar
um það þegar Tom Gulliksen rekst
á Jósefínu Nikólettu Rósettu
Víólettu Dobbeltmansjetta Amunds-
en. Hinn hávaxni, horaði og ruglaði
Tom verður enn ruglaðri er hann
kynnist Jósefinu. Hún er lítil, þybb-
in og duttlungafull dama af ítölsk-
um ættum sem dýrkar óperur. í
fyrstu gengur ekki á öðru en mis-
skilningi og árekstrum í samskipt-
um þeirra en smám saman læra þau
að meta hvort annað og verða vinir.
Sprellfjörug sýning
Þetta er sprellfjörug sýning, full
af húmor, tónlist og söng, þar sem
líkamstjáning vegur þyngra en orð-
in. Höfundar og leikarar eru þau
Anita Tripicchio og Nils Peter Und-
erland.
Sýningin, sem er styrkt af nor- '
rænu leiklistar- og dansnefndinni,
tekur um hálfa klukkustund í flutn-
ingi.
Verkið gerist á dularfullum herragarði á
óþekktum stað.
Leikfélag Hafnarfjarðar:
Hinn eini sanni Seppi
Leikfélag Hafnarfjarðar frum-
sýnir á morgun gamanleikinn
æsispennandi „Hinn eini sanni
Seppi“ eftir Tom Stoppard.
Verkið er gamanleikur byggður
á hinu sígilda sakamálastefi
breskra bókmennta, a la Agatha
Cristie og Sherlock Holmes, og
gerist á dularfulium herragarði á
óþekktum stað. Afbrýði, ástir og
morð hrinda æsispennandi og
fyndinni atburðarás af stað og
gagnrýnendur hrífast óafvitandi
með straumnum. Leikritið fjallar
einnig um samskipti leikhússins
og gagnrýnandans og ætti að vera
gott innlegg í gagnrýnisfælni at-
vinnuleikhúsanna og gagnrýnis-
leysi áhugafélaganna.
Alls taka níu leikarar þátt í upp-
setningu Leikfélags Hafnarfjarðar
að þessu sinni ásamt fjölda aðstoð-
arfólks. Leikstjóri er Láras Vil-
hjálmsson.
Alþjóðlegur
trúarbragðadagur
í tilefni af alþjóðlega trúarbragðadeginum, sem hald-
inn er viða um heim að tilhlutan SÞ, hefur veriö boðið
-« til opins fundar í Bahá’í miðstöðinni í Reykjavík (Álfa-
bakka 12) á sunnudaginn kl. 16. Þar verður leitast við að
svara spurningunni „Geta trúarbrögðin bætt ástandið í
' heiminum?“. Fulltrúar nokkurra helstu trúarbragða
heims hafa verið fengnir til að fjalla um þetta málefni.
Poppmessa í
Vídalínskirkju
Á sunnudagskvöldið kl. 20.30 verður efnt til popp-
messu í Vídalínskirkju i Garðabæ. 1 messunni mun
hljómsveit spUa en hana skipa Óskar Einarsson, píanó,
PáU Elvar Pálsson, bassi, og Hannes Pétursson, tromm-
ur. Gospelhópur leiðir söng. Sóknarprestur og héraðs-
- prestur þjóna fyrir altari.
Norræna húsið:
Teiknimyndir
og fyrirlestur
Á sunnudaginn verða sýndar þrjár teiknimyndir fyr-
ir böm í Norræna húsinu og hefst sýningin kl. 14. Þetta
* eru sænskar myndir byggðar á þekktum barnabókum
eftir Beppe Wolgers og Olof Landström, Gunnar Berefelt
og Eva Eriksson.
Á sama stað mun danski hönnuðurinn og textUlista-
konan, Hanne Backhaus, flytja fyrirlestur kl. 16. Hún
fjallar um verk sín og hvernig vinna að þrykki, hönnun
og kennslu spUar saman í starfi hennar.
Madama Butterfly
Ólafur Ámi Bjarnason, sem sungið hefúr tenórhlut-
verk sjóliðsforingjans herra Pinkerton í Madama Butter-
fly á fjölum íslensku óperunnar, heldur senn utan tU
annarra verkefna. Einungis eru því fáar sýningar eftir á
Madama Butterfly.
Bíósalur MÍR:
Hinn hrjáði
Áfram er haldið að taka tU í filmusafni MÍR og í janú-
ar og febrúar era sýndar nokkrar gamlar kvikmyndir úr
félagssafninu, myndir sem ýmist hafa ekki áður verið
sýndar eða þá sýndar örsjaldan í MÍR og það fyrir löngu.
Flestar eru þessar kvikmyndir á 16mm filmu og gæði
þeirra þvi lakari en á breiðari filmum sem algengastar
eru á sýningum í bíósal MÍR (35 mm) en ákveðið var að
láta slag standa og er vonað að fólk hafi ánægju af að sjá
þessar gömlu kvikmyndir sem hvergi eru sýndar annars
staðar.
