Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1996, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1996
Fréttir
Miskunnarlausar aðfarir átján ára stúlku gegn annarri í árásarmálinu á Akranesi:
Tók í hárið og sparkaði
með hnénu í höfuð hennar
- málið þykir liggja ljóst fyrir og Qórar árásarstúlkur hafa viðurkennt ofbeldi
Öflugt spark átján ára stúlku meö
hné í höfuð sextán ára stúlku frá
Akranesi er talin ástæða þess að
blæddi inn á heila og hún liggur nú
þungt haldin á sjúkrahúsi í Reykja-
vík. Samkvæmt heimildum DV ligg-
ur hins vegar ljóst fyrir að þrjár
aðrar stúlkur frá Akranesi, 15 og 16
ára, tóku þátt í að berja og sparka í
fórnarlambið áður en „stóra högg-
iö“ kom.
DV var á Akranesi í gær og ræddi
við ýmsá sem að málinu koma, m.a.
eina af árásarstúlkunum. Aðdrag-
andinn og ástæða árásarinnar virð-
ist algjörlega óljós og tilefnislaus.
Málavextir eru hins vegar þessir:
Á þriðja tímanum aðfaranótt
laugardagsins fóru árásarstúlkurn-
ar fjórar með þá fimmtu á bak við
hús númer 8 við Kirkjubraut þar
sem verslunin Óson er. Þar upp-
hófst mikið rifrildi sem endaði með
því að stúlkurnar bæði börðu og
spörkuðu í hana. Stúlkan féll og lá í
shævi þöktu grasinu í garðinum.
Ljóst þykir aö þrjár af árásarstúlk-
unum hafi tekið þátt í barsmíðun-
um en sum vitni segja að sú fjórða,
sem er elst og situr enn í gæsluvarð-
haldi, átján ára, var á staðnum.
Á meðan á barsmíðunum stóð var
ungt par á leið fram hjá húsinu.
Þegar fólkið sá hvað var að gerast
brást það við með því að fara inn í
garðinn og stöðva oíbeldið. Fórnar-
lambið náði þá að komast í burtu.
Eftir einhver orðaskipti við parið
hlupu stúlkumar út að Akratorgi,
skammt frá, þar sem þær fundu
Helguvík:
Loðnubræðsla í
desember
DV, Suðurnesjum:
„Það stendur til að byggja
verksmiðjuna á þessu ári og
reiknað með að hún taki til starfa
í desember," sagði Þórður Jóns-
son, rekstrarstjóri SR-Mjöls hf.
Allt gengur samkvæmt áætlun
um byggingu fyrirhugaðrar
loönubræðslu í Helguvík hér á
Reykjanesi í ár. Helguvíkurmjöl
hf. og SR-Mjöl hafa undirritað
samning um lóð í Helguvík og
byggingu þriggja Ioðnutanka sem
eiga að taka samtals 8000 tonn.
-ÆMK
Gunnar Stefánsson, faðir einnar stúlknanna, á Akratorgi í gær þar sem hinn örlagaríki atburður átti sér stað aðfara-
nótt síðastiiðins laugardags. Þeir sem DV ræddi við á Akranesi í gær vegna málsins voru allir verulega slegnir út af
árásinni sem hefur haft ógnvekjandi afleiðingar í för með sér.
DV-mynd GVA
Ein af árásarstúlkunum í viðtali við DV:
Maður er bara í sjokki
„Ég veit ekki hvers vegna þetta
gerðist. Þetta var rifrildi sem eng-
inn tilgangur var með en þetta end-
aði svona. Því verður ekki breytt,"
sagði 15 ára stúlka frá Akranesi í
samtali við DV í gær - ein þeirra
sem áttu hlut að máli þegar ráðist
var á aðra á svipuðu reki með þeim
afleiðingum að hún liggur nú þungt
haldin á sjúkrahúsi.
Stúlkan sagði að rifrildi hefði
upphafist og hefði stúlkan verið
bæði slegin og sparkað í hana.
„Ég vissi ekki af fyrr en stelpurn-
ar voru að sparka í hana við Óson.
Eftir það fór stelpan í burtu.
Nokkru síðar fórum við niður 1 bæ
þar sem við hittum fleiri stúlkur. Þá
kom sú sem var barin og fór að tala
við eina úr hópnum. Síðan voru
þær farnar að rifast. Þar á eftir
gerðust hlutir sem hefði átt að
sleppa - þeir áttu ekki að gerast. Ég
sá þaö ekki en veit samt hvað gerö-
ist. Sú sem gerði það sagði mér
það.“
- Hvers vegna urðu slagsmál?
„Ég veit það ekki. Þetta kemur
bara fyrir.“
- Var þetta eins og í bíómyndun-
um?
„Þetta kemur bara fyrir. Ég hef
ekki skýringu á því. Maður er í
sjokki út af þessu. Þetta átti auðvit-
að ekki að gerast. Ég vona bara það
besta.“ -Ótt
Ragnar Jónsson heldur forsetaframboöi ótrauður áfram:
Það er sparkað í mig
þar sem ég geri góðverk
- fór úr Mývatnssveit frá ógreiddri húsaleigu eftir meira en árs dvöl
Ragnar Jónsson, forsetaframbjóð-
andi og tónlistarkennari, skuldar
enn Skútustaðahreppi húsaleigu eft-
ir dvöl sína í húsnæði hreppsins í
Mývatnssveit í meira en ár á árun-
um 1993 til 1994. Mýtvetningar orða
það svo að hann hafi „farið úr
hreppnum í skjóli nætur og ekki
sést þar síðan". Staöfest er hjá
hreppnum að Ragnar á þar ógreidda
skuld.
