Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1996, Page 3
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1996
3
Fréttir
Sameiningarmál félagshyggjuflokkanna:
Jón Baldvin og Jóhanna
eru ekki sammála
um hvaða flokka eigi að taka með í sameiningarviðræður
„Upphaf málsins var viðtal við
mig í Alþýðublaðinu í síðustu viku.
Þar sagði ég eitthvað á þá leið að
það gæti verið prófsteinn á hver
hugur fylgdi máli í sameiningu jafn-
aðarmanna að sameina þingflokka
Alþýðuílokks og Þjóðvaka. Það er
vegna þess að ekki er uppi ágrein-
ingur milli þessara aðila og sam-
staða með þeim í stórmálum á síð-
asta þingi. Því er rétt að láta á þetta
reyna og það gæti verið fyrsta skref-
ið á lengri leið,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson þegar hann var
spurður hvort Alþýðubandalagið
væri ekki inni í myndinni hjá hon-
um í sameiningu jafnaðarmanna.
Hann nefnir það ekki á nafn varð-
andi sameiningarviðræður í viðtali
við Alþýðublaðið í gær.
Jóhanna Sigurðardóttir, formað-
ur Þjóövaka, segir aftur á móti í
Þjóðvakablaðinu að hún vilji við-
ræður og að eðlilegt sé að Alþýðu-
bandalagið komi inn í myndina.
Þegar Jón Baldvin var spurður
um þennan raun á ummælum hans
og Jóhönnu sagði hann að það væri
enginn ágreiningur kominn þarna
upp því það hefði ekkert á þetta
reynt. Hann sagði að viðræður Al-
þýðuflokks og Þjóðvaka hæfust
mjög fljótlega.
Hann var spurður hvort hann
teldi að þeim Jóhönnu gengi betur
að vinna saman nú en þegar hún
var í Alþýðuflokknum.
„Mér hefur, út af fyrir sig, ekki
gengið illa að starfa með Jóhönnu
Sigurðardóttur. Það var hennar
einkaákvörðun að yfirgefa Alþýðu-
flokkinn á sínum tíma sem ég taldi
misráðið þá. Þar að auki er ég þeirr-
ar skoðunar að persónulegir agnúar
á samstarfi frá fyrri tíð séu aukaat-
riði í þessu máli,“ sagöi Jón Bald-
vin.
Ekki náðist í Jóhönnu Sigurðar-
dóttur í gær. Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir, þingmaður Þjóðvaka,
sagði að það ætti öllum að vera ljóst
að það væri stefha Þjóðvaka að sam-
eina alla jafnaðarmenn undir einn
hatt.
„Það sem Jóhanna reifar í Þjóð-
vakablaðinu eru regnhlífarsamtök,
einn þingflokkur, Þjóðvaka, Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags. Þar með
væri hann orðinn næststærsti þing-
flokkurinn. Það yrði byrjunin,"
sagði Ásta Ragnheiður.
„Út af fyrir sig þykir mér þaö gott
ef þau Jóhanna og Jón Baldvin ætla
að tala saman. Það hins vegar sam-
einar ekki vinstri menn í heild held-
ur bara þau. Þetta breytir þó ekki
því að við alþýðubandalagsmenn
höfum áhuga á að tryggja heildar-
samstöðu félagshyggjuaflanna og
munum vinna að þvi áfram eins og
við höfum gert. Framundan eru hörö
pólitísk átök á vinnumarkaði og það
gæti verið prófsteinn á hvort þessir
flokkar nái saman,“ sagði Svavar
Gestsson alþingismaður. -S.dór
Stórneytendum meðal ungra fíkla hefur fjölgað:
Forvarnirnar eru
orðnar veikari
en dreifikerfið
- segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi
„Það sem hefur gerst er að for-
varnirnar eru orðnar veikari en
dreifikerfi eiturlyfjanna á íslandi.
Þetta sést greinilega af þróuninni á
síðasta ári. Forvarnirnar hafa haft
yfirhöndina síðustu ár en nú snýst
dæmið við og stórneytendum meðal
yngsta fólksins hefur fjölgað um 30
til 40% á árinu,“ segir Þórarinn
Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi.
Þórarinn segir að tölur um inn-
lagnir þar taki af öll tvímæli um að
vandinn fari vaxandi og að nýjum
flklum fjölgi örar en verið hefur frá
því á níunda áratugnum.
„Það sem er að gerast er þróun.
Sölukerfið þróast og það þróast
hraðar en forvarnirnar. Sölumenn-
irnir hafa tekið nýjar og tæknilegri
aðferðir í nötkun. Þetta er aðferðir
sem hafa þróast við sölu á ólöglegu
áfengi. En það skiptir engu hvað
efnið heitir, sölukerfið nýtist jafn
vel. Þetta er bara nútíminn," segir
Þórarinn.
Smitandi tilraunaneytendur
Hann segist enn fremur 'heyra
það frá þeim sem lagðir eru inn á
Vog að nú séu fleiri „tilraunaneyt-
endur“ á fikniefnum en áður. Þetta
er fólk sem enn er ekki svo illa far-
ið að það leiti sér hjálpar en til-
raunaneyslan komi síðar fram með
enn fleiri fíklum. Útlitið fyrir næstu
ár en því ekki bjart.
„Tilraunaneytendurnir eru smit-
andi. Þeir smita út frá sér. Þeir
kynna efnin fyrir félögum sínum.
Sá sem er nýbyrjaður í neyslu er
mest smitandi og það verður því
veldisvöxtur á neyslunni," segir
Þórarinn.