Á sunnudaginn kl. 16 verður sýnd kvikmynd gerð í Úz-
bekistan 1966, Hinn hrjáði. Hún fjallar um atburði sem
gerðust í þessu Mið-Asíuríki á dögum borgarastyrjaldar-
innar um 1920.
Leikstjóri er T. Sabirov. Skýringatal er á ensku.
\
Grískt kvöld í Kaffileikhúsinu:
Vegurinn er
vonargrænn
Nýstárleg dagskrá
verður frumflutt í
Kaffileikhúsinu annað
kvöld. „Vegurinn er
vonargrænn” er yfir-
skrift kvöldsins sem
helgað er gríska ljóð-
og tónskáldinu Mikis
Þeodorakis. Ósvikin
grísk stemning mun
ríkja á þessum kvöld-
um og verður boðið
upp á grískan mat og
vínföng.
Að dagskránni stend-
ur Zorbahópurinn en
hann skipa Sif Ragn-
hildardóttir söngkona,
sem mun syngja
söngva Þeodorakis, Sig-
urður A. Magnússon
rithöfundur, sem mun
kynna tónskáldið og lit-
ríkan æviferil þess,
Eyrún Ólafsdóttir, kór-
stjóri Táknmálskórs-
ins, en hún mun túlka
og „syngja“, bæði söng
og texta á táknmáli, Jó-
hann Kristinsson pí-
anóleikari og Þórður Árnason, sem
mun leika á gítar og bouzouki. Leik-
stjóri er Þórunn Sigurðardóttir en
Kristján Árnason rithöfundur hefur
þýtt ljóðin á íslensku, sérstaklega
fýrir þessa dagskrá.
Mikis Þeodorakis, sem er lista-
Eyrún Ólafsdóttir, Sigurður Á. Magnússon, Þórður
Árnason, Sif Ragnhildardóttir og Jóhann Kristins-
son eru liðsmenn Zorbahópsins. DV-mynd GS
maður sem hrærst hefur i stormi
sinnar samtíðar, er án nokkurs efa
þekktasta og vinsælasta tónskáld
Grikkja á þessari öld. Þekktastur er
hann hérlendis fyrir tónlistina sem
hann samdi við kvikmyndina Zorba.
Höfundasmiðj a
Leikfélags Reykjavíkur
Höfundasmiðja Leikfélags Reykja-
víkur verður opnuð í anddyri Borg-
arleikhússins á morgun kl. 16. Höf-
undasmiðjan er hópur íslenskra
leikskálda sem hyggja á landvinn-
inga i framtíðinni en hafa nú um
nokkurt skeið haft aðstöðu í Borgar-
leikhúsinu til að gera tilraunir með
verk sín ásamt leikurum Leikfélags
Reykjavíkur.
Um er að ræða 17 „unga“ höfunda
og verða verk þeirra kynnt annan
hvern laugardag. Allt eru þetta
smærri verk; einþáttungar, örleik-
rit, bamaleikrit, hreyfiljóð og ein
örópera, svo að eitthvað sé nefnt.
Tilgangur Höfundasmiðjunnar er sá
að þroska hæfni höfundanna,
styrkja tengsl þeirra við leikhúsið
og deila siðan afrakstrinum með
áhorfendum.
Fyrsta verkið sem kynnt verður í
Höfundasmiðjunni er einþáttungur-
inn Grámann. Höfundur er Valgeir
Skagfjörð, sem jafnframt er leik-
stjóri, en leikarar eru Ellert A. Ingi-
mundarson, Jón Hjartarson og The-
ódór Júlíusson. Verkið gerist á bar í
Reykjavík nútímans og
segir frá óvæntum end-
urfundum tveggja
manna.
Aörir höfundar, sem
kynna verk sín í vetur,
eru Anton Helgi Jóns-
son, Benoný Ægisson,
Björg Gísladóttir, Bragi
Ólafsson, Elísabet K.
Jökulsdóttir, Friðrika
Benónýs, Guðlaug Erla
Gunnarsdóttir, Ingi-
björg Hjartardóttir,
Jónína Leósdóttir,
Kristján Krisfjánsson,
Linda Vilhjálmsdóttir,
Súsanna Svavarsdóttir,
Svala Arnardóttir og
Þorgeir Tryggvason.
Þessi íslensku leikskáld eru meðal þátttakenda í
Höfundasmiðjunni.
Fjölmiðlafólk að störfum:
Útvarpsþáttur á Hótel Borg
Þeir sem eiga leið á Hótel Borg leggja hönd á plóginn bæði í tali og
næstu laugardaga geta fylgst með tónum
beinni útsendingu
þeirra Helga Péturs-
sonar og Valgerðar
Matthíasdóttur á rás 2.
Þar sitja þau frá kl.
13-15 og fá til sín gesti
úr ýmsum geirum
menningarlífsins. Yfir
rjúkandi kaffibolla
fylgjast þau með
skemmtilegum listvið-
burðum og fá meðal
annars til sín leikara
sem leika þætti í
beinni útsendingu og
rithöfundar lesa upp og
ræða um bókmenntir Helgi Pétursson og Valgerður Matthíasdóttir „að
auk fjölda annarra sem störfum" á Hótel Borg.