Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1996, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1996
9
Utlönd
Chirac í sveit-
ina til að
hlusta á gras-
rótina
Jacques
Chirac Frakk-
landsforseti
lagði í gær
upp í þriggja
daga ferð um
sveitir vestur-
lands til þess
eins að hlusta
á umkvartanir
hins venjulega manns, sem for-
setinn hefur löngum talið vera
bakhjarl sinn. Þaö sem Chirac
hefur einkum áhuga á að heyra
um er hvemig gangi að skapa
ný störf.
Chirac, sem nýtur ekki sér-
lega mikilla vinsælda meöal
landa sinna, hefur sagt í einka-
samtölum að honum finnist
hann vera einangraður í forseta-
höllinni, umkringdur stjórn-
málamönnum, embættismönn-
um og fjölmiðlamönnum, og því
sé erfitt fyrir hann að þreifa á
slagæð þjóðarinnar sjálfrar.
Suður-afrískur
bær segist eiga
eigið skrímsli
Ógurleg vatnaskrimsli eru
víðar til en í Loch Ness á
Skotlandi, ef marka má fullyrð-
ingar kaupsýslumanns i bænum
Howick í Suður-Afríku. Hann
segir að innan tíðar verði birtar
upplýsingar um ófreskju bæjar-
ins, upplýsingar sem muni setja
allt á annan endann.
Kaupsýslumaðurinn Bob
Teeney sagðist fyrst hafa séð 20
metra langa ófreskjuna í októ-
ber við foss í nágrenni bæjarins.
„Þetta var eins og Loch Ness
skrímslið," sagði Teeney. „Á
næstu tveimur til þremur vik-
um vikum munum við birta
gögn sem sanna tilvist Howick-
skrímslisins.“
Lögregla bæjarins var heldur
vantrúuð og sagði þetta aðeins
vera auglýsingabrellu. „Þetta er
bara brella til að laða að ferða-
menn. Það er ekkert skrímsli til,
eftir því sem við best vitum,“
sagði varðstjóri í lögreglunni
sem vildi ekki láta nafhs síns
getið. Reuter
Fyrirsæta sýnir hér nálapúðakjól eftir spænska hönnuðinnn Paco Rabanne
en hann sýndi vor- og sumartískuna í París í gær. Símamynd Reuter
Vanfæra tíu ára
stúlkan er fundin
Lögreglan í Houston í Texas
handsamaði í gærkvöldi tíu ára
gamla ófríska stúlku sem hafði
strokið að heiman á sunnudag og
sem yfirvöld í bæði Bandaríkjunum
og Mexíkó leituðu að. Stúlkan er
komin átta og hálfan mánuð á leið.
Samkvæmt frétt sjónvarpsstöðvar
í Houston var 22 ára gamall kærasti
stúlkunnar einnig í haldi lögreglu
en á þriðjudag var hann ákærður
fyrir alvarlega kynferðisárás á
bam. Hjúin voru handsömuð eftir
að lögreglan fékk ábendingu um
dvalarstað þeirra.
Stúlkan, sem heitir Cindy Garcia,
var sögð vera við góða heilsu. Hafm
var leit að henni þar sem hún er
sennilega of ung til að geta fætt
bam á venjulegan máta og var líf
hennar því í hættu.
Lögreglan hafði gert yfirvöldum í
Mexikó viövart þar sem talið var að
stúlkan kynni að hafa elt kærastann
til Mexíkó þaðan sem þau era bæði.
Reuter
Forsætisráöherra Póllands fer frá:
Segi af mér af því
að eg er
Jozef Oleksy, forsætisráðherra
Póllands, sagði af sér í gærkvöldi
vegna staðhæfinga um að hann
hefði lagt stund á njósnir fyrir
stjórnvöld í Moskvu.
Afsögnin fylgdi í kjölfar þeirrar
ákvörðunar saksóknara hersins að
hefja formlega rannsókn á fullyrð-
ingum öryggissveita landsins um að
Oleksy hefði njósnað fyrir Moskvu
á níunda áratugnum og fram á
þennan.
