Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1996, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1996
Utlönd
Bókin um sjúk-
dóm Mitter-
rands á netinu
Lögregla í Frakklandi heimsótti
í gær netkaffihús þar sem bönnuð
bók um sjúkdóm Mitterrands,
fyrrum forseta Frakklands, var
sett á Intemetið. Lögreglan sagði
heimsóknina þó ekki lið í lagalegri
aðför að kaffihúsinu.
Kaffihúsið, Cafe Web, lét bókina
um Mitterrand á Intemetið í fyrri-
nótt. I bókinni, sem er eftir Claude
Gubler, lækni Mitterraiids, kemur
fram að forsetinn sálugi, sem dó
úr krabbameini 8. janúar, hafi log-
ið til um sjúkdóm sinn í 11 ár.
Viku eftir útkomu bókarinnar var
sett á hana lögbann að beiðni ætt-
ingja Mitterrands á þeirri for-
sendu að hún bryti í bága við lög
um þagnarskyldu lækna og frið-
helgi einkalífsins. Nú getur hver
sá sem hefur aðgang að netinu
nálgast bókina og prentað hana út.
Rúmenskir þjóf-
ar herja á Þjóð-
verja
Hópar innbrotsþjófa frá Rúmen-
íu herja nú á íbúa Bæjaralands og
fleiri Þjóðverja. Bæverska lögregl-
an segir þjófana vera ábyrga fyrir
innbrotum í 226 peninggskápa frá
1994. Alls hafa 113 manns verið
handteknir vegna innbrotanna.
Yfirvöld í Þýskalandi hafa auknar
áhyggjur af innbrotum rúmenskra
þjófaflokka sem einbeita sér að
peningaskápum og rikmannlegum
húsum. Hefur lögreglan i ná-
grannalöndum einnig sögu að
segja af þessum þjófum þó ekki
séu þeir jafn stórtækir og í Þýska-
landi. Reuter
Frakkar styðja
inngöngu Rússa í
Evrópuráðið
Frönsk stjórnvöld lýstu því
yfir í morgun að þau styddu inn-
göngu Rússlands í Evrópuráðið,
þrátt fyrir harkalegar aðgerðir
rússneskra hermanna gegn gísla-
tökumönnum úr liði tsjetsjenskra
uppreisnarmanna á dögunum.
„Flestar Evrópuþjóðir vilja að
Evrópuþingið fallist á aðild Rúss-
lands. Sú er afstaða franskra
stjómvalda,“ sagði Hervé de
Charette, utanríkisráðherra
Frakklands, í viðtali við franska
útvarpið í morgun.
Fastlega er búist við að Evr-
ópuráðið samþykki aðild Rúss-
lands á fundi sínum í dag þótt
það verði gert með semingi. Tvo
þriðju hluta atkvæða þarf til að
aðildin skoðist samþykkt. Reuter
UPPBOÐ
Framhald uppboös á eftirfarandi
eignum veröur háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Brekkuhjalli 2-4, 6-8 og 10-12, þingl.
eig. Austurholt hf., gerðarbeiðendur
Landsbanki íslands og Sparisjóður
vélstjóra, mánudaginn 29. janúar
1996 kl. 15.30.
Grænatún 24, þingl. eig. Sigurður
Stefánsson, gerðarbeiðendur Lands-
banki íslands og Lífeyrissjóður starfs-
manna ríkisins, mánudaginn 29. jan-
úar 1996 kl. 17.00._________
Hafnarbraut 19, þingl. eig. Útgerðar-
félagið Barðinn nf., gerðarbeiðendur
Sýslumaðurinn í Kópavogi og Vá-
tryggingafélag íslands hf., mánudag-
inn 29. janúar 1996 kl. 17.45.
UPPBOÐ
Uppboö munu byrja á skrifstofu
embættisins aö Skógarhlíð 6,
Reykjavík, sem hér segir á eftir-
_______farandi eignum:______
Flétturimi 5 og 7, þingl. eig. þb. Tré-
smiðja Aðalst K. Kristjáns hfbt. Loga,
gerðarbeiðendur Garðar Briem,
Gjaldheimtan í Reykjavík og Guðrún
Jóhannesdóttir, mánudaginn 29. janú-
ar 1996 kl. 10.00.__________
Grenibyggð 18, Mosfellsbæ, þingl.
eig. Sigurbjörg H. Bjarnadóttir og
Bergþór Jónasson, gerðarbeiðendur
Búnaðarbanki íslands, Húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar, Sameinaði líf-
eyrissjóðurinn, Tollstjórinn í Reykja-
vík og Vátryggingafélag íslands hf.,
mánudaginn 29. janúar 1996 kl. 10.00.