Öllum ber saman um að erfiðustu
efnin nú séu amfetamín og alsæla.
Hassneysla fer einnig í vöxt og
neyslan vex hraðast hjá yngstu ald-
urhópunum. Ungu fólki sem neytir
alsælu reglulega fjölgar ört. Árið
1994 leituðu 10 alsæluneytendur sér
hjálpar á Vogi. Á síðasta ári voru
þeir orðnir 35. Neysla á amfetamíni
vex jafnvel enn hraðar.
Öll ráð verður að nota
Að mati Þórarins er eina ráðið í
stöðunni að auka forvarnirnar í von
um að ná aftur undirtökunum í bar-
áttunni við sölumennina. Það hafi
tekist fyrir nokkrum árum og gæti
enn tekist.
„Það verður að beita öllum ráðum
sem tiltæk eru og umfram allt að
festa sig ekki í einni lausn sem á svo
að duga fyrir alla. Of mikil miðstýr-
ing getur líka verið hættuleg. Það er
lítið hald í forvörnum sem höfða
ekki til annarra en þeirra sem vinna
að þeim,“ sagði Þórarinn. -GK
Endurbætur á aflaskip-
inu Víkingi AK100
DV, Akranesi:
Aflaskipið Víkingur AK 100,
eitt af skipum Haraldar Böðvars-
sonar hf. hér á Akranesi, var í
höfn á dögunum og voru þá gerð-
ar talsverðar endurbætur á skip-
inu. Sett var ný stýrisvél, kraft-
blökk og nýr dekkkrani. Víkingur
verður því fær í flestan sjó þegar
loðnuveiðar hefjast af krafti á ný
en skipið hefur verið meðal afla-
hæstu skipa loðnuflotans á hverju
ári síðustu áratugina. -DÓ
Frá undirskrift samstarfssamnings Kringlunnar og Borgarkringlunnar.
Kringlan og Borgar-
kringlan í samstarf
Forráðamenn Kringlunnar og
Borgarkringlunnar hafa skrifað und-
ir samstarfssamning en viðræður
milli þessara aðila hafa staðið yfir
frá því haustið 1994. Húsfélagið
Kringlan hefur tekið að sér rekstur
eignarhluta Kringlunnar 4-6 hf. í
Borgarkringlunni en um hann hefur
verið stofnað nýtt félag; íslenska
fasteignafélagið ehf.
Hlutafé félagsins er 500 milljónir
króna, þar af eiga fyrri eigendur 1.
og 2. hæðar Borgarkringlunnar 85%
hlutafjár. Breytingar verða gerðar á
húsnæði Borgarkringlunnar. Opnað
verður milli bílastæða á neðri hæð
Kringlunnar og bílakjallara Borgar-
kringlunnar og ný aðkeyrsla verður
tengd inn á annarri hæð bílahúss
Kringlunnar. Þar verður jafnframt
gerður nýr inngangur inn á 1. hæð
Borgarkringlunnar í horðurenda.
Farið verður í þessar framkvæmdir
fljótlega og þeim lokið síðari hluta
arsins.
Breytingar verða gerðar á verslun-
arhúsnæðinu í Borgarkringlunni.
Verslanir verða færðar til og nýjum
bætt við. Sérstakri verkefnastjórn
verður falið að annast og útfæra
breytingar á Borgarkringlunni, teng-
ingar fasteignanna og að leita eftir
nýjum leigutökum. Verkefnastjórn-
ina skipa þeir Ásgeir Bolli Kristins-
son, Jón Pálmi Guðmundsson og
Þorgils Óttar Mathiesen. -bjb
Langholtskirkjudeilan:
Allir aöilar eru búnir að
fá sér lögfræðinga
- eftir að biskupinn sendi þeim bréfið í fyrradag
„Ég sendi presti, organista og
formanni safnaðarstjórnar bréf með
einkaafhendingu og þeir kvittuðu
allir fyrir móttöku þeirra. Þar er
skýrt frá hvert vald biskupsins er í
þessum málum og hvaða afleiðingar
það hefur sé biskupsúrskurði ekki
fylgt. Þeim er svo gefinn frestur til
31. janúar að skila sínum greinar-
gerðum. Þeir eru aflir þrír búnir að
fá þau gögn sem eru hér við emb-
ættið og eru allir búnir að ráða sér
lögfræðinga," sagði herra Ólafur
Skúlason biskup í samtali við DV í
gær.
Að þremenningarnir skuli vera
búnir að ráða sér lögfræðinga þykir
heldur auka vonir um að efnislegt
samkomulag náist. Það er vegna
þess að lögfræðingar þeirra eru
ekki þrúgaðir af því tilfinningaflóði
sem gerir þremenningunum svo
erfitt um vik að ná samkomulagi.
Lögfræðingar þeirra munu túlka og
skilgreina málin öðruvísi.
Ef þeir þremenningar ná ekki
sáttum, sem flestir telja mjög litlar
líkur á, verður næsta skref biskups
að áminna þá. Dugi það ekki til er
því haldið fram, af þeim sem best
þekkja til, að biskup eigi þá ekki
annað ráð en að víkja þeim öllum,
séra Flóka Kristinssyni, Jóni Stef-
ánssyni organista og Guðmundi
Pálssyni, formanni safnaðarstjórn-
ar, úr starfi. Menn segja að eina
vonin til þess að til slíks þurfi ekki
að koma sé að lögfræðingarnir nái
einhverju samkomulagi. -S.dór