Oleksy, sem er fyrrum kommún-
isti, vísaði þó öllum ásökunum á
bug og sagði þær rúnnar undan riij-
um stuðningsmanna Lechs Walesa,
fyrrum forseta.
„Ég segi af mér af því að ég er
saklaus. Ég vil ekki láta saka mig
um að reyna að fela eitthvað með
því aö skýla mér á bak við hátt emb-
saklaus
Jozef Oleksy, fráfarandi forsætis-
ráðherra. Símamynd Reuter
ætti lýðveldisins," sagði Oleksy í
sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar.
Flokkur Oleksys, sem í eru fyrr-
um kommúnistar, hefur lýst yfir
stuðningi sínum við forsætisráð-
herrann fráfarandi. Hið sama hefur
gert Alexander Kwasniewski, sem
sigraði Walesa í forsetakosningun-
um í nóvember. Reuter
■
ÞESSA VIKU
10-70% AFSLÁTTUR
LJOS OG
LAMPAR
Söngkonan Madonna i Argentinu þar sem hún leikur Evitu Peron:
Óttast að hún verði
fyrir árásum peronista
Það útleggst sem Madonnu burt, lifi
Evita. Ekki er vitað til að Antonio
Banderas eða Jonathan Pryce, sem
leika á móti Madonnu, hafi fengið
viðlíka hótanir en einn þingmaður
peronista vill að leikararnir verði
allir yfirlýstir „persona non grata“
eða óvelkomnir.
Madonna sagði í viðtali við
argentínskt tímarit að peronistar
þyrftu ekki að hafa áhyggjur af að
ímynd Evitu biði hnekki í mynd-
inni með því að gefa í skyn að hún
hafi verið vændiskona áður en hún
sneri sér að leiklist og að hún hafi
beitt kyntöfrum sínum til að stjórna
Juan Peron hershöfðingja og argent-
inskum almenningi. „Þetta verður
ekki hneykslanlegt. Ég mun túlka
Evitu sem sterkan einstakling og
persónuleika," sagði Madonna.
Evita dó úr krabbameini árið
1952, 33 ára að aldri. Umhyggja
hennar fyrir fátækum verkamönn-
um varð að persónuleikadýrkun
sem enn þrífst vel í Argentínu og
hefur gengið svo langt að margir að-
dáendur hennar hafa krafist að
Vatíkanið geri hana að dýrlingi.
Andstæðingar Evitu innan valda-
stéttarinnar litu hins vegar á hana
sem djöful í mannsmynd sem blóð-
mjólkaði sjóði ríkisins til að kaupa
sér vinsældir meðal verkamanna og
samtaka þeirra. Madonna segir hins
vegar að þessar þverstæður varð-
andi Evitu geri hana að mjög spenn-
andi viðfangsefni en sjálf hefur
Madonna verið umdeild vegna kyn-
ferðislegra atriða á tónleikum.
Reuter
Ótttast er um öryggi Madonnu í
Argentínu.
Carlos Menem, forseti Argentínu,
fyrirskipaði að söngkonan Madonna
fengi sérstaka vernd eftir að leyni-
þjónustcm hafði varað við töluverð-
um líkum á að þjóðernissinnar í
Peronistaflokknum mundu ráðast á
hana. Madonna er nú í Argentínu
þar sem hún vinnur að gerð kvik-
myndar sem gerð er eftir hinum
vinsæla söngleik um þjóðardýrling-
inn Evitu, seinni eiginkonu Juans
Perons sem var forseti Argentínu
1946-1955 og 1973-1974.
Lögreglan og framleiðendur
myndarinnar vildu ekki gera of
mikið úr aukinni öryggisgæslu en
móttökurnar við komuna til Argent-
ínu þóttu engu að síður gefa tilefni
til að varlega yrði farið. Mikið
veggjakrot mætti Madonnu þar sem
sagði: „Madonna out!! Viva Evita.“