„Ég hef ekkert gert af mér í Mý-
vatnssveit. Þetta mál er allt á þá,“
sagði Ragnar í samtali við DV í gær.
Hann rak sunnudagaskóla í Mý-
vatnssveitinni og sinnti þar fleiri
störfum.
Upplognar sakir
Hann sagðist í gær halda ótrauð-
ur áfram við framboð sitt til forseta
og ekki hirða um þótt-sagðar væru
af honum sögur, einkum eftir störf
á landsbyggðinni.
„Þetta eru móttökurnar sem borg-
arbarn fær úti á landi. Þar hef ég
alltaf verið útlendingur,“ sagði
Ragnar. Hann sagði að íbúar Reyk-
hólahrepps heföu komið illa fram
við sig ög logið upp á sig ýmsum
sökum.
„Ég stofnaði tónlistarskóla á
Reykhólum og ég gaf út snældu með
söng samkórsins þar. Þetta hafði
enginn gert áður. En þegar ég kem
og vinn góðverk þá er sparkaö í
mig. Það hafa þeir gert á Reykhól-
um,“ sagði Ragnar.
Hann viðurkenndi að hafa á
Reykhólum verið borinn sökum fyr-
ir að eiga í ástarsambandi við
stúlku undir lögaldri. „Það var ekk-
ert samband okkar á milli. En það
er svona með rógburðinn úti á
landsbyggðinni," sagði Rdgnar.
Fyrir kristindóminn
og lýðveldið
„Ég vissi allaf að það yrði reynt
að sverta mannorð mitt ef ég færi í
forsetaframboð en persóna mín
skiptir engu máli í þessu samhengi.
Ég berst fyrir kristindóminn og lýð-
veldið. Ég er á móti inngöngu í Evr-
ópusambandið. Vegsemd mín skipt-
ir þama engu máli. Það er kristnin
sem máli skiptir," sagði Ragnar.
-GK
fómarlambið á ný, áreittu það og
létu höggin dynja á stúlkunni.
Þegar þarna var komið sögu tók
elsta stúlkan í hár fórnarlambsins
og lét þungt högg vaða í höfuð þess
með hnénu - högg sem talið er vera
ástæða þess að það tók að blæða inn
á heila þeirrar sem varð fyrir því.
Stúlkurnar fjórar skildu hina eft-
ir og var hún þá að sögn orðin tals-
vert vönkuð. Vinkona hennar kom
að henni, fór með hana i bíl og var
henni ekið til læknis sem skoðaði
hana. Lækninum voru hins vegar
gefnar takmarkaðar skýringar á
hvað hafði gerst og var stúlkan því
send heim. Vinkonan fór hins vegar
með stúlkuna upp á heimavist Fjöl-
brautaskólas þar sem hún lagðist út
af og sofnaði. Vinkonan fór síðan út
aftur en um klukkan hálfsex um
morguninn komu krakkar að og
fundu stúlkuna þá liggjandi á dyra-
pallinum við útidyr heimavistar. í
kjölfar þess var læknir látinn vita,
þyrla kölluð út og síðan flogið með
sjúklinginn til Reykjavíkur.
Elsta stúlkan hefur verið úr-
skurðuð í gæsluvarðhald til 4. febr-
úar - ekki vegna rannsóknarhags-
muna heldur vegna afleiðingar
brots hennar. Hinum þremur hefur
verið sleppt úr haldi. Játningar
þeirra liggja hins vegar að verulegu
leyti fyrir í málinu.
-Ótt
Stuttar fréttir
Læknisþjónusta hækkar
Heimsókn til heilsugæslulækn-
is hækkar um 100 krónur og
grunngjald sérfræðiþjónustu hef-
ur verið hækkað um 200 krónur.
Ellilífeyrisþegar fá ekki afslátt af
læknisþjónustu fyrr en sjötugir.
Gallað gen í arf
Samkvæmt nýrri íslenskri
rannsókn má rekja 5-10% brjósta-
krabbameinstilfella til þess að
sjúklingurinn hafi erft gallað gen.
RÚV greindi frá þessu.
Rækjumenn í vafa
Rækjuverkendur á Vestfjörðum
véfepgja mat Þjóðhagsstofhunar á
hagnáði rækjuiönaðarins í byrjun
janúar. Samkvæmt frétt RÚV
telja þeir hráefnisverð miklu
hærra en Þjóðhagsstofnun reikni
með.
Skagamönnum fækkar
Skagamönnum hefur fækkað
um 170 síðustu þrjú ár og nærri
níunda hver íbúð í bænum er til
sölu. Þetta kom fram í Tímanum.
Jólin komin á kortin
Jólareikningar sem kreditkort-
hafar fá um mánaðamótin nema
alls 6,5 milljörðum króna. Það er
12% hækkun frá sama tíma í
fyrra, samkvæmt Mbl.
Fikniefnaráðstefna
ísland hefur verið valið vett-
vangur stórrar alþjóðlegrar ráð-
stefnu um vaxandi fíkniefna-
vanda sem blasir við nær öllum
þjóðum heims. Stöð 2 greindi. frá
þessu.
25 manns í frætínslu
Tuttugu og fimm atvinnulausir
einstaklingar á Austurlandi verða
á næstunni ráðnir til vinnu við
aö tína fræ í Hallormsstaðar-
skógi. Þetta kom fram á Stöð 2.
-bjb