Iúngusel 1, íbúð á 1. hæð merkt 0102,
þingl. eig. Guðný Helga Þórhallsdótt-
ir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður
verkamanna, mánudaginn 29. janúar
1996 kl. 10.00._____________
Veghús 31, íbúð á 10. hæð f.m. merkt
1003, þingl. eig. Kristín M. V. Haf-
steinsdóttir og Jón Þór Önundarson,
gerðarbeiðendur Byggingarsjóður
verkamanna, Gjaldheimtan í Reykja-
vík og Vátryggingarfélag fslands hf.,
raánudaginn 29. janúar 1996 kl. 10.00.
Fyrsta mannfallið í gæsluliði NATO í Bosníu:
Þrír hermenn lét-
ust í sprengingu
- bandarískar hersveitir í viðbragðsstöðu
Lækjasmári 11, 0201, þingl. kaup-
samningshafi Bónusverk hf., gerðar-
beiðandi Þrotabú Bónusverks hf.,
Kópavogi, mánudaginn 29. janúar
1996 kl. 14.00. _______________
Melaheiði 21, þingl. eig. Jón Þórarinn
Bergsson, gerðarbeiðandi Sameinaði
lífeyrissjóðurinn, þriðjudaginn 30.
janúar 1996 kl. 14.15.
Nýbýlavegur 14, 010301, þingl. eig.
Ólafur Garðar Þórðarson, gerðarbeið-
endur Byggingarsjóður ríkisins,
Landsbanki Islands, Bankastræti og
Sýslumaðurinn í Kópavogi, þriðju-
daginn 30. janúar 1996 kl. 15.00.
Smiðjuvegur 34, hluti 0101, þingl. eig.
Sólning hf., gerðarbeiðandi íslands-
banki hf., mánudaginn 29. janúar
1996 kl. 13.40.__________________
SÝSLUMAÐURINN f KÓPAVOGI
Veghús 31, íbúð á 3. hæð t.v. í austur-
homi merkt 0301, þingl. eig. Hús-
næðisnefnd Reykjavíkur, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður verkamanna,
mánudaginn 29. janúar 1996 kl. 10.00.
Öldugrandi 1, íbúð merkt 0302, þingl.
eig. Kolbrún Þorkelsdóttir, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður verka-
manna, mánudaginn 29. janúar 1996
kl. ÍO.OP.____________________
SÝSLUMAÐURINN f REYKJAVÍK
UPPBOÐ
Framhald uppboös á eftirfarandi
eignum veröur háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Frostafold 131, íbúð á 3. hæð merkt
0303, þingl. eig. Bryndís Erna Garð-
arsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingar-
sjóður verkamanna, mánudaginn 29.
janúar 1996 kl. 14.30.
Laufengi 64, hluti í íbúð 03-04, þingl.
eig. Lára H. Andrésdóttir, gerðarbeið-
endur Ingólfur Sigurjónsson, Toll-
stjóraskrifstofa og Tryggingamiðstöð-
in hf., mánudaginn 29. janúar 1996 kl.
13.30.____________________
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Tveir portúgalskir hermenn og
einn ítalskur týndu lífi í sprengingu
í Sarajevo í gær. Það voru fyrstu
dauðsföllin í hersveitum NATO frá
því þær tóku að sér friðargæslu í
Bosníu, í samræmi við friðarsam-
komulagið sem gert var í Dayton.
Sex ítalskir hermenn og einn
portúgalskur til viðbótar slösuðúst í
sprengingunni sem varð af slysni.
Sprengingin varð aðeins nokkrum
klukkustundum eftir að bandarískar
hersveitir voru settar í viðbragðs-
stöðu af ótta við árás skæruliða. At-
burðir þessir eru þó ekki tengdir á
neinn hátt.
Sprengingin varð á fyrrum fæð-
ingardeild sem ítölsku gæsluliðarnir
hafa til afnota nærri Zetra-leikvang-
inum þar sem keppt var í listdansi á
skautum á vetrarólympíuleikunum
1984.
Þrír menn úr frönsku útlendinga-
herdeildinni særðust einnig í
annarri sprengingu í Bosníu í gær,
þar af einn alvarlega. Mennirnir
voru að læra meðferð sprengiefna
þegar ein sprengjan sprakk, að því
er fram kom í yfírlýsingu franska
hersins.
William Perry, landvamaráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að her-
sveitir NATO hefðu fengið leyfi til að
handsama bandarískan ríkisborg-
ara, Kevin Holt, sem kann að vera í
Bosníu. Holt hefur átt samneyti ,við
róttæka hópa múslíma.
„Hann er eftirlýstur í Bandaríkj-
unum þar sem yfirvöld vilja yflr-
heyra hann vegna hryðjuverkastarf-
semi. Þess vegna tökum við það mjög
alvarlega að hann skuli vera í land-
inu og höfum beðið hersveitir um að
vara sig sérstaklega á honum. Ef
hann sést verður hann handtekinn,"
sagði Perry í viðtali við sjónvarps-
stöðina CNN.
Perry sagði fréttamönnum þó að
engar sannanir væru fyrir þvi að
öfgamenn væru að skipuleggja árás
eða að þeir hefðu reynt að komast
inn í bandarískar herstöðvar í Bosn-
íu.
Reuter
Stoltur brúðgumi reiðir brúði sína á skellinöðru eftir hjónavígsluathöfn í Mekong Delta í suðurhluta Víetnam í gær.
Vestrænir brúðkaupssiðir verða æ vinsælli í Víetnam. Hafa þeir einnig náð til afskekktra byggða þar sem víða verð-
ur vart mikillar fátæktar. Símamynd Reuter
Simpson í sjónvarpsviðtali:
Réðst að ættingjum
fórnarlambanna
O.J. Simpson réðst harkalega að
ættingjum fyrrum konu sinnar og
elskhuga hennar í sjónvarpsviðtali
á kapalsjónvarpsstöð í Bandaríkjun-
um í gærkvöldi. Þau voru myrt í
júní 1994 og var Simpson var ákærð-
ur fyrir morðin en kviðdómur sýkn-
aði hann í október sl. Eftir sýknuna
höfðuðu ættingjar fórnarlambanna
einkamál gegn Simpson og á hann
skaðabótagreiðslur upp á milljarða
króna yfir höfði sér.
Simpson sagði að leitin að morð-
ingjum konu sinnar og vinar henn-
ar væri erfið en eftir sýknuna sagð-
ist hann ætla að helga sig leitinni að
þeim. Hann sagðist þó einungis hafa
ráð á nokkrum einkaspæjurum þar
sem tekjur hans væru rýrar eftir
morðmálið. Margir efast þó um að
Simpson geri alvöru úr leitinni að
morðingjunum.
í viðtalinu beindi Simpson ekki
aðeins ásökunum gegn ættingjum
fórnarlambanna heldur einnig fjöl-
miðlum sem hann sagði að hefðu
snúið almenningi gegn sér. Simpson
svaraði þó engum áleitum spurning-
um um hvar hann hefði verið morð-
nóttina fyrir hálfu öðru ári eða,
óþægilegum spurningum um réttar-j
O.J. Simpson réðist harkalega að
ættingjum fyrrum konu sinnar í
sjónvarpsviðtali.
höldin. Lögmenn aðstandenda fórn-
arlambanna sögðu viðtalið hneyksli
og til þess eins, að fegra ímynd
Sjjinpíjþps. Reuter
Stuttar fréttir
Gíslum sleppt
Uppreisnarmenn Tsjetsjena
slepptu 42 gíslum sínum í gær
en þeir eru enn með 14 rúss-
neska lögregluþjóna í haldi.
Clinton á vegum úti
Bill Clinton
Bandaríkjafor-
seti lagði upp 1
kosninga-
ferðalag I gær
til að nýta sér
þann meðbyr
sem hann fékk
í seglin eftir
stefhuræðuna
og ætlar hann að leggja áherslu
á aðgerðir til að stemma stigum
við glæpum í landinu.
Engin lausn
Engin lausn á stjórnarkrepp-
unni á Ítalíu er í sjónmáli eftir
sjónvarpseinvigi Silvios
Berlusconis og Massimos D’Al-
emas, sem landsmenn biðu eftir
með öndina í hálsinum.
Vill þjóðaratkvæði
Emesto Samper, forseti Kól-
umbíu, vill efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um hvort hann
eigi að gegna embættinu áfram
en hart er nú sótt að honum að
i segja af sér. Reuter
•*i óij •v> ■